Vísir - 01.06.1978, Side 10

Vísir - 01.06.1978, Side 10
10 Fimmtudagur 1. júni 1978 vism VÍSIR Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davið Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulllrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund- ur Pétursson. Umsjón með helgarblaði: Árni Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind Ásgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jóns’son, Guðjón Arngrimsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónína Mikaelsdóttir, Katrín Pálsdóttir, Kjartan Stefáns- son, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson, Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Björgvin Pálsson, Jens Alexandersson. Utlitog hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8. simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Jlitstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 2000 á mánuði innanlands. Verð i lausasölu kr. 100 eintakið. Prentun Blaðaprent h/f. SLÆMAR HORFUR Rikisstjórnin náði ekki tilætluðum árangri með opn- unarleik sínum i kjaramálunum. Henni tókst ekki með tilslökunum á verðbótaskerðingunni að koma aftur á eðlilegu ástandi á vinnumarkaðnum. Og kosningasigur stjórnarandstöðuf lokkanna í sveitarstjórnarkosningun- um hefur gefið þeim pólitískan styrk til þess að halda rikisstjórninni í úlfakreppu fram yfir þingkosningar. Verkfallsaðgerðirnar nú eru fyrst og fremst þáttur í sókn stjórnarandstöðunnar gegn ríkisstjórninni. Það er barnaskapur einn að loka augunum fyrir þeirri stað- reynd. Fram til þessa hefur ástandið verið einna líkast þrátef li. Litlu hefur mátt muna að verkalýðshreyf ingin færi flatt á þessum aðgerðum, en eftir kosningarnar á sunnudaginn hefur hún óneitanlega undirtökin. Það er því komin upp alveg ný staða, sem gerir skák- ina meira spennandi. úrslit þingkosninganna eru að vísu ráðin í öllum aðalatriðum. En þessi afdráttarlausa niðurstaða sveitarstjórnarkosninganna og þá ekki síst fall meirihlutans í Reykjavík hef ur breytt aðstöðu f lokk- anna til stjórnarmyndunar að kosningum loknum. Og þegar allt kemur til alls er það stjórnarmyndunin, sem mestu máli skiptir. Leiðtogar stjórnarf lokkanna hafa lagt á það áherslu, að þeir gengju til kosninga með óbundnar hendur um áframhaldandi stjórnarsamstarf. Þeir hafa á hinn bóg- inn ekki útilokað, að stjórnin sitji áfram. En sveitar- stjórnarkosningarnar tóku af skarið um þetta. Ríkis- stjórnin hefurekki lengur það pólitíska áhrifavald, sem nauðsynlegt er til þess að takast á við aðsteðjandi efna- hagsvanda. i raun og veru er því það álitaefni úr sögunni, hvort þessi ríkisstjórn situr áfram eða ekki. Spurningin er sú, hvernig ríkisstjórn verður mynduð að loknum þingkosn- ingunum. Engum vafa er undirorpið að sterkasta ríkis- stjórn sem völ er á við núverandi aðstæður er samstjórn Sjálfstæðisflokks, Alþýðubandalags og Alþýðuflokks. En sveitarstjórnarkosningarnar hafa einnig breytt möguleikum á myndun ríkisstjórnar af þessu tagi. Al- þýðubandalagið hefur eflst verulega og Sjálfstæðis- f lokkurinn veiksttil muna. Sú aðstaða hlýtur að torvelda samvinnu þeirra. Aframhaldandi harka stjórnarand- stöðuflokkanna í verkfallsaðgerðum styrkir þá í upp- gjörinu sem fram fer á kjördag, en verður þeim f jötur um fót, þegar leysa á vandamálin að kosningum loknum. Sannleikurinn er sá, að óbreytt verðbótakerf i á laun samrýmist ekki því markmiði að vinna bug á verðbólg- unni. Breytt vísitölukerfi er ekki eina lausnin, en óneitanlega einn þáttur í viðnámsaðgerðum gegn verð- bólgunni. Við mismunandi aðstæður hafa forystumenn allra flokkanna viðurkennt þá staðreynd. Sú ákvörðun stjórnarandstöðuf lokkanna að láta verkalýðsfélögin halda áf ram útf lutningsbanni og skella á yf irvinnubanni styrkir þá f yrir þingkosningar, en veik- ir þá að þeim loknum. Þeir verða um of bundnir af óraunhæf um striðsæsingi á lokastigi kosningabaráttunn- ar, og geta þvi ekki ef tir kosningar tekið þátt i að höggva að rótum efnahagsmeinsemdarinnar. Þó að þessar nýju aðstæður haf i hleypt meiri spennu í hina pólitisku refskák eru þær alvarlegar að því leyti, að horfurnar á því að mynduð verði stjórn, sem getur endurreist efnahagskerfið og komið á jafnvægi, eru minni eftir en áður. Leiðtogafundur NATO-ríkja i Washington: Frá fundi Atlantshafsbandalagsins i Washington. Vfsismynd: ESJ. Einar Agdstsson „Ekki meiri harka í samskiptum austurs og vesturs en oft áður" segir Einar Ágústsson utanríkisróðherra Einar rœðir við Kurt Waldheim í New York ó morgun Frá Elíasi Snæland Jónssyni fréttamanni Vísis i Washington i morgun: Einar Agústsson utanrikis- ráðherra kemur heim til Is- lands á laugardagsmorgun eftir að hafa átt fund með Kurt Waldheim framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna i New York á föstudaginn. Frá Washington fór utanrikisráð- herra i gærkvöldi strax að loknum fundi æðstu manna NATO-rikjanna. ESJ/-KS Frá Elíasi Snæland Jónssyni fréttamanni Visis í Washington í morgun: „Mér hefur ekki fundist að meiri harka væri i samskiptum austurs og vesturs nú en áður”, sagði Einar Agústsson utan- rikisráðherra er blaðamaður Visis i Washington spurði hann um þau þungu orð sem faliið hafa siðustu dagana hér vestra um afstöðu Sovétrikjanna tii hernaðar og alþjóðamála. „Ég hef þá tilfinningu ein- dregna aö Saltviðræðurnar gangi vonum framar og þeir eru þegar farnir að tala um þriðja áfanga þeirra viðræðna sem taka á við þegar niðurstöður hafa náðst i öðrum áfanga en hann stendur nú yfir”, sagði Einar. Hann benti meðal annars á að Cyrus Vance utanrikisráðherra Bandarikjanna og Gromiko ut- anrikisráðherra Sovétrikjanna hefðu þegar ræðst við i samtals lSklukkustundir siöustu dagana og enn frekari viðræður væru væntanlegar. Þá hefði sér fund- ist ræða Gromikos á Alsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna fyrir nokkrum dögum mun miidari en hann hefði átt von á. Leiðtogafundi NATO lauk með sameiginlegri yfirlýsingu siðdegis i gær að staðartima hér i Washington og Jimmy Carter forseti Bandarikjanna gerði grein fyrir niðurstöðunum á sérstökum blaöamannafundi. Einu erfiðleikarnir sem hafa orðið við gerð yfirlýsingarinnar snertir þá málsgrein sem fjallar um málefni Grikkja og Tyrkja en deilá þeirra setti nokkurn svip á þennan fund. Einar Agústsson sagði að það hefði verið eina deilan innan banda- lagsins sem fram hefði komið a fundinum. I heild hefði sér þótt fundurinn nú einkennast af meiri beinum samtölum en minna hefði verið um flutning langra skrifaðra ræðna en oftast áður á þeim 14 ráðherrafundum NATO sem hann hefði setiö. ESJ/-KS William Rees-Mogg: The Reigning Error — The Crisis of World Inflation, Hamish Hamilton 1974, 112 bls., 800 kr. (hjá Bóksölu stúdenta). „Kórvilla mannkynsins er að sætta sig ekki við þau skilyröi, sem sett eru fyrir lifsgæöunum,” sagði dr. Samuel Johnson árið 1751. Þessi orð valdi William Rees-Mogg, ritstjóri brezka stór- blaðsins „The Times”, að eink- unnarorðum hinnar vel skrifuðu og skemmtilegu bókár sinnar, Kórvillu mannkynsins („The Reigning Error”). Bókin er um verðbólguna i vestrænum iðn- rikjum síðasta áratuginn. Hún er honum áhyggjuefni eins og flest- um upplýstum og frjálslyndum lýðræðissinnum. Kenningar hans um veröbólguna eru i rauninni fjórar: að veröbólgan sé óhófi mannanna að kenna, aö hagfræðileg orsök hennar sé óhófleg aukning peningamagns, aðsiöferðileg afleiðing hennar sé almenn lausung. jafnvel fall lýð- ræðisskipulagsins, og að tak- marka beri aukningu peninga- magns og taka upp aftur gullfót- inn i alþjóðaviðskiptum. Versti löstur mannkynsins, sú „kórvilla” þess, sem dr. Johnson kallaði svo, er að kunna ekki tak- markanir sinar, brjóta leikreglur lifsins, reyna að sækja eldinn i greipar guðanna eins og Gengið á reka r A Hannes Hálmsteinn Gissurarson skrifar um erlendar | baekur Prómeþeifur. Frásögnin frá Babelsturninum i Gamla testa- mentinu er um þennan löst. Grikkir hin'r fornu kölluðu hann „hybris” ofmetnað, hroka, dramb. Adolf Hitler var ein hold- tekjá hans, honum héldu engin bönd, hann var hamslaus. Lögin eru nauðsynleg til að temja mennina og hemja, árangur næst einungis i lifinu með sjálfsaga og siðun. Tilveran breytist i óskapn- að (kaos), ef hún er ekki skorðuð, ef hún er ekki bundin við reglur. Rees-Mogg telur verðbólguna til marks um þennan gamla löst mannkynsins, óhófið, hams- leysið. Verðbólgan er jafngömul peninganotkuninni: Á dögum Alexanders mikla frá Makedóniu, rómversku hermannakeisar- anna, og ibúa Weimarlýðveldis- ins þýzka varð sú sifellda verð- rýrnun peninga (eða verðhækkun vöru), sem við köllum „verðbólgu”. Hvað veldur slikri verðrýrnun peninga? Aukning peningamagnsins umfram aukn- ingu vörumagnsins (en peningar eru auðvitað ekki annað en ávis- anir á vörur eða lifsgæði) — með öðrum orðum það, að leikreglur atvinnulifsins eru brotnar, aukn- ing peningamagnsins er óhófleg. Hvernig eykst peningamagnið? Og hvers vegna? Það eykst með útgáfu myntar og seðla og aukn- ingu láneyris bankanna (þ.e. bankainnistæðna, sem ekki eru bundnar til mjög langs tima og eru taldar til peninga) — nema þegar fjársjóðir finnast eins og persnesku keisaranna og Inkanna og Aztekanna i Vesturheimi, peningamagnið jókst auðvitað, þegar þeim var komið i umferð. Rikið eykur peningamagnið vegna þess að það þarf peninga, sem það getur ekki aflað sér á

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.