Vísir - 21.06.1978, Page 19
vism Miövikudagur 21. júni 1978
19
Þeir sem horfa hér framan i okkur á myndinni eru umsjónarmenn
þáttarins „Hvaö á hann aö heita?”, Hjálmar Arnason til vinstri og
Guömundur Arni Stefánsson til hægri. Maöurinn sem snýr i okkur
hnakkanum er hins vegar hinn dularfulli gestur frá feröaskrifstofunni
Farsótt.
Hvoð ó hann
að heita?
//Hvað á hann að heita?"
nefnist þáttur fyrir ungi-
inga í umsjón Guðmundar
Árna Stefánssonar og
Hjálmars Árnasonar, sem
er á dagskrá útvarps
klukkan átta í kvöld.
„Helmingur þáttarins i kvöld
veröur um pólitik” sagöi Hjálm-
ar, er viö báöum hann að segja
okkur dulitið frá þætti þéirra
félaga. „Við fáum unga fulltrúa
frá stærstu þingflokkunum til að
koma og svara nokkrum spurn-
ingum um stjórnmál. Þeir verða
meðal annars spurðir aö þvi,
hvers vegna þeir hafi farið lit i
pólitik, hvort þeim finnist aö ætti
að lækka kosningaaldurinn, og
hvaða afstöðu þeir hafi til at-
vinnutækjanna, reksturs þeirra
og eignaraðildar. Einnig hringj-
um við i fólk úti i bæ, og leggjum
fyrir það nokkrar spurningar, svo
sem hvaö pólitik sé, og hver sé af-
staða þess til þeirrar hugmyndar
aö kosningaaldur verði lækk-
aður.”
Ferðaskrifstofan Farsótt
kynnt
„Þá komum við að föstu efni
þáttarins” sagði Hjálmar. „Það
er þá fyrst lagakeppnin Fimm á
toppnum, og að henni lokinni
kemur leynigestur i heimsókn.
Loks kemur maður frá ferða-
skrifstofunni Farsótt og kynnir
starfsemi sina. I lok þáttarins
lesum við úr nokkrum bréfum frá
hlustendum, og veljum úr tillög-
um þeirra nafn á þáttinn.”
Þátturinn i kvöld veröur sá
fjóröi i þessum flokki, en hann
mun verða á dagskrá einu sinni i
viku, að minnsta kosti út sumar-
ið. „Ætlun okkar er aö reyna að
taka fyrir i hverjum þætti ein-
hverja stórviöburði, sem snerta
unglinga á einhvern hátt” sagði
Hjálmar. „Tilgangur okkar er sá
aö vekja ungt fólk til umhugsunar
um ýmis málefni, sem þaö mundi
ef til vill annars gefa litinn
gaum.”
—AHO
Frœgs
langhlaup-
ara bíður
fangelsi
í Kenýa
I iþróttaþætti útvarpsins I
kvöld ræðir Hermann
Gunnarsson, fréttaritari, viö
Stefán Ingólfsson, nýkjörinn
formann Körfuknattleiks-
sambands tslands.
Einnig mun Hermann tala
um þróun mála i Heims-
meistarakeppninni i knatt-
spyrnu. „Þá mun ég segja
frá langhlaupara frá Kenýa,
sem er merkilegur fyrir
margra hluta sakir” sagði
Hermann er við ræddum við
hann. „Langhlaupari þessi
hefur sett hvert heimsmetið
á fætur öðru, en hans biður
fangelsi i Kenýa vegna þess
aö hann neitaði að gegna þar
herskyldu. Hann æfir i
Bandarikjunum, og hefur nú
ákveöið að setja nokkur
heimsmet i viöbót, en snúa
siðan aftur til heimalands
sins og stinga sér i fangelsi i
tilskilinn tima.”
Hermann Gunnarsson,
fréttaritari, sér um Iþrótta-
þátt I útvarpinu i kvöld.
Hringborðsumræður
verða haldnar í sjónvarps-
sal í kvöld klukkan 21.20,
og verður þar um að ræða
síðasta umræðuþátt sjón-
varpsins fyrir alþingis-
kosningar. Þátttakendur
verða þeir Benedikt Grön-
dal, Geir Hallgrímsson,
Lúðvík Jósefsson, Magnús
Torfi ólafsson og Olafur
Jóhannesson, formenn
þeirra stjórnmálaf lokka,
sem bjóða fram um allt
land. Stjórnandi umræðn-
anna verður ólafur
Ragnarsson.
(Smáauglysingar — simi 86611
J
Verslun
Pocketbækur,
enskar og danskar. Landsins fjöl-
breyttasta úrval. Bókaverslun
Njálsgötu 23. Simi 21334.
Versl. Leikhúsið,
Laugavegi 1. Simi 14744 Fischer
'Price leikföng I miklu úrvali m.a.
bensinstöðvar, búgarður, þorp,
dúkkuhús, spitali, plötuspilari,
sjónvarp, skólabill, flugvél, gröf-
ur, simar, skólahús, og margt
fleira. Póstsendum. Verslunin
Leikhúsið, Laugavegi 1. simi
14744.
Buxur kr. 1000,
flauelsjakkar og gailajakkar kr.
2000.-
Buxur, margar gerðir, þar með
gallabuxur og smekkbuxur kr.
1000. Flauelsjakkar og gallajakk-
ar kr. 2000. Skyndisala alla þessa
viku. Aðeins. Fatasalan,
Tryggvagötu 10.
Reyrhúsgögn,
körfustólar, taukörfur, barna-
körfur, brúöukörfur, hjólhesta-
körfur, bréfakörfur og blaðakörf-
ur. Körfugeröin Ingólfsstræti 16,
Blindraiðn.
~fi» 06
7-
Barnagæsla
Halló ég
er 2ja mánaða. Er ekkí eínhver
góðkonasem næstBárugötu, sem
vill passamig á meðan mamma
er aö vinna? Uppl. i sima 24722.
Tapað-fundið
Tapast hefur
grænn páfagaukur frá Kapla-
skjólsvegi 3. Þeir sem upplýsing-
ar geta veitt um hann hringi I
sima 18494.
Maöurinn sem
tók brúna tösku merkta Jóni
Sigurössyni, Bólstaöarhlið 50, úr
gáminum við Akraborgina mið-
vikudaginn 14/6 er beðinn að skila
henni á afgreiöslu Akraborgar
Tryggvagötu 8 sem fyrst.
Fasteignir 1
LltH einstaklingsibúö
óskast til kaups. Milliliðalaust.
Kjallaraibúö kemur ekki til
greina. Uppl. i sima 36148 kr.
21—23.
4ra herbergja
ibúð I þribýlishúsi að Vesturgötu
25, Akranesi er til sölu. Uppl. I
sima 93—2246.
Sumarhús til
leigufrá 1. júli. V/Þingvallavatn.
Tilboð merkt „Veiðileyfi” sendist
auglýsingadeild blaösins I siöasta
lagi á fimmtudaginn.
iTil bygging
Litiö notaö mótatimbur
til sölu. 1550 m af 1x6” og 210 m af
uppistöðum. Uppl. i simum 44027
og 50171.
iDýrahald______________,
Til sölu
hvitur 2 mánaða kjölturakki.
Uppl. i sima 96-22716.
2 kanarifuglar
til sölu ásamt búri. Uppl. I slma
76764 eftir kl. 8 á kvöldin.
Litia sæta bliölynda
læðu vantar heimili. Slmi 14381.
Tapast hefur
páfagaukur, grænn meö rauöan
haus, getur talað. Finnandi góð-
fúslega hringi I sima 26628.
Feröafóik athugiö
Gisting (svefnpokapláss) Góö
eldunar- og hreinlætisaöstaöa.
Bær, Reykhólasveit, slmstöð
Króksfjaröarnes.
r---------^
Tilkynningar
Bahamaeyjar.
Ertuorðin(n) leið(ur) að fara aft-
ur og aftur á sömu eöa svipaöa
staöi I vetrar- eða sumarleyfiö?
Hvernig væri að prófa eitthvað
nýtt? Nú gefst kostur á aö fá leigð
skemmtileg hús á dásamlegri
litilli eyju I Bahamaeyjaklasan-
um á mjög hagstæöu veröi Uppl. I
slma 42429.
Spái i spil
og bolla I dag og næstu daga.
Hringið I sima 82032. Strekki
dúka.
\
Vantar þig vinnu?
Þvi þá ekki að reyna smáauglýs-
inguIVisi? Smáaugiýsingar VIsis
bera ótrúlega oft árangur. Taktu
skilmerkilega fram.hvað þú get-
ur, menntun og annaö, sem máli
skiptir. Og ekki er vist, að það
dugi alltaf aö auglýsa einu sinni.
Sérstakur afsláttur fyrir fleiri
birtingar. Visir, auglýsingadeild,
Siðumúla 8, simi 86611.
Steypuvinna.
Steypum innkeyrslur og bilastæði
og leggjum gangstéttir. Simar
74775 Og 74832.
Avallt fyrstir.
Hreinsun teppi og húsgögn meö
háþrýstitækni og sogkrafti. Þessi
nýja aðferö nær jafnvel ryði,
tjöru, blóöio.s.frv. úr teppum. Nú
eins og alltaf áður tryggjum viö
fljóta og vandaða vinnu. Ath:
veitum 25% afslátt á tómt hús-
næði. Erna og Þorsteinn, simi
20888.
Klæöi meö áli,
stáliog járni. Geriviö þökog ann-
ast almennar húsaviögeröir. Simi
13847.
Smáauglýsingar Visis.
Þær bera árangur. Þess vegna
auglýsum viö Visi i smáaug-
lýsingunum. Þarft þú ekki að
auglýsa? Smáauglýsingasiminn
er 86611. Visir.
Þjónusta §S
Tek aö mér
málningu á þökum og aöra utan-
hússmálningu. Ódýr og vönduö
vinna. Uppl. i sima 76264.
Húsaviögeröir.
Þéttum sprungur I steyptum
veggjum og svölum. Steypum
þakrennur og berum I þær þétti-
efni. Járnklæöum þök og veggi.
Allt viöhald og breytingar á
gluggum. Vanir menn. Gerum til-
boðef óskaöer. Uppl. i síma 81081
og 74203.
Tek eftir gömlum
myndum, stækka og lita. Opið
1—5 e.h. Ljósmyndastofa Sigurð-
ar Guömundssonar, Birkigrund
40, Kópavogi Simi 44192.
(Safnáriiui
Tslensk frimerki
og erlend ný og notuö. AÍlt keypt á
hæsta verði. Richard I^yeX Háa-
leitisbraut 37. ' — -
Atvinnaiboói
Stúlka vön vélritun
óskast til afleysinga i júli-mánuði.
Plastprent hf. Höföabakka 9, simi
85600.
Múrari
eða maöur vanur að pússa óskast
til aö klára að pússa raðhús að
innan. Uppl. i sima
30050.
Sölustörf.
Viljum ráða hæft fóik til starfa
við auglýsingasölu vegna ferða-
bæklinga á ensku, og timaritsins
hús og Hýbýli. Þetta eru hluta-
störf sem vinna þarf I skorpum
með hléum. Vinnutimi er sam-
komulagsatriöi. Viðkomandi
þurfa að starfa á skrifstofu okkar
að nokkru leyti, einnig nota eigin
sima og bil, Kostnaður greiddur,
prósentulaun, Umsóknir með
uþpl. um aldur menntun, helstu
ástæður og óskir um vinnutima
sendist Útgáfufélaginu h/f,
Iþróttamiðstöðinni Laugardal.
Umboösmenn óskast
I Reykjavlk (Arbær, Berg) á
Akranesi, l Borgamesi, Stykkis-
hólmi, á Þingeyri, Flateyri,
Hvammstanga, Blönduósi, i
Grenivik, Mývatnssveit, á Húsa-
vik, Raufarhöfn, Þórshöfn, I Nes-
kaupstað, á Fáskrúösfirði, Breið-
dalsvlk, Kirkjubæjarklaustri, í
Vlk, á Selfossi, I Vogum, Kópa-
vogi, á Seltjarnarnesi, i Mosfells-
sveit. Verkefni: Sala áskrifta af
timaritinu Hús og Hýbýli, inn-
heimta áskriftargjald og dreifing
tlmaritsins. Prósentulaun. Einnig
5 árangursverðlaun (útvarps- og
snældutæki) og happalaun (utan-
landsferð). Simi 86544 kl. 9-10.30.
Utgáfufélagiö h/f.