Vísir


Vísir - 30.06.1978, Qupperneq 10

Vísir - 30.06.1978, Qupperneq 10
10 VÍSIR Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davið Guömundsson Ritstjorar: Þorsteinn Pálsson ábm. Olafur Ragnarsson . Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund- ur Petursson. Umsjón meö helgarblaði: Árni Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind Asgeirsdóttir. Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jóns’son, Guöjón Arngrímsson, Jon Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrín Pálsdóttir, Kjartan Stefáns- son, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson, Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Palsson. Ljósmyndir: Björgvin Pálsson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Jón -Oskar Hafsteinsson. Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla 8. simar 86611 og 82260 Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611 J2itstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 nur ' Askriftargjald er kr. 2000 á mánuöi innanlands. i Verö i lausasölu kr. 100 eintakið. Prentun Blaöaprent h/f. Loforðin og I raunveruleikinn Ýmsir af forystumönnum stjórnmálafiokkanna hafa greint frá því, að þeir vilji fá rúman tíma til þess að átta sig á breyttum pólitískum aðstæðum og stjórnarmynd- unarmöguleikum. Frá pólitísku sjónarmiði eru þessar óskir skiljanlegar. Á hinn bóginn eru efnahagslegar að- stæður með þeim hætti, að stjórnarmyndun má ekki draga á langinn. Ohjákvæmilegt er að gera án tafar mjög róttækar og ákveðnar aðgerðir í efnahagsmálum. Flestar þeirra eru þess eðlis, að þær eru í litlu samræmi við þá loforða- pólitík, sem öðru fremur virðist hafa ráðið kosningaúr- slitunum. Aðhaldsaðgerða er þörf á ölíum sviðum í efnahags- og f jármálum. Alveg er útilokað, að sú ríkisstjórn nái tök- um á verðbólgunni, er lætur víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags með ótakmörkuðum verðbótum á laun halda áf ram. Það getur því reynst erf itt að samræma loforðin og kröfurnar um viðnám gegn verðbólgu. Kjarni málsins er sá, að við höf um ekki miðað útgjöld okkar, hvorki að því er varðar laun né f járfestingu, við þau raunverulegu ef nahagslegu takmörk, sem við búum við. Reikningarnir eru einfaldlega jafnaðir með verð- lausum verðbólgukrónum. Aðstaða útflutningsfram- leiðslunnar er til marks um þetta. Verðlag á erlendum mörkuðum er nú í hámarki. Við eðlilegar aðstæður ætti fiskvinnslan í landinu því að greiða verulegar fjárhæðir í Verðjöfnunarsjóð fiskiðn- aðarins. Þetta háa verð hrekkur á hinn bóginn ekki til að standa undir framleiðslukostnaði, sem að áttatíu hundraðshlutum ræðst af launum og fiskverði. Af þessum sökum hefur Verðjöfnunarsjóður fiskiðn- aðarins miðað við, að fiskvinnslufyrirtækin fái 15% hærra verð fyrir framleiðsluna en unnter að fá á erlend- um mörkuðum samkvæmt núverandi gengi krónunnar. Sjóðnum er því beitt öfugt með því að hann greiðir til fiskvinnslunnar, þegar markaðsverð erlendis er í hámarki. Fyrir kosningar var upplýst, að sj&ðurinn gengi til þurrðar i lok júlí. Nýrrar ríkisstjórnar bíður því það verkefni að lækka gengi krónunnar. Að öðrum kosti hætta hjól atvinnulífs- ins að snúast. Ríkisstjórnin þarf einnig að hafa hemil á f iskverðshækkun næsta haust þannig að smám saman reynist unnt að beita verðjöfnunarsjóði f iskiðnaðarins í samræmi við það hlutverk, er honum var ætlað að gegna. Ný ríkisstjórn þarf einnig að taka mjög skjótar ákvarðanir um niðurskurð í opinberum f rarrikvæmdum. Hún má ekki hvika frá ríkjandi stefnu í vaxtamálum í því skyni að ef la sparnað og koma í veg fyrir verðbólgu- f járfestingu. Með öðrum orðum þarf ný ríkisstjórn að lofa allt öðru en gulli og grænum skógum. Þá er einnig brýnt að gera sem fyrst ýmiss konar hliðarráðstafanir í því skyni að draga úr verðbólgu- spennunni i landinu til frambúðar. Veigamikið atriði í því sambandi er að gjörbylta húsnæðislánakerfinu þannig að fólk eigi kost á lánum til langs tíma, er standa undir 80% byggingarkostnaðar. Engum vafa er undirorpið að óraunhæfa launapólitík verkalýðsfélaga má að miklu leyti rekja til víxlafargs- ins. Ný húsnæðislánastefna myndi gjörbreyta aðstöð- unni í þessum efnum. Hún myndi draga úr kröfum um verðlausar krónur til þess að jafna víxilskuldirnar. Föstudagur 30. júnl 1978 VISIR HER STEFNIR I ÓEFNI EF EKKI VERÐUR SNÓIO VIÐ BLAÐINU Rœtt við Pieter de Wolff, hollenskcm hagfrœðing ,,Horfurnar hjá ykkur i efnahagsmálum eru ekki glæsilegar, ef haldið verð- ur áfram á sömu braut. Það þolir ekkert þjóðfélag það, að jafnstór hluti tekna fari til greiðslu vaxta og af borgana af lán- um, og hér tíðkast. Það kann að koma til þess að þið glatið efnahagslegu sjálfstæði ykkar, ef áfram verður haldið á þessari óhei I la braut" sagði hollenski hagfræðingurinn Pieter de Wolff, i viðtali við Vísi, en hann hefur dvalið hér um 10 daga skeið. Hagf ræðingurinn kom hingað með 28 hag- fræðistúdenta frá háskól- anum í Amsterdam. Hópurinn ferðaðist nokkuð um landið og ræddi hér í Reykjavík við forsvars- menn Seðlabankans og Alþýðusambandsins. Hagfræðinemarnir eru á 4. ári í sínu námi og urðu að velja sér einhvern ákveð- inn þátt þjóðlífsins til at- hugunar, áður en haldið var af stað. Ætlunin er að stúdent- arnir geri nokkra úttekt á þessum málaflokki og skrifi skýrslu um sitt svið. Ætlunin er síðan að safna öllum skýrslunum saman og dreifa þeim, alla vega innan háskólans og jafnvel víðar. Óróleiki og ir ffró stofnun lýðveldisins — 2« hluti Framsóknarflokkurinn stóð fyrir vantrausti á rikisstjórn Sjálfstæðisflokksins og sagði stjórnin af sér strax 2. mars árið 1950. Tildrög þess voru rakin i blaðinu i gær. Samkvæmt venju ráðgaðist Sveinn Björnsson, forseti Islands, við forystumenn allra flokkanna. Að þvi loknu fékk hann Hermanni Jónassyni það hlutverk að mynda stjórn. Hermann lagði strax fyrir Sjálfstæöisflokkinn tillögur Framsóknarmanna um lausn dýrtiöarmálanna. En Sjálfstæðis- menn féllust ekki á þessar tillög- ur. Þeir sögðust þó samt vera til viðræðu um samstarf til lausnar efnahagsvandans og bentu á þær leiðir sem þeir vildu fara. Hermann Jónasson tilkynnti skömmu siðar að tilraunir sinar til stjórnarmyndunar hefðu mis- tekist. Sveinn Björnsson bað þá næst Vilhjálm Þór að mynda blandaöa stjórn utanþingsmanna og þing- manna en Vilhjálmi Þór mistókst sú tilraun. Fól þá Sveinn Vil- hjálmi Þór aö mynda hreina utanþingsstjórn og var hún i burðarliðnum þegar nýjar samningaviðræður hófust milli Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks. Sjálfstæðismenn buðu Fram- sókn samstjórn undir forystu Stjórn Steingríms Steinþórssonar 1950-1953, ráðsfundi með Sveini Björnssyni. óháðs manns sem báðir flokkar gætu fellt sig við. Eftir nokkrar viðræður var fallist á samstjórn undir forystu Steingrims Stein- þórssonar sem þá var forseti sameinaös þings. Hver flokkur um sig fékk þrjá ráðherra. Báðir flokksfor- mennirnir tóku sæti i stjórninni, þeir ólafur Thors og Hermann Jónasson. I stjórninni áttu sæti auk þeirra sem nú voru nefndir, Sjálfstæðis- mennirnir Bjarni Benediktsson og Björn ólafsson og Fram- sóknarmaðurinn Eysteinn Jóns- Stjórnarsamvinna Sjálf- stæðisflokks og Fram- sóknarflokks 1953-1956. Alþingiskosningar fóru fram næst i júni 1953. Framsóknar- menn höföu lýst þvi yfir að stjórnarsamstarfið myndi ekki halda áfram að þeim kosningum liönum. En mjög vaxandi óánægju með samstarfið hafði gætt hjá Framsóknarmönnum allt kjörtimabiiið. Sjálfstæðisflokkurinn vann á i þessum kosningum og fékk 21 þingmann, Framsókn fékk 16, Sósialistaflokkurinn 7 og Alþýðu- flokkurinn 6. Nýr flokkur, Þjóð-

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.