Vísir - 04.07.1978, Blaðsíða 4

Vísir - 04.07.1978, Blaðsíða 4
Bifreiðaeigendur athugið Við lagfærum hemla á öllum gerðum bif- reiða. 17 ára starfsreynsla tryggir yður góða þjónustu. Framkvæmum ennfremur almennar viðgerðir, ef óskað er. Höfum á- vallt fyrirliggjandi hemlahluti i allar gerðir ameriskra bifreiða á mjög hag- stæðu verði. STILLING HF.“U 31340-82740. Visindastyrkir Atlantshafsbandalagsins 1978 Atlantshafsbandalagið leggur árlega fé af mörkum til að styrkja unga visindamcnn til rannsóknastarfa eða fram- haldsnáms erlendis. Fjárhæð sú er á þessu ári hefur kom- iö i hlut islendinga i framgreindu skyni nemur um 4,5 millj. króna, og mun henni verða varið til að styrkja menn, er lokið hafa kandidatsprófi I einhverri grein raun- visinda, til framhaldsnáms eða rannsókna við erlendar visindastofnanir einkum i aðildarrikjum Atlantshafs- bandalagsins. Umsóknum um styrki af fé þessu — „NATO Science Fell- owships” — skal komiö til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu, Keykjavik fyrir 30. júli n.k. Fylgja skulu staðfest afrit profskirteina svo og upplýsingar um starfs- feril. t>á skal og tekið fram hvers konar framhaldsnám eða rannsóknir umsækjandi ætlar að stunda, viö hvaða stofnanir hann hyggst dvelja, svo og skal greina ráðgerð- an dvalartima. — Umsóknareyðublöð fást I ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 28. júni 1978. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 13., 1<>. og 18. tbl. Lögbirtingablaðs 1978 á hluta i Blómvallagötu 11 þingl. eign Ólafs Björnsson fer fram eftir kröfu Sveins H. Valdimarssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudag 6. júli 1978 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið I Reykjavík. LANDSKJÖRSTJÓRN kemur saman í Alþingishúsinu fimmtudaginn 6. þ.m., kl. 2 miðdegis til að úthluta 11 uppbótarþingsoetum. Reykjavik, 1. júlí 1978 LANDSKJÖRSTJÓRNIN Hárgreiðslu-og snyrtiþjónusta Permanent-klipping o.fl. o.fl. Unnið úr heimsfrægu snyrtivörunum frá Helena Rubinstein Háaleitisbraut 58-60 Miðbær ^PlÖff SIMI 83090 Þriðjudagur 4. júli 1978 VISIR Þau Hildur, Hannes og Villi gáfu okkur aðeins tima til þess aöláta mynda sig. Það hefur varla farið framhjá neinum sem staddur var i Reykjavík nú í vikunni, að einn daginn rigndi ekki, heldur þvert á móti var glaða sólskin. Á slíkum dögum ber það helst til tíðinda að borgarbúar sippa sér úr regnkápunum og venjulega ein- hverjuöðru svona í „forbifarten" og þeir, sem hingað til hafa ekki haft hug á að reka svo mikið sem nefið út um gættina, hætta sér út undir bert loft. Þegar borgin er í slíkum ham, þykir viðeigandi að blaðamenn fari á röltiðog taki fólk tali. I sundlaugum borgarinnar er venjulega þröng á þingi á góð- viðrisdögum sem þessum. Starfsstúlkurnar i sundlaugunum i Laugardal sögðu okkur aö sjald- an hefði verið jafn mikið aö gera hjá þeim i sumar og þennan dag. Viö laugina flatmagaði fólk i sól- baði milli þess sem það fékk sér sundsprett eðatók til viöað spjalla við kunningja sina um lifið og til- veruna á rólegu tölti um laugar- svæðið eða i heitu pottunum. Krakkarnir létu hinsvegar allt slikt lönd og leið og gleymdu sér við að hemja plastbolta, sem áttu það tii að fjuka upp úr lauginni við minnstu gjólu. Jón Guðmundsson taldi sundið al- bestu heilsubót, sem völ væri á. Sólardac Sundlaug Þegar við vorum rétt byrjuð að velja okkur fórnarlömb til við- ræðu, var kallað á okkur. Það voru þau Hildur Björg, Hannes Július og Vilhjálmur, sem vildu fá að vita hvað við værum að gera. Liklega hefur þeim þótt undarlegt að sjá kappklætt fólkið innan um aðra tiltölulega fáklædda. Þegar við sögðum þeim að við hefðum einmitt verið að leita að þeim kom á þau van- trúarsvipur rétt eins og þeim fyndist að við ættum ekkert erindi við þau. Þau gáfu okkur þó fús- lega þær upplýsingar að þau færu oft i laugarnar og að þeim fyndist ofsalega gaman. — Eruö þið synd? „Já,” svöruðu þau Hildur og Villi, en Hannes sagði að hann væri á sundnámskeiði og yrði bráðum alveg syndur. — Hvað geriö þið i laugunum? „Bara leikum okkur. Við nenn- um ekki aö liggja i sólbaði. þó að það sé gott veður.” Og þá virtist eins og þau nenntu ekkert frekar að ræða við okkur þvi að við svo búið voru þau rokin i hasarinn i lauginni. Fer í laugarnar allt árið Næst stöldruöum við hjá Jóni Guðmundssyni, þarsem hann sat á sólbekk og fylgdist meö leik krakkanna. „Blessuö vertu ég stunda laug- arnar allt árið. Ætli ég fari ekki þetta 3—4 sinnum i viku að jafn- aði. Ég fer á öllum timum sólar- hringsins nema á nóttunni auövit- að. Það veltur á þvi hvenær ég er laus úr vinnunni, en ég vinn á slökkvistöðinni á Reykjavikur- flugvelli; sagði Jón. „Ég er sann- færður um að sundið er ein al- besta heilsubót, sem völ er á. Ég kem hingaö i hvaða veðri sem er enda fæ ég aldrei kvef/' Og ekki þarf Jón aö sækja sólarbrúnkuna til sólarlanda svo útitekinn sem hann er. Við báðum hann að spá þvi, hvernig veðrið yrði i sumar. „Það verður örugglega gott veður i dag og gott veöur i sepmtember,” sagði Jón. ,Rign- ingin verður hjá okkur i allt sum- ar, en i september verður hann búinn að rigna úr sér.” Passar börnin í sundlaug- inni Skammt frá Jóni lá Kolbrún Jónsdóttir i sólbaði og var ekki annað að sjá en aö hún kynni að nýta sér sólina. Við spurðum hana hvort hún hefði fengið þenn- an lit á sig hér á landi. „Ja, það hjálpar að fara i laug- arnar i svona góöu veðri, en ann- ars er ég nýkomin heim frá Mallorka. Ég fer svona einu sinni til tvisvar sinnum i viku i laug- arnar,” sagði Kolbrún. „Ég vinn við að passa tvö börn og það er ágætt aö fara með þau hingað. Annars vinn ég i Hagkaup á föstu- dagskvöldum. Þetta er bara sumarvinna hjá mér, þvi að ég er i Hólabrekkuskóla á veturna.” Ætla aö sækja sér sól sunn- ar „Við komum hingað eins oft og við getum, sérstaklega þegar sól er sögðu þær Alfhildur og Elin Hallgrimsdætur, þegar viö trufl- uðum þær i sólbaöi. Þær kváðust vera að norðan og fannst þeim heldur litið sjást til sólar hér miðað við veðurbliðuna noröan- lands. Alfhildur kvaðst ætla aö fara til Svartahafs að sækja sér sól, en Elin kvaðst ætla til Costa Brava. Viö báöum þær að lokum um aö spá um veðrið hérna i sum- ar, en þær vildu ekkert eiga við slikt. En ætli það felist ekki ein- hver visbending i þvi að þær eru að hverfa af landi brott?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.