Vísir - 17.07.1978, Blaðsíða 6

Vísir - 17.07.1978, Blaðsíða 6
'6 . f. Mánudagur 17. júli 1978 VISIR fólk TRAVOLTA ALLUR AÐ HRESSAST Þeir geta nú líka átt sina sönnu ást leikar- arnir i Hollywood rétt eins og annað fólk og er John Travolta gott dæmi um það. Áður en hann lék i myndinni „Saturday Night Fever" sem gerði hann frægan var hann i tygjum við sér eldri konu, Diönu Hy- land, og fannst engum mikið. Undu þau sér hið besta saman og voru þau að þvi að sagt er mjög hamingjusöm. En Adam var ekki lengi í Paradís því Diana dó frá Travolta og lengi vel var hann ekki mönnum sinnandi af harmi. Hann er nú sem bet- ur fer eitthvað að hressast og er farinn að eiga stefnumót við hinar og þessar dömur enda væri annað ekki eðlilegt, kornungur maðurinn. íslendingar í danskri sól Það hefur verið hunda- veður viðar en á is- landi undanfarið og í Danmörku ku hafa rignt viðstöðulaust síð- ustu vikurnar. Nú hefur hins vegar orðið breyting til batn- aðar og komið glaða- sólskin hjá frændum okkar i Danmörku. Fólk kunni að sjálf- sögðu þessum breyt- ingum vel og rauk upp til handa og fóta og þyrptist á baðstrend- urnar í sem fæstum fötum til að sleikja sól- ina og njóta lífsins. Meðal þeirra sem gripu tækifærið og stukku út i sólina voru nokkrir Islendingar. Við rákumst á þessa mynd i dönsku blaði af Pétri Esrasyni og f jöl- skyldu þar sem þau njóta sólarinnar sem skín á þau i Danmörku þessa dagana. BROOKE SHIELDS Brooke Shields heitir hún og er sögð vera nýjasti keppinautur Tatum O'Neal um að öðlast viðlíka frægð og hún Elísabet Taylor á sinum tíma. Brooke er aðeins 12 ára þannig að mögu- leikar hennar eru tals- vert meiri en Tatum sem er orðin háöldruð á vissan mælikvarða, eða 14 ára. Brooke hefur nú leikið i sinni fyrstu kvikmynd sem nefnist Pretty Baby og leikur hún þar hlutverk gleði- konu. Auðvitað varð allt vitlaust, sem von er, vegna nektaratriða •••••••• Brooke í myndinni. Móðir hennar segir sér og Brooke til varnar að Brooke hafi verið í body-stocking sem mun vera nokkurs konar húðlitaður teygjubúningur. Að auki þá hafi myndin ekki verið nein klám- mynd heldur þvert á móti mjög smekkleg og listræn. Brooke virðist þrátt fyrir stutt aldursskeið hafa nokkra reynslu i þvi að mynda sig nakta því hún byrjaði 11 mánaða gömul, en þá auglýsti hún fyrir sápufyrirtæki, og tók 25 dollara fyrir. ann opnafti klefann og gekk inn I hann meö matarbakkann I | höndunum. „ . .. . Fanginn stóö upp undrandi á kæruleysi varöarins. Þaö veröa einhverjir hissa þegar viö berumþeim Hvernig finnst bér \ Þaö var aö vera oröinn . gaman aö ■ óbreyttur aftur, . SrVBlimey.^í ÞeSsU meSan .' þaft var Vfkingar hafa leyfi til aö drekka þegar sólin skín. Þetta er tunglift aulinn þinn. —J Ertu búinn aft ákvefta hvaft þú ætlar aft gera i frlinu þinu 1 ár? var aft hugsa uin\J aft fara meftdrengina niftur aft ströndinni I eina viku, J Þetta var aöeins gamansemi hjá skjólstæöingi minum. Hann ætlaöi y bara aö strlöa vinnufélaga sínum litilsháttar Geturöu ekki játaö á þig ■itthvaA alvarlofff cvn m4línn 5-3 Tja — ég skal viöurkenna þá hugmynd aftt>essar skorur I veginn knúi’bilinn betur áfram

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.