Vísir - 28.07.1978, Page 10

Vísir - 28.07.1978, Page 10
10 VISIR Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Daviö GuAmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Rítstjórnarf ulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Umsjón með helgarbiaði: Arni Þórarinsson. Blaða- menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrlmsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónína Mikaelsdóttir, Katrin Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Óli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlitog hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, MagnúsOlafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8. Simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2—4 slmi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 2000 á mánuði innanlands. Verð í lausasölu kr. 100 eintakið. Prentun Blaðaprent h/f. Karlarugl Einn af gömlu körlunum í Sjálfstæðisflokknum, dr. Gunnar Thoroddsen, hefur nú opinberlega sett fram þá kröf u gagnvart eigendum þriggja dagblaða, að þeir sjái til þess að blöð þeirra styðji Sjálfstæðisf lokkinn af f ullri einlægni og djörfung eins og hann orðar það. Dr. Gunnar Thoroddsen telur, að Sjálfstæðisf lokkur- inn hafi beðið afhroð i síðustu kosningum fyrir þá sök fyrst og fremst að Vísir og Morgunblaðið hafi hætt stuðningi við f lokkinn, og Vísir þar að auki lagst á sveif með Alþýðuf lokknum og gert Vilmund Gylfason að þjóð- hetju. Krafa dr. Gunnars Thoroddsens lýtur einkanlega að eigendum Vísis og Morgunblaðsins.En aðspurður á f undi Sjálfstæðismanna siðastliðinn miðvikudag sagðist hann reiðubúinn að vinna að þvi, að Dagblaðið yrði málgagn Sjálfstæðisflókksins, en stjórnarformaður þess á sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Ef karlarugl af þessu tagi væri tekið alvarlega liti dæmið þannig út, að varaformaður Sjálfstæðisf lokksins teldi f arsælast að snúa vörn i sókn með þvi að svipta þrjú dagblöð sjálfstæði sínu. í bókstaflegri merkingu fela ummæli varaformanns Sjálfstæðisf lokksins það í sér, að flokkurinn eigi að hlutasttil um að útgáf ustjórnir blað- anna reki ritstjóra þeirra. Það er a.m.k. Ijóst, að núver- andi ritstjórn Vísis heldur fast fram óbreyttri rit- stjórnarstef nu. f Að sjálfsögðu eru yf irlýsingar af þessu tagi ekki tekn- ar alvarlega. Það væri hrikalegt fyrir Sjálfstæðisflokk- inn, ef forystumenn hans kæmu almennt ekki auga á aðra leið út úr ógöngunum en leggja til atlögu við sjálf- stæða blaðamennsku. Ekki er nema von að frjáíshyggju- fólk styðji aðra flokka þegar forystumenn flokksins opinbera flokksræðishugsunarhátt af þessu tagi. Árás dr, Gunnars Thoroddsens á frjálsa blaða- mennsku kom fram á almennum fundi hjá Sjálfstæðis- mönnum síðastliðið miðvikudagskvöld. Það væri sannarlega illa komið fyrir Sjálfstæðisflokknum, ef á þessum fundi hefðu ekki blásið nýir vindar í ræðum ungra manna eins og Daviðs Oddssonar, borgarf ulltrúa, og Friðriks Sophussonar,alþingismanns. Þó að þessi árás varaformanns Sjálfstæðisf lokksins á frjáls og sjálfstæð blöð sé þess eðlis, að menn taki hana ekki allt of hátíðlega, er á það að líta að aðeins þrjú ár eru liðin f rá því að dr. Gunnar Thoroddsen gerði í alvöru tilraun til þess að ná undirtökum í útgáfustjórn Vísis í því skyni að í stað núverandi ritstjórnar yrði f lokkspóli- tísk stjórn á blaðinu. Þessi atlaga dr. Gunnars Thoroddsens að Vísi fór út um þúfur. En í framhaldi af þeim ósigri lagði hann ásamt Alberti Guðmundssyni á ráðin um stofnun nýs dagblaðs. En byltingin étur börnin sín. Það blað hefur starfað óháð flokkum, nema hvað það hefur stutt við bakið á Albertiog barist fyrir landsöluhugmyndum dr. Gunnars. Aðöðru leyti varðþessi blaðasprenging, sem dr. Gunn- ar Thoroddsen olli, fyrst og f remst til þess að ef la sam- keppni sjálfstæðra blaða. Samkeppnin hef ur styrkt blöð- in og gert þau að betri upplýsingamiðlum. Þessi blaða- sprenging f lýtti fyrir þróun, sem lengi hafði verið í mót- un. Engum vafa er undirorpið, að hún hefur í flestum til- vikum haft áhrif til góðs, þó að blaðamönnum eins og öðrum verði vitaskuld á mistök. í Ijósi þess sem gerst hefur yrði ný tilraun af hálfu dr. Gunnars Thoroddsens til þess að koma á flokksræðisblaðamennsku aðeins broslegt rugl aldraðs stjórnmálamanns og dæmd til að mistakast. Föstudagur 28. júli 1978 VISIR I stjórnmálaumræöum þessa dagana ber nokkuö á umræöum og athugasemdum um hvaö sé vinstri stjórn og hvaöa flokkar teljist til vinstriflokka. Vekur þaö nokkra kátinu fólks, er vissir Alþýöuflokksleiötogar reyna aö sverja vinstri stefnu af Framsóknarflokknum og yfir á sjálfa sig. Fer hér bezt á þvi aö muna hina gullvægu reglu ásak- ana, aö þú ert yfirleitt sjálfur haldinn þvi sem þú vænir aöra um. „Margur heldur mig sig”, var haft á oröi um slikt hér fyrr- um: Þetta eru mannleg mistök og ekki útaf sliku aö sakast, þó vissulega hafi ég oft óskaö þess aö stjórnmálamenn vissu meira um sinar eigin takmarkanir og heföu innsýn skýra i eigin barm, þegar þeir láta gagnrýnisraddirnar hljóma. Megintilgangur þessarar grein- ar er aö fjalla svolitiö um skrif Ingvars Gislasonar alþingis- manns en hann hefur aö undan- förnu eins og flestum mun kunn- ugt komiö fram meö sterka rök- studda gagnrýni og fyrirspurnir varöandi áhrif fjölmiöla á skoö- anamyndun i stjórnmálum og þjóömálum. Tilgáta Ingvars um aö samtek- in ráö ónafngreindra frétta- og blaöamanna' hafi boriö mesta ábyrgö á óförum Framsóknar- flokksins i siöastliönum kosning- um gefur nokkra hugmynd um raunveruleikann en þó aðeins mynd af hluta málavaxta. Vissulega er það rétt að Framsóknarforystan hefur oröiö fyrir litt eöa ekki rökstuddum árásum i siödegisblöðunum, gagnrýni sem starfsfólk frétta- stofa Rikisútvarpsins hefur af al- kunnu hlutleysi sagt fra. Beiðni Ingvars til Vilmundar Gylfasonar um að sá siöastnefndi tilgreini V V Gefr Vlðar Vilhjálmtson sálfrœðlngur skrifar "------v------ heimildir aö ófrægöarskrifum sinum um t.d. Olaf Jóhannesson hafa til þessa engan raunhæfan árangur borið. Þessi hliö á skrif- um Ingvars er þvi rétt. En fleira kemur til, sem útskýrir fylgis- minnkun Framsóknarflokksins. — Fyrir það fyrsta guldu báöir stjórnarflokkarnir, einnig Sjálf- stæöisflokkur,álika skuld i siöustu kosningum, uppgjör frá sjálfstætt hugsandi og liklega aö mestu óflokksbundnu fólki: krafa um ábyrgö á þvi að veröbólga og skuldasöfnun erlendis, ásamt skorti á yfirsýn og stjórnun i þjóömálum hefur haldið áfram aö vera óleyst vandamál i okkar þjóöfélagi. — í öðru lagi hefur Framsóknarflokksforystan, eins og verið hefur um alla stjórnmálaflokka við vandamál trúnaöar að etja. Hinir tiltölulega óháöu kjósendur sem áöur nefndi vilja upplýsingar, réttar upplýs- ingar, og þeir vilja skoöanaskipti og meiri samstööu um aö leysa landsmálin á farsælastan hátt fyrir allan landslýö. Þetta upplýsingabil er vandamál allra islenzkra stjórnmálaflokka um þessar mundir. 1 Bandarikjunum var slikt fyrir nokkrum árum nefnt trúnaðarbil. Hvernig list mönnum t.d. á þaö aö forsiöufrétt VIsis nú i dag, mánudag 24. júli, um visitölubæt- ur láglaunafólks á laun, og ýmis önnur veigamikil atriöi I efna- hagsmálum, skuli vera i ósam- ræmi viö aörar fregnir af viöræö- unum og aö hvaö sem rétt kann aö reynast i fregn Visis skuli þaö aö auki vera trúnaöarbrot að segja frá þeim, þar eö umræöugrund- völlur sá sem Alþýöuflokkurinn lagöi fram til umræöu I morgun átti aö vera algert trúnaöarmál fyrst um sinn? Ég vil taka þaö fram aö ég tel aö alltof mikil og óþarfa leynd hafi hvilt yfir viöræöum um stjórnarmyndun hingaö til* þvi fagna ég fréttaflutningi Visis, ef réttur reynist. Ef talsverörar eöa mikillar ónákvæmni gætir I þessum skrif- um blaösins, er hinsvegar komiö gott dæmi um þá tegund biaöa- mennsku sem Ingvar Gislason gagnrýnir sem órökstudda dreif- ingu á Gróusögum. Hiö þriöja afl i stjórnmálum sem ritstjóri Visis ritar um s.l. laugardag aö séu sjálfstæöu fréttaflutningsblööin, sem álykta mætti af grein hans aö séu a.m.k. Dagblaöiö og Visir, þarf þvi aö standa sig betur. Annaö dæmi vil ég gefa, einnig nýttog þaö er skrif ,, Svarthöföa” i dag, mánudag i Visi. Þarna er fjallað um stjórnar- myndunarviöræöur á meinfýsinn hátt, til þess falliö aö spilla fyrir að samstaöa og samvinna náist Svo undarlegt sem þaö kann að virðast hafa tslendingar á tilfinn- ingunni, aö þeir séu komnir heim hvenær sem þeir ná til Kaup- mannahafnar eftir feröir um Evrópu eöa aörar álfur. Þetta hliö okkar aö öörum þjóðlöndum hefur vegna aldalangra tengsla eignast þann sess I vitund tslend- inga, aö likja má meö nokkrum hætti viö sess fóstrunnar. Og þótt hin opinberu tengsl hafi veriö rofin góöu heilli, stendur enn eftir vitneskjan um stööugan islenzkan mannfagnaö, allt frá þvi aö setiö var i Hvids Vinstue og Den röde Pimpernel til samtimans meö öörum samkomustööum og húsi Jóns Sigurðssonar. Llf okkar I Kaupman nahöfn hefur veriö áreitnilaust aö mestu og viö erum ekki send heim þaöan undir bögg- um þjóöfélagsvitundar, sem miö- ar aö þvi að leggja niöur islenzk viöhorf og efla I staöinn einskonar skandinavisk þjóðfélagsleg trúarbrögö. Enda erum viö á þvi varðbergi gagnvart Dönum vegna fyrri samskipta, aö þeim mundi seint takast aö kristna okkur I sósialisma. Hver trúboðssveitin af annarri. Aftur á móti virðumst við eiga verr meö aö átta okkur á Svíum og jafnvel Norömönnum, þar sem Neðanmóls S '*#■■■. Indriði G. Þorsteinsson skrifar: Nú eru engar horfur á þvíaðaðförum skandi- nava verði breytt í ná- inni framtíð. Við sitjum uppi með norræna menningar- stöð í Vatnsmýrinni/ en slikar miðstöðvar hafa ekki fengist reistar á hinum Norðurlönd- unum. öflugar menntamannastét-tir litaá Island sem vöggu norrænnar sögu, sem beri að vernda fyrir heimsspillingunni, eins og hún birtistþeimi varnarbandalögum Vesturlanda og átökum um austur og vestur bæöi pólitiskt og hnattlægt séö. Þessar mennta- mannastéttir beggja landanna, og þó einkum Sviþjóðar, hafa hik- laust leitt margháttaða meðal- mennsku i listum til vegs, aöeins ef hún þjónar sjónarmiðum um áróðursgildi i rökræöuslagsmál- um um pólitiskar úrlausnir. Þaö er þó ekki meginmáliö, heldur hitt hvernig tekizt hefur fyrir til- styrk fyrrgreindra menntamanna i skólastofnunum að efla islenzka námsmenn i trúnni á, að hér heima sitji amerikaniseruö þjóð á heljaþröm i pólitiskum og menn- ingarlegum efnum. Þeir lita svo á, aö tslendingar kunni ekki sjálf- ir fótum sinum forráö, og hver trúboðssveitin af annarri er send hingað heim til aö koma i veg fyrir, aö óvandaðir heimsvalda- sinnar geti óhindraö dritað i vöggu norrænnar sögu. Sænskur heilaþvottur Mörg dæmi eru þess, aö menn hafi farið til náms I Sviþjóð, dval- ið þar nokkur ár, og má rekja á bréfaskiptum, að framan af námstima hafi þeir litið breytt SKANDINAVISK ÁHRIFASTtFNA Á ÍSLANDI

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.