Vísir - 29.07.1978, Blaðsíða 5

Vísir - 29.07.1978, Blaðsíða 5
visra Laugardagur 29. júli 1978 þetta oröinnmeiri dans.Tónlistin er allt önnur, allt gengur miklu hraöar fyrir sig. Þaö er skemmtilegra aö sýna nú en þá. Þaö getur veriö aö þaö sé af þvi sem mér finnst skemmti- legra aö nú er þetta stööugt aö færast nær dansinum.” ,/Neikvæð afstaða til sýn- ingarfólks" „Svo einkennilegt sem þaö nú er, þá eru þaö sumir sem hafa ákaflega neikvæöa afstööu gagnvart sýningarfólki. Þaö er talaö um okkur sem einhvern einkennilegan þjóöflokk, sem hlýtur aö vera ööru vlsi en annaö fólk. Viö erum kallaöar puntudúkkur, sem hafa ekki áhuga á neinu nema tiskunni, allt okkar lif á aö snúast um þennan eina hlut. Samt finnst mér afstaöa fólksins hafa breyst á slöustu árum. Tiskusýningar eru orönar hluti af stærri sýn- ingum, t.d. eins og I Laugar- dalshöll. Þar eru þær meö vin- sælustu atriöunum. Ég tók eftir þvi á siöustu sýningunni I Laugardalshöllinni, aö fólkiö lagöi þaö á sig aö blöa heillengi eftir að sýning hæfist. Stundum sá maöur sama fólkið aftur og aftur. Þarna komu heilar fjöl- skyldur og allir virtust hafa jafngaman af. Islendingar hafa áhuga á þvi að fylgjast meö þvi sem er aö gerast á þessu sviði. Þeir notfæra sér einnig þessa þjónustu. Þarna sjá þeir á ein- um staö helsta úrvalið af fatnaöi sem er i verslunum. Ef fólki list vel á einhverja flik, þá fer þaö og skoöar hana betur i verslun- inni og mátar hana.” Blómapotturinn á Sögu „Það hefur yfirleitt gengið allt snuröulaust I sambandi við sýningarnar hjá mér”, sagði Brynja þegar viö fiskuðum eftir einhverju „slysi” i sambandi við sýningar. „Annars man ég eftir einu atviki, sem gerðist á Sögu. Ég gekk út á sýningar- pallinn, sem var skreyttur með fallegum blómapottum. Þegar ég var komin út á enda sneri ég við, en átti svo að bakka nokkur skref. Eg fór heldur langt og þurfti endilega aö hitta á einn „Á bara aö taka mynd af mömmu”, Ketilsson, Brynja og Róbert. að ganga upp að altarinu. Allt I einu fæ ég hláturskast. Ég reyndi aö halda hlátrinum niöri i mér, en þaö tókst nú ekki sem skyldi. Ég stóö þvi þarna á sviö- inu hálfglottandi I þessum fallega brúöarlijól”. „Fáum oft á okkur glós- ur". — Hvers vegna hefur fólk horn I siöu sýningarfólks? „Ég hef oft hugsað um þetta, en þaö er erfitt að gefa nema imyndað svar. I rauninni er þaö fólk sem segist vera á móti þvi að fylgjast með tiskunni, ekkert betra sjálft, en þaðfólk sem þaö er aö gagnrýna. Þaö hefur sina tiskulínu. Hún kemur bara ekki frá sama staö og t.d. sú sem ég fylgi. Þetta fólk sendir okkur oft glósur, eitthvað sem það telur að komi við okkur. Ég held að innst inni vilji allir láta taka eft- ir sér. Fólk vill fá athygli annarra, en það er bara mis- jafnt hvernig það fer að þvi. Sumir klæöa sig alveg fárán- lega, aðrir eru druslulegir, enn aörir leggja áhersluna á þaö aö ’ Þaö koma stundum smá óhöpp fyrir, þegar mynda á fyrirsætur. Hér hefur ein misst hælinn undan skónum sinum. Brynja er lengst tii vinstri. blómapottinn, sem datt auövit- að niöur og brotnaöi. Nú það var ekki annaö aö gera, en aö halda áfram, eins og maður heföi ekki heyrt dynkinn og brothljööin. Samt var ég nú hálffegin að komast á bak viö sviöiö. Þegar ég fer aö rifja upp einhver „slys” fyrir þig, þá man ég lika eftir einu til viðbótar. Þá var ég að sýna fallegan brúöarkjól á sýningu I Höllinni. Ég átti auð- vitaö aö vera andaktug á sviö- inu,þvi það er jú alvarlegt mál vera i fallegum fötum, eftir nýj- ustu tisku. Allir eru aö reyna aö ná sama marki, en nota bara misjafnar aöferöir tii þess. Mér finnst þaö skylda hvers manns að hugsa vel um sjálfan sig, vinna að þvi að honum geti liöiö sem best andlega og likamlega. Mér liður ekki vel nema aö ég sé i fallegum fötum og vel snyrt. Mér dettur ekki I hug aö láta þetta á móti mér. En þegar fólk nær þvi marki aö þvi líöur vel þá er það ánægt, og ég geri mér sagöi Róbert, og viö bættum úr þvi og hér er öll fjölskyldan, Magnús grein fyrir þvi aö til aö ná þessu marki eru til ótal aöferöir. Ég skil fullkomlega aö þaö eru ekki allir sáttir viö mina aöferö. En ég hef ekki lagt þaö I vana minn aö segja fólki fyrir verkum, eöa gera athugasemdir viö þaö hvernig þaö hegöar sér og þvi vænti ég þess sama af öörum.” „Þá varðstu kerling 25 ára". „Þegar ég var stelpa var ekki mikiö úrval hér i búöunum. Þaö var einnig undantekning ef fólk sem var komið mikiö yfir tvi- tugt verslaöi i tiskuvöruversl- unum. Þú varöst aö gjöra svo vel aö veröa kerling 25 ára, eöa á þeim aldri sem ég er nú. Ungl- ingarnir höfðu einkarétt á tisku- fatnaði. Þetta hefur breyst mjög mikið. Nú er tiskan miklu frjálslegri. En samt sem áður eru tiskuhönnuöir enn við sama heygaröshornið. Þeir hanna framleiöslu sina næstum ein- göngu fyrir grannt fólk. Þeir sem hafa nokkur aukakiló utan á sér eiga alltaf erfiöara meö aö fá á sig föt sem fara reglulega vel.” „t rauninni er þaö fólk sem seg- ist vera á móti tiskunni ekkert betra sjálft....” „Það hefur sfna eigin tfskulinu, sem þaö fer eftir....” „Konur í karlastörf? Það er alveg sjálfsagt" „Mér finnst það alveg sjálf- sagt aö konur gangi i störf karla, ef þær hafa áhuga á og getur til þess. Annars finnst mér þetta hafa gengið dálltiö út i öfgar, þegar er veriö aö ræöa um jafnrétti. Viö getum ekki neitaö þeirri staðreynd aö viö erum liffræöilega öðruvísi en karlar. Viö göngum meö börnin og fæöum þau. Þess vegna held ég að tilfinningar móöur séu oft miklu sterkari til barnsins. Ég er ekki aö alhæfa,þetta þarf ekki alltaf aö vera svona. Ég 5P hlynnt þvi aö konur séu heima hjá börnum sinum meðan þau eru litil. Mér finnst ekki rétt aö þau séu sett á dagvistunarstofn- anir þegar þau eru nokkurra mánaöa. Auövitaö er þaö nauð- synlegt i sumum tilfellum og viö þvi er ekkert aö gera. En ef hægt er, þá finnst mér aö konan eigi að vera heima og hugsa um barn sitt fyrstu árin. Ef dæmiö er þannig aö konan hefur mögu- leika á því aö hafa meiri tekjur en karlmaðurinn, þá mætti alveg eins snúa þessu sviö. Hann veröur þá heima hjá barn- inu. En þaö er nú einu sinni svo aö I flestum tilfellum hefur karl- maðurinn meira kaup en konan á vinnumarkaöi og því er þaö konan sem verður heima i flest- um tilfellum. Ég var heima hjá stráknum minúm þar til hann var þriggja ára. Þá var hann orðinn leiöur á mér og ég fann aö hann þarfnaöist meiri félags- skapar. Hann er núna á dag- heimili og er mjög ánægöur. Einnig hefégveriö mjög hepp- in meö barnapiu, hef alltaf haft sömu stelpuna.” - „Mér finnst mjög skemmti- legt aö fara út meö kunningjum og vinum. Þá vil ég helst fara út á einhvern skemmtistaö, mér finnst svo gaman aö dansa. En setningar eins og: Ertu alltaf úti aö skemmta þér? heyri ég oft. Til aö losna viö svona athuga- semdir er hægt aö sitja heima, hjá kunningjum og vinum. En þrátt fyrir þaö aö mér finnist þessar athugasemdir hvimleiö- ar, þá vil ég heldur taka þeim heldur en aö láta þær breyta einhverju. En svo kemur fyrir aö fólk sér mann ekki langtim- um saman og þá er einnig gerö athugasemd viö þaö: A timabili fórum viö Magnús mikiö hér út fyrir bæinn á hestbak. Mér finnst þaö mjög hressandi og skemmtilegt. Svo er þaö alveg nauösynlegt aö bregöa sér ööru hverju á hestamannamót og njóta þeirrar vissu stemmingar sem þar skapast. Annars hefur maöur allt of litinn tima til aö sinna áhugamálunum. Vinnu- dagurinn er svo langur. Nú upp á siðkastiö hef ég sýnt tvö til þrjú kvöld I viku. Svo er ennþá meira aö gera þegar stórar sýn- ingar eru, t.d. eins og i Laugar- dalshöllinni. Þá er vinnutiminn frá niu á morgnana og oft til klukkan tólf. Maður hefur ekki tima til aö skreppa heim á milli i kvöldmat. Þá eru þeir feögar hér heima, og una sér vel”. „Það er best að vera heima". „Sýningarstarfiö býöur upp á nokkur feröalög. Eins þarf ég aö fara út til aö gera innkaup fyrir verslunina þar sem ég vinn. Þá gefst tækifæri til aö fara á stðr- ar tiskusýningar þvi auðvitaö er maöur forvitinn og vill sjá hvernig útlendar sýningarstúlk- ur vinna”. — Langar þig til aö vinna er- lendis? „Þaö væri gaman að geta far- iö út um tima og sótt námskeið, þvi þaö er afskaplega óþægilegt að kunna ekkert fvrir sér, t.d. i þvi aö vinna með ljósmyndara. Mér finnst það skemmtileg vinna, en hún er ekkert auöveld ef maöur þekkir ekkert inn á þetta. Þá getur fariö svo aö báö- ir aöilar veröi pirraöir og þá gengur allt á afturfótunum. Annars hef ég ekki áhuga á þvi aö starfa erlendis, ég held aö þaö sé best að vera heima.” „Dansflokkurinn þarf að fá fleiri tækifæri" — Séröu ekkert eftir þvl aö hafa hætt viö ballettinn? „Jú, þaö geri ég núna. En þaö er enginn vandi aö veröa vitur eftir á. Ég vildi samt ekki hafa misst af þvi aö kynnast sam- kvæmisdönsunum. Ég reyndi alltaf aö fylgjast vel meö is- lenska dansflokknum og mér finnst hann mjög góöur. Stelp- urnar hafa staöiö sig mjög vel og einnig þeir karldansarar sem við eigum. Þeim hefur farið mjög mikið fram á slöustu ár- um. Dansflokkurinn þarf aö fá enn fleiri tækifæri til aö sýna hvaö I honum býr”. — Kviðiröu þvi aö veröa göm- ul? „Nei alls ekki. Viö förum öll sömu leiö, hjá þvi veröur ekki komist.Þegar maöurvar t.d. 15 ára fannst manni aö konur um tvitugt væru kerlingar. Sjón- arhorniö verður alltaf annaö meö aldrinum. Nú finnst mér svo langt frá þvl aö ég sé gömul, þótt mér fyndist 25 ár vera hár aldur þegar ég var 15 ára. Allur aldur hefur sinn „sjarma”. Annars er þaö heilsan sem skiptir mestu máli og meöan maöur hefur hana er maöur ungur. Ég hef gert þaö aö gamni minu aö safna myndum i úr- klippubók. Þaö veröur skemmtilegt aö sýna syninum hana þegar hann veröur stærri og þá tölum viö um þaö þegar mamma var ung”. —KP. „Þetta fólk sendir okkur oft glósur, eitthvaö sem þaö teiur aö komi viö okkur” Viðtol: Kotrin Pólsdóttir Myndir: Gunnor V. Andrésson

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.