Vísir - 29.07.1978, Side 13
vism Laugardagur 29. jtill 1978
13
Menn vildu ekki snúa til „fastalandsins” ööru
visi en meö mettan maga, enda stóöu veiting-
arnar i Alþýöuhúsinu fyrir sinu.
Jónas fékk þær Unni Bjarnadóttur, Bjarnfrföi
Guöjónsdóttur, Ragnheiði Magnúsdóttur, Ingunni
Hjartardóttur, Guörúnu Erlendsdóttur, önnu
Sumarliöadóttur ogTheódóru Þorsteinsdóttur til
aö taka lagiö.
sambýli. Er talið aö þetta sé sér-
staklega hagstætt fyrir svamp-
inn. Þessa krabbategund eða teg-
undarafbrigöi fundu skipverjar ú
Vestmannaey skammt suður af
Surtsey.
Ótal margt fleira er athyglis-
vert aö finna i Náttúrugripasafn-
inu sem of langt mál yrði upp að
telja.
Tyrkjabyssa meö meiru
Byggðasafn Vestmannaeyinga
er þeim til sannkallaðs sóma,' en
það er ekki alls fyrir löngu flutt i
safnahús bæjarins. Þarna er að
finna margvislegan fróöleik, ekki
aöeins um Vestmannaeyjar held-
ur um allt landið. Margs konar
áhöld eru á safninu, sem notuð
voru viða um land. Þá er fróðlegt
að fletta þarnastærðar spjöldum
þar sem eru álimd öll þau blöð
sem komið hafa út i Eyjum frá
1917.
Tyrkjabyssan sem notuö var
fyrir meira en 350 árum ér þarna
á slnum stað og ýmislegt fleira
frá 17. öld.
Viðdvölin á safninu var hins
vegar alltof stutt, þvi helgistund
skyldi nú haldin i Landakirkju.
Það er venja, að á öllum þeim
stöðum sem aldraðir Kópavogs-
búar hafa heimsótt, er haldin
helgistund.
Gítarleikur
og kirkjusöngur
Séra Þorsteinn L. Jónsson flutti
þarna stutta bæn og fjögurra
manna söngsveit söng nokkra
sálma við gitarundirleik.
Landakirkja er þriðja elsta
kirkja landsins, frá 1780 og þar er
mikið af gömlum munum. Þar
má nefna skál skírnarfontsins
sem er frá 1640. Artalið 1640
stendur á annarri kirkjuklukk-
unni, en sagan segir að enskir sjó-
menn hafi rænt henni. Þegar
heiðvirðir menn i Englandi kom-
ust að þvi hvaðan klukkan var
upprunnin var hún strax send til
sinna heimkynna.
Eftir fróðlegan fyrirlestur séra
Þorsteins var haldið í Alþýðuhús-
ið, þar sem snæddur var fyrir-
taks málsveröur.
Það var með nokkrum söknuði
sem við flest kvöddum Vest-
mannaeyjar, sem höfðu tekið á
móti okkur I sinu allra besta
skarti. Það þýddi ekki aö fást um
það, öll skemmtan á sinn endi.
Vill helst vero ó
ferð 09 flugi
— rætt við Jóhann Kr. Jónsson
,,Ég var á sjó I 41 ár og hef
verið vaktmaður við höfnina
undanfarið ár, þannig að ég er
ennþá i snertingu við sjóinn”,
sagði Jóhann Kr. Jónsson 82 ára
gamall Kópavogsbúi sem
kvaðst lifa fyrir útillf og sund-
laugarnar.
Jóhann sem hefur búið i
Kópavogi i 22 ár, er mikill
ferðagarpur og lætur aldurinn
ekkert á sig fá. „Ég dreif mig i
fyrra með Ferðafélaginu yfir
Sprengisand og hef farið marg-
ar ferðir með þeim. Ferðirnar
sem skipulagðar eru fyrir okkur
aldraða Kópavogsbúa hef ég
lika mikið sótt. Ég hef tvisvar
farið með þeim til Mallorca”
Hann taldi að það væri mjög
jákvætt starf sem unnið væri I
málefnum aldraðra I Kópavogi.
„Hóparnir geta hins vegar
stundum orðið of stórir. Þegar
ég fór i fyrra skiptiö með þeim
tilMallorca vorum við 30 alls og
það var stórfin ferð. t seinna
skiptið vorum við 78 og það var
of margt”. Hann sagðist ekki
lita á sig sem gamlan, enda væri
heilsan þokkaleg. „Aðalatriðið
er það að maður gé andlega
hress. Ég hef hins vegar tekið
eftir þvi að mörgu fólki hrakar
mikið þegar það hættir að
vinna. Það er alveg hræðilegt
þegar fólki er sagt upp eingöngu
vegna þess að það hefur náð
ákveðnum aldri. Hrörnunin
byrjar þá fyrst fyrir alvöru”.
—B A—
„Vildum ekki flytja
oftur til Eyja"
— rætt við Guðrúnu 09 Sigfús úr Eyjum
„Viðfórum I Kópavoginn þeg-
ar gosið varð og afréðum að
vera þar áfram þó að unnt væri
aðgera við húsið okkar”, sögðu
þau Guðrún Gissurardóttir og
Sigfús Sveinsson, sem áður
bjuggu að Kirkjubæjarbraut 8 I
Vestmannaeyjum.
Þau hjónin höfðu ekki komið
heim I gamla byggðarlagið frá
þvi fyrir 5 árum að þau sóttu
siðustu húsmunina þangaö.
,,Það hafa orðið miklar breyt-
ingar hér og ég er ekki viss um
að þær séuallar jákvæðar. Einu
verður þó ekki neitað og það er
að innsiglingin'er mun betri en
hún var áður”, sagði Sigfús sem
kvaðst vera hæstánægður með
það að búa i Kópavogi.
„Maður var stundum dálitið
innibyrgður i Eyjum og það er
óskaplegur munur að geta nú
skroppið hvert sem er án þess
að þurfa að hafa áhyggjur af
samgöngumáta”, sagði Guðrún
og benti á það hvað Eyjamenn
þyrftu að bera mikinn auka-
kostnað sem aðrir landsmenn
kæmust hjá.
Hjónin hafa tekið mikinn þátt
i félagsstarfi aldraðra og hafa
farið i ýmsar af þeim ferðum
sem hafa verið farnar á undan-
förnum árum.
Sigfús vinnur enn fulla vinnu
8-10 tima á dag, en sagðist nú
vera að hugsa um að minnka
eitthvað við sig. Hann er við
byggingarvinnu og hefur verið
það mestallan timann frá þvl
þau fluttu úr Eyjum.
_________ —BA—
'afst milli safnaferðanna
Hér ræða þau Einar Sigmundsson, Guðlaug Sigmundsdóttir, Sigur-
karl Stefánsson og Sigrlður Guðjónsdóttir við Friðrik I Náttúru-
gripasafninu.
Bifreiðoeigendur athugið
Við lagfærum hemla á öllum gerðum bif-
reiða. 17 ára starfsreynsla tryggir yður
góða þjónustu. Framkvæmum ennfremur
almennar viðgerðir, ef óskað er. Höfum á-
vallt fyrirliggjandi hemlahluti i allar
gerðir ameriskra bifreiða á mjög hag-
stæðu verði.
Skeifan 11
STILUNG HF.
simar
31340-82740.
OKEYPIS MYNDAÞJONUSTA
Opið 9-21
Opið í hódeginu og d laugardögum kl. 9-6
Austin Mini árg. 74. Ekinn 48 þús. km.
Rauður. Sumardekk. Skoðaður 78. Gott
ástand.Verð kr. 700 þús. Samkomulag.
Fiat 128 árg. 74. Ekinn 63 þús. km. 2ja
dyra. Otvarp og segulband. Gott lakk.
Bíll í sérflokki. Verð kr. 850 þús. Sam-
komulag.
Cortina 1300 árg. 74. Ekinn 57 þús. km.
2ja dyra. Brúnsanseraður. Ný sumar-
dekk. Verð kr. 1.400 þús. Samkomulag.
Escort þýskur, árg. 74. 3ja dyra.
Sumardekk. Skoðaður 78. Blár með
vinyl. Verð kr. 1.200 þús. Samkomulag.
Ford 100 Pick-up árg. '67. 8 cyl. Góð
dekk. Skoðaður 78. Mjög gott hús. Bíll í
mjög góðu standi.
AAazda 818 árg. 74. Ekinn 72 þús. km.
Gulbrúnn. Sumar og vetrardekk. 4ra
dyra. Fallegur bíll. Verð kr. 1.550 þús.
Skipti. Samkomulag.
BILASALAN SPYRNAN
VITATORGI
milli Hverfisgötu og Lindargötu
Símar: 29330 og 29331