Vísir - 19.08.1978, Qupperneq 3
3
EL
Laugardagur 19. ágúst 1978
Atvinnuleysis-
bœtur eri j
1286 k :r. i á dag
Einstaklingur án atvinnu fær
nú greiddar 1286 krónur á dag I
atvinnuleysisbætur, samkvæmt
upplýsingum er Visir fékk á
skrifstofu Verkalýösfélagsins
Dagsbrúnar. Hjón fá greiddar
1547 krónur á dag, og greitt er
meö fyrstu fjórum börnum
krónur 293 á hvert barn. Ekki er
greitt fyrir fleiri en fjögur börn
á framfærslu þeirra sem
atvinnulausir eru.
Sama upphæö er greidd i
sjúkra- og slysatryggingar, og
upphæöin er jafn há, hvort sem i
hlut eiga konur eöa karlar. Þá
eru dagpeningarnir þeir sömu
til allra þeirra sem atvinnulaus-
ir eru, án tillits til þess hvaöa
tekjur þeir höföu áöur en þeir
misstu atvinnuna.
Fólk fær nú greiddar atvinnu-
leysisbætur frá og meö þeim
degi er þaö lætur skrá sig at-
vinnulaust, en þaö er unnt strax
sama dag og þaö hefur misst
atvinnuna.
—AH
Tékkóslóvakíunefndin 1978:
Tveir tékkneskir
útlagar til íslands
Nýlega var stofnuö svokölluö
Tékkóslóvaklunefnd 1978 i til-
efni af þvi aö tiu ár eru liöin
„siöan nokkur riki Varsjár-
bandalagsins geröu innrás i
Tékkóslóvakiu og tóku landiö
herskildi”, eins og segir i frétt
um stofnun nefndarinnar.
Nefndin hefur ákveöiö aö
vekja athygli á málstaö
sósialismans i Tékkóslóvakiu
meö þvi aö bjóöa hingaö til
lands tveim þekktum máls-
svörum þeirra andófsmanna sem
nú dvelja i útlegö frá heima-
landi sinu. Þeir eru Efuard
Goldstúcker fyrrverandi forseti
Rithöfundasambands
Tékkóslóvakiu og Zdene Hejzlar
fyrrverandi útvarpsstjóri i
Prag. Þeir Goldstúcker og
Hejzlar munu koma fram á
nokkrum fundum hér i Reykja-
vik i byrjun september.
1 Tékkóslóvaklunefndinni eru
um 30 manns. Meðal þeirra má
nefna Svavar Gestsson, Kjartan
ólafsson, Arna Björnsson,
Benedikt Daviösson, Svövu.
Jakobsdóttur, Svan
Kristjánsson, Vésteini Ólason,
Njörð P. Njarövi.k, Magnús
Kjartansson, Atla Heimi
Sveinsson, Guðrúnu Helgadótt-
ur, Thor Vilhjálmsson, Vilborgu
Dagbjartsdóttur, Böövar Guö-
mundsson, Arna Bergmann og
Ragnar Arnalds.
Myndin var tekin viö yfirmannaskiptin sem fram fóru viö hátiölega athöfn á Keflavikurfluívelli á föstu-i
dag. A myndinni eru Richard A. Martini hinn nýi yfirmaöur, Kari J. Btrnstein, sá sem nú yfirgefur
landiö og George E. R. Kinnear einn af yfirmönnum Atlantshafsflota Randarikjahers.
Visismynd: Heiöar Baldursson.
Formleg y firm annaskipti
varnarliösins á Kefiavikurflug-
velli fóru fram á föstudag.
Hinn nýi yfirmaður, heitir
Richard A. Martini og tekur
hann við af Karl J. Bernstein
sem verið hefur yfirmaöur
varnarliösins hér frá þvi i ágúst
1976.
Viðstaddur athöfnina veröa
sendiherra Bandarikjanna á
Islandi, James J. Blake og
aðstoöaryfirmaöur flughers
Atlantshafsflotans George E.R.
Kinnear.
Hinn nýi yfirmaður er 46 ára
gamall og hefur starfað I
bandariska sjóhernum frá 1954.
----HL
Útscám
Qalleri ^l)
Ungliðasambönd Alþýöuflokks-
ins, Framsóknarflokksins og 1
Sjálfstæðisflokksins hafa sent frá
sér sameiginlega yfirlýsingu I til-
efni af þvi aö tiu ár eru liöin frá
þvi er Rússar réöust inn I Tékkó-
slóvakiu. Alyktunin er svohljóö-
andi:
„Innrás Rússa og fylgirikja
þeirra i Varsjárbandalaginu inn i
Tékkóslóvakiu 21. ágúst 1968, var
svivirðilegt brot á sjálfsákvörð-
unarrétti frjálsrar og fullvalda
þjóðar. Með innrásinni geröust
Rússar sekir um griörof viö tékk-
nesku þjóðina, en skömmu áöur
höföu Brésnef og fleiri valda-
menn Sovétrikjanna undirritaö
griðar- og vináttusáttmála viö
Tékkóslóvaka i Bratislava.
Valdarán Rússa og hernám
þeirra I Tékkóslóvakiu braut á
bak aftur frelsishreyfingu tékk-
nesku þjóðarinnar og slökkti þær
vonir sem frjálshuga fólk hafði
bundið viö þaö að kommúnista-
rikin breyttu skipulagi sinu i
frjálsræðisátt I náinni framtiö.
Nú á þessum timamótum þegar
liöin eru tiu ár frá innrásinni i
Tékkóslóvakiu fordæma lýö-
ræöissinnar um allan heim þann
yfirgang sem Rússar sýna þjóö-
um Austur Evrópu, um leiö og
mannréttindabrot þeirra eru for-
dæmd.
Þessi timamót verða að vera
hvatning til lýðræðissinna um aö
hvika hvergi gegn ofbeldi en berj-
ast gegn einræðis- og ógnarstjórn
sem sviviröir helgustu réttindi
einstaklinganna, hvort sem það
er gert I skjóli kommúnismans
eöa annarra einræöishreyfinga.”
Undir þessa sameiginlegu
ályktun ungliðasamtaka þessara
þriggja flokka skrifa Pétur
Einarsson af hálfu ungra fram-
sóknarmanna, Bjarni P. Magnús-
son af hálfu ungra jafnaðar-
manna og Jón Magnússon af
hálfu ungra sjálfstæðismanna.
—HL.
FÆRRI
KOMAST AÐ
EN VILJA
tbúöir yfir aldraöa veröa
væntanlega teknar i notkun I
næsta mánuöi. Er hér um aö
ræöa 30 einstaklingsibúöir og
hafa alls 216 einstaklingar sótt
um þær.
Visir hafði samband við
Gunnar Þorláksson húsnæðis-
málafulltrúa Reykjavikur-
borgar og sagði hann aö fljót-
lega yrði fariö að vinna úr um-
sóknunum, en gerði þó tæp-
lega ráð fyrir að þvi yröi lokiö
fyrr en eftir næstu mánaða-
mót.
Sagði hann það erfitt verk
en við úthlutunina yröi athug-
að hverjir uppfylltu skilyrði
sem sett hafa verið og einnig
höfð hliðsjón af þvi hverjir
hafi áöur sótt um og þá hve
gamlar umsóknir þeirra væru.
Aðspurður um hve langt
væri i úthlutun á Ibúöum viö
Dalbraut sagðist Gunnar ekki
hafa trú á aö þær yröu
auglýstar fyrir áramót.
Félagsmálastofnunin heföi
óskaö eftir þvi að þær
ibúöir væru auglýstar á sama
tima og ibúðirnar við Löngu-
hliö en borgarráð hafnaði
þeirri ósk á þeirri forsendu aö
enn væri of langt I land meö
þær ibúöir.
Ályktun frá SUF, SUJ og SUS:
Fordœma einrœðis- og
ógnorstjórnir
allsstaðar í heiminum