Vísir - 19.08.1978, Qupperneq 10
10
Laugardagur 19. ágúst 1978
VISIR
Utgefandi
Framkvæmdarstjóri
Ritstjórar
Reyk japrent h/f '
Davið Guðmundsson
Þorsteinn Palsson abm.
Olafur Ragnarsson
Ritstjornarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjórí erlendra frétta: Guðmund '
ur Petursson Umsjón með helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind
Asgeirsdottir. Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jóns’son, Guðjon Arngrimsson,
Jon Einar Guöjonsson, Jonina Mikaelsdottir, Katrin Pálsdottir, Kjartan Stefans-
son, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson, Iþrottir: Gylfi Kristjansson og Kjartan L
Palsson Ljósmyndir: Björgvin Pálsson, Jens Alexandersson utlit og hönnun: Jon
Oska.r Hafsteinsson, Magnús Olafsson. •
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
• Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8.
Simar 86611 og 82260
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611
Ritstjorn: Siðumula 14 simi 86611 7 linur
Askriftargjald erkr. 2000 á mánuöi innanlands.
Verð i lausasölu
kr. 100 eintakiö.
FfCME, Fríðrík og ólympíuliðið
Skáksamband íslands vinnur nú ötul-
[lega/ að því að Island geti orðið miðstöð
skákheimsinsr og hingað flytjist aðal-
stöðvar Alþjóðaskáksambandsins.
Innan vébanda FIDE eru nú um fimm
milljónir skákmanna um allan heim, en
það segir þó ekki alla söguna um umfang
starfsemi sambandsins og áhrif þess, þvi
að aðeins litill hluti skákiðkenda er félags-
! bundinn. Skákáhugi eykst stöðugt í heim-
I inum og munu tugmilljónir manna nú iðka
j skák í tómstundum sínum.
Tvisýnt tafl
Með framboði Friðriks Ölafssonar,
stórmeistara, hóf Skáksamband íslands
tvisýnt tafl, sem enn er ekki Ijóst hvort
það vinnur. AAikil vinna fjölda áhuga-
manna, skipulag og þaulhugsaðir leikir
eru grundvöllur þess að við Islendingar
berum sigur úr býtum.
Forráðamenn skáksambandsins hafa
engar áhyggjur af þessu mikla starfi en
aftur á móti er f járhagshliðin enn ótrygg.
Það á einnig við um önnur stórverkefni,
sem|þetta sambands skákmanna landsins
vinnur að um þessar mundir.
Skáksambandið verður því að treysta á,
að landsmenn geri sér grein fyrir, hvers
virði það yrði fyrir þjóðina bæði á menn-
ingarsviðinu og öðrum sviðum ef FIDE,
fyrst alþjóðasamtaka, flytti aðsetur sitt
hingað til lands. I þeirri von væntir það
frjálsra framlaga til þessa málefnis og
annarra verkefna sinna.
Vísir hefur ákveðið að sýna hug sinn til
þessa starfs með þvi að færa Skáksam-
bandinu 100 þúsund kro*na gjöf, og var for-
ráðamönnum sambandsins tilkynnt um
það í gær.
Rikiskassinn
Skáksambandið fór á sínum tíma fram
á 8.5 milljóna króna framlag á f járlögum
ríkisins á þessu ári meðal annars til þess
að greiða kostnað vegna forsetaf ramboðs
Friðriks og þátttöku i Olympíuskákmót-
inu, sem fram fer i Suður-Ameríku í
haust.
Á f járlögum þessa árs voru sambandinu
aðeins veittar 1800 þúsund krónur.
j Eftir umfjöllun á nokkrum ríkis-
istjórnarf undum var svo á dögunum tekin
ákvörðun um 1500 þúsund króna auka-
framlag til Skáksambandsins.
Meira treysti ríkissjóður sér ekki til að
gera.
I þessu sambandi er rétt að vekja
athygli á þvi að margar milljónir króna
safnast í ríkiskassann árlega beinlínis
.vegna þess að skák er iðkuð í þessu landi.
Til dæmis námu heildartolltekjur og
söluskattur af manntöf lum á árinu 1974 til
1976 um 8.4 milljónum og af innf lutningi á
skákklukkum er áætlað að ivið meiri tekj-
ur haf i komið í hlut ríkissjóðs. Má því gera
ráð fyrir að ríkissjóður haf i þannig fengið
í sinn hlut 16—18 milljónir króna.
Á sama timabili voru veittar um 3.5
milljónir króna til skákhreyfingarinnar í
landinu, og er þar meðtalið rúmlega
Skáksamband tslands vinnur nú ötullega aö kjöri
Friðriks Ólafssonar, stormeistara i embætti forseta
Alþjóöaskáksambandsins.
milljón króna framlag vegna Reykja-
víkurskákmóts.
Ekki ber þessi samanburður vott um
mikinn skilning fjárveitingavaldsins á
gildi skákstarfseminnar í landinu.
Stuðnings óskað
Aðalþing FIDE verður haldið í Argen-
tinu 7. nóvember í tengslum við Olympíu-
skákmótið 1978. Þar mun verða kosið milli
Friðriks og Gligorits.
íslenskar skáksveitir hafa tekið þátt i
Olympíuskákmótum frá árinu 1952 og er
eðlilegt og sjálfsagt að því verði haldið
áfram.
Fyrirhugað er að senda 11 manna lið til
mótsins, sex þátttakendur í karlaflokki og
f jóra í kvennaflokki auk eins fararstjóra.
Kostnaður við þá för er áætlaður 4.5
milljónir króna og eins og nú standa sakir
gengur það dæmi ekki upp.
Öfært er að láta f járskort koma í veg
fyrir að harðsnúið keppnisfólk okkar fái!
að spreyta sig á Olympíumótinu og kynna
um leið skáklandið island.
En ef f ör þessa hóps á að verða að raun-
veruleika verður að koma til stuðningur
annarra aðila en ríkisins, það er sveitar-
félaga, stofnana og fyrirtækja.
Jaf nf ramt verða slíkir aðilar að styrkja
baráttu Skáksambands Islands fyrir kjöri
Friðriks Ólafssonar sem forseta Alþjóða-
skáksambandsins.
islenskur sigur
Þótt kosningahorfurnar séu góðar fyrir
Friðrik telja kunnugir að tryggja þurfi
honum stuðning lOtil 15 landa til viðbótar,
ef sigur eigi að vinnnast. Við það þarf fé
vegna ferðalaga og annars kostnaðar.
Vísir hefur eins og áður segir sýnt for-
dæmi með fjárframlagi til Skáksam-
bandsins, og væntir blaðið þess að aðrir
aðilar telji það vert eftirbreytni.
Það er ekkert vafamál, að kjör Friðriks
Ólafssonar sem forseta Alþjóðaskáksam-
bandsins og flutningur höfuðstöðva þess
til Reykjavikur myndi auka mjög hróður
Islands á menningarsviðinu og gera landið
að sannkölluðu skáklandi.
Einskis má þvi láta óf reistaðtil þess að í
þessu taf li verði tryggður íslenskur sigur.
L-
.
——
'
Frétt vestur-þýska stórblaðsins Bild am
Sonntag þess efnis að hryðjuverkamaðurinn
„Carlos”, einnig nefndur „Sjakaiinn”, starfi á
vegum ísraelsrikis en ekki heimskommúnism-
ans, hefur að vonum vakið athygli. Það er þó
ekki fréttin sem slik sem valdið hefur V-Þjóð-
verjum ugg i brjósti heldur sú meðferð sem
þessi frétt hefur fengið i heimspressunni. Blöð
utan Þýskalands hafa ekki minnst á hana.
Þykir sumum Þjóðver jum sem það leiði i ljós
að heimspressunni, fréttastofum og alþjóðarit-
um, sé stjórnað af aðilum, vinveittum ísrael.
Mörgum Þjóðverjanum finnst það benda til að
Brotabrot
Eftir Hrein Loftsson
erfitt gæti reynst að sýna fram á, hverjir það i
rauninni eru sem standa að baki blóðugu striði
hryðjuverkamanna gegn v-þýsku þjóðskipu-
lagi.
Það var sunnudaginn 23. júli
siðastliðinn, sem Bild am Sonn-
tag birti mynd af „Carlosi” sem
tekin var á Heathrow flugvelli i
London. Það sem merkiiegt var
við þessa mynd sem tekin var af
leynilögreglumanni nokkrum,
var það, að þrátt fyrir að menn
vissu hver þar var á ferð
hreyfðu enskir lögregiumenn
hvorki legg né lið til þess að
handsama þennan frægasta
hryðjuverkamann i heimi. Hann
hafði að þvi er virtist engar
áhyggjur og spókaði sig
óhræddur á flugveliinum. Könn-
un ieiddi I ljós að ástæða þessa
var einföid: hann er með Isra-
HEfMSPRESSAM