Vísir - 19.08.1978, Page 15
14
Laugardagur 19. ágdst 1978 VISIR
VISIR ' Laugardagur 19. ágúst 1978
Bifreiðaeigendur athugið
Viö lagfærum hemla á ölium gerðum bif-
reiða. 17 ára starfsreyusla tryggir yður
góða þjónustu. Höfum ávallt fyrirliggjandi
hemlahluti f allar gerðir ameriskra
bifrciða á mjög hagstæðu verði.
STILLJNG HF.“
:11340-S2740.
DREGIÐ 25. AGUST
. GERIST PU
ASKRIFANDl...
GRIKKLANDSFERÐ GEFST.......FYRIR TVO
Sértu áskrifandi að Vísi gefst þér kostur á
Grikklandsferð í haust, eða ef þú vilt heldur,
næsta sumar.
Þeim sem þér líkar best, býður þú með þér,
því Vísir borgar fyrir tvo.
GJALDEYRIRINN GEFST EINNIG FYRIR TVO
Auk þess að borga báða farseðlana, borgar
Visir gjaldeyrinn lika fyrir tvo.
GÆÐIN SÉR ÚTSÝN UM
Útsýn sér siðan um að þið njótið alls þess
sem kostur er. Skoðið forna menningararfleifð
Grikkja undir leiðsögn reyndra fararstjóra, sleikið
sólskinið (hjálparlaust) og á kvöldin njótið þið
skemmtan við hæfi.
GERIST ÞÚ ÁSKRIFANDI
Gerist þú áskrifandi að Visi færð þú þó
aðalávinninginn heim á degi hverjum. Þvifáirþú Vísi
heim daglega getur þú fylgst með þróun atburða
innanlands jafnt sem utan. Tekið þátt í umræðum
um dægurmál, listir og stjórnmál svo eitthvað sé
nefnt og átt þannig þinn þátt í hraðri atburðarrás
nú-dagsins.
SÍMINN ER 8 66 11.
VISIR
' 15
.
Það hefur
alltaf fylgt
krístinni
trí þetta
ofstœki:."
Rœtt við Sveinbjörn Beinteinsson
allsherjargoða, skáld og bónda
að Draghálsi wm Ásatrú,
skáldskap og sitthvað fleira
Viðtal: Sveinn Guðjónsson
Myndir: Sigurður H. Engilbertsson o.fl. ;
Vegurinn heim að Draghálsi er holóttur og slæm-
ur yfirferðar, — og það rignir. Sennilega er Freyr
að mótmæla átroðningi okkar á helgasta stað ása-
trúarmanna og þeirri ósvífni að forvitnast um hagi
allsherjargoðans/ Sveinbjörns Beinteinssonar,
skálds og bónda að Draghálsi.
Við sjáum hann tilsýndar á veginum fyrir neðan
túnið. Grátt skeggið flaksast til í vindinum og um
leið og við heilsumst velti ég því ósjálfrátt fyrir
mér, líkt og Jónas forðum, hvað orðið hafi um forn-
aldarfrægðina. Sveinbjörn er vissulega fornmann-
legur á að líta en þrátt fyrir mikilúðlegt útlit reynist
hann við nánari kynni Ijúfmenni hið mesta og allra
manna þægilegastur i viðmóti.
Allsherjargoðinn harðneitar þeim orðrómi að
Ásatrúarfélagið sé liðið undir lok: — „Við höfum
lítið haft okkur í f rammi að undanförnu en það þýð-
ir alls ekki að við séum hættir. öðrum þræði vildum
við lika prófa hvort félagið stæði ekki jafnt eftir
þótt starfsemin dytti niður um tíma og minna um-
stang væri J kringum þetta. Við hyggjumst setja
meiri kraft í þetta með haustinu en þá er fyrirhug-
að blót í Reykjavík og kynningarfundir í kjölfar
þess."
Eftir nokkur orðaskipti um slæmt tíðarfar höld-
um við að líkneski Þórs, sem stendur á kietti einum
þar sem heitir Draghálsstekkur. Að sögn Svein-
björns er þessi staður þeim ásatrúarmönnum frið-
helgur.
goðin hefðu reiðst ykkur fyrir
tiltækið, — ertu sammála þvf?
„Nei, ööru nær. Þetta voru
fagnaöarlæti þvi að regniö eyk-
ur frjósemi jaröarinnar og
hreinsar loftiö. Af sömu ástæö-
um er þaö misskilningur ef þiö
haldiö aö Freyr sé ykkur reiöur
fyrir aö koma hingaö i dag.”
„Kaupum ölog blöndum
það með brennivíni"
Viö spyrjum allsherjargoöann
hvort blót þeirra ásatrúar-
manna nú á dögum séu haldin
samkvæmt einhverri fyrirmynd
úr fornum sið:
„JVsatrúarmenn aö fornu blót-
uöu goöin úti og færöu þeim
fórnir i helgum lundum eöa á
friöhelgum blótstööum. Gftir
þvi sem unnt er reynum viö að
styöjast viö þaö sem vitað er aö
tiökaöist I fornum siö en höfum
jafnframt svona smátt og smátt
búiö okkur til ákveönar blót-
reglur.
Viö byrjum á þvi aö helga
blótið sem við köllum — lýsa
griðum og setningu blótsins. Aö
lýsa griöum er úr fornum sið og
„Misskilningur að halda
að Freyr sé reiður..."
„Þessa styttu reistum viö
fyrir blótið i sumar en sú gamla
hrundi i jaröskjálftum hérna
um áriö,” — segir allsherjar-
goðinn um leið og hann bankar i
gipsstyttuna á klettinum. Þetta
með blótið i sumar kemur okkur
á óvart og við spyrjum Svein-
björn nánar út I það:
„Já, viö héldum blót i sumar
og er ekkert sérstakt til frá-
sagnar um þaö enda fór það
ekki hátt I fjölmiðlum hér. Hins
vegar voru viöstaddir banda-
riskir sjónvarpsfréttamenn og
þeir mynduöu athöfnina i bak og
fyrir.
Þetta er annaö blótið sem viö
höfum haldið á þessum staö sem
er i okkar augum sérstakur
helgistaöur og friöhelgur. Hiö
fyrra var stóra blótiö sem haid-
iö var sumariö 1973. Þá var hér
mikiö fjölmenni og margir
fréttamenn bæöi innlendir og
erlendir enda var þessu slegiö
upp i stórblööum viöa um heim
og i kjölfariö fengum viö mikiö
af bréfum viösvegar aö. En svo
höfum viö haldið nokkur blót 1
Reykjavik, — þar sem viö höf-
um fengið hús og fyllt þaö af
fólki...”
A stóra blótinu ’73 rigndi mik-
ið og menn gerðu þvi skóna að
Blótað við fótstall Þórs. Þessi mynd var tekin i
stóra blótinu árið 1973.
felur I sér, aö menn fella niöur
ósætti og væringar á meöan á
blótinu stendur. Þá förum viö
gjarnan meö eitthvaö úr fornum
kveöskap svo sem Hávamálum
og Völuspá og þvi næst eru
drukkin full guöanna og svo
minni landvætta og einstakra
manna, en á þessu tvennu ger-
um viö greinarmun. Þaö aö
drekka full guöanna er afar
þýöingarmikiö trúarlegt atriöi
hjá okkur og meö þvi minnumst
viö þeirra guöa sem viö tengjum
okkar trúarbrögð viö. Aö
loknum þessum trúarathöfnum
setjumst viö aö teiti, — etum og
drekkum og erum glaöir”.
Hafiö þið kannski blandað
sérstakan mjöð fyrir þessar at-
hafnir?
Nei, við höfum ekki gert þaö
heldur bara keypt öl og blandaö
þaö meö brennivini. Annars hef-
ur komið til oröa að brugga sér-
stakan mjöö fyrir þetta, —
svona hæfilega sterkan...”
— Og þá samkvæmt fornri
uppskrift?
„Þaö er nú ekki nákvæmlega
vitað hvernig fornmenn brugg-
uöu öl sitt.en þó vita menn aö
þeir notuöu mikiö bygg og svo
ýmsar jurtir, aöallega humal og
svo hunang I staðinn fyrir syk-
ur. — Jú, þaö hefur komiö til
oröa aö brugga sérstakan blót-
mjöö en gallinn er bara sá aö
þaö er ekki alveg I samræmi viö
islensk lög. Ég býst þó viö aö
undanþága fengist i þessu til-
felli enda skilst mér aö flestir
tslendingar séu á einhverskonar
undanþágu i þessum efnum.”
En hvað með fórnir, — slátrið
þið skepnum eins og menn
gerðu I heiðnum sið?
„Nei, og þaö stafar einfald-
lega af þvi aö við nennum þvi
ekki. Það er miklu auöveldara
aö fá sér bara kjötskrokk, enda
gerum viö þaö. Hér áöur fyrr
var það eðlilegt aö slátra skepn-
unni á staönum þvi þá gátu
menn ekki geymt kjöt. En viö
nútima aöstæöur er þaö hreinn
óþarfi og of mikiö umstang”.
Nú halda margir aö þaö sé eði
sukksamt á þessum blótum
ykkar og að andi hinna forn-nor-
rænu vikingahátiða svifi þar
yfir vötnum, — er það svo?