Vísir - 19.08.1978, Blaðsíða 28

Vísir - 19.08.1978, Blaðsíða 28
19. égúit 1978 Lokwn fiskvinnslufyrir- toskja á Suðurnesjumt Níu hundruð atvinnulausir NIu hundruA manns hafa nú misst atvinnuna á Suöurnesjum vegna lokunar fiskvinnslufyrirtækja þar, aö þvi er Emil Páll Jónsson á skrifstofu Verka- lýös- og sjómannafétags Keflavikur sagöi i samtaii viö VIsi. Emil sagði, að fólk væri nú sem óðast aö láta skrá sig atvinnu- laust, væri tala skráðra atvinnuleysingja nú að nálgast tvö hundruð. Fólk má nú láta skrá sig atvinnulaust frá og meö þeim degi er þaö missir atvinnuna, og nýtur at- vinnuleysisbóta frá þeim tima. Emil Páll sagöi hins vegar aö margir væru hræddir við að láta skrá sig, fólki fyndist þaö vera aö segja sig til sveitar með þvi, en hjá öðrum væri það metnaðarmál að gera það ekki. Þá bæri einnig aö hafa I huga, sagöi Emil, aö margir væru nú i fríi, og sumir héldu að þetta ástand muni ekki vara lengi, og léti þvi ekki enn skrá sig atvinnulaust. Það væri skýringin á þvi hve fáir tiltölulega heföu þegar látiö skrá sig. Þessir niu hundruð, sem nú hafa misst at- vinnuna á Suðurnesjum vegna lokunar fisk- vinnslustöðvanna, eru um þrjú hundruö sjó- menn og um sex hundr- uð manns er unnu i landi. Samtals munu þvi vera um niu hundr- uð atvinnulausir á Suðurnesjum vegna erfiðleika fiskvinnslu- fyrirtækjanna. —AH Uppákoma i Tjörninni! Spilverklð á stórum ffefra Spilverk þjóöanna ætiar aö fara á risastór- um fleka út á tjörn á morgun klukkan tvö. Ekki hyggjast þau halda hljómleika á tjörninni miöri heldur á þetta tiltæki þeirra rót aö rekja til myndatöku sem þarna fer fram fyrir plötuumslag á næstu plötu þeirra. Platan sem kemur út i lok september nefnist „Island” og er allt efni piötunnar eftir tvo félaga Spilverksins þá Sigurð Bjólu og Valgeir Guðjónsson. —ÞJH Gufuvaltarinn Briet er aftur kominn á fulla ferð, að þessu sinni i Árbæja- saíni. Briet var fyrsta gatnagerðar- vélin, sem flutt var hingað til iands og heitir i höfuðið á Briet Bjarnhéðins- dóttur, sem barðist fyrir því að hann yrði keyptur. ÓM/Visismynd SHE. Friðrik Ólafsson sem forseta FIDE Visfr leggur baráttunni lið Hvetur aðra til að veita Skóksambandinu einnig f járstuðning „Við erum að vonum mjög ánægðir með þetta framlag og þann hug, er býr að baki. Skáksam- bandið verður að lita á þetta sem viðurkenningu á viðleitni okkar til að efla skáklist hér inn- anlands og ekki siður á þeirri staðreynd, að ls- land er oröið eitt af höfuð- bólum skáklistarinnar”, sagði Einar S. Einarsson, forseti Skáksambandsins, eftir að honum hafði verið tilkynnt, að dagblaðið Vlsir ætlaði að styrkja baráttuna fyrir kjöri Friðriks Ólafssonar með 100 þúsund króna framiagi. „Viö höfum gert áætlun um hvernig viö getum sem best unniö aö kjöri Friöriks. Ekki hefur enn verið fullkomlega gengið frá henni, en i næstu viku munum við ásamt Frið- riki setjast á rökstóla til að ganga frá henni I stór- um dráttum”, sagði Ein- ar. Hann sagði, að mikill kostnaður fylgdi þeirri baráttu, sem Friðrik þyrfti aö heyja. Fimmtán hundruð þúsund króna framlag rikisstjórnarinn- ar hefði komiö sér mjög vel. Hluti af þeirri upp- hæð gengi hins vegar upp I fjárútlát sem þegar heföu verið innt af hendi. „Þaö er ljóst að meira þarf til og við erum auð- vitað þakklátir öllu þvi fólki, sem lætur af hendi rakna til þeirra miklu verkefna, sem eru fram- undan hjá Skáksamband- inu”. Skáksambandið hefur nú i bigerð aö hefja fjár- söfnun vegna farar is- lenskra skáksveita á Olympiuskákmótið i Argentinu i haust. „Okk- ur vantar enn um 3-4 milljónir til að brúa bil- iö”, sagði Einar S. Ein- arsson. Visir vonar að þetta framlag blaðsins verði öðrum til hvatningar til að styrkja starfsemi Skáksambandsins sem hefur mörg verkefni á sinni könnu sem öll kosta mikla peninga. —BÁ— SH-menn viffa 20% greiðslu úr Verðiðfnunarslóðit Þýðir þúsuud mlflj- énir h vern mánuð! — Viffa auk þess 95% birgðalán fyrir lokuðu frystihúsin Frystihúsaeigendur hafa farið fram á mjög verulegar ráðstafanir til aðstoöar frystihúsunum, en ráöherrar I núverandi rlkisstjórn telja eðlilegast að slikar aðgeröir verði ákveðnar af nýrri stjórn. Forsvarsmenn Sölu- miðsvöðvar hraöfrysti- húsanna fóru fram á þaö I gær á fundi með Geir Hallgrimssyni, forsætis- ráöherra, og Matthiasi Bjarnasyni, sjávarút- vegsráðherra, að rikis- stjórnin hækkaði greiðsl- ur úr Veröjöfnunarsjóði, sem verið hafa 11%, i 16%, frá 1. ágúst s.l. að telja og i 20% 1. september næstkomandi enda verði kauphækkun þá um 15%. Mánaðarút- gjöld miðað við 20% greiðslur yrðu um þúsund milljónir. Þá geröu þeir tillögu um, aö vandi þeirra frystihúsa, sem þegar hafa lokaö, yrði leystur með þvi til viðbótar, aö veita þeim 95% birgða- lán, sem siöar yrði breytt i lán til lengri tima. Nú- verandi lán munu vera innan við 70%. Tillögur þessar voru lagðar fram eftir tveggja daga stjórnarfund SH. —ESJ Litill áhugi á að hafa Framsókn með Kratar teffa hmpið að Lúðvlk verði forsmtisráðherra Aiþýðuflokksmenn telja m jög hæpið að Lúðvlk Jóseps- son fái forsætisráðherraembættið ef Alþýöuflokkur og Alþýðubandalag fara saman I stjórn, samkvæmt heim- ildum blaösins. Ljóst er, að Alþýðubandalagiö fær ekki utanrikisráðherrann og er enn rætt um aö hann verði utanþingsmaöur. Er þá miðaö við minnihlutastjðrn, en mjög lltill áhugi viröist vera fyrir þátttöku Framsóknar- flokksins. Þess er vænst.að á fyrsta formlega fundi flokkanna þriggja á morgun leggi Alþýðuflokkur og Alþýöu- bandalag fram tillögur sin- ar og veröa þeir lltt sveigjanlegir viö Fram- sóknarmenn. Steingrimur Hermanns- son, ritari Framsóknar- flokksins, sagði I viðtali viö Vísi i gærkvöldi,, að vel gæti verið að flokkarnir tveir vildu frekar minni- hlutastj. og bjóst hann við aö ljóst yrði um helgina hvort Framsóknarflokkur- inn yröi með. Vandi frystiiðnaðarins hvilir nú alfarið á þeim sem nú reyna stjórnar- myndun. Telja þeir, aö gengisfelling og niður- færslur muni duga lang- leiöina til aö bjarga frysti- iönaðinum, að minnsta kosti þeim húsum sem bærilega eru rekin. Þá hafa þær raddir mjög heyrst innan Alþýöuflokks- ins, að ef Framsóknar- flokkurinn verði ekki með, þá veröi nýsköpunarmögu- leikinn reyndur aftur, áður en að minnihlutastjórn kemur. —ÓM. Mikið var um fundahöld I Þórshamri f gær. Myndin var tekin þegar verkalýðsforingjar voru að koma niður stig- ann I Þórshamri af fundi en annar hópur var á uppleiö til fundarhalda. Visismynd JA Skólahús brann Kennsluhús, sem taka átti i notkun I haust á Reykhólum I Barða- strandasýslu, brann I gær, og er um milljóna- tjón að ræða. Eldurinn kom upp i gærmorgun og varö ekkert við hann ráöiö. Kennsluhúsið var á einni hæð, 545 fermetrar aö stærð. Iönaðarmenn voru aö vinna viö að fullgera húsnæðið. —ESJ. SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 86611 : Sm á a uglýsinga m óttaka alla virka daga frá 9-22. Laugardaga frá 9-14 og sunnudaga frá 18-22.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.