Vísir - 01.09.1978, Blaðsíða 5
vism Föstudagur 1. september 1978
Umsjón: Gylfi Kristjánsson
Kjartan L. Pálsson
J
Fulltrúar
frá yfir
40 þjóðum
Þing Alþjóðasambands handknattleiks-
manna hér á landi í nœstu viku
Það er í mörg horn að lita hjá
handknattleiksforustunni þessa
dagana, enda stórt og óvenjulegt
verkefni, sem glimt er við.
Alþjóðaþing handknattleiks-
manna verður haldið á Hótel
Loftleiðum i næstu viku, og er það
i fyrsta skipti sem alþjóðlegt þing
iþróttasambands er haldið hér á
landi.
„Við litum á þetta sem mikinn
heiður fyrir okkur að vera falið að
halda þessa ráðstefnu”, sagði
Sigurður Jónsson, formaður HSl,
á fundinum i gær. Þetta er mikill
merkisatburður, enda koma
hingað til lands um 150 Utlending-
ar á þingið frá yfir 40 þjóðum”.
Kostnaður við þinghaldið er
áætlaður um 20 milljónir króna og
eru margir kostnaðarliðir. Sem
dæmi má nefna, að það eitt að
koma upp tækjum til að tUlka
ræður á þinginu og fá til þess
túlka erlendis frá kostar um 2
milljónir. Samkvæmt reglum
Alþjóða handknattleikssam-
bandsins á að túlka allar ræður á
þingum sem þessum á þrjú
tungumál, ensku, þýsku og
frönsku. Þegar frá þessu hafði
verið gengið kom upp sérstök ósk
frá væntanlegum fulltrúum
Arabarikjánna að það yrði einnig
túlkað fyrirþá.á arabisku, ogvar
þvi máli kippt i lag með tiiheyr-
andi veseni og aukakostnaði.
„Svona hafa mörg atriði i sam-
bandi við þetta verið”, sagði
Gunnar Torfason, sem á sæti i
undirbúningsnefnd, ásamt þeim
Sigurði Jónssyni og Axel Einars-
syni. „Við gerðum okkur ekki
grein fyrir þvi, hversu gifurlegt
verkefni við vorum að taka að
okkur, en þetta er samt allt að
smella saman hjá okkur”.
Fulltrúar á þinginu koma viðs-
vegar að eins og fyrr sagði, og
meðal annars má nefna að frá
S-Arabiu kemur prins einn
Selfoss
aftur í
2. deild?
Fyrstu lcikirnir i úrslitakeppn-
inni i 3. deild islandsmótsins i
knattspyrnu voru leiknir i gær-
kvöldi en úrslitakeppnin fer nú
fram á tveim stöðum og er leikin I
tveim riðlum. Komast sigur-
vegararnir úr riðlunum báðir upp
i 2. deild.
í gær léku á Sauðárkróki Magni
Grenivik og Einherji Vopnafiröi.
Lauk þeim leik með jafntefli 1:1
og skoruðu leikmenn Magna bæði
mörkin. A morgun leika á sama
stað Einherji og Njarðvik.
Hinn leikurinn i gærkvöldi var á
milli Selfoss og Vikings frá ólafs-
vik. Selfyssingar sigruðu 3:0 og
sáu þeir Sumarliði Guðbjartsson
(2 mörk) og Hreinn Bergsson um
að skora mörkin. Vikingarnir
leika aftur á morgun og mæta þá
Siglfirðingum á vellinum i Mos-
fellssveit. _kip_
merkilegur, en hann heitir: Fahd
Ben Naser Ben Abel Aziz (gjörið
þið svo vel). Hann er mikill
áhugamaður um handknattleik,
og það fer víst ekkert á milli
mála, þegar hann heimsækir ráð-
stefnur sem þessa. Þegar þing A1
þjóða handknattleikssambands-
ins var haldið á ttaliu, var hann i
verslunarhugleiðingum og
keypti sér þá m.a. gosbrunn einn
mikinn, sem varð á vegi hans og
hafði með sér heim! Kom upp sú
spurning á fundinum i gær, hvað
hægt væri selja honum merkilegt
hér.
Þinghaldið á Hótel Loftleiðum
fer þannig fram að á miðvikudag
og fimmtudag starfa nefndir, en
sjálft þinghaldið fer svo fram á
laugardagog sunnudag. Við mun-
um skýra nánar frá þinginu eftir
helgina.
gk—.
Náðu ekki
stigi
Þróttarar náðu ekki að tryggja
sér endanlega sætið i 1. deildinni i
knattspyrnu I Vestmannaeyjum i
gærkvöldi er þeir mættu heima-
mönnum þar. Nægði þeim jafn-
tefli til að halda örugglega sætinu
ideildinni næsta ár, en þeim tókst
ekki að ná þvi takmarki.
Eyjaskeggjar voru þeim erfiðir
viðfangs og gáfu ekkert eftir þótt
leikurinn skipti þá engu máli
hvað varðar fall eða baráttuna
um 3ja sætið en það er það eina
sem eftir er að keppa um i deild-
inni.
Það voru ekki liðnar nema 10
minútur af leiknum þegar fyrsta
markið kom — Sigurlás Þorleifs-
son sá um að skora það. Orn
Óskarsson bætti öðru marki viö
fyrir hálfleik en þriðja mark
Eyjaskeggja kom um miðjan
siðari hálfleikinn og var Karl
Sveinsson þar að verki.
Eftir það mark gáfu heima-
menn eftir og Þróttararnir fengu
nokkur tækifæri en tókst aldrei að
koma knettinum i netið.
( STAÐAN 1
---------r-—
Staðan il.deild tslandsmótsins
i knattspyrnu eftir leikinn i gær-
kvöldi:
Vikingur 17
Keflavik 17
Fra m 17
Vestmannae. 17
Þróttur 17
KA 17
FH 17
3:0
0 44:8 33
I 47:12 29
7 26:28 19
6 28:24 18
8 21:28 16
7 24:24 14
8 21:27 12
9 14:37 11
26 9 21:34 10
2 1 14 16:44 5
Breiðablik 17
Nú er ein umferð eftir i deild-
Vestmannae. — Þróttur
Valur 17 16 1
Akranes 17 13 3
9 1
7 4
7 2
7 3
3 6
3 5
inni og mætast þar þessi lið:
Keflavik — Vikingur, Þróttur —
KA.FH — Breiðablik, Vest-
mannaeyjar — Fram, Valur —
Akranes. Þrir fyrstnefndu
leikirnir eru allir mjög mikilvæg-
ir i'keppninni um 3ja sætið svo og
falliði 2. deild eins og sjá má þeg-
ar staðan er skoðuð.
HUSBYGCJENDUR
SJENSKU OFNARNIR í
ÖLLUM STÆRDUM
Seljum bceði
óunnið efni H H
og tilbúna
ofna.
Leitið
upplýsinga. *
Stuttur afgreiðslufrestur
Skorri
Ármúla 28,
H/f simi 37033
VIÐ OPNUM í DAG
MEÐ FRUMSYNINGU KL.16
,,Stórglœsileg
sýning, sem á vafa-
laust eftir að vekja
umtal.. ."
ólafur Laufdal, Hollywood
Tuttugu og þrír fataframleiðcndur,
Karon, Módelsamtökin og félagar úr
Hárgreiðslumeistarafélagi íslands og
Sambandi íslenskra fegrunarsér-
fræðinga, hafa einsett sér að koma
öllum rækilega á óvart á FÖT ’78.
Sýndar verða nýjungar í innlendri
fataframleiðslu í sérstökum sýningar-
deildum, en á sýningarpalli verður sér-
sýning á hárgreiðslu, sérsýning á
snyrtingu, og síðast en ekki síst
STÓRGLÆSILEG TÍSKUSÝNING.
ISIENSK
F0T/7B
LAUGARDALSHÖLL
1,—10. SEPTEMBER
AKRAPRJÓN HF.___________
ÁLAFOSS HF._____________
ARTEMIS SF. NÆRFATAGERÐ
BLÁFELDUR HF.___________
BÓT HF.__________________
ELGUR HF.________________
FATAGERÐIN HF.__________
FÖT HF._________________
GRÁFELDUR HF.___________
HENSON — SPORTFATNAÐUR HF,
HILDA HF._______________
KARNABÆR HF.____________
KLÆÐIHF. ________
LEÐURSMIÐJAN____________
LEXA HF. ________________
MAX HF.
NÆRFATAGERÐIN CERES HF.
PAPEY HF,_______________
R. GUÐMUNDSSON__________
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF.______
SKINFAXI HF.____________
SPORTVER HF.____________
VINNUFATAGERÐ ÍSLANDS HF.
Opið virka daga kl. 17—22.
Laugardaga og sunnudaga kl.
14—22.
Aðgöngumiðaverð: kr. 700
______________fyrir íullorðna
kr. 300 fyrir börn
argus