Vísir - 02.09.1978, Side 5
VTSER Laugardagur 2. september 1978
5
Valdimar Þórarinsson t.v. og Guömundur Sveinbjarnarson. Valdimar
hefur losaö sig viö 13 kiló á siöustu þrem mánuöum, en Guömundur 12
frá því hann byrjaöi i Línunni fyrir um einu ári.
„Var farinn að líkjast
ónefndum mönnum hér
,11
í bœ — sagði Valdimar Þórarinsson sem
stefnir að þvi að losna við 22 kíló fyrir óramót
„Ég stefni aö þvi aö vera búinn
um áramót”, sagöi Valdimar
Þórarinsson, sem þegar hefur
misst 13 kiló á sföustu þrem mán-
uöum.
„Þetta var mjög erfitt fyrst i
staö og þá sérstaklega eftir aö
fyrstu fimm kilóin eru farin. Þá
hefst mjög erfitt timabil, en ef
maður kemst y fir þaö þá er nokk-
uðauöveltaðhaldaáfram.” sagöi
Valdimar.
,,Fæ mér kók á sunnu-
dögum.”
„Ég legg mig fram viö aö halda
mig viö þaö mataræöi sem okkur
er ráölagt hér, en það er ekki þar
með sagt að ég sleppi öllu þvi sem
er á bannlistanum. Þaö kemur
stundum fyrir aö ég fái mér kók á
sunnudögum og ef til vill eitthvaö
fleira sem okkur er ráðlegt aö
sleppa. En eitt hef ég haft fyrir
fasta reglu og það er að fá mér
aldrei neitt fyrir kvöldmat,”
sagði Valdimar.
,,Var farinn að iikjast
ónefndum mönnum hér i
bæ”.
„Ættingjar og vinir voru farnir
aö benda mér á að ég værifarinn
aö likjast ónefndum mönnum hér
ibæhvaðvaröaði mittismáliö. Ég
var marg oft búinn aö reyna að
taka mig á og breyta þessu, en ég
gafst alltaf upp þegar fimm kilóin
vorufarin. Þáfórallti samafarið
aftur. En viö svo búið mátti ekki
standa og ég ákvaö aö allt i lagi
væri að reyna Linuna. Hér var
mér vel tekið og ég sá aö margir
áttu viö erfiðari vanda aö striöa
en ég.” —KP.
„Ég leið fyrir
að láta sjá mig"
♦
sagði ArndisMagnúsdóttirsem hefur mi*st 45 kfló
„Ég varnæstum hætt aö fara út
fyrir hússins dyr, ég leiö fyrir aö
láta sjá mig”, sagöi Arndis
Magnúsdóttir, en hún hefurnáö af
sér 45 kiióum siðan hún byrjaöi i
Linunni fyrir tveim árum. „Þetta
hefur farið hægt og sfgandi, en
ailt er þetta i áttina og ég er ekki
hætt ennþá”, sagöi Arndfs.
„Ég varbúin aö reyna 1001 kúr,
en ekkert dugði. Ég haföi lesiö
mikiö um megrunarklúbba i er-
lendum blöðum og vonaðist til
þess aöeinn slikur yröi settur upp
hér. Þegar Linan var stofnuö þá
gekk ég i klúbbinn og hef verið
hér siöan.
„Það dugar ekkert,
nema rétt mataræði”.
„Þaö eina sem dugar til að
megra sig er rétt mataræði. Þaö
þýöir ekkert aö fara i einhverja
sérstaka kúra i stuttan tima.
Maður veröur aö boröa hollan og
góöan mat og foröast þaö sem
maður veit aö er fitandi. Meö þvi
aöhugsa vel um hvað maöur læt-
ur inn fyrir sinar varir kemst
maður upp á lagiö ótrúlega fljótt.
Ég held aö öll fjölskyldan hafi
notið góös af þvi aö ég fór aö
hugsa miklu meira um samsetn-
ingufæðunnaroghvaðþaðer sem
ég ber á borö. Ég er meö fjóra
krkakka, tvo undir skólaaldri og
tvo' sem eru i skóla. Það getur
veriö erfitt aö standast freisting-
una, þegar maöur þarf aö sýsla
mikiö viðmatseld, en þetta er allt
yfirstiganlegt meögóöum vilja og
þeirri hjálp sem maður fær hér
frá fólkinu. Við ræöum mikiö um
mat og uppskriftir og miölum
hvertööru. Hér er margt fólk sem
hefur sigrað i baráttunni viö
Arndis Magnúsdóttir hefur lést
um 45 kiió, og þaö má einnig sjá á
merkjunum, sem hún ber 1
barminum, en sérstakur litur er
fyrir ákveöinn fjölda kilóa.
( Visismynd Gunnar V. Andrés-
son.)
aukakilóin og þaö getur kennt
manni margt,” sagöi Arndis.
„Engin áþján að fara i
búðir lengur”.
„Mér fannst þaö mikil áþján aö
fara i búöir og reyna aö fá einhver
föt. Það var allt of litiö og maöur
þurfti aö láta sauma á sig ein-
hverjar viðar mussur. Nú nýt ég
þess aðfara Ibúöirog kaupa mér
falleg föt. Nú sleppi ég alveg aö
skoöa yfirstæröirnar, þær koma
mér ekki viö lengur. Maöur
hugsar meira um útlitið og er
hressari og skapbetri en áöur.
Þaö getur enginn trúaö þvi aö
óreyndu hve miklu þaö getur
breyttaö losnaviö þessi aukakiló,
sem baráttan hefur staöiö við I
fjölda ára,” sagöi Arndis. KP.
„HAFÐI
ENGA TRÚ
Á AÐ
ÞETTA
TÆKIST"
— sagði Mogndis
Grímsdóttir sem
hefur losað sig við
rúm 55 kíló
„Ég var algjörlega búin aö
gefast upp i baráttunni viö þessi
hræöilegu aukakiló. Ég var búin
að reyna oft sjálf og gat þá náö af
mér allt upp i tiu kílóum, en þáö
dugöi skammt og alltaf fór þetta i
sama farið aftur”, sagöi Magndis
Grimsdóttir, en hún hefur náö af
sér rúmum 55 kilóum á s.l. 15
mánuöum.
„Églét til leiöast aö koma hing-
aö með vinkonu minni. Þaö var
allt i lagi aö reyna einu sinni enn,
en ég haföi enga trú á aö þetta
tækist. Þetta gekk ágætlega
fyrstu vikurnar og svo liðu þær
hver af annarri og kilóin urðu
fleiri og fleiri sem ég losnaði við.
Nú er ég útskrifuö héðan úr
klúbbnum, en ég lit hér alltaf við
svona til aö halda mér við efniö.”
sagöi Magndis.
„Elda ekki sérstaklega
handa mér”.
„Þaö getur veriö dálitiö freist-
andi að vera sifellt aö handfjatla
eitthvert góögæti sem maöur er
meö á borðum fyrir fjölskylduna.
Ég á þrjú börn, sem eiga sinn
uppahaldsmat og honum er ekki
hægt aö sleppa, þó ég megi ekki
bragða hann. Annars hef ég
aldrei eldað sérstaklega fyrir
mig. Ég borða það sem ég hef
fyrir fjölskylduna en passa mig á
þvi t.d. aö snerta aldrei brauö,
kökur, og sætindi. Einnig sleppi
ég sósum meö mat, en hef nóg af
grænmeti og ávöxtum” sagöi
Magdis.
Erfiöast sagöi Magndis að væri
aöútbúasig meö nesti i feröalög.
Þá sagðist hún freistast að fá sér
brauð, „og þaö fór illa hjá mér
um verslunarmannahelgina, þvi
þá þyngdist ég um tvö kiló. Þau
voru þó fljót að fara aftur, en ég
verð aö passa mig mjög vel ef
ekki á illa aö fara.’Mágndls sagöi
aöhúnheföigættþessvelaö hana
vantaði ekki nein vitamin á
meðan hún var i megruninni og
meðan á henni stóð fór hún til
læknis til rannsóknar. „Mér leiö
aldrei illa, varö ekkert máttlaus,
eöa illa á mig komin meðan á
þessu stóö, en þetta var erfitt, en
tókst meö hjálp fólksins hérna
sem berst við þaö sama og ég
gerði”, sagði Magndis. —KP.
Magndfs og sonur hennar I buxunum, sem hún notaöi áöur en hún léttist
um rúm 55 kiló.
(Visismyndir- Gunnar V. Andrésson.)
Magndis klæddist buxum, sem hún notaöi „fyrir 55 kflóum.” „Þessar
geymi ég til minningar um óskemmtilega tlma, og ég er staöráöin f þvf
aö hafa þær þaö sem eftir er.”
Fyrir 25 tonnum
Meðlimir í megrunarklúbbnum Línunni hafa nóð
af sér samtals 25 tonnum ó tveim órum
„Viö höfum nú náö 25 tonna
markinu. En viö höfum einnig
deildir út um land svo þaö er hægt
aö bæta nokkrum tonnum viö
þennan árangur sem náöst hefur
hjá okkur I Reykjavlk”, sagöi
Helga Jónsdóttir, sem veitir
megrunarklúbbnum Lfnunni for-
stööu, þegar Visir leit inn til
henriar f Skiphoit 9.
Hjá Linunni er opiö hús fjóra
daga i viku. Þangaö kemur fólk til
að láta vigta sig og fær jafnframt
ráöleggingar um mataræði. „Viö
gefum aldrei upp þyngd fólks,
aöeins hve mörg kiló það hefur
misst”, sagði Helga.
Linan hefur starfað i rúm tvö
ár og á þessum tima hafa
meðlimir i klúbbnum i Reykjavik
losaðsig viö samtals 25 tonn og 47
kfló. Klúbburinn hefur einnig
deildir á 34 stöðum viös vegar um
landið.
Metið er rúm 55 kiló
„Við tökum myndir af öllum
þeim seiW-koma til okkar. Mynd-
unum söfnum viö svo saman i
möppu og þegar fólk útskrifast,
þá er tekin önnur mynd til
samanburðar. Þaö eru nokkuö
margir sem geta sagt: Svona leit
ég út fyrir tuttugu kilóum siöan.
Þeir sem hafa veriö duglegastir
hafa misst allt upp i fimmtiu kiló.
Sú sem á metiö hjá okkur núna,
hefur losað sig viö rúm 55 kiló”,
sagöi Helga. — KP
Síöan Linan byrjaöi i júli 1976 eru
farin 25 tonn og 47 kíló, stendur á
skilti i húsakynnum Linunnar.
Þaö er Guöbjörg Theódórsdóttir
sem bætir hér viö nokkrum
kilóum. (Visismynd: Gunnar V.
Andrésson.)