Vísir - 02.09.1978, Blaðsíða 15
VISIK Laugardagur 2. september 1978
15
kominn inn i næstu göng gafst
eimvélin upp fyrir ofurþung-
anum.
Hemlastjórinn MichelePalo sat
i aftasta vagni. Hann hafði ekki
fengið boð um að hemla svo að
hann áleit að lestin fengi merki
um að nema staðar,sem var ekki
óalgengt.
Palo stóö loks á fætur, opnaði
glugga og leit úr. Köld slyddan
féll á höfuð hans. Hann sá ekkert
þvi að lestin var svo til öll inni i
stað áleiðis til Balvano, þremur
kilómetrum neðar. Hann taldi aö
það tæki sig ekki minna en
klukkustund að komast þangað.
Hann var samt miklu meira en
60 minútur að komast á leiðar-
enda. Mestan hluta leiðarinnar
varð hann að skriða af einu þver-
bandinu á það næsta. Hann
meiddist bæði á höndum og fót-
um. f
Kl. 2.50 var Balvano i sjónmáli,
i sama mund og aðstoðarstöðvar-
og bar hann til'stöðvarinnar. Þar
skýrði Palo frá þvi sem hann
mundi.
Þótt klukkan væri fjögur að
morgni varð að vekja bæjarbúa,
stöðvarstjórann, lögreglustjór-
ann og lögregluþjóna, bæjar-
stjórann . . .
Eftir hálftima voru allir bæjar-
búar glaðvaknaðir.
Engan grunaði að þarna hafði
orðið mesta járnbrautaslys sög-
unnar.
sýn við honum.
Hann gekk að eimvagninum.
Einnig þar voru allir látnir.
Salonia réð varla við tárin.
Hann losaði um hemlana,
tengdi eimvagn sinn við aftasta
vagninn og dró lestina aftur til
Balvano. Lögregluþjónunum
varð illt þegar þeir gengu inn i
vagnana. Þeir báru likin út og
lögðu þau hlið við hlið á brautar-
pallinn svo að bera mætti kennsl á
þau.
Eftir siysiö voru likin, 521 talsins, lögö á brautarpallinn á Balvano-stööinni. Domenico Miele, sem komst lifs af, og tveir járnbrautarstarfs -
menn ræöa saman. Núna, rúmiega 30 árum síöar, komast lestirnar örugglega gegnum göngin hjá stöðinni.
göngunum.
Hann yppti öxlum og gekk út til
að aðgæta hvað ylli stöðvuninni.
Hann hafði ekki gengið langt
þegar ljós rann upp fyrir honum.
„Guð minn góður!” hrópaði
hann.
Óeðlileg þögn.
Palo tók þegar til fótanna.
Hann hrasaði og meiddi sig á hné
en hitri ekki um það. Aftur hras-
aði hann og brákaði úlnlið. Loks
nam hann staðar, lét fallast á
hnén, gerði krossmark, leit til
himins og tárfelldi.
Skömmu siðar lagði hann af
stjórinn var að leggja af stað i
eimvagninum. Palo fann þver-
böndin titra, sveiflaði lugt sinni
og hrópaði:
„Þarna uppfrá! Þeir eru allir
dánir! Þeir eru allir dánir!”
Salonia stöðvaði vagninn, hljóp
út og Palo grúfði andlitiö upp að
brjósti hans. Salonia leyfði
manninum að gráta. Hann
vissi ekki hvort hann ætti að trúa
honum. Hann haföi hvorki heyrt
dynk né vein. Hefði lestin farið út
af sporinu, myndi einhver hávaði
hafa borist honum i fjallakyrrð-
inni.
Salonia tók manninn i fang sér
Salonia skalf meira af kviöa en
kulda þegar hann flýtti sér upp
sporið. Hann nam staðar fyrir
aftan aftasta vagninn og gekk
fram með lestinni.
Ekkert benti til að þarna hefði
orðið slys. Allt virtist með felldu.
Aðeins þögnin var óeðlileg. En
hann vissi að eitthvað var að.
Lugt hans varpaði undarlegum
skuggum á veggi jarðganganna.
Hann opnaöi dyr eins vagnsins og
gekk inn. Farþegarnir hölluðu
sér makindalega aftur i sætum
sinum og virtust sofandi. En þeir
voru látnir. Salonia leit inn i alla
vagnana. Alls staðar blasti sama
Dauðinn ósýnilegi
I þessu sérkennilegasta
járnbrautarslysi sögunnar fórst
521. Lestin hafði hvorki lent i
árekstri né farið út af.
Lögreglan reyndi að gera sér
grein fyrir hvað gerst haföi.
Lestin spólaði á hálum teinunum
og stóð i stað. 1 stað þess að iáta
hana renna aftur á bak og reyna
aftur gaf lestarstjórinn skipun
um að kynda eins og katlarnir
þyldu og reyndi að pina lestina
áfram, en hún stóð i stað.
Við brunann myndaðist gifur-
lega mikið af kolsýringi og hann
safnaðist fyrir inni i göngunum.
Fæstir farþeganna tóku eftir að
lestin var stönsuð, enda voru
flestir sofandi.
A örskammri stundu dóu rúm-
lega fimm hunruð manns úr kol-
sýringseitrun.
Fimm farþegar fundist á lifi.
Þrir þeirra fengu læknishjálp á
skrifstofu stöðvarstjórans. Þeir
voru svartamarkaösbraskarar og
þorðu ekki annað en láta sig
hverfa af ótta við að verða ákærð-
ir fyrir ólöglegt athæfi. Fyrir
bragðið komst aldrei upp,
hvernig þeir höfðu liíað eitrið af.
Einn þeirra sem lifðu gat þó
lýst hvernig hann s]app. Þaö var
mataroliukaupmaður að nafni
Domenico Miele. Hann sagðist
hafa stigið úr lestinni i Balvano til
að liðka sig. Miele kvaðst hafa
tekið klút úr tösku sinni og skýlt
með honum andlit sinu og hálsi.
Þessi hálsklútur bjargaði siðan
lifi hans.
Hann hafði trefilinn enn um
hálsinn þegar lestin nam staöar.
Hann fór að hósta af kolareykn-
um sem barst inn göngin ásamt
kolsýringnum, vafði treflinum
um andlitið og flýtti sér út undir
bert loft.
Samkvæmt lögregluskýrslu
varð hár Mieles öskugrátt en það
hafði verið hrafnsvart.
Hinn farþeginn sem hljópst
ekki i burt, var kaupmaöur. Heili
hans skaddaðist af völdum reyk-
eitrunar og þvi gat hann ekki
skýrt hvers vegna hann slapp.
Hann er enn á lifi en hefur enga
bót fengið á heilsu sinni og getur
ekki sagt frá slysinu sem varð
konu hans og átta ára syni aö
bana.
Mörg likanna þekktust aldrei
þvi að ýmist báru þau fölsuö skil-
riki eða alls engin. Óþekktu likin,
193 talsins, voru grafin i þremur
sameiginlegum gröfum nærri
brautarstöðinni.
Þar sem ströng ritskoðun rikti
á striösárunum fékk aðeins eitt
dagblað aö birta stutta, opinbera
skýrslu um slysið.
Ættingjar nokkurra fórnarlam-
banna höfðuðu mál á hendur hinu
opinbera vegna slyssins, en mál-
um þeirra var visað frá áriö 1951
þar sem herstjórnin þjóðnýtti
járnbrautirnar á striðsárunum og
ógerlegt var að lýsa siðari rikis-
stjórn ábyrga fyrir „slysum á
striöstimum”.
■
Útboð
Framkvæmdarnefnd byggingaáætlunar
óskar eftir tilboðum i raflögn i 15 parhús i
Hólahverfi i Breiðholti. Tilboðsgögn verða
afhent á skrifstofu F.B. Mávahlið 4, Rvik,
gegn 20 þús. kr. skilstryggingu. Tilboð
verða opnuð á skrifstofu F.B. þriðjudag-
inn 5. septeinber kl. 16.00.
Ath. að skiiafrestur er mjög stuttur.
Félagsmálasfofnun
Reykjavíkurborgar,
Vonarstrœti 4, sími 25500
auglýsir eftirfarandi lausar
stöður til umsóknar:
1. Sálfræðingur, umsóknarfrestur til 20.
sept. n.k.
2. Fulltrúa i fjármála- og rekstrardeild,
umsóknarfrestur til 11. sept. n.k.
Upplýsingar um ofangreindar stöður
veitir skrifstofustjóri.
______________________________________>
Wjl Felagsmálastofnun Reykjavikurborgar
igr Vonarstræti 4 sími 25500
BRASILIU
SOFASITTID
Vorum að fá þetta glcesilega sófasett aftwr.
SKEIFU-verð
og SKEIFU-skilmálar.
LSþefin
SlMI 44544