Vísir - 02.09.1978, Qupperneq 7
vtsrR Laugardagur 2. september 1978
7
Árangur frœðslu- og upplýsingastarfs gegn reykingum að koma í Ijós:
Veruleg minnkun ó reykingum
skólaborna í Reykjavík
# Niðurstöður könnunar, sem gerð var á vegum borgarlæknis embæ tt isins sýna, að reykingar foreldra valda
miklu um það hvort börnin byrja reykingar.
„Reykingar 12 ára
barna í skólum Reykja-
víkur hafa minnkað um
67% frá árinu 1974 til
þessa árs" sagði Skúli G.
Johnsen, borgarlæknir,
er hann kynnti frétta-
mönnum í gær niðurstöð-
ur könnunar, sem gerð
hefur verið á reykingum
nemenda í grunnskólum
borgarinnar.
I öðrum aldursf lokkum
hefur samdrátturinn
orðið minni, en hann er þó
verulegur í aldursflokk-
unum beggja vegna við 12
ára aldurinn, það er 49%
minnkun hjá íOára börn-
um, 40% hjá 11 ára og
49% hjá 10 ára
nemendum grunnskól-
anna samkvæmt þeim
gögnum, sem borgar-
læknir lagði fram á
fundinum í gær.
! aprilmánuði siðastliðnum
fór fram itarleg könnun i grunn-
skólum borgarinnar á reyk-
ingum nemenda á aldreinum
10—16 ára. Sams konar kann-
anir fóru fram 1960 og 1974 á
vegum borgarlæknisembættis-
ins i samvinnu viö fræðslustjóra
og starfsfólk skóla. bað er þvi
handhægt að gera samanburð i
reykingum nemendanna.
Könnun náði til 8000 nemenda
og af þeim reyndust 17.2%
reykja eða 1353. Arið 1974'
reyktu 23.4 af hundraði á
aldrinum 10—16 ára i Reykja-
vik. Tiðni reykinga hefur
lækkað um fjórðung.
Reykingar foreldra aðal-
orsök reykinga barna
Nemendur voru beðnir um að
gefa upp ástæðuna fyrir reyk-
ingum sinum og gátu þeir valið
á milli fjögurra skýringa: a)
foreldrar reykja b) forvitni c)
þótti fint d) félagsskapur.
Athyglisvert er að langal-
gengast er að nemendur fari að
reykja vegna ess að foreldrarn-
ir reykja. 50 AF HUNDRAÐI
TILGREINA bESSA
ASTÆÐU.
bRISVAR SINNUM MEIRI
LIKUR ERU SAMKVÆMT
KÖNUNINNI A AÐ 13 ARA
NEMANDI REYKI EF ANNAÐ
HVORT FORELDRA HANS
REYKIR OG ENN MEIRI
LIKUR EÐA FJCRUM
SINNUM MEIRI EF SYSTKINI
REYKJA EINNIG.
Viðkönnunina 1974 kom fram,
að sú breyting var orðin frá 1960
að stúlkur reyktu meira en
drengið i. öllum aldursflokkum
13 ára og eldri en stúlkur höfðu
áður reykt helmingi minna.
Við könnunina nú helst
munurinn á drengjum og stúlk-
um svo til óbreyttur frá 1974.
Afram reykja litið eitt fleiri
drengir en stúlkur fram að 12
ára aldri en eftir það eru reyk-
ingar stúlkna algengari og vex
munurinn fram að 16 ára aldri,
en þá reykja 53% stúlkna en 41%
drengja.
Mest dregið úr reyk-
ingum 12 ára barna
Reykingar hafa minnkað á
siðustu 4 árum hjá öllum
árgöngum en þó mismunandi.
Hjá 12 ára nemendum reykja
nú þrefalt færri en 1974.
13 ára börnum hafa reykingar
minnkað um helming, hjá 14 ára
um þriðjung og 15 ára. hafa
minnkað þær um fjórðung.
Minnstar hafa breytingar orðið
hjá 16 ára en þar reykja 47.1%
nemenda miðað við 53.9% árið
1974.
BREYTINGAR Á REYKINGUM
NEMENDA 10-16 ÁRA
BOBUAIU ÆKNIRiKH I REYK-ÍAVIK
„Við teljum þennan árangur
einkum stafa af skipulögðu
upplýsingastarfi og fræðslu um
skaðsemi reykinga” sagði Skúli
G. Johnsen, borgarlæknir á
fundi með fréttamönnum I gær.
Visismynd: JA.
Fræðslan hefur áhrif
,,Við teljum þennan árangur
og þá sérstaklega með 12 ára
börnin einkum stafa af skipu-
lögðu upplýsingastarfi og
fræðslu um skaðsemi reykinga.
Fyrir um 2 1/2 ári var hrundið
af stað fræðsluátaki i skólunum
að frumkvæði Krabbameins-
félagsins. Fleira kemur til þvi
þetta er samstillt átak margra
aðila og má þar nefna Sam-
starfsnefnd um reykingarvarn-
ir, skólamenn, læknanema og
fleiri.” sagði Skúli Johnsen
borgarlæknir um þessar niður-
stöður.
Aðspurður kvaðst Skúli ekki
efast um áreiðanleik þessara
kannana. ,,Við sendum öllum
kennurum þessara barna sér-
stakt leiðbeiningarblað um það
hvernig könnunin væri fram-
kvæmd, Börnunum var siðan
úthlutað eyðublöðum þar sem
þau áttu að krossa við hvort
þar reyktu og hversu margir
reyktu i bekknum. Eyðublöðin
fóru nafnlaus beint i umslög,
sem ég opnaði fyrstur.”
Reykingar foreldra hafa
minnkað
Viö könnunina komu fram
upplýsingar um reykingar á um
þaö bil 5—6000 heimilum, sem
mögulegt er að bera saman við
könnunina 1974. Sömu börn i til-
teknum aldurshópum tóku þátt i
þessari könnun.
I ljós kom að á heimilunum
hefur orðið veruleg breyting til
batnaðar. Hefur þeim
heimilum, þar sem enginn reyk-
ir fjölgað um fjórðung. 12.2%
færri feöur reykja nú og 5.8%
færri mæður og þau heimili þar
sem bæði faðir og móðir reykja
eru 12.5% færri nú en 1974.
Skúli benti á það, að þetta
væru athyglisverðar upplýsing-
ar, þar sem litið væri vitað um
reykingar almennt hjá full-
oröna fólkinu.
Athyglisvert er að faðir
og/eða móðir reykja á næstum
helmingi heimila skólanemenda
i Reykjavik.
„bað má sjá að við 16 ára
aldurinn hafa nemendur að fullu
tileinkað sér siði foreldra sinna,
þvi þar er tiðni reykinga eins og
áður segir komin um og yfir
50%.” sagöi Skúli.
,,Af þeim sem svöruðu kváð-
ust 81% vilja hætta reykingum
þar af vildu 85% af stúlkunum
hætta, en 76% af strákunum.”
sagði borgalæknir.
—BA.
LÓÐAÚTHLUTUN ■
HESTHÚS
Reykjavikurborg mun á næstunni úthluta
lóðum fyrir hesthús i Viðidal, Seláslandi.
Umsóknir skulu ritaðar á sérstök eyðu-
blöð, sem fást afhent á skrifstofu borgar-
verkfræðings, Skúlatúni 2.
Umsóknarfrestur er til og með 20 septem-
ber 1978. Athygli er vakin á þvi að allar
eldri umsóknir eru hér með fallnar úr giidi
og ber þvi að endurnýja þær.
Allar nánari upplýsingar verða veittar á
skrifstoftt borgarverkfræðing, Skúlatúni 2,
3. hæð, þar sem jafnframt er tekið á móti
umsóknum.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
VID
SKULUM EKKI
HAFA HÁTT
enda
ALGJÖR ÖÞARFI
RINGMASTER
UMBOÐIÐ
RINGMASTER
INNANHÚSS TALKERH
Fjölgun númera og talrása eftir þörfum.
Einnig ódýrari útgáfa með allt að 20 númemm
og einni talrás.
Borð- og veggtæki ásamt tilheyrandi aukabúnaði.
Önnumst uppsetningu, viðhald og varahlutaþjónustu.
Radiostofan Þórsgötu 14 sími 14131