Tíminn - 19.09.1969, Síða 8

Tíminn - 19.09.1969, Síða 8
8 TIMINN FÖSTUDAGUR 19. september 1969. Brynleifur H. Steingrímsson, héraðslæknir: ÞÝÐING HUGSJÓNA Í PÓLITÍSKRI BARÁTTU Ideotogi, hugsjó'nafræðin kerfisbindur leitni okkar og vilja til sköpunar. Stefnur eða „ismar“ eru aftur á móti mark vís ákvörðun. til athafna sem oft eru sprottnar af hugsjónum og eiga sér því venjulega hug sjónar grundvöll . . . Margir eiga í daglegu tali erfitt með að gera sér fullan greimarmun á bugsjón og stefnu. Aðrir virðast hafa týnt hugisjónium sínum við fram- kvæmd stefnunnar en sumir hlæja að hugsjónaglópum! Það sem olli því að ég skrifaði nið ur þessar línur, var að skóla bróðir minn, heimsótti mig ekki alls fyrir löngu og af- neitaði öllum „ideologiskum“ grundvelli fyrir pólitiskum at- höfnum og skoðunum sínum. Hann var vaxinn upp úr því að eiga hugsjón. Hans athöfn helgaðist „praktik" eða pólitísk um praxis, en svo mætti ef tiT viiil kalla stör.f þeirra stjórn- máiamanna, sem vinna að hug sjónalausum stefnumálum. En slíkt virðist hafa verið lenzka á okkar landi um langt skeið. Hugsjónir rugla og trufila, þær krefjast of mikils, verða að óþægilegu samvizkubiti, sem bezt er að sileppa við! En margur andans maður bætir sér upp tapið og svæfir samvizku sína, með estetisku (fagurfræðilegu) daðri, kaup- um á dýrum málverkum og að- dáun á skáldum og listamönn- um, fær hann borgið heim and legum heiðri sínum og gáfu- legri reisn. Að helga anda sinn fagurfræði getur aldrei talist til lasta og fegurð himins verð ur heldur aldrei borin oflofi þó að lítit eigi skylt við þjóð félagslega hugsjón eða brauð strit almúigans. En það eru líka til úlfar í sauðagærum. Mörg um þeim, sem iðka svokallað an „pólitískan praxis“ í dag kemur ekki til hugar að af- neita hugsjónum, heldur greiða tíund í sjóð trúar og hugsjóna. ef slikt er álitið viðeigandi, „praktiskt". Það er erfitt að hugsa sér líf ið án leitni og margir vilja gefa lífi sínu tilgang og mein ingu. Að lífið sé aðeins „prakt- iskur“ og hlutlægur veruleiki er því erfitt að sætta sig við. 1 önn og erli dagsins gefst ekki ölluim tóm til heimspekilegra hugleiðinga. Dagurinn er á enda runninn, á.ður en vitað er, árin og áratugir eru horfn ir, án þess að margur hafi ráðrúm til rannsóknar á leitni, tilgamgi eigin lífs og starfs. Það verður því óneitanlega sá „praxis“, sem við lærum með- vitað eða ómeðvitað, sem stjórnar lífi okkar og gjörð- um. Því er ungum stjórnmála manni vorkunn að gjöra eins. Spurningin er aðeins þessi hvort það sé heillavænleg þró- u.n að æ fleiri, sem með stjórn mál fara, gleymi hugsjón sinni og því, sem vafalaust var þeim köllun í upphafi? Kó'Lni eldmóður hugsjónanna er hætt við að 'Stefnan drægi dám af. Það munu margir með því marki brenndir að vi'lja klæða guðsmynd sína persónugervi og gæða hugsjón sína hlutlægum eiginleikum. Það er of erfitt að hugsa sér hið óáþreifan- lega. Því mun oft svo farið um pólitískar hugsjónir, að þær klæðast gervi persónu eða „isma“, og því verður ek'kr gerður greinarmunur á huig- sjón og stefnu eða foringja stefnunnar. Sá sem leiðir flokk inn, markar stefnuna, verður um leið ímynd hennar og ó- sjálfrátt á sér stað persónu- dýrkun, sem getur orðið mjög afdrifarík, ef foringjanum tekst að notfæra sér hana. Það enu einmitt þessar staðreyndir, sem krefjast þess, að þeim sé stöðugur gaumur gefinn. Að fólk haldi hugsjónalegri vöku sinni en verði ekki fórnarlömb þess pólitíska dagfars sem ríi, ir á hverjum tíma. Flestir munu þeim takmörk um háðir að eiga erfitt með að hvika frá markaðri stefnu, þó að ástæða sé fyrir hendi. Við bindum okkur við fyrri skoð u.n, við gamla stefnu, við ákveðinn stjórnmálaflokk frá vöggu til grafar. Sumir vegna fjölskyldubanda, aðrir vegna meirihluta aðstöðu eða fram- taiksleysis. Fiokkurinn og stefn an verður hluti persónuleik ans, mótar „sjálfið", bindur skoðun og athöfn við stefnuna og flokkinn, siðferðilega og hefðbundið. Hugsjón og skyn samiegt mat eins og hverfur í skuggann. En um leið og hlutunum er svo varið ræður sára litiu hin stöðuga breyt ing, sem á sér stað í umhverí inu og okkur sjálfum. Reynsla og andleg þróun einstaklings- ins, breyting á umhverfinu og kraftahlutföllum þess, hin svo kallaða „dynamik“ gerir það að verkum að við erum aldrei eins og umhverfið ekki heldur Það afneita fáir þessum stað reyndum og allra sízt harður „pólitrskur praktikus", sem tekur stefnu frá degi til dags en við ,sem. erum fórnarlömbin ! og lifum á lánuðum hugmynd um og stefnum, steinrunnum og stöðnum. Einstaklingurinn, einingin í lýðræðislegu þjóð- félagi, þarf að skilja og finna sína „dynamisku“ köllun. En það er erfitt að hugsa sér ein- mitt í þessu sambandi, að halda réttri stefnu, án þess að hugisjónin lifi og vísi veginn. Hin djúpstæða nauðsyn þess að almenningur geri sér ljósar þær stöðugu breytingar, sem eiga sér stað, kemur bezt frarn ef athuguð eru þau vandamál, sem iðnbyltingin skapaði. Ur- gangsefni frá verksmiðjum og borgum gerspilla neyzluvatni og hóta að eyðileggja jarð- vatnið. Andrúmsloftið mengast af kolsýringi og brennisteini. Fiskurinn eitrast af kvikasilfri en fugLinn strádrepst. Verk- smiðju-aidir kjúklingar sýkjast blóðkrabba og lengi mætti telja. Tæknin færir því ekki aðeins nýja og ótrúlega mögu leika, orkulindir og auðævi, heldur vandamál, sem hóta að eyðiieggja okkur eins og geisla virkt efni, sem læðist inn í lík ama okkar og umturnar vefj- um og Lífi. Eftir tæknibyitinguna var að sjálfsögðu erfitt að átta sig á öllum þessum vandamálum enda komu mörg þeirra mjög á óvart. Erfitt var að fylgja hinum öru breytingum og fram förum á ölium sviðum en mun e. t. v. ennþá erfiðara í dag. Fyrir þann, sem ekki vill að „ismar“ og flokkar gleypi einstaklingmn, heldur að enn- þá lifi í sérhverri pólitískri athöfn hugsjón, er nauðsynlegt að gera sér sem gleggsta grein fyrir áhrifamætti fjölmiðlunar tækja, sem notuð eru til fram dráttar stefnum eða áhrifavaldi einstakl. og stétta. Beitt er öll urn þekktnm aðferðum frá sái fræðilegum tii þess sem náigast efnahagslega tálbeitu. Stefnan er seld eins og hinn slyngasti kaupmaður selur tóbak eða þvottaduft. Það er því engan veginn létt að vera einstakling ur með sjálfstæða hugsjón og skoðun í áróðursregni nútím- ans. Það er létt að sofna á verð inum þegar myrkur og grafar- þögn ríkir ailt um kring. Það er létt að gleyma hugsjón sinni og barnatrú í dægurþrasi og brauðstriti. í dag, þegar efnis hyggjan veiðir fleiri í net sitt, er nauðsynlegt að kveikja elda hugsjóna, blása í glóð, sem enn er falin. Þegar vel gengur, vel árar er létt að gleyma hug- sjón sinni en treysta forustu flokksins og foringjans. Fáir vilja rjúfa eininguna, samstöð una, sem óneitanlega er dýr- mæt, og alltaf nauðsynleg. En það hlýtur að vera nauðsyn að blása stjórnmálalegri hug- sjón í þjóðfélagslega baráttu, sem helzt einkennist af efna hagslegu reiptogi og sjálfum- glaðri sérhyggju, í skjóli flokks hyggju og persónudýrkunar. Og þegar ungur stjórnmála- maður, maður athafna og góðr ar greindar afneitar hugsjón- um, trú feðra sinna, þeim krafti, sem borið hefir uppi mannkynið á tímum vonleysis og fátæktar, verður ekki annað gert en mótmælt. Það er ósönn og óraunhæf afstaða að meta málefnabar- áttu eftir mælsku eða orð- skrúði sem er hvort tveggja fagurt og heillandi. Það er hörmuleg staðreynd að mál- gögn allra stjórnmálaflokka einkennast af þessu í dag. Fái skynhelgi og óheill málaflutn ingur ráðið hjá fjölmiðlunar- tækjum þjóðarinnar, dregur þjóðin dám af. Börn okkar verða aldrei brauðfædd á þjóð arrembingi. Landið aldrei grætt skógi með vísnaskáldskap eða Ijóðrænni fegurð. Fiskur aldrei dreginn úr sjó með fagurgala eða pólitískum stóryrðum. En allt þetta gæðir þó lífið lita- auðgi og fegurð. Við megum ekki fela okkur á bak við þetta, því að það er ekki hægt skipta á hugsjón og fagiurfræðí legri gleði, þó að þægilegt sé. Það er því blekking að bæta sér hugsjónafátækt með este- tisku daðri. Hugsjónir liggja næst leitni okkar, eru eins og tónfall starfsins og viljans til sköpunar. Það er hinn rauði þráður mankynssögunnar fram til þessa dags. * hlutun Leiddi, því nú eru gerðar ráðstafanir til að tvöfalda þann kostnað. Þótt hingað til höfum við látið okkur það sæma að ganga frá sömu götu inn í húsin sem meðfram henni standa, þá gengur þetta nú ekki iengur, held ur verður nú hver húsaröð um sig, að hafa sína „prívat“ götu með öilu tiiheyrandi, og eru í þessu skyni skipulögð heil hverfi. Svipað má segja um húsin, sem við þær standa, því í fljótu bragði verður ekki séð að nokk urt skynsamlegt samræmi sé á milli byggingakostnaðar og nota- gildis, vegna tilskilins ytra útlits þeirra. Þegar svo þar ofan á bætist, sem er almenn regla, að fylla verður upp ýmist aila kjall ara eða stóran hluta þeirra, þó ekki verði komizt hjá að byggja þá, og gætu þó þjónað sem prýði legustu geymslur, en eigendum þeirra er bannað, að viðlagðri eignaupptöku, að hagnýta sér á nokkurn hátt. Tímabært er, að fá úr því skorið, hvort slíkt bann, samræmist ákvæði stjórnarskrár innar um helgi eignaréttarins, því varla mun það talið varða almenn ingsheill, hvort maður notar hús næði sem hann hefur orðið að byggja, til að geyma í því mold og grjót eða áhöld sín til daglegs brúks. Eðlilegt er, að bygginga-yfir- völd borgarinnar, annist skipu Framhaic a ols 12 Haraldur Eggertsson: organnnar Það er jafn eðlislæg þörf hverj um manni að hafa skjól og mat að borða, þess vegna fer aMt vort strit í að fullnægja þeim, þörfum, en allt vort vit í að finna út hvernig það sé hægt á sem auðveldastan máta. Báðar eru jafn brýnar, svo ekki ycrður upp á milli þeirra gert. Húsnæðisleysið, sem leiðir af atvinnuleysinu, sem nú er í bygg ingaiðnaðinum, er því ekkert minna vandamál en atvinnuleysið sjálft. Þótt mikið hafi verið byggt á undanförnum árum, þá hefur ekki tekizt, að útrýma húsnæðisleysinu, því enn býr fólk, af illri nauðsyn í heilsuspiilandi húsnæði og bráðabyrgðaskýlum þeim, sem grípa varð til að reisa í lok stríðsins, vegna þess hvað úr byggingum dró af völdum þess og hersetunnar. Vitað er. að menn höfðu fullar hendur fjár, og að færri fengu að verja því til bygginga en vildu. Nú er þetta fé allt orðið gengis fellingunuim að bráð. eðá verið undan þeim bjargað með kaupum á vægast sagt ónauðsynlegum hlut um. , Það er því ekki úr vegi, að líta yfir farinn veg og leita skýr ingarinnar. Gnæfir þá yfir allt annað byggingalóðaskorturinn i landinu, sem er að blása upp í auðn, vegna þess, að það vantar menn til að byggja á því og búa á og flottræfilshátturinn. Þetta tvennt, er þó ekkert nema óhjákvæmileg afleiðing, þeirra ofstjórnarfjötra, sem ráðamenn borgarinnar hafa á þessi mál lagt, í samræmi við hina sívaxand of- sókn þess opinbera, til ótímabærra afskipta og íhlutunar á öilum svið um, sem er orðið svo yfirþyrm andi, að þeir þrengja sér inn um hverja glufu og gátt þjóðfélags ins, iemstrandi og lamandi hverja veru, sem enn kynni að finnast, af heilbrigðum metnaði. manndómi og ábyrgðartilfinningu einstakling anna. Þótt ofistjórn, sé ein versta tegund óstjórnar, þá er þó sá eðl ismunur á, að óstjórn má oftast rekja til óheiðarleika i einhverri mynd, og því hægt að sækja hana til saka. Aftur er þvi öfugt varið með ofstjórnina, hún perir ekkert af illum hvötum, heldur allt í góðri trú og tilgangi og viðurkenn ir þess vegna engin taikmörk. en ryðst inn á svið, sem hún á ekk ert erindi inn á, og veldur með því óbætamlegum skaða. Sem dæmi má benda á, þegar róða- menn borgarinnar ruddust inn á svið byggingaiðnaðarims og hugð ust taka að sér hlutverk hans með því að skaffa fólki ódýrar íbúðir, en leiddi til þess, að þá fyrst gátu hinir svonefndu húsabraskar ar farið að auglýsa það verð á framleiðslu sinni. sem þeir aldrei áður höfðu þorað að nefna, nema undir.fjögur augu. Þegar við vit um, að út í þetta var farið í þeim eina fróma tilgangi, að hafa hemii á húsaverðinu og byggingakostnað inum, sem þá þegar, þótti orðið óhæfilega hátt, þá eigum við bágt með, að sakfella þá, þó að svona hörmuiega tækist til. Hins vegar sakfellum við þá þunglega fyrir, að sniðganga þá reynslu og þekk ingu, sem kynslóðirnar voru þó búnar að greiða of dýru verði til þess að afsakanlegt væri að segja að þeir hafi ekki vitað, að aliar framkvæmdir, sem unnar eru á vegum þess opinbera, verða alltaf mun dýrari, en sams konar fram kvæmdir á vegum einstaklinga, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, og falla svo afte oe aftur í sama pyttinn, án þess að læra neitt. Svona hroðalega getur ófsatrú- in. hvort sem hún er á góðan mál stað eða sjálfan skaparann, af- vegaleitt allra beztu menn. Á sama hátt sakfellum við þá fyrir að full nægja aldrei nema broti, af eftir spurninni eftir byggingalóðum. en það er orsök þess vanda, sem þeir þóttust þó vera að sýna til- burði til, að bæta úr, auk þess, sem það er orsök þeirrar óða- i verðbólgu. sem á húsamarkaðnum i hefur geysað. I Bkki verður þessi tregða á lóða úthlutun þó skýrð með því, að þeim vaxi í augum kostnaðurinn við aukna gatnagerð með tilheýr andi verkum, sem af aukinni út-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.