Vísir - 05.10.1978, Blaðsíða 13
VISIR
t, Fimmtudagur 5. október 1978
13
LOKSINS KOM MARK
HJA LANDSLIÐINU
— En það dugði skammt og A-Þýskalond sigraði ísland 3:1 í Halle í gœrkvöldi
islenska landsliöinu i knatt
spyrnu tókst Ioks ab komast á
blað i Evrópukeppni landsliða, er
það skoraði mark i leiknum gegn
Austur-Þýskalandi i Halle I gær
kvöldi. önnur var nú ekki upp
skeran sem vert er að tala um i
þeim leik, þvi að liðið tapaði
leiknum 3:1.
Liðið hefur leikið fimm leiki á
árinu — gert tvö jafntefli, 0:0
gegn Danmörku og Bandarikjun-
um hér heima, tapaði 2:0 fyrir
Póllandi hér heima og tapaöi 3:0
og 3:1 fyrir Hollandi og Austur-
Þýskalandi ytra.
Ekki er þetta neitt til að hrópa
húrra fyrir, og örugglega verðum
við ekki ofarlega á listanum yfir
árangur landsliða Evrópu eftir
áramótin. En fyrir leikinn i
Austur-Þýskalandi I gærkvöldi
þurftum við ekki að skammast
okkar.
Þessi leikur var einn besti leik-
ur landsliösins á þessu sumri.
Það lék á körflum ágætis knatt-
spyrnu — átti skemmtileg
upphlaup og nokkur góð tækifæri.
Að sjálfsögðu voru Þjóðverj-
arnir meira með boltann, en tókst
samt ekki að skora nema þrjú
mörk — þar af eitt herfilegt
klaufamark.
Islenska liðið var hálf-ráðvillt
til aö byrja með — sérstaklega
vörnin, en þar þekktust menn
varla með nafni áður en leikurinn
hófst og auk þess voru menn þar i
nýjum stöðum.
Stefán Sigurðsson, sem leikur
með Holbæk I Danmörku, var i
stööu hægri bakvaröar, en hann
hefur aidrei komiö nálægt lands-
liðshópnum áður. Jón Pétursson,
Jönköping var i miöjunni, en
Janus Guðlaugsson FH fyrir aft-
an hann — eða i stöðu þeirri sem
Jóhannes Eðvaldsson hefur leikiö
með liðinu. Þá lék Sigurður
Björgvinsson (B 1901 i Dan-
mörku) þarna sinn fyrsta lands-
leik.
Það tók Þjóðverjana ekki nema
fimm minútur að finna fyrsta
gatið I vörninni. Með nokkrum
bolvindum komst Peter Werner,
sem þarna lék á heimavelli sinum
— en hann leikur með Halle I 1.
deildinni þýsku — I gegn og
renndi fram hjá Þorsteini
Bjarnasyni i markið.
Rétt 10 minútum siðar jafnaði
Island. Pétur Pétursson var þá
felldur inni i vitateig og vita-
spyrna dæmd samstundis — öfugt
við það sem gerðist I Hollandi á
dögunum. Pétur tók spyrnuna
sjálfur og skoraði auðveldlega.
Austur-Þjóöverjarnir misstu
tökiná leiknum við þetta mark og
allt fór i handaskol hjá þeim.
Ekki bætti úr að völlurinn var eft-
ir miklar rigningar að undan-
förnu eins og skautasvell og kom
það ekki siður niður á þeim en
tslendingunum.
Þeir þýsku náðu sér á strik aft-
ur eftir mikið heppnismark, sem
Hans Juergen Riediger fékk á
sinn markareikning. Hann og
félagi hans Martin Hoffmann
runnu yfir marklinuna með Þor-
stein markvörð og boltann I einni
þvögu. En yfir linuna fór boltinn
og staðan þar með 2:1 fyrir Þjóð-
verja.
I siöari hálfleik var mikil
spenna I loftinu og kunnu hinir liö-
lega 10 þúsund áhorfendur vel viö
sig. Þeirra menn áttu meira I
leiknum, en íslendingarnir gerðu
mikinn usla I vörn þeirra hvað
eftir annað.
Arni Stefánsson kom þá I mark-
ið i stað Þorsteins og hafði I
mörgu að snúast. Honum tókst þó
ekki að bjarga, er Hoffmann fékk
knöttinn á 72. min. leiksins og
sendi hann viðstöðulaust i mark-
hornið.
Flestir leikmenn islenska liðs-
ins stóðu sig vel. Þeir Jón Péturs-
son og Janus Guðlaugsson voru
þó bestu menn þess, en einnig
áttu þeir góðan leik Guðmundur
Þorbjörnsson, Teitur Þórðarson,
Pétur Pétursson og Karl Þóröar-
son. —klp—
„ISLENSKA LIÐIÐ
KOMMÉR Á ÓVART
I — Sagði holienski þjólfarinn Ger Blerk eftir leikinn
'##
,,Ég er mjög ánægður með
sigurinn i þessum leik. Það er
alltaf gott að sigra á útivelli og
við stöndum vel að vigi með að
komast áfram eftir þetta”, sagði
Ger Blerk, þjálfari hollenska
ungiingalandsliðsins, er við
ræddum við hann eftir leikinn i
gær.
Hann er einn af frægum þjáif-
urum Hollands — m.a. aðstoðar-
þjálfari aðallandsliðsins og
þjálfar bæöi unglingalandsliðiö
og landsliðiö 21 árs og yngri.
EIGUM ENNÞA
I/
MÖGULEIKA
II
— segir Lárus Loftsson, þjálfari íslenska liðsins
4 Þetta er alls ekki búið, þótt
svona hafi farið”, sagði Lárus
Loftsson, þjálfari islenska
unglingalandsliðsins eftir leikinn
gegn Hollandi i gær.
„Þetta var ekki okkar dagur,
og við fórum illa með tækifæri
okkar i leiknum, sem voru fleiri
og betri en Hollendinganna.
Strákarnir gerðu nákvæmlega
það i þessum leik, sem ég lagði
fyrir þá. Þeir héldu boltanum vel
og voru þar af leiðandi meira inni
i gangi leiksins en ella hefði orðið.
Að visu voru hollensku piltarnir
meira með boltann, en okkar
tækifæri voru hættulegri.
Við eigum enn okkar mögu-
leika. Við höfum oft sýnt, að það
er ekkert verra fyrir okkur að
leika á útivelli, við unnum t.d.
Wales á útivelli i fyrra 1:0 eftir
1:1 jafntefli hér heima. Við förum
þvi I siðari leikinn gegn Hollend-
ingunum staðráðnir i þvi að
sigra”.
gk-.
Hann veit þvi hvað hann er að
segja, þegar rætt er við hann um
knattspyrnu.
„tslenska liðið er gott og kom
mér á óvart. tslendingar eru
raunar alitaf að koma mér á
óvart I knattspyrnunni. Þið eruð
ekki fleiri ibúar en i meðalborg i
Hollandi, en samt standið þið upp
I hárinu á hverri stórþjóðinni á
fætur annarri, þegar út á völlinn
er komið.
Það vantaði betra leikskipulag
hjá isienska liðinu I þessum leik.
Framlinumennirnir hlupu of
mikiö út á kantana og lokuöu sig
af — I stað þess aö skipta meir og
gefa bakvörðunum og miðju-
mönnunum möguleika á að
komast upp kantana og gefa
fyrir. Þetta mátti auöveldlega
laga svo og ýmislegt annað smá-
ræöi — en I heildina fannst mér
liðið leika vel og átti skilið að
skora i það minnsta eitt mark.
Bestu menn liðsins fannst mér
vera númer 10, Arnór Guðjohnsen
og númer 3, Gunnar Gislason.
Einnig voru þeir nokkuð góður og
fóru vel með knöttinn þessi
númer 8 — Bergur Heimir Bergs-
spn og Sæbjörn Gunnarsson
númer 11. Annars voru þarna
margir fleiri athyglisverðir
strákar, sem eiga eftir að ná
langt með réttri þjálfun og
ströngum aga”....
—klp—
Þaö er hætt við þvi að poppsöngvar-
inn frægi, Elton John, hafi tekiö lagið I
búningsklefa leikmanna sinna á Old
Trafford I gærkvöldi. Elton John er
sem kunnugt er stjórnarformaöur og
einn af eigendum 3. deildarliðs Wat-
ford i ensku knattspyrnunni, og lið
hans lék gegn Manehester United i
Manchester I gærkvöidi.
Leikurinn var i 3. umferö ensku
deildarkeppninnar og öilura á óvart sló
Watford hið fræga lið United jút meö
þvi aö sigra 2:1.
Joc Jordan kom United yfir I fyrri
hálfleik, en i sfðari háifleik þaggaði
miðherji Watford, Luther Blissett,
niður i hinum 40 þúsund áhorfendum
með þvf að skora tvö mörk. Enn ein
úrslitin I ensku deiidarbikarkeppninni
sem koma á óvart.
Annars urðu úrslit þessi i gærkvöldi:
AstonViIIa—C.Palace 1:1
Blackpooi—Man.City 1:1
Chester — Norwich 0:2
Chesterfield — Charlton 4:5
Exeter — Boilon 2:1
Man.Utd. — Watford 1:2
Oxford—Nott.Forest 0:5
Þá var leikiö í skosku deildarbikar-
keppninni, en þar er leikið heima og
heiman i hverri umferð. Meðal úrslita
þar má nefna ósigur Celtic gegn
Motherweil á heimavelli 0:1, og 3:2
sigur Rangers heima gegn St. Mirren
—«k
AÐALFUNDUR
verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu i kvðld kl. 20.00
Dagskrá samkvœmt félagslögum
Allir félagar SÁÁ eru hvattir til að mœta vel
og stundvíslega.
Kaffiveitingar.
#
I
Evrópumeístarar Tékka I knatt
spyrnu unnu góöan sigur gegn Sviuin i
Evrópukeppni landsliða. þegar þjóö-
imar mættust I Stokkhólmi I gær-
kvöldi. Tékkarnir unnu upp forskot
Svla, sem komust yfir fljótlega i
leiknum, og er yfir lauk var staðan 3:1
fyrir Tékkana.
Sviarnir komust yfir meö marki
Hasse Borg á 16. mínútu, er hann
skoraði úr vftaspyrnu eftir að Mats
Nordgren hafði veriö felldur gróflega
innan vltateigs.
En Evrópumeistararnir gáfust ekki
upp og á 30. minútu jafnaöí Masny
fyrir þá. Sviarnir voru nærri þvi búnir
að taka forustuna i sfnar hendur aftur,
er Beuny Wendt átti þrumuskot úr
aukaspyrnu rétt fyrir leikhlé, en
markvörður Tékkanna varði
meistaralega.
Tékkarnir komust siðan yflr á 3.
minútu í siðari hálfleik,
Nehoda rak svo endahnútinn á sigur
Tékkanna á 85. minútu. og Tékkar
hafa tekið örugga forystu i riöli 5, þótt
enn sé mikið eftir af ieikjum. En
staðan í riölinum er nú þessi:
Tékkóslóvakfa 1 1 0 0 3:1 2
Frakkland 1 o 1 0 2:2 1
Sviþjóð 2 011 3:5 1.
Æk gk-.
Spánverjar gerðu góða ferö til
Júgósiaviu I gærkvöidi, er þeir léku
þar gegn Júgóslövum i Evrópukeppni
iandsliða i knattspyrnu. Þeir héldu
hcim á leið meö tvö inikilvæg stig eftir
2:1 sigur, sigur sem var ósanngjarn
miðað viö gang leiksins.
„Taktik” Spánverjanna var sú að
raöa liöi sinu upp til varnarieiks og
freista þess siðan aö sækja með hraða-
upphlaupum. Þessi leikaöferð þeirra
tókst mjög vel og eftir 32 minútur var
staöa orðin 2:0 þeim i vil.
Þessi forusta Spánar var i miklu
ósamræmi við allan gang lelksins, sem
fór að mestu fram á valiarhelmingi
Spánverjanna. Júgóslavarnir áttu
hinsvegar i vandræöum ineð aö finna
göt i fjölmennum varnarvegg Spán-
verja, en á 43. minútu skoruðu þeir þó
mark. Þaö var Ilalilhodzig, sem skor-
aði, eftir sendingu Susic. Rétt áður
haföi Juanito komist einn upp að
marki Júgóslava, en markvöröurinn
varði þá glæsilega.
Spánverjar sigruðu þvl, en
ósanngjarn var sá sigur. Þetta var
fyrsti leikurinn I riölinum. gk—.