Vísir - 05.10.1978, Blaðsíða 5

Vísir - 05.10.1978, Blaðsíða 5
Hinn kunni danski trúðleikari, Armand Miehe og kona hans Eda Michelson, voru hin hressustu er Ijósmyndari Vísis, Jens Alexandersson heilsaði upp á þau á Hótei Sögu í morgun og tók þar þessa mynd. meira til aðstoðar trúðnum eins og gjarnan er i sirkus. Hnitmiðaðar, þokkafullar hreyfingar á sviðinu komu upp um, að hún hefur áreiðanlega einhvern tima æft danslist. Að lokum ábending til Sjónvarpsins: Hér er um tilvalið sjónvarpsefni að ræða. Trúður- inn á greiðan aðgang að hjörtum fólksins. Frægasti trúður Norðurlanda hlýtur að vera til á filmum og þvi ekki að leyfa fleirum að sjá ? Fimmtudagur 5. október 1978 Jón Gunnar Stefánsson, fjölumdæmisstjóri Þjónustudagur Lionsmanna er ó sunnudaginn Þjónustudagur Lions- hreyfingarinnar er á sunnudag- inn 8. október. Þennan ákveðna dag er ætlast til þess að allir með- limir hreyfingarinnar láti gott af sér leiða. Þetta er dagur einstakl- inganna, eins og það hefur verið skilgreint, og þá eiga allir að gera eitthvert góðverk. Lionsmenn munu heimsækja sjúka og einstæða, eða gera annað hliðstætt. Mikillar þátttöku er vænst á þessum þjónustudegi Lionsmanna. Lionsklúbbarnir á Vestfjörðum munu verða með sérstakt 'verk- efni þennan dag. Þeir munu safna fé fyrir Styrktarfélag vangefinna á Vestfjörðum. Þroskaheft stúlka hefur gert sérstaka mynd, sem nú hefur verið fjölfölduð og verður myndin seld á Vestfjörðum þennan dag. Snemma i sumar var haldið þing Lionsmanna. Þar voru meðal annars kjörnir embættis- menn. Fjölumdæmisstjóri var kjörinn Jón Gunnar Stefánsson, framkvæmdastjóri á Flateyri. Umdæmisstjóri umdæmis A var kjörinn Ólafur Þorsteinsson, Reykjavik og fyrir umdæmi B var kjörinn Sigurður Ringsted frá Akureyri. Fráfarandi fjölumdæmisstjóri er Asgeir Sigurðsson á Vópna- firði. Grœskulaust gaman í Iðnó Ósvikið bros er fáséð á ásjónu Reykvikinga þessa dagana. Fáir viröast hafa efni á að gera að gamni sinu. Menn gleyma þvf, að sjaldan gefast jafnrikuleg tilefni tii að gera grin, hafa hátiðleikann að háði og spotti, eins og á svokölluðum alvörutimunum. Ekta trúður ætti svo sannariega að hafa nóg að gera á Islandi — á kostaö allra hinna. Þess vegna var óneitanlega léttir að lita við i gamla Iðnó i gærkvöldi, þótt það væri að vlsu stutt gaman, aðeins um klukku- stund. Norræna húsið og Leikfélag Reykjavikur tóku saman höndum við að kynna Reyk- vikingum „þekktasta sirkus- trúðleikara á Norðurlöndum”, Armand Miehe. Auk hans léku listir sinar Mats Söderquist og Peter Furuskov hljómlistar- menn og leikkonan Eda Michelson, ásamt ungum syni hennar og Miehe, Max. Þeim, sem séð hafa höfuðsnillinga látbragðslistar- innar að verki, eins og Frakkana Barrault og Marceau, þykir sjálfsagt ekki mikið til koma. Miene þolir þar ekki samjöfnuð. Til þess skortir hann frumleik, hugmyndaauðgi og fágun. Trúðleikur sirkussins er af öðru tilverustigi en fágaðasta form leikhússins, hinn hreinræktaði látbragðs- leikur. Hvor um sig hnuplar þó sigildum listbrögðum frá hinum. En hvað sem liður slikum Bryndís Schram skrifar um sýningu Miehe og Söderquist í Iðnó í gær- kveldi. j 3 y samanburði, þá var þetta einkar ánægjuleg kvöldstund. Gamanið var allt saman græskulaust og tilefnið úr hversdagnum. Engin þjóð- félagsádeila, enginn broddur, sem hægt var að kveinka sér undan. Ymislegt var hins vegar stórvel gert. Þeir Miehe og Söderquist reyndust vera fjölhæfir tónlistarmenn. Einkum var gaman, er þeir buðu upp á pinukonsert: léku á dvergfiðlu og örsmáa flautu af hjartans list. Leikkonan var ÍSLENSK HÚSGÖGN FYRIR ÍSLENSK HEIMILI SÍÐUMÚLA 30 • SIMI: 86822 HÚSCiÖCill

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.