Vísir - 14.10.1978, Side 7
vism Laugardagur 14. október 1978
7
Heimsmeistaraeinvígið í skók:
Nú er þetta hreint
happdrœtti
Kortsnoj :Karpov 31. skákin.
Kortsnoj átti ekki i neinum
erfiðleikum með að leiða bið-
skákina til vinnings. Hann fann
næsta þvingaða vinningsleið, og
eins og skákin tefldist virtist
þetta allt hlægilega einfalt og
létt.
Karpov fékk aldrei minnsta
möguleika til björgunar, og i
lokin stöðu kóngur hans og
hrókur einir uppi af svarta lið-
inu. Kortsnoj hafði tvö peð til
góða, og vinningurinn aðei”s
tæknileg úrvinnsla. Ahorfendur
og fréttamenn fögnuðu sigur-
vegaranum innilega, með lófa-
klappi og húrrahrópum. Korts-
noj lét sér þó fátt um finnast,
smeygði sér i regnstakkinn og
sagði: „Með vinningatöluna 5:5
er þetta orðið hreint happ-
drætti”. Einhver spurði áskor-
andann hvort hann ætlaði sér
ekki að fylgja þessu fast eftir og
tefla til vinnings með svörtu i
næstu skák. „Hvi skyldi ég
reyna að vinna?” spurði Korts-
noj á móti, og gaf þar með til
kynna að hann hygðist ekki taka
neina óþarfa áhættu i næstu
skák.
Siðustu dagar hafa verið
sorgardagar fyrir Karpov og
hans lið. Eftir að staðan var
orðin 5:2, tóku sovéskir fyrir-
menn að streyma til Baguio.
Þar skyldi halda sigurhátið, er
krýning heimsmeistarans færi
fram, hins 27 ára gamla Anatoli
Karpov. En Kortsnoj hefur veitt
þessum herrum heldur óbliðar
viðtökur. Fyrstur kom
Vasjukov, léttur I lund eftir
yfirburðasigur á móti i
Indlandi. Sama kvöldið tapaði
Karpov illa meö hvitu og vogar-
skálarnar jöfnuðust litið eitt,
5:3. Nokkrum dögum siöar kom
forseti sovéska skáksambands-
ins, geimfarinn Sebastianov.
Aftur tapaði Karpov og staðan
orðin 5:4. t fyrradag bættist svo
iþróttamálaráðherrann,
Yvonin, I hópinn, og mót-
tökurnar voru á sama veg, tap
hjá Karpov.
Nú segja gárungarnir að ekki
þurfinema eitt stórmennið enn,
og þá sé titillinn genginn Sovét-
mönnum úr greipum.
Hvitur : Kortsnoj
Svartur : Karpov
47. .. gxf5 (Biðleikurinn)
48. gxf5 Hg8 (Þannig telur
Karpov sig helst geta varist.
önnur leið er 48. .. Ha8 49. Ha2
Ke7 50. Kc3, og hvitur vinnur á
likan hátt og i sjálfri skákinni.)
49. Kc3! (Áætlunhvits er einföld
en áhrifarik. Meiningin er að
leika Kb4-a6-Ka5 og siðan tinir
hviti kóngurinn upp peðin á
drottningarvæng. Þessa áætlun
getur svartur ekki hindrað, að-
eins tafið). 49. .. He8 ( 1 þessari
stöðu þolir svartur hrókakaup-
in, en meöan kóngurinn stóð á
d3, var svariö d5 afgerandi.) 50.
Hd2 He4 (Eða 50. .. He3+ 51.
Kb4 Hxh3 52. a6 bxa6 53. Ka5
o.s.frv.) 51. Kb4 Ke8 52. a6 bxa6
53. Ka5 Kd7.
54. Kb6! (Reitirnireru peðunum
mikilvægari Ef 54. Kxa6 Kc7 og
hvitur kemst ekki lengra). 54. ..
b4 55. d5. (Allt rennur þetta
áfram eins og vel smurt hjól.)
55. .. cxd5 56. Hxd5+ Kc8 57.
Hd3 a5 58. Hg3 b3 (Ef 58. .. a5 59.
c6He8 60. Hg7a3 61. Ha7 Kb862.
c7+ Kc8 63. Kc6 og vinnur.
Eða 61. .. Kd8 62. Ha8+ Ke7 63.
Hxe8+ Kxe8 64. c7 Kd7 65. Kb7
og vinnur.) 59. Kc6 Kb8 60.
Hxb3+ Ka7 61. Hb7+ Ka6 62.
Hb6+ Ka7 63. Kb5 a4 (Að sjálf-
sögðu er 63. .. Hb4+ 64. Kxa5
Hxb665. cxb6+ Kb7 66. Kb5 vita
vonlaust.)
64. Hxf6 (Uppskeruhátiöin er
hafin.)
64. .. Hf4 65. Hxh6 a3 66. Ha6+
Kb8 67. Hxa3 Hxf5 68. Hg3 Hf6
69. Hg8+ Kb7 70. Hg7+ Kc8 71.
Hh7 Gefið.
s
H
t
%KARNABÆR
hcldur stórglæsílega
tískusýningu í ©6alí
annaó kvöld
hljómdcíldin kgnnír
ngja hljómþlötu
”fíftg sccond strcct”
* mcó
iBíllg íJocl
Laugavegi 80. Símar 10259 —12622
Er eitt mest selda sjónvarpstækiö á Islandi sökum gæða og
verðs.
20 tommu tækin CTP-215 kosta nú kr. 435.000.
Staðgreiðsluafsláttur lækkar tækið í kr. 420.000.
Einnig má borga 200.000 við afhendingu, og síðan 36.000 á
mánuði.
Tækið sem
allirgeta eignast