Vísir - 01.12.1978, Page 7
VISfR Föstudagur X. desember 1978
r ------------------
Umsjóri: Guömundur Pétursson
/
D
Idi Amin týndur
T hríó rfa hofnr Idi Amin hefur rúmleca tuttucu -Allir i Knmnab vaarn oinc nc
I þrjá daga hefur
ekkert heyrst til Idi
Amins, Ugandaforseta,
sem virðist horfinn, eins
og jörðin hafi gleypt
hann — á sama tima
sem hann hélt þvi fram,
að Tansania hefði gert
innrás i land hans.
Einn af ráðgjöfum forsetans
sagöi fréttamönnum i simanum á
miðvikudag, að hvarf Amins
marskálks væri mjög dularfullt.
Idi Amin hefur rúmlega tuttugul
sinnum verið sýnt banatilræði,
siðan hann komst til valda með
byltingu 1971.
Hann hefur oft valdið slikri
ringulreið hjá þegnum sinum með
dularfullum hvörfum, en jafnan
komið fram aftur, og gefið þá
skýringu, að hann hafi verið i frii
eða i brúðkaupsferð með
einhverri konunni sinni. Þetta
skeði siðast i september á þessu
ári, og kom þá upp kvittur um, að
hann lægi rænulaus á eyju einni á
Viktoriuvatni. Þegar hann birtist
aftur, lét hann taka af lifi opin-
berlega 15 menn, sem hann
sakaði um samsæri gegn sér.
-Allir i Kampala væru eins og
hengdir upp á þráö. — Ráðgjaf-
inn sagði, að mikil leit hefði veriö
gerðað Amin í næsta nágrenni við
bardagasvæðið við landamæri
Tansaniu.
A meðan hefur verið tekiö fyrir
allan fréttaflutning i Uganda af
mánaðarlangri deilunni við
Tansaniu, þvi aö forsetinn hefur
ekki verið nærri til að leggja
blessun sina, hvað segja megi.
„Aöur, þegar svona nokkuð hef-
ur komið fyrir, hefur það venju-
legast verið vegna þess, að hon-
um hefur veriö sýnt tilræði,”
sagði ráðgjafinn, sem ekki vildi
láta birta nafn sitt.
Tekur Sodat ekki við
verðlaununum?
Anwar Sadat, Egypta-
landsforseti, ætlar ekki
að fara til Osló þann 10.
desember til þess að
veita viðtöku friðar-
verðlaunum Nóbels sem
hann deilir með Menac-
hem Begin, forsætisráð-
herra tsraels.
Fréttastofan Mena I Austur-
löndum nær greindi frá þessu i
gærkvöldi, en fréttin hefur ekki
fengist staðfest hjá egypskum
ráöamönnum, þótt fréttastofan
hafi orð á sér fyrir að vita sínu
viti um egypsk mál.
Sadat fors^ti sagði nýlega, að
það væri undir stöðu samninga-
viðræðnanna við tsrael komið,
hvort hann færi til Oslóar að taka
viö friðarverðlaununum eða ekki.
Tregða hefur hlaupið I viðræöurn-
ar að undanförnu.
Some"
Tímes
hœtt að
koma út
Breska stórblaðið
,,The Times” er nú hætt
að koma út og þykir
mikill sjónarsviptir að,
— svo mikill, að breska
þingið var kallað saman
til aukafundar i gær-
kvöldi til þess að fjalla
um málið.
Deilur við samtök prentara
valda þvi, að útgáfunni hefur
verið hætt I bili, en eins illa og
horfir um samkomulag, er hætt
við, að nokkrir mánuðir geti liðið,
áður en blaöið hefur göngu sina
að nýju.
I 190 ár hefur The Times verið
jafn ómissandi við morgun-
veröarborð efri stéttar Breta,
eins og marmilaði og ristað
brauð. — Missir þess af blaða-
markaðnum gæti orðið vatn á
myllu „The Guardian” og „Daily
Telegraph”, sem i frétta- og
greinaskrifum þykja i litlu gefa
eftir The Times, þótt lesenda-
dálkar þeirra og krossgátur þoli
engan samjöfnuð, eftir þvi sem
breskir blaðalesendur segja.
Eigandi blaðsins, Thomson
lávaröur, hefur sagt, að útgáfu
The Times og helgarblaðs þess
„TheSunday Times” sé ekki hætt
fyrir fullt og allt. En hún hefjist
ekki aftur fyrr en náðst hafi
samningar við prentara um fækk-
un starfsliðs, hagræðingar á
vinnustað og tæknivæðingu — og
loks vinnufrið.
Erjur á vinnustaö hafa leitt til
þess, að útgefendur hafa aldrei
vitað meö vissu, hvort blaðið
kæmi út þennan eöa hinn daginn.
Gárungar voru farnir að upp-
nefna helgarblaöið „The Sunday
sometimes”.
Prentarar hafa ekki veriö til
viðræðna um samninga, eftir aö
Thomson lávarður hótaði að
stöðva útgáfuna, og sögöust ekki
setjast aö samningaborðinu fyrr
en hótunin hefði verið dregin til
baka.
LTOMA
jófaleikur
350.000 króna verðlaun
Sendu smellió svar og reyndu aó vinna til Þú þarft aóeins aó svara eftirfarandi
Ljóma verólaunanna fyrir jól! spurningu:
HVERS VEGNA HEFUR LJÓMA VERIÐ
LANG MEST SELDA SMJÖRLÍKIÐ Á
ÍSLANDI UNDANFARNA ÁRATUGI?
I. VERÐLAUN — TVÖ-HUNDRUÐ-ÞÚSUND KRÓNUR
II. VERÐLAUN — EITT-HUNDRAÐ-ÞÚSUND KRÓNUR
III. VERÐLAUN — FIMMTÍU-ÞÚSUND KRÓNUR
Sendu svar þitt — í bundnu máli eóa
óbundnu — merkt: Jólaleikur Ljóma,
pósthólf: 5251, deild f, 105 Reykjavík
Svarió verður aó hafa borist okkur
þann 18. desember 1978.
•Jsmjörlíki hf.