Vísir - 01.12.1978, Blaðsíða 8
Komin upp stigann
Helen Gallagher hef ur
I orðsins fyllstu merk-
ingu náð þvi að klifra
upp stigann, og er nú
komin á toppinn. Helen
er söngkona, dansari og
leikari. A siðastliðnum
árum hefur hún verið
með i mörgum leikritum
á Broadway. Ferill
hennar í söngleikjum
hófst 1945, þar sem hún
byrjaði sem dansari.
1947 fékk hún sitt fyrsta
góða hlutverk, í ,,High
Buttoned Shoes". Síðast
lék hún I „No, No, Nan-
ette" þar. Hún klifraði
svo upp stigann til þess
að vekja athygli á nýju
verki, „A Broadway
Musical", sem frum-
sýnt verður 11. des-
ember næstkomandi.
Fyrirmynd brúðanna
Buster er hann kallað-
ur, dyravörðurinn sem
heldur þarna á tveimur
brúðum, en Buster var
sjálfur fyrirmynd
þeirra. Hann var reynd-
ar skirður James Jarr-
ett fyrir áttatíu og sex
árum, og hefur verið
dyravörður hjá stór-
versluninni Henri Bend-
el í New York í meira en
sjö áratugi. Buster-
brúðurnar eru nú til sölu
i versluninni og kosta
f i m m tá n do 11 a ra .
Brúðurnar eru fimmtán
þumlungar á hæð,
iklæddar Bendels-ein-
kennisbúningnum. Grátl
hár kemur í Ijós undan
húfunum, og þær eru
með kinnalit. En dyra-
vörðurinn sjálfur kveðst
eingan kinnalit nota. Og
samkvæmt nýjustu
fréttum seljast brúðurn-
ar eins og heitar lumm-
ur.
Efnileg
Ekki eru þær margar
konurnar sem geta stát-
að af þvi að hafa tvisvar
leikið á móti Robert
Redford eða verið aðal-
kvensan i James Bond-
mynd. Það getur Lois
Chiles. Hún leikur á
móti Roger Moore i síð-
ustu Bond-myndinni,
Moonraker. Lois lék vin-
konu Redfords í mynd-
inni The Way We Were
og lék einnig i myndinni
The Great Gatsby. I
Death On The Nile leik-
ur hún rikustu stúlku í
heimi, Linnet Ridge-
way, og það hlutverk
þykir henni það merki-
legasta sem hún hefur
fengið. Lois þykir sér-
lega efnileg. Hún ku
vera dóttir oliujöfurs.
Fæddist í Alice í fexas,
stóð sig með prýði i
skóla og stundaði loks
nám i sögu við háskóla.
Umsjón: Edda Andrésdóttir
Föstudagur 1. desember 1978 yism
A J 9Í:
M2SO ~ — — ^—
i