Vísir - 01.12.1978, Síða 15

Vísir - 01.12.1978, Síða 15
SVIAR BORGA I BOLTUM EN DANIR EKKI NEITTI — Hvað gera forróðamenn knattspyrnumála á Islandi í sambandi við það og annað á KSÍ-þinginu um helgina? * ____________________________ Tóm áhorfendastæði á knattspyrnuleikjunum — jafnvel þótt menn sým ýmsar kúnstir eins og þessir tveir hér á myndinni, er eitt af þvf sem angrar knattspyrnuforystuna og hún veröur að finna svar við á þinginu um heigina.... Ársþing Knattspyrnusambands islands verður haidið um heigina, og er reiknað með að aðalmál þingsins verði tillaga um stofnun úrvaisdeiidar. Hefur heyrst aö borin verði fram tillaga um að fækka liðum i 1. deild úr 10 i 8 og nefna deildina siðan Úrvals- deild. Ekki eru allir á sama máli, hvað þetta snertir, þvi að ekki mun áformað aö fækka umferð- um, heldur hafa þær tvær eins og áður. Það yröi skref aftur á bak að samþykkja þessa tillögu segja sumir. Hins vegar yrði það til mikilla bóta að stofna úrvalsdeild með 6 félögum og iáta þau leika fjórfalda umferð. Út úr þvi kæmu eintómir toppleikir — leikir sem yrðu vel sóttir af knattspyrnu- áhugamönnum. Án efa mun eitt aðalmál þings- ins verða félagaskipti Islenskra leikmanna tii erlendra féiaga, en regiur um silkt hafa verið heldur betur lausar I reipunum. Þannig er ekki ósennilegt að settar veröi einhverjar reglur um greiöslur til islenskra félaga, sem missa leik- menn til erlendra liða. Sannast að segja hafa þessi mál verið I algjörum ólestri. Þannig hafa félög fengið vænar fúlgur fyrir leikmenn, sem hafa fariö til landa I M-Evrópu, en félög I Svl- þjóð hafa komist upp með að greiöa fslenskum liðum I boltum fyrir islenska leikmenn. Þá hafa dönsk félög, sem hafa fengið héð- an leikmenn, ekkert þurft að borga — ekki einu sinni bolta! — Og ekkert er um það, að félag hér innanlands, sem fær leikmann frá öðru innlendu liöi, þurfi að borga neitt. tsland er þar sennilega eina landið I V-Evrópu og þótt viöar væri leitaö, þar sem sllkt viö- gengst. Ellert B. Schram og þrlr stjórnarmenn, sem ganga eiga úr stjórninni, hafa allir ákveðið að gefa kost á sér. Ekki er reiknað. meö mótframboðum hvorki gegn Ellert né hinum þremur, en þeir eru Árni Þorgrimsson, Friðjón Friðjónsson og Helgi Danlelsson. Baroqwe borðstoffwsett með 2 mikið wtskornwm skapwm. Borðstofwborð og 10 stólwm Þetta er eina Baroque borö- stofusettiö af þessari gerð, sem til er hér á landi. Verð kr. 3.850.000.- Opiö til kl. 4 laugardag Sáðwmúla 23, sfmi 84200 Hér hefur þú eino milljón steriingspunda" - Nú skal Man. United aftur alla leið á toppinn „Gjörðu svo vel, hér hefur þú eina milljón sterlingspunda”. Þetta sagöi Louis Edwards, stjórnarformaður hjá Manchester United, viö Dave Saxton, framkvæmdastjóra félagsins, á dögun- um. Peningana bauð Edwards Saxton til kaupa á nýjum leikmönnum eftir 5:1 ósigur United gegn Birmingham, og Edwards bætti við: ,,Ef þetta er ekki nóg, þá getur þú fengið meira, þvi að nú skal United aftur á toppinn”. Hræðsla Það er greinilega gripin um sig skelf- ing á Old Trafford, og nú á að snara peningaveskinu á loft og kaupa nýja leikmenn til aö halda uppi merki þessa fræga félags. Það er varla ofmælt að eftir ósigurinn gegn Birmingham hafi gripiö um sig hræðsla hjá forráðamönn- um Manchester United. Luque efstur á blaði Efstur á blaði þeirra leikmanna, sem Dave Saxton hefur áhuga á að fá tii United, er argentinski ieikmaðurinn Leopoldo Luque, sem átti frábæra leiki, er Argentlna varð heimsmeistari s.i. sumar. Þá er Chelsea-leikmaöurinn Ray Wiikins einnig ofarlega á blaöi og fleiri mætti nefna. Neill sagði nei Einn þeirra er hinn stórgóði leikmaður Ársenal, Liam Brady, en hann hefur verið aðalmaður Arsenal I vetur. 1 hann bauð United metupphæð, en Terry Neill, framkvæmdastjóri Arsenal, var ekki einu sinni til viðræðu um málið. „Brady er ekki til sölu, þvl að án hans væri Arsenal ekki það liö, sem þaö er I dagV sagði hann. Ekki eina áfallið Hinn stóri ósigur United á dögunum gegn Birmingham — það var fyrsti sig- ur Birmingham I 1. deild — er ekki hin eini bitri ósigur, sem United hefur mátt bíöa I vetur. Þess er skemmst að minn- ast að liöið hans Elton John, Watford úr 3. deild, sló United út úr deildarbikarn- um, og það þótt liöin iéku á Old Trafford I Manchester. Sá gamli hræddur En nú er greinilegt að Louis Edwards stjórnarformaður félagsins er orðinn hræddur. Áhangendur félagsins, sem eru þekktir fyrir allt annað en að sitja þegjandi, ef þeim misllkar eitthvaö, eru heldur betur farnir að láta heyra I sér og heimta úrbætur. Meðal annars kröfðust þeir þess aö Dave Saxton yröi látinn fara frá félaginu, en á það féllst Edwards ekki. Þcss I staö rétti þessi 67 ára gamli milljónamæringur honum milljón pund, og lét þess getiö aö væri þetta ekki nóg til að koma málum I lag þá væru fleiri pund til. gk Leopoldo Luque. Hann er fyrsti maöur á óskalista hjá forráöamönnum Manchester United. n Eins og við vœrum með blý í fótunum" sagði Páll Björgvinsson eftir eins marks sigur gegn B-liði Frakka i gœrkvöldi „Viö lékum siakan varnarleik i kvöld”, sagði Páll Björgvinsson, landsliösmaður i handknattleik, er við ræddum viö hann I gær- kvöldi Páll var þá nýkominn á hótel sitt I Parls eftir aö tsland haföi marið sigur yfir B-Iandsliöi Frakklands 22:21, og við spuröum Pál I beinu framhaldi af þvi, hvort hann væri ánægður með liöið og leiki þess I Frakklandi til þessa. ,,Ég held að liðiö sé gott, miöað viðþaulandsliö, sem éghef leikið með. Að vísu vita allir að undir- búningurinn fyrir þessa ferð var sáralitill og þess vegna getum viö vel við þetta unað. Það er búið að vera mikið álag á okkur hérna. Við æfum á morgnana, siðan taka við fundir og loks er aö koma sér á keppnis- staö og spila. Þetta er þvi ekki alveg eins og heima, enda vorum við eins og meö blý í fótunum i kvöld.” Þetta var enginn toppleikur, enda strákarnir svefnlitlir”, sagði Jón Magnússon, varafor- maður HSl, i gærkvöldi. Það veröur þó að taka það með I reikninginn aö þetta var ekki alveg B-lið Frakka, þeir eru þarna með eina 2-3 menn sem eru A-landsliðsmenn.” Það er skemmst frá því að segja að ísland átti i miklu basli með Frakkana I gærkvöldi. Sóknarleikurinn var þó þokka- legur, en vörnin opnaðist oft iila. ísland komst i 3:1 en Frakkar TEKST ÞRÓTTI NÚ AÐ SIGRA? Þróttarar fá tækifæri til að hefna sln gegn IS I blakinu, er lið- in leika I Hagaskólanum á sunnu- dagskvöldið kl. 20.30. Liðin leika þar leik sinn i 2. umferð mótsins, en þann fyrri, sem háður var i Vestmannaeyjum á dögunum vann IS. Það er ljóst, þótt mótiö sé rétt nýhafið, að baráttan um Islands- meistaratitilinn kemur einungis til með aö standaá milli þessara tveggja liöa. Þau eru i nokkrum sérflokki i blakinu hér, og leikir þeirra þvi ávallt spennandi. Tveir aðrir leikir eru á dagskrá i 1. deildinni i blakinu, og eigast þar viö UMSE og UMFL 1 bæöi skiptin. Leikir liöanna verða I Glerárskóla á Akureyri kl. 15 á morgun og á sama stað kl. 14 á sunnudag. Staðan i 1. deild Islandsmóts karla i blaki er nú þannig, aö Þróttur og IS hafa 8 stig, Þróttur hefur leikið einum leik meira, UMFL e: meö 4 stig, UMFE 2 stig og Mimii ekkert stig. Á dögunum fengu Vestmannaey- ingar að sjá Þrótt og 1S leika I blakinu, og þá var þessi mynd tekin. Um helgina mætast liöin að nýju I Reykjavlk, og þá veröur væntanlega einnig mikið fjör. Vísismynd Guðm. Sigfússon.Eyj- um. höföu jafnaö 4:4 um miðjan fyrri hálfleik og í leikhléi leiddi Island 13:11. Framanaf slöari hálfleik leiddi Islensk liðið með 2-3 mörkum, en Frakkar jöfnuöu 19:19 þegar 9 minútur voru eftir. Aftur komst tsland yfir 22:20, en Frakkarnir áttu sfðasta oröið Axel Axelsson var I miklum ham f gærkvöldi eins og f fyrri leikjum mótsins. Hann skoraöi 10 mörk, en I leikjunum við Frakka og Kínverja i kvöld og annað kvöld veröur Islendka liöið án hans og Ólafs jónssonar. gk — Per Honsson Ógnardagar í október 1941 ógnardagar I október er hlaðin spennu, — óhugnanlegri viti firrtri spennu! Bókin segir frá óhugnanlegustu fjöidamorðum heimsstyrjaldarinnar siðari, þegar allir karlmenn sem bjuggu I bænum Kragujevec I Júgóslaviu voru teknir af lffi. Moröin áttu að brjóta baráttuþrek Serbanna en sameinaði þá I stað þess að sundra. Og þeir sem eftir liföu I þessum draugabæ, biðu þess að skæruliöarnir kæmu, — og svo sannariega komu skæruliðarnir. Þessi bók er mikilfengleg lýsing mannlegrar reynslu, stórfeng- legur vitnisburður um sérstaka hetjudáö. Höfundurinn er mörg- um kunnur af fyrri bókum hans: Teflt á tvær hættur, Tiundi hver maður hlaut að deyja, Höggvið I sama knérunn og Trúnaöar- maöur nasista nr. 1, en ógnardagar I október er snjallasta bók hans, — hún er snilldarverk. Knut Houkelid Baráttan um þungavatnið Baráttan um þungavatnið er æsispennandi! Hver siða bókarinn- ar speglar harðfengi og hetjulund, sálarþrek og járnvilja, ógnir og æsilega spennu. Bókin segir frá baráttu norskra skæruliða, er þeir sprengdu þungavatnsverksmiðjuna I Vemork I loft upp, — en Þjóðverjar þurftu þungt vatn til að geta framleitt vetnis- sprengju og þetta var eina þungavatnsverksmiöjan I Evrópu. Norsku skæruliðarnir voru Þjóöverjum fremri að einbeitni, hug- kvæmni og kænsku og þeir máttu þola hverskyns harðræði I ill- viðrum á öræfum uppi á meðan þeir biðu færis. Þrekraun þeirra er talin með meiri hetjudáðum heimsstyrjaldarinnar sfðari — og enn æsilegri vegna þess að hún er sönn. Þessi hetjusaga á vart sinn lika I striösbókmenntum, svo æsileg er hún. PER HANSSQN QGNAR' . QAGARt Ss OKIQBER v '?4% * * S ** • / ú’ . i#r i «; 'fi 'S KNUT HAUKIHLID ÞUNGAVATNIfl

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.