Vísir - 15.12.1978, Blaðsíða 15

Vísir - 15.12.1978, Blaðsíða 15
•’l iií^ghiits'K'í syggitim tqap botxkim ost iþróttamennirnir á Hótel Loftleióum i gærkvöldi. Frá vinstri i fremri röö eru: Þórunn Alfreðsdóttir, Berglind Pétursdóttir, Jó- hanna Guðjónsdóttir, eiginkona Arnórs Péturssonar, Steinunn Sæmundsdóttir, eiginkona Óskars Jakobssonar. Aftari röð frá vinstri: Arni Indriðason, Bjarni Friðriksson, Tómas Guðjóns- son, Skúli óskarsson, Gylfi Kristinsson, Jóhann Kjartansson, Jón Sigurðsson og Jóhann M. Nielsson. Á myndina vantar Karl Þóröarson og Eyþór Pétursson. Visismynd Einar. Föstudagur 15. desember 1978 VÍSIR Umsjón: Gylfi Ifristjánsson — Kjartan L. Pálsson Hnefarnir einir nœgðu þeim ekki — Dómararnir réðu ekki við neitt og allt var á suðupunkti í leik Fram og Víkings í gœrkvöldi Slagsmálaleikur I handknatt- leik — eins og þeir geröust verstir hérfyrr á árum, þegar við áttum hóp af handknattleiksdómurum, sem ekki gátu dæmt — var á boö- stólnum I Laugardaishöllinni i gærkvöldi, er leikmenn Fram og Vfkings mættust þar l 1. deild karla. Þessi leikur sló öðrum við að þvi leyti, að nú voru hrindingar og hnefahöggin ein ekki látin nægja. Menn no uðu fæturna til að sparka hver i annan, og til að kós óna allt hræktu sumir i andlit andstæðingsins þegar hnefar og fætur nægðu ekki lengur til. Mikiö gekk á I leiknum allan timann. Strax i upphafi misstu dómararnir, Haukur Þorvaldsson og Óli Ólsen, tök á leiknum. Vikingarnir fengu að komast upp með ljót þrot átölulaust og fór það i skapið á Frömurum, enda voru dómarnir framan af þeim mjög ó- hagstæöir. Er á leikinn leiö fór það þó að jafnast þvi að hver furðudómur- inn rak þá annan og bitnaöi þaö á báðum liðum. Upp úr sauð þó I lokin, en þá réðu félagarnir með flauturnar ekki við neitt. Leik- mennirnir slógust, áhorfendurnir ruddust inn á völlinn, og bókstaf- lega allt fór i handaskol I Höllinni. Til að gera illt verra ráku dóm- ararnir menn óspart útaf — sjálf- sagt til að kæla þá — en við það hitnaði i hinum, sem inni á voru og þá ekki siður i áhorfendum. Tveir leikmenn voru reknir alla leið i bað — Ólafur Einarsson, Vikingi og Gústaf Björnsson, Fram. Hvorugur gegndi þó dóm- aranum, en báðir dröttuðust þeir út af vellinum, sótrauðir af vonsku. Aðdáendum Fram féllu dóm- arnir sýnilega mun verr i geð en Víkingum. Gerðu þeir aðsúg að þeim eftir leikinn og áttu þeir fót- um slnum fjör aö launa inn i búningsklefa. Að frátöldum slagsmálunum, var leikurinn hinn skemmtileg- asti og ýmislegt mjög gott sást til beggja liðanna. Vikingarnir voru þó öllu öruggari og betri — sér- staklega I sókninni — enda úr miklum og góðum mannskap að moða. Er þar hvert rúm skipaö afbragös leikmmönnum, en I þetta sinn bar þó mest á þeim Erlendi Hermannssyni, sem fer '' 'V'" - r-n r.vr.. RALLY SPIL Rally spiliö er fræðslu og skemmtispil, fyrir alla aldursflokka. Veljiö leiðir og akið um landið um leið og þið sjáið kennileiti. Spennandi spil fyrir unga sem aldna. Spilaborg. SPILIÐ FÆST I NÆSTU VERSLUN OG EJNNIG A BENStNAFGREIÐSLUM OLIS UM LAND ALLT. Spilaborg hf. LAUGAVEG 18 A SIMI 29697. fram i hverjum leik, Páli Björg- vinssyni, Ólafi Jónssyni og Ólafi Einarssyni, sem skoraði 8 mörk I leiknum. Hjá Fram voru það tveir menn sem skáru sig úr. Landsliðsmenn- irnir Gústaf Björnsson og Atli Hilmarsson. Gústaf skoraöi 8 mörk i leiknum og Atli 5. Leikurinn var framan af jafn. Vfkingur haföi 1 mark yfir i hálf- leik 9:8 en komst i 12: 8 og 21:20 — en útslagið gerðu Víkingar, er þeir skoruðu 2 mörk eftir það, og voru þó tveim færri á vellinum. Lokatölurnar uröu 26:21 Vikingi i vil. Viggó Sigurösson skoraði sið- asta mark Vikings úr aukakasti, en þá neituðu Framarar aö standa I vörn eða marki, og vildu meö þvl mótmæla dómum þeirra Hauks og Óla i leiknum. Þótti engum það mikið eftir að hafa horft á vinnubrögð þeirra I þetta sinn. —kip— ( StAÐAN ) Staðan i 1. deild íslandsmótsins I handknattleik er nú þessi: Vikingur Vlkingur Valur FH Haukar Fram ÍR Fylkir HK Fram 7 5 5 6 7 7 6 6 6 26:21 1 1 159:143 11 Næsti leikur er á þriöjudag, en þá leika Fylkir og 1R I Laugar- dalshöli kl. 21. Gefum upp vonina um íslandsmeistaratitil" sagði Hilmar Hafsteinsson, þjálfari UMFN, eftir ósigur gegn Val í Úrvalsdeildinni í körfuknattleik nn >.> Jp* w Æviþættir Jóns Daníelssonar skipstjóra og samband hans við huldukonuna er fylgt hefur honum i lífi og starfi. Skráð af Magnúsi Sveinssyni frá Hvitsstöðum. íslendingar hafa löngum haft sterka vissu fyrir tilvist huldufólks.... Þessi litla bók segir frá ævi manns, er notið hefur liðveislu huldu- konu allt lifið. Það er sjómaður sem orðið hefur að sækja lifsbjörg sina og sinna i djúp hafsins og starf á hinum oft risjóttu fiskimiðum ts- landsála, þar sem allt getur hent með litlum fyrirvara. Þessi æviþáttur Jóns Danielssonar skipstjóra er enn eitt innlegg i þennan stóra lifsreynsluþátt og baráttusögu islenskrar alþýðu.” (Úr formálsorðum H.G.) PiQöspga „Við erum biínir að gefa upp vonina um að hljóta íslandsmeistaratitilinn og höfum sett stefnuna á bikarkeppnina” sagði Hilm- ar Hafsteinsson þjáfari UMFN i körfu- knattleik, er viö ræddum við hann eftir leik Vals og UMFN i gærkvöldi. Valur sigraði með 95:91, og UMFN hefur nú tapað 8 stig- um I deQdinni. Sjálfsagt vekja þessu um- mæli þjálfarans furðu margra, þvi að KR sem er í efsta sæti, hefur tapað fjórum stig- um, Valur 6, og slöan koma IR og UMFN sem hafa tapaö 8 stigum. Það má þvl ekki mikiö út af bera hjá Val og KR þannig að UMFN sé inni i myndinni aftur. „Það er lltið um leikinn sjálfan að segja”, sagði Hilmar. „Valsmenn voru belri aðilinn, en mér fannst furöulegt að nokkrir leikmenn þeirra gætu leikiö inni á mest allan siðari háifleikinn með 4 villur og sleppa við þá 5. allan timann.” Sigur Valsmanna hafði auðveldlega get- .aðorðiöstærri en 4 stig eins og varð I lokin. Valurhafði nefnilegayfir 95:80þegar tæpar tvær mlnútur voru til leiksloka, og skiptu þá varamönnum sinum inná. Þetta náðu Njarövikingarnir aö notfæra sér og þeir skoruöu 11 siðustu stig leiksins. En bilið var of stórt til að brúa það til fulls, og þvi tapaði UMFN slnum fjórða leik I Úrvalsdeildinni. Leikur liöanna var fjörlega leikinn. Vals- menn leiddu ávallt utan þess að UMFN komst yfir 33:32 i fyrri hálfleik og hafði þá unnið upp 10 stiga forskot Vals, sem Torfi Magnússon sá öðrum fremur um að skapa. Torfi átti sinn besta leik I vetur, og Jónas Jóhannsson réði ekkert viö hann, Hvorki I vörn né sókn. Af 20fyrstu stigum Vals skor- aði Torfi 14 og brenndi ekki af skoti. Þaö var siöan Ted Bee sem átti mestan þátt i að UMFN komst yfir, en Valsmenn náöu aftur undirtökunum og leiddu I hálfleik 52:45. Fram eftir siðari hálfleik munaöi þetta 8 — 10 stigum á liöunum Val I vil, og er munurinn fór upp 115 stig rétt fyrir leiks- lok, fannst Ólafi Thorlacius liðsstjóra rétt aðleyfa varamönnunum að spreyta sig meö fyrrgreindum árangri. Bestu menn Vals I þessum leik voru þeir Torfi Magnússon, KrisjánAgúss son og Tim Dwyer.Þessir þrirbáru nokkuðaf, en Þórir Magnússon var óvenjulitiö áberandi og skoraði t.d. ekki nema 5 stig, sem þykir lltið á þeim vigstöövum. Stighæstir voru Dwyer meö 31, Torfi 28 og Kristján 21. Þessir þrír skoruöy. þvi öll stig Vals nema 15. Þaö&egiuraö segjast, að þaö kemur ekki það úptiF leik UMFN—liðsins, sem menn búast yjðímiðað við þann mannskap sem liðiöhefur yfir aö ráöa, ogmunar þar miklu að menn eins og Jónas Jóhannesson og Guösteinn Ingimarsson virtust finna sig illa i leiknum. Ted Bee bar af I liöinu, og eitt hefur hann fram yfir alla leikmenn sem leika hér körfuknattleik. Það er sama hversu illa hann kemur út varöandi dóma, aldrei mótmælir hann eöa er meö kjaft- brúk. Þetta mættu margir taka sér til fyrir- myndar. Stighæstir i liöi UMFN voru Ted Bee meö 37 stig. Gunnar Þorvarðarson meö 24 og Jónas Jðhannesson með 11. gk -• Oetum boðið þessar nersku veggsamstæður frá Bahus á mjög hagstæðu verðf, þ.e.a.s. Æ ... 478.000.00 Til afgreiðslu fyrír jól SMIÐJUVEGI6 SIMI 44544 FJÖLVA !=!_{=> ÚTGÁFA svarta Ijóðabókin rp • • 1 VO upprennandi ljóðskáld Nýi tíminn í Ijóðabókum Fagurlega hannaðar og myndskreyttar Athugið að þúsundir ljóðelskra kvenna og karla meta ljóðabók mest allra gjafa Nú er það svart, maður W6tt ASB^sIGUfiÐs Fjölvi, Skeifunni 8, sími 3-52-56

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.