Vísir


Vísir - 30.12.1978, Qupperneq 10

Vísir - 30.12.1978, Qupperneq 10
10 £' 'J Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davló Guömundsson Ritstjórar: ólafur Ragnarsson Höröur Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri eriendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón meö Helaarblaöi: Arni Þórarinsson. Biaöamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Jónina Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson,Oli Tynes, Sigurður Sigurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson, Þor- valdur Friðriksson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljós- myndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og söiustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla 8. Sfmar 86611 og 82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4 slmi 86611. Ritstjórn: Slöumúla 14 slmi 86611 7 linur. Askrift er kr. 2500 á mánuöi innanlands. Verö I lausasölu kr. 125 eintakið. Prentun Blaöaprent h/f Þversum í straumi tímans Við áramót reyna menn oftast nær að gera upp reikninga liðins árs og sumir freista þess að horfa lítið eitt fram á veginn. I pólítísku tilliti hefur orðið meira umrót á þessu ári en nokkru sinni fyrr í sögu lýðveldis- ins. Ogeinmittaf þeim sökum verður pólitísku bókhaldi þessa árs ekki lokað nú um áramótin. Lausu endarnir eru einfaldlega of margir til þess að dæmið verði gert upp. En því fleiri spurningar vakna varðandi f ramvindu mála á næsta ári. Við erum á vatna- skilum og sjáum ekki fyrir eins og sakir standa, hvort við höldum norður eða niður, þegar upp verður staðið. Ugglaust er f lestum efst í huga þau pólitísku umskipti sem urðu í tvennum kosningum á síðasta ári. Atkvæða- tölurnar í sveitarstjórnarkosningunum og síðar alþingis- kosningunum breyttu gangverkinu í pólitískri sögu landsins, hvorki meira né minna. Sósíalistar urðu í einu vetfangi ráðandi af I bæði í borgarstjórn Reykjavíkur og á Alþingi. Og kjósendur ákváðu að Alþýðuflokkurinn skyldi ekki deyja og gerðu hann aðstórum f lokki. Um leið varð Framsóknarflokkurinn að minnsta flokknum á Alþingi og sjálfstæðismenn duttu í fyrsta skipti i sögunni út úr allri valdaaðstöðu í þjóðfélaginu. Upp úr þessu mikla umróti hefur komið óstarfhæft Al- þingi og vonlaus ríkisstjórn. Við slíkar aðstæður verða spurningarnar um pólitíska framvindu næstu mánaða áleitnar, en að sama skapi er ógerlegt að ráða í svörin. Þó að þessi pólitísku umbrot séu í sjálf u sér merkileg varð á siðasta ári einhvers konar þjóðfélagsleg gliðnun, sem á eftir að draga meiri dilk á eftir sér en nokkurn tímann ný þingsætahlutföll milli f lokka. ölögleg verkföll og útflutningsbann eru ytri teikn þessarar gliðnunar, sem hefur orðið í þjóðfélaginu. AAönnum er ekkert heilagt lengur og þá er það hnefarétturinn, sem gildir. Á næsta ári gæti svo farið að menn þyrftu að hafa meiri áhyggjur af þessum efnum en hinni eiginlegu póli- tísku uppstokkun. Spurningin er sú, hvort nokkrar líkur séu á því að hér vaxi upp það af I í þjóðfélaginu, sem hef- ur það vald og þá virðingu sem til þarf, svo að fæti verði spyrnt við. ( pólitíkinni hafa menn gleymt þvf litla orði: Frelsi. Jafnvel þeir sem sérstaklega eru kjörnir til þess að standa vörð um það sýnast tæplega nenna því. Aðrir kæra sig kollótta. Fyrir vikið er nú verið að auka skatt- heimtu í þeim tilgangi fyrst og fremst að draga úr f jár- hagslegu sjálfstæði borgaranna, (og um leið frelsi þeirra). Á sama hátt er verið að grafa undan f rjálsum atvinnu- rekstri. AAarkmiðið er að mergsjúga atvinnufyrirtækin þannig meðsköttumog hreinni eignaupptöku, að í einum punkti stöndum við frammi fyrir atvinnuleysi. Þá um leið á stóri bróðir að grípa í taumana og segja: Hér kem ég algóður umsjónarmaður ykkar allra. Þetta eru útlínur þess sem er að gerast. Kjarni málsins er sá, að í þessu umróti er frjálshyggjan á undanhaldi. Það er sú alvarlega staðreynd, sem borgar- ar þessa lands standa frammi fyrir um þessi áramót. Við erum oft á tíðum þversum í straumi tímans eins og glöggt má ráða af því, að þetta er að gerast í okkar þjóð- félagi á sama tíma og t.a.m. þekktustu hugmynda- fræðingar sósíalista i Svíþjóð eru að snúast gegn of- sköttun af þeirri einföldu ástæðu að hún hefur skert um of frelsi einstaklinganna. Hvort við höldum I norður eða niður á næsta ári er komið undír því, hvort frjálshyggjumönnum tekst að snúa vörn í sókn. Þó að brýningar haf i oft verið þörf i því ef ni er hún nauðsyn nú. Og í þeirri trú að hún beri árang- ur óskar Vísir landsmönnum öllum árs og friðar. Laugardagur 30. desember 1978. Vísir rœðir við formenn stjórn AAerkt ár í stjórnmála- stjórnmálalegra svipt- flokka og milli rikis- sögu þjóðarinnar er nú á inga og einstæðra átaka stjórnar og launþega. enda. Arið 1978 var innan stjórnmálaf lokk- 1 kjölfar miki llar kosningaár, ár mikilla anna, milli samstarfs- vinstri sveiflu í kosning- w Olafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins: Hugsanir mínar um nœsta ór eru leynd- ardómur „Mér er nil náttúrulega kosn inganóttin minnisstaeöust frá liönu ári. Þaö var svört messa, og mig langar ekki til aö lifa aöra slíka”, sagöi ólafur Jóhannesson. Hvers ég vænti af næsta ári, — ég vil ekkert um þaö segja. Allar minar hugsanir um hvers sé aö vænta á næsta ári eru leyndar- dómur”. Ólafur Jóhannesson Vona að það verði kosningaór „Mér er minnisstæöust kosningabaráttan og kosningaúr- slitin, bæöi f kosningum til sveita- stjórna og Alþingis á liönu sumri”, sagöiGeir Hallgrimsson. „Varöandi þaö ár, sem nú gengur i garö, er þaö aö segja, aö ég vona aö þaö veröi kosningaár. Ég vil gjarnan nýjar kosningar, þegar þjóöin hefur fengiö full- nægjandi reynslu af núverandi stjórnarsamstarfi, þóttreynsla veröi því miöur þjóöinni dýr- keypt.” — Teluröu eitthvert form stjórnarsamstarfs ööru vænlegra til árangurs i öröugleikunum sem viö er aö glima? „Ég tel ástæöu til þess fyrir Sjálfstæöisflokkinn aö stefna aö meirihluta á Alþingi, og sá grund- Viö áramót er oft staldraö viö og litiö bæöi um öxl og fram á veginn. Ferillinn i efnahagsmál- um hefur ekki veriö glæsilegur og margir, jafnvel allflestir, þykjast sjá mikla þörf næstu misseri fyrir endurbætur I hagsýslunni, áöur en unnt veröi aö ná föstum tökum á vandanum. Teygjanleg og upp á sig snúanleg Siöbót, endurfæöing eöa upp- risa efnahagslikamans, hvaö sem ný Viöreisn veröur nefnd, er verkefni rikisstjórnar, en nú situr ein slik æriö sundurlynd og er vart hugaö lif. En oft er ljótur draumur fyrir litlu efni og skeik- ulleiki spásagna um stjórnmál og efnahagsmál svo mikill, aö jafn- vel berdreymnum hagfræöingum fipast. En hversu miklir siöbótarmenn eru stjórnarherrarnir? Efnahagsstefna Framsóknar- flokksins er sveigjanleg, teygjan- leg og upp á sig snúanleg, en jafn- an innrömmuö af SIS og meintum hagsmunum bænda. Innan þessa ramma er Framsókn vis til bæöi góös og ills, enda þótt forystu- sauöunum hætti til aö lita á höft og skömmtun sem náöarmeöul. Nær óhugsandi er, aö frumkvæöi aö víötækum og farsælum endur- bótum komi úr þessum bás. Endurtekning á mistökum sósíalisku ríkjanna Alþýöubandalagiö viröist hafa týnt öllum áttum og er oröiö einn þátturinn i efnahagsvanda þjóö- lægu viöhorf nokkurrar hylli hjá fávisum mönnum I öllum flokk- um). Aö viöurkenna ekki fjármagns- kostnaö i atvinnulifinu vegna þess aö vinnan ein skapar verö- mæti 1 framleiöslunni sam- kvæmt vinnuviröiskenningu Marx (sbr. hérlendis aö lita á afskriftir sem hluta af hreinum tekjum og afhenda fjármagn á útsöluveröi). Aö verölagning miöist ekki viö raunverulegan framleiöslu- kostnaö heldur geöþótta stjórn- valda. Aö raöa atvinnugreinum I for- gangsröö, láta þjónustugreinar mæta afgangi og veitast sér- staklega aö verslun og viö- skiptum. Aö rekstur fyrirtækja megi ekki ráöast af hagnaöarsjónarmiö- inu, rikiö geri hagnaö upptæk- an og fjármagn berist til fyrir- tækja um opinbera sjóöi. Aö stefna aö nær algerum launajöfnuöi. Oreltar hugmyndir í Aust- ur-Evrópu Eftir bitra reynslu hafa kommúnistaflokkar Austur- Evrópu látiö þessar hugmyndir róa, hverja á fætur annarrij’yrst var launajafnaöarhugmyndinni kastaö á glæ, en launaskipting þarlendis er nú mjög áþekk og I Vestur-Evrópu og á lslandi. Akvaröanir fyrirtækja mótast i vaxandi mæli af hagnaöarsjónar- miöinu, m.a. af þvi hvort vara selst, og auglýsingar eru notaöar. Fyrirtæki halda eftir stórum hluta af hagnaöinum og ráöstafa V s Dr. Þráinn Eggertsson hagfræðingur skrifar: Ég tel enn ekki póli- tískan grundvöll vera fyrir hendi í landinu til róttækra endurbóta. AAáttur vanans er mik- ill og voldugir aðilar hafa hreiðrað vel um sig í kerfinu. arinnar og ógnar lifskjörum hennar. Erfitt er aö sjá, hvaöan leiötogum flokksins koma hug- myndirnar, en leiöa má nokkur rök aö þvi, aö stefnt sé, liklega af óvitaskap, aö endurtekningu á mistökum sósialísku rikjanna i Austur-Evrópu á árunum frá striöi og fram yfir 1960. Nokkur dæmi má nefna um fornar syndir I Austur-Evrópu, sem þeir Alþýöubandalagsmenn hafa falliö fyrir. (Reyndar njóta þessi fjar-

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.