Vísir - 04.05.1979, Blaðsíða 14
V » V’l
VÍSIR
Föstudagur 4. mai 1979
sandkorn
Sæmundur
Guövinsson
skrifar
ÍHflLDS-
SKJÁLFTI
Mikiil skjálfti hefur gripið
ihaldsmenn fyrir formanns-
kjörið á morgun þar sem kosið
verður um Albert og Geir,
Gunnar og Davið. Varlega
hefur verið fjallað um þessi
framboðsmál i málgögnum
Sjálfstæðisflokksins, Morgun-
blaðinu og Dagblaöinu þótt
allir viti að Mogginn styður
Geir en Dagblaðið styöur Al-
bert.
Hins vegar telja sumir að
Gunnar muni láta Davið vita
hvar hann keypti ölið.
Friðrlk og
ðtgangan
Nokkur dagblaðanna hafa
þaðeftir Friðrik Ólafssynifor-
seta FIDEað hann hafi gengið
út af aðaifundi Skáksam-
bandsins til að mótmæla til-
teknum atriðum I prentaðri
skýrslu stjórnar Skáksam-
bandsins.
Það vill svo til að undir-
ritaður fylgdist með þessum
fundi og sá er Friðrik gekk út.
Ekki var hægt að merkja að
það væri gert I mótmælaskyni
þvi áður tók Friðrik innilega I
hönd erkióvinarins Einars S.
Einarssonar og var ekki
annað að sjá en vel færi á með
þeim.
Þcir hafa það öðruvisi full-
trúar stórveldanna þegar þeir
ganga út undir skammar-
ræðum hver annars. Þá er
jafnan fátt um kveðjur.
Mynd um
veOur
í nýju hefti Ferðamála,
fréttablaði Ferðamálaráðs er
greint frá nýjustu land-
kynningarmynd Dana. Kvik-
myndin er 18 mlnútna löng og
nefnist „Danskt veður”. Hún
sýnir Danmörku I rigningu
roki, slyddu, snjó, þoku, kulda
— og sól. Kvikmyndin hefúr
reynst afar vinsæl og hefur
unnið til verðlauna á þremur
kvikmyndahátlðum.
Hvernig væri að viö tækjum
Dani okkur tii fyrirmyndar i
þessum efnum og létum gera
eins og eina kvikmynd um
veðrið hérlendis eins og það
raunverulega er?
Eitt l dag
Þjóðviljinn er illur út af
ráöningu nýs bæjarstjóra
Hafnarfjarðar. Segirblaðið að
þar hafi verið gengið framhjá
eina umsækjandanum með
reynslu I stjórn bæjarmála.
Sama blað fagnaði þvi hins
vegar ákaft þegar gengið var
framhjá tveimur umsækjend-
um meö langa reynslu þegar
ráðið var I stöðu skrifstofu-
stjóra Reykja vlkurborgar
fyrir skömmu og ungur lög-
fræðingur ráðinn i staöinn.
Það getur veriö erfitt að vera
sjálfum sér samkvæmur.
—SG
18
Umsjón:
Edda
Andrésdóttir
Fækka fötum
Það hefur mikið vatn runnið
til sjávar siðan á dögum
kimonodögum japanskra
kvenna. Japanskar sýningar-
stúlkur fækka nú fötum án þess
að blikna á tiskusýningum eins
og til dæmis systur þeirra i
öðrum löndum. Þessi mynd hér
til hægri var tekin á sundfata-
tiskusýningu i Tokyo fyrir
nokkru. Baðfötin voru meðal
fimmtiu annarra sem sýnd
voru.
BURROUGHS HELD-
UR PARTI FYR-
ir mm
William S. Burroughs heitir
maður I Ameriku og heftir ofan
af fyrir sér með ritstörfum.
Reyndar er hann nokkuð þekkt-
ur en allmjög umdeildur þó.
Hann hélt um daginn sam-
kvæmi fyrir nokkra vini sina
sem flestir eru rithöfundar lika.
Allen Ginsburg, Norman
Mailer, Jean Genet, Jerzy
Kosinski og margir fleiri voru
þar mættir. Og náttúrlega fór
allt i háaloft.
Si'ðla nætur var lögreglan
kölluð á staðinn vegna óláta
sem nágrannar tóku eftir. Að-
koman fyrir hina prúðu laganna
þjóna var lika ófögur. Allt
logaði I slagsmálum. Endirinn
varð sá að öll fengu skáldin að
gista i fangageymslum.
IJ
GL/CSILEGUR SÝNIHGARSALUR
Vegno mikillor sölu
síðustu dogo vantar okkur allo góðo
nýlego fólksbílo í sölu
Opið virko dogo 9-7 og lougordogo fró 9-6
BÍLASALA - BÍLASKIPTI
BORGARTUNI 29 - SIMI 28488