Vísir - 22.05.1979, Blaðsíða 16
VÍSIR
Þriöjudagur 22. mal 1979.
Umsjón:
Sigurveig
Jónsdóttir
„Mér líður ðgnarlega vel í Dessu”
segir Jðn Slgurbjörnsson. en hann átti 30 ára leikalmæli 11. maí sl.
„Það var nú aldrei ætlunin aö
gera neitt úr þessu,” sagöi Jón
Sigurbjörnsson leikari, þegar
Vísir ræddi viö hann i tilefni þess
aö hann á um þessar mundir 30
ára leikafmæli. Jón er einn
þriggja leikara Leikféiags
Reykjavikur, sem ná þessum
tlmamótum á árinu. Hin eru þau
Steindór Hjörleifsson og Sigriöur
Hagalln.
Viö spuröum Jón hvort áhuginn
^ærj ekkert farinn aö dofna fyrir
leiklistinni eftir öll þessi ár.
„Nei,” sagöi hann, mér liöur
ógnarlega vel I þessu. Ahuginn
fer auövitaö eftir verkefnunum,
en þegar þau eru góö finnst mér
alltaf jafn gaman aö leika og lifi
mig öllum stundum inn i starfiö.
Hins vegar getur maöur auövitaö
oröiö dauflegur, þegar hlutverkin
eru miöur skemmtileg.’'
— Er mikill munur á aö vera
leikari I dag eöa fyrir 30 árum?
,,Þaö voru miklu færri tækifæri
fyrir unga leikara, þegar ég var
aö byrja, Þá var ekkert leikhús
nema Iönó og þvílitill möguleiki á
stööugu starfi. Ég var þaö lukku-
legur aö hafa snemma nokkuö
mikiö aö gera, en ég var lausráö-
inn alveg þar til ég fór aö vinna
viö Þjóöleikhúsiö áriö 1960. Þó
liföi ég aö mestu af starfinu I leik-
húsunum ogsvo leikferöum út um
landiö. I sumar á ég annaö af-
mæli, þvi hópurinn „Sexí bíl” var
stofnaöur fyrir 30 árum. Viö fór-
um I leikferöir þrjú sumur sam-
fleytt. Þaö Var afskaplega
skemmtilegur timi.”
Jón hefur á leikferli sfnum fariö
meö tugi ef ekki hundruö hlut-
verka — hann hefur ekki haldiö
þvi saman — en hvert þeirra er
minnisstæöast?
„Þaö er erfitt aö segja. Ég sé
byrjunina i hillingum og frum-
raunin i Hamlet stendur mér enn-
þá skýrt fyrir hugskotssjónum.
Ég hef aldrei átt neitt óskahlut-
verk, en hef alltaf fengiö verk-
efni,sem hafa veitt mér fullnæg-
ingu i starfi. Þaö e r helst núna
sem ég hef ákveöna ósk. Ég vildi
helst fá eina óperurullu áður en
éi! tvni röddinni J£g er alveg.
ánægöur hér i Iönó, en ef einhver
byðá mér aö syngja i óperu, þá
myndi ég strax slá til”.
— SJ
Jón Sigurbjörnsson fer núna meö hlutverk yfirlæknisins I leikritinu ,,Er þetta ekki mitt Iff? sem Leikfé-
iag Reykjavikur frumsýndi um helgina. Hér er hann ásamt samleikurum sinum Iþvl verki. Vísis-mynd:
GVA
HLH-flokkurinn i klæönaöi góöa gamia rokktimabilsins
FJÖRIR TÓHLEIKAR
Á ÞREM DÖGUM
Kór Langholtskirkju fer til tón-
leikahalds noröur i land um næstu
helgi. A þrem dögum mun kórinn
syngja á fjórum stöðum, aö Loga-
landi i Borgarfiröi, Miögaröi i
Skagafiröi, á Akureyri og á ■ Dai-
vik.
A tónleikunum veröur blönduö
efnisskrá meö gamalli og nýrri
tónlist. Meðal annars veröa
sungnir tveir þættir úr argentisku
messunni Missa Criola, 5 negra-
sálmar og verk eftir Jón Asgeirs-
son, sem hann samdi sérstaklega
fyrir kórinn.
—SJ
Nfl TÖNLISTARSKÖLINN
MIS HEMENDATÓNLEIKA
Rokkaðí
Laugardalshöll
„Meöan rokkiö var ungt og sak-
laust var I þvi húmor og
skemmtilegheit og viö ætlum aö
reyna aö halda þvl þannig,” sagöi
Björgvin Haiidórsson, einn
HLH-flokksmanna I samtali viö
Vfci.
Flokkurinn leggur upp I mikla
landsreisu um helgina og byrjar
hún meö rokkhátiö I Laugardals-
höll á föstudagskvöldiö. Næsta
mánuöinn hyggst flokkurinn siö-
an fara vitt og breitt um landið
meö söng og sprelli.
„Viö veröum fyrst og fremst
meö lögin af nýju plötunni okk-
ar,” sagöi Björgvin, „en
auk þeirra syngjum viö
mörg klassisk rokklög.
Okkur finnst þetta skemmtileg
músik og þaö fylgir henni viss
stemmning sem er ekki i diskó-
músikinni. Til aö auka á stemmn-
inguna hvetjum viö krakkana til
aö koma á hátiöina i viöeigandi
klæönaöi. Sjálfir veröum við
klæddir í anda gamla rokktíma-
bilsins frá toppi til táar.”
Auk þeirra félaga eru I hljóm-
sveit þeirra þeir Magnús Kjart-
ansson, Arnar Sigurbjörnsson,
Guömundur Benediktsson, Ragn-
ar Sigurjónsson, Haraldur Þor-
steinsson og Kristinn Svavarsson.
Til aöstoöar viö sönginn veröur
Ragnhildur Gisladóttir.
A hátiöinni munu þau Sæmi og
Didda rokka og Model ’79 sýnir
rokktiskuna. Nokkrir enskir
dansarar, sem kalla sig Disco
Maniacs, verða meö sérstakt
sprell og Gisli Sveinn Loftsson
knýr Aslák meö dúndrandi rokk-
músik.
Næsta skemmtun HLH-flokks-
ins veröu svo aö Flúöum á
laugardagskvöldiö og um hvita-
sunnuna veröa þeir á ýmsum
stööum á Noröurlandi. Feröinni
lýkur svo 23. júni á Ólafsfiröi.
- SJ
Fyrsta starfsári Nýja tónlistar-
skólans lýkur meö tvennum nem-
endatónleikum i Fóstbræðra-
heimilinu, miðvikudaginn 23. mai
kl. 18og fimmtudaginn 24. mai kl.
16.
A fyrri tónleikunum koma ein-
göngu fram nemendur skólans,
en á þeim siöari leika einnig
nokkrir kennarar skólans. Meðal
annars frumflytja kennarar Trió
fyrir tvær fiölur og cello eftir
Ragnar Björnsson, skólastjóra
skólans,sem hann tileinkar nem-
endum. Trióiö er ætlað sem
æfingaverk fyrir nemendur á
þriöja stigi tónlistarnámsins, en
ætlunin er aö skólinn komi sér
upp slikum æfingaverkum is-
lenskum fyrir öll stig hljóöfæra-
námsins.
Nýi tónlistarskólinn hefur reynt
þá nýbreytni i hljóðfærakennslu
að nemendur leika hver fyrir
annan i timum og er þannig ætlaö
að læra hver af öðrum. Þessi
kennslutilhögun þykir hafa tekist
vel og verður fram haldiö, en meö
Atli Heimir Sveinsson mun næsta
vetur annast námskeiö fyrir
popptónlistarmenn.
nokkrum breytingum þó.
Aætlað var aö hafa eitt nám-
skeið fyrir svokallaöa „Popptón-
listarmenn” á vegum skólans i
vetur, en húsnæðisleysi kom i veg
fyrir þaö. Standa vonir til aö þetta
takist næsta vetur og mun Atli
Heimir Sveinsson annast nám-
skeiðiö.
- SJ