Morgunblaðið - 18.02.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.02.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ TUTTUGASTA Íslandsmeistara- og Reykjavíkurkeppni unglinga í frjálsum dönsum fór fram í íþrótta- húsi Álftamýrarskóla á föstudags- kvöld. Um 150 keppendur á aldr- inum 13 til 17 ára, alls staðar að af landinu, kepptu í hóp- og ein- staklingsdansi. Baráttan um Ís- landsmeistaratitilinn var hörð enda fjöldi góðra dansara sem steig á svið þetta kvöld. 32 hópar dönsuðu og þóttu Textíl-stelpurnar úr Reykjavík skara fram úr og hlutu að launum báða titlana eftirsóttu, Reykjavíkurmeistaranafnbótina og Íslandsmeistaratitilinn. Hópinn skipa þær Hrefna Hákonardóttir, Aðalheiður Jónsdóttir, Vala Védís Guðmundsdóttir, Berglind Þóra Pétursdóttir og Sóley Valgeirs- dóttir. Í öðru sæti hafnaði hópurinn Andrómeda, einnig frá Reykjavík og því þriðja varð hópurinn Depius frá Kópavogi. Vilhelmína Ósk Ólafs- dóttir frá Hafnarfirði stóð uppi sem Íslandsmeistari í flokki einstaklinga en þar tóku 18 þátt. Önnur varð Berglind Þ. Ólafsdóttir sem einnig var valinn Reykjavíkurmeistari, og í þriðja sæti hafnaði Katrín Gunn- arsdóttir frá Reykjavík. Keppnin í ár var sú stærsta til þessa og aðsóknin svo mikil að hún sprengdi utan af sér félagsmiðstöð Tónabæjar þar sem keppnin hefur verið haldin um áratugaskeið. Vegna fjöldans var keppnin færð út í íþróttahús Álftamýrarskóla þar sem hvert sæti var skipað áköfum stuðningsmönnum dansaranna. Baráttan um Íslandsmeistara- titilinn hörð Morgunblaðið/Kristinn Textíl-danshópurinn kom, sá og sigraði og hlaut bæði Íslandsmeistara- og Reykjavíkurtitilinn. Úrslit Íslandsmeistara- og Reykjavík- urdanskeppni Tónabæjar og ÍTR MYS ZENIT, skip íslenska sjó- mannsins Hrafns Margeirs Heimis- sonar, fékk brottfararleyfi frá rúss- neskum yfirvöldum í bænum Nevlisk á Sakhalín-eyju á fimmtu- dag og sigldi þegar úr höfn. Hrafn sagðist í samtali við Morgunblaðið vera afar feginn að málið væri loks leyst. „Útgerðin stóð heillengi í stappi og samningaviðræðum og svo bara eins og þruma úr heiðskíru lofti fengum við siglingaleyfið, ég veit ekkert hvort eða hvað þeir borguðu eða hvernig það var – það er best að spyrja ekkert um svona lagað,“ sagði Hrafn og bætti við að það besta væri að vera laus við óvissuna sem fylgdi því að vera kyrrsettur og vita ekkert hvað væri framundan. Skipið siglir nú suður fyrir Japan, á leið sinni á veiðar, út á rækjumiðin við Kamsjatka, en mikill hafís er á svæðinu. Hrafn segir ísinn óvenju mikinn enda hafi miklir kuldar verið á þessum slóðum að undanförnu. Hrafn sendi utanríkisráðuneytinu símbréf fyrr í mánuðinum þar sem hann fór fram á að borin yrði fram kvörtun til rússneskra yfirvalda vegna ólögmætrar handtöku þar sem hann og japanskur skipsfélagi hans höfðu verið teknir í vörslu yf- irvalda yfir nótt án nokkurra út- skýringa eða yfirheyrslu. Hann sagði að honum hefði borist til eyrna að lögregluforinginn, sem hafi farið með þá félagana í „þessa umtöluðu skoðunarferð,“ hafi fengið einhverj- ar ákúrur frá yfirmönnum sínum. Skipið farið frá Sakhalín-eyju Áhöfnin fegin að vera laus við óvissuna LÖGREGLAN handtók tvo menn fyrir líkamsmeiðingar í miðbænum í fyrrinótt. Í fyrra skiptið kýldi maður í gegnum bílrúðu með þeim afleiðing- um að ökumaður slasaðist og þurfti að fá aðhlynningu á slysadeild. Þá slas- aðist dyravörður veitingastaðar í átökum við mann rétt fyrir klukkan fjögur í fyrrinótt. Einnig voru tveir menn handteknir fyrir að hafa lítil- ræði af fíkniefnum á sér. Fátt var í miðbænum að sögn lögreglu í fyrri- nótt og vaktin fremur róleg. Líkamsmeið- ingar í bænum HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur um farbann yfir karlmanni sem sak- aður var um að hafa ráðist á karlmann og veitt honum tvö stungusár með hnífi 5. janúar sl. fyrir utan veitinga- stað í Faxafeni. Héraðsdómur hafði ákveðið að banna manninum för frá Íslandi allt til 2. apríl 2001. Maðurinn kærði til Hæstaréttar. Í niðurstöðum Hæstaréttar segir m.a. að maðurinn hafi um nokkurn tíma haft hug á að halda af landi brott. Fallist var á að nauðsynlegt væri að tryggja nærveru hans til að ljúka mætti rannsókn málsins og taka ákvörðun um hvort af saksókn yrði. Var hin kærða ákvörðun því staðfest. Málið dæmdu hæstaréttardómararn- ir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kol- beinsson og Gunnlaugur Claessen. Ákvörðun um farbann staðfest HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs- dóms Reykjavíkur yfir manni sem er borinn sökum um að hafa ásamt öðrum manni framið rán í fjórum söluturnum í Reykjavík, ógnað starfsmönnum með vopnum og að hafa gert tilraun til ráns í sölu- turni í eitt skipti til viðbótar. Mað- urinn var úrskurðaður í gæslu- varðhald frá 12. febrúar sl. til 12. mars og var úrskurðurinn kærður til Hæstaréttar. Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að full- nægt sé skilyrðum laga til gæslu- varðhalds og var hinn kærði úr- skurður staðfestur. Gæsluvarð- haldsúrskurð- ur staðfestur SKIPSTJÓRA- og stýrimanna- félagið Aldan, sem er félag skip- stjórnarmanna í Reykjavík, Hornafirði, Þorlákshöfn og á Snæ- fellsnesi, hefur samþykkt verk- fallsboðun. 368 voru á kjörskrá og 157 greiddu atkvæði, eða 42,7%. 109, eða 69,4%, sögðu já við verk- fallsboðun og 48, eða 30,6%, sögðu nei. Verkfall hefst 15. mars nk. hafi ekki tekist að semja fyrir þann tíma. Ríkissáttasemjari hafði boðað útvegsmenn og sjómenn til fundar í gær, en fundinum var frestað. Aldan sam- þykkti verkfall HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað Vátryggingafélag Íslands í tveim- ur málum, sem snerust um hvort ökumenn hefðu neytt áfengis eftir slys, eða hvort þeir hefðu verið ölvaðir þegar slysið varð. Í fyrra tilvikinu var um það að ræða að ökumaður missti stjórn á bifreið, sem hann hafði tekið í heimildarleysi. Bifreiðin valt út af veginum og kastaðist maðurinn út úr henni. Hann slasaðist alvarlega og eru líkur til þess að hann verði bundinn hjólastól það sem eftir er ævinnar. Maðurinn lá í vegkantinum í fjóra tíma, en þegar lögregla kom loks að var hann talsvert ölvaður. Hann sagði að vegna kulda hefði hann drukkið áfengi úr pela sem hann var með á sér. Hæstiréttur sagði að heimildar- laus notkun mannsins á bifreiðinni ætti ein og sér ekki að valda því að slysatrygging ökumanns næði ekki til hans. Maðurinn bæri hins vegar sönnunarbyrðina fyrir því að ölv- unarástand hans yrði rakið til áfengisneyslu hans eftir slysið. Í ljósi þess, að engin ummerki voru um áfengisneyslu á vettvangi og að staðhæfing mannsins um áfeng- isneyslu eftir slysið kom fyrst fram við skýrslugjöf í refsimáli sem höfðað var á hendur honum, lagði Hæstiréttur til grundvallar að vínandinn í blóði hans hefði átt rætur að rekja til áfengis, sem hann neytti fyrir slysið. Niðurstaðan var sú, að áfeng- ismagn í blóði mannsins hefði ver- ið slíkt er slysið varð, að sam- kvæmt vátryggingaskilmálum ætti hann ekki rétt til bóta úr hendi VÍS. Hitt málið var einnig vegna bíl- veltu. Eftir slysið gekk ökumað- urinn af vettvangi og lagðist til svefns. Þegar hann fannst, fáein- um klukkustundum síðar, var hann talsvert ölvaður. Viðurkenndi hann í refsimáli, sem höfðað var á hend- ur honum, að hafa ekki neytt áfengis eftir slysið. Í héraðsdóms- stefnu bar hann hins vegar að hann hefði drukkið áfengi eftir slysið. Ekkert studdi fullyrðingu mannsins Hæstiréttur sagði að maðurinn bæri sönnunarbyrðina fyrir því að ölvunarástand hans yrði rakið til áfengisneyslu hans eftir slysið. Þar sem ekkert var talið hafa komið fram, er stutt gæti þessa fullyrðingu hans, var lagt til grundvallar að vínandinn í blóði hans hefði átt rætur að rekja til áfengis, sem hann neytti fyrir slys- ið. VÍS var því sýknað af kröfum hans um bætur. Enginn bótarétt- ur vegna ölvunarSTARFSMENN útkeyrslu- deildar Íslandspósts eru afar óánægðir með nýgerða kjara- samninga Póstmannafélagsins og Íslandspósts. Þeir krefjast því þess að breytingar verði gerðar til að efla þeirra hlut og vilja að sérstaklega sé samið við þá. Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi sem starfsmenn deildarinnar boðuðu til í gær. Starfsmennirnir vilja hærri laun vegna aukinnar ábyrgðar, meiri orlofsréttindi og styrki til vinnu- fatakaupa. Þetta mun að sögn fundarmanna auka stöðugleika innan deildarinnar en meðal- starfsaldur þar er mjög stuttur. „Við öxlum mikla ábyrgð í starfi, meðal annars flytjum við oft háar peningaupphæðir, posa- vélar og ábyrgðarsendingar frá fyrirtækjum og stofnunum, og það er okkar réttur að þessi ábyrgð sé metin að verðleikum,“ sagði Matthías Freyr Matthías- son, einn forsprakka fundarins. Póstmenn óánægðir með kjörin ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ SLÖKKVILIÐ þurfti að dæla upp vatni sem lekið hafði í íbúð í Norð- urmýri í Reykjavík um klukkan eitt í nótt. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var þriggja sentimetra djúpt vatn á eldhúsgólfi íbúðarinnar og urðu tals- verðar skemmdir af völdum lekans. Vatnsleki í íbúð ♦ ♦ ♦ STUTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.