Morgunblaðið - 18.02.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.02.2001, Blaðsíða 18
LISTIR 18 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Bjálkahús eru einstaklega skemmtileg íveruhús, hvort sem um er að ræða heilsárshús eða sumarhús. Dvöl þar skapar vellíðan. Nú er tíminn til að huga að byggingu sumarhússins. Við bjóðum bjálkahús, stór og smá á einstaklega hægstæðu verði. Heimsækið okkur á netinu, www.simnet.is/casanova eða hafið samband við okkur í síma 557 5851 eða í netfangi casanova@simnet.isCASA NOVA ehf Í P O K A H O R N IN U NÚ hleypir Bjarni Daníelsson, nýskipaður óperustjóri við Ís- lensku óperuna, sinni fyrstu óp- eruuppfærslu af stokkunum og er það hin vinsæla La Bohème eftir Giacomo Puccini. Þeir sem unna óperutónlist og hafa sótt sér gleði- stundir í Íslensku óperuna fagna því innilega, að nú sé aftur hafist handa eftir margvíslegar breyting- ar, sem vonandi eiga eftir að skila sér í lifandi starfi. Þetta er fertug- asta og fyrsta verkefni Íslensku óperunnar, er krefur áhorfendur um þakklæti fyrir það merka lista- framlag sem Íslenska óperan hef- ur staðið skil á, við erfiðar að- stæður og oft undir ósanngjörnum aðfinnslum og við óþægar fjár- hagsaðstæður, er ávallt voru yf- irunnar af ósérplægni og trú á, að þetta listform ætti sér, þrátt fyrir allt, framtíð á Íslandi og að við værum svo vel til verka menntuð, að þetta væri hægt, jafnvel með glæsibrag. Og nú er það La Bohème, sem frumsýnd var í Íslensku óperunni. sl. föstudagskvöld, fyrir fullu húsi og við mikil fagnaðarlæti áheyr- enda. Það hefur verið ritað mikið og margt um þessa óperu, sem hefur svipaða stöðu í huga almenn- ings og Carmen eftir Bizet. Það er líkast því að bera í bakkafullan lækinn að bæta einhverju þar við, sem fyrr hefur verið ritað og að ekki sé talað um viturlegar skil- greiningar á tónsmíðatækninni hjá Puccini, sem allir kunna skil á, þó aldrei verði skilgreint hvað sé list, né heldur hvað það er, eitt framar öðru, sem snertir tilfinningar manna. Uppfærsla Íslensku óperunnar á óperunni La Bohème eftir Puccini er að þessu sinni ærslafull, jafnvel eins og í gamansöngleik en á milli töluvert tilfinningaþrungin. Að láta upphaf óperunnar hefjast á kyrra- mynd, af kórnum, eins og hann væri utandyra og láta svo kórinn umbreyta sviðsmyndinni í kaldr- anlegt risherbergi, hefur þau áhrif, að upphafið á þættinum verður framan af ótrúverðugt. Þessi leik- stjórnarleikur var endurtekinn í öðrum þætti og þar átti það vel við, þó ærslin væru yfirdrifin, t.d. atriðið með leikfangasalann, Par- pignol (Skarphéðinn Þ. Hjartar- son), ásókn barnanna í leikföngin og kaup Mímíar á litlu rauðu húf- unni, færi þess vegna fyrir ofan garð og neðan. Nokkur leikstjórn- aratriði, sem setja sterkan svip á sýninguna, mætti tilgreina, eins og t.d. dansatriðið í síðasta þættinum, sem var einum of ærslafengið. Þrátt fyrir of mikil ærsl á köflum, var sýningin skemmtileg og auðséð að leikstjórinn, Jamie Hayes, vildi merkja vel við andstæðurnar í verkinu og tókst það nokkuð vel. Kolbeinn J. Ketilsson söng Rudolfo mjög vel, þó hann sleppti háa c-inu í lok fyrsta þáttar, en trúlega er sú gerðin komin til vegna óska einhvers söngvara, því talið er að ritháttur Puccini hafi verið annar. Hvað sem því líður er háa c-ið orðin hefð, sem, ef vel tekst til er feikilega áhrifamikil. Fyrsta arían, „Hve köld er þín hönd“, var mjög fallega sungin og dúettarnir með Marcello, þar sem Rudolfo opnar hjarta sitt fyrir vini sínum, voru sérlega áhrifamiklir og einkum sá síðari, í upphafi fjórða þáttar, sem er eitt falleg- asta söngatriði óperunnar og hvað tónferli snertir, minnir mjög á Verdi. Sýningin er mikill söngs- igur fyrir Kolbein, sem þó mætti vinna meira úr hinum leikræna þætti. Auður Gunnarsdóttir syngur mjög vel og nær nokkuð vel, en þó við látlausari mörkin, að túlka þetta viðkvæma og veika blóm, sem Mímí á að vera. Aria Mímíar í fyrsta þætti, „Ég er kölluð Mimi, en veit ekki hvers vegna“, var fal- lega sungin. Bestur var söngur og leikur hennar í þriðja þætti, bæði á móti Marcello en heppnaðist þó ekki eins vel á móti Rudolfo, mest vegna óláta og það að láta Mar- cello og Musettu þverrápa yfir sviðið meðan þau voru að rífast, og sífellt að ganga á milli Rudolfo og Mímí og þar með rjúfa innilegan samsöng þeirra. Hlín Pétursdóttir söng Musettu og gerði það vel, þó rödd hennar sé ef til vill einum of létt fyrir hlutverk Musettu, sem á vera hörku „gella“ eða „cool“ stelpa, en raungóð er á reynir. Aría hennar á „Cafe Momus“, sem er ein af aðal- aríum óperunnar, var bæði vel sungin og leikin. og var auðséð og auðheyrt, að hún hefur dregið sér mikla reynslu sem óperusöngkona. Marcello var frábærlega vel mótaður af Bergþóri Pálssyni, bæði í leik og söng. Hann á að vera tvískiptur karakter, skapmik- ill málari og gleðimaður, en Berg- þór, ásamt Ólafi Kjartani Sigurð- arsyni, er söng tónlistamanninn Schaunard, voru ærslabelgir sýn- ingarinnar og á köflum óborgan- legir. Heimspekingurinn Colline, sunginn af Viðari Gunnarssyni, á að vera virðulegur, þó hann sleppi fram af sé beislinu, þegar svo ber undir. Frakka-arían er einn af há- punktum óperunnar, einstætt listaverk, sem Viðar söng ágæt- lega en einum of til baka. Sigurður Skagfjörð Steingrímsson lék bæði leigusalann Benoit og kokkálinn Alcindoro og náði að túlka þessa skrítnu karla einstaklega vel. Ann- að söngfólk er kom að þessari sýn- ingu stóð vel fyrir sínu, en það var kór Íslensku óperunnar, kórstjóri Garðar Cortes, og Barnakór Tón- menntaskóla Reykjavíkur, kór- stjóri Jóhanna Lövdahl. Hljóm- sveit Íslensku óperunnar, með Sigrúnu Eðvaldsdóttur sem kons- ertmeistara, lék mjög vel undir stjórn rússneska hljómsveitar- stjórans Tugan Sokhiev, er stýrði sýningunni af öryggi. Leikmynd Finns Arnar Arnar- sonar, var sniðuglega útfærð, sem ekki er auðvelt á hinu litla sviði Ís- lensku óperunnar. Búningar Þór- unnar Maríu Jónsdóttur voru án tilgerðar og nærri tíma óperunnar. Lýsingin hjá Birni Bergsteini Guð- mundssyni var einum of einlit, sem líklega hefur verið ákvörðun leik- stjórans. Í fyrsta kaflanum er sagt til um hvernig Mímí og Rudolfo ná saman, krjúpandi á gólfinu í dimm- unni og í textanum, þar sem sung- ið er um tunglskinið, er þetta at- riði útfært á skemmtilegan máta í hljómsveitinni. Það er auðvitað ekki sjálfgefið, að fylgja þurfi ein- hverjum forskriftum, þó vel hefði mátt láta þetta atriði halda sér, sem er skemmtilegra leikhús en það sem bar fyrir augu að þessu sinni. Í heild er þessi sýning lifandi og skemmtileg og einnig tilfinninga- þrungin og sérlega athyglisverð, þar sem flestir söngvarar í aðal- hlutverkum eru ungir, efnilegir og vel menntaðir söngvarar, sem stóðu sig með glæsibrag og eiga áreiðanleika eftir að ná langt sem óperusöngvarar. Þannig hefur sú trú, er rak eftir fólki að stofna óp- eru hér á Íslandi, þrátt fyrir hús- leysi og þvert á vantrú margra á að það væri hægt, blómstrað í starfi Íslensku óperunnar á liðnum árum. Starfsemi Íslensku óperunn- ar hefur sömu þýðingu fyrir söngvara og Sinfóníuhljómsveit Ís- lands fyrir hljóðfæraleikara og at- vinnuleikhúsin fyrir leikara. Það er nauðsynlegt að fastráða söngv- ara við óperuna og skapa henni þar með starfsgrundvöll, sambæri- legan við aðrar menningarstofn- anir. Ærslafull og tilfinn- ingaþrungin sýning „Sýningin er mikill söngsigur fyrir Kolbein Ketilsson, sem þó mætti vinna meira úr hinum leikræna þætti.“ TÓNLIST Í s l e n s k a ó p e r a n eftir Puccini Söngvarar í aðalhlutverkum; Kolbeinn J. Ketilsson, Auður Gunn- arsdóttir, Bergþór Pálsson, Ólafur Kjartan Sigurðarson, Viðar Gunnarsson og Sigurður Skagfjörð Steingrímsson. Hljómsveitarstjóri Tugan Sokhiev og leikstjóri Jamie Hayes. Föstudagurinn 16. febrúar 2001. LA BOHÈME Jón Ásgeirsson Morgunblaðið/Jim Smart „Í heild er þessi sýning lifandi og skemmtileg og einnig tilfinningaþrungin og sérlega athyglisverð, þar sem flestir söngvarar í aðalhlutverkum eru ungir, efnilegir og vel menntaðir söngvarar, sem stóðu sig með glæsi- brag og eiga áreiðanlega eftir að ná langt sem óperusöngvarar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.