Morgunblaðið - 18.02.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 51
DAGBÓK
FYRIR tveimur árum kom
út bók eftir Bretann David
Bird sem fjallar um vörn og
útspil, eða réttara sagt
„fræg“ útspil og varnartil-
þrif (Famous Leads and De-
fences). Þetta er áhugavert
efni og Bird er ágætur höf-
undur. Lítum á spil úr bók-
inni, sem kom upp í leik
Breta og Svía í undanúrslit-
um HM 1987:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ ÁKD9643
♥ 65
♦ Á6
♣ 93
Austur
♠ G82
♥ D874
♦ KG87
♣Á6
Vestur Norður Austur Suður
Sheehan Sundelin Flint Flodquist
-- 1 spaði Pass 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Fyrst er lesandinn settur
í spor Flints í austur, en út-
spil félaga hans er lauffjarki
– fjórða hæsta. Kerfi Sví-
anna er sterkt lauf, svo
stökk Sundelins í þrjú grönd
benti til mikillar slagaupp-
sprettu í spaða. Flint tók
fyrsta slaginn á laufás og nú
er spurt: Hvað myndi les-
andinn gera næst?
Í blindum blasa við átta
slagir, svo það verður að
hafa snör handtök og hirða
varnarslagina strax áður en
sagnhafi nær að skapa sér
níunda slaginn. Flint spilaði
laufi um hæl og fékk ekki
háa einkunn fyrir það hjá
Bird. Hjartadrottningin var
hans val.
Norður
♠ ÁKD9643
♥ 65
♦ Á6
♣93
Vestur Austur
♠ -- ♠ G82
♥ ÁK32 ♥ D874
♦ 10532 ♦ KG87
♣G8742 ♣Á6
Suður
♠ 1075
♥ G109
♦ D94
♣KD105
Vissulega kemur til
greina að skipta yfir í hjarta-
drottningu, því makker gæti
átt ÁG10x í hjarta. En hitt
ætti að vera útilokað að vest-
ur sé með ÁK í hjarta. Lauf
til baka er eina vörnin ef
vestur á KG í laufi og hjar-
tás. Vestur verður þá að
hitta á tígul til baka strax til
að byggja upp fimmta slag
varnarinnar á tígulkóng.
Flint hefur alla samúð
dálkahöfundar að spila laufi,
en Sheehan fær slaka ein-
kunn fyrir útspilið – hjarta-
ásinn blasir við.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson.
FORMAÐUR Skákfélags
Hafnafjarðar, Sigurbjörn
Björnsson (2260), stóð sig
með mikilli prýði á nýloknu
Skákþingi Reykjavíkur.
Hann varð efstur ásamt Jóni
Viktori Gunnarssyni með 9
vinninga af 11 mögulegum. Í
stöðunni stýrði hann svörtu
mönnunum gegn Birni Þor-
finnssyni (2255)
sem leiddi mótið
framan af.
26...Rxc3! Snotur
flétta sem tryggir
svörtum unnið
biskupaendatafl.
27.Rxe5+ 27.Hxc3
var ekki björgu-
legra þar sem eft-
ir 27...Hxc3+
28.Hxc3 e4+
29.Kd2 Hxc3
30.Kxc3 exf3 hef-
ur svartur létt-
unnið tafl.
27...dxe5 28.Hxc3
Hxc3+ 29.Hxc3 e4+! 30.Kd2
Hxc3 31.Kxc3 Kc6 32.g5
Be7 33.Bf4 Kd5! 34.h4 Bf8
35.Bd2 Sorgleg nauðsyn.
35.Be5 gekk ekki upp sökum
35...Bxa3 36.b4 Bc1 37.Kc2
e3 og svartur vinnur. Eftir
textaleikinn lendir hvítur í
óvenjulegri leikþröng.
35...Bd6 36.b4 Bc7 37.Be3
Bb6 Hvítur getur ekkert að-
hafst sem bjargar honum frá
feigum. Hann reyndi 38.f3
en eftir 38...exf3 39.Kd3 Bc7
sá hann sig tilneyddan til að
gefast upp.
SKÁK
Umsjón Helgi
ÁssGrétarsson
Svartur á leik.
Árnað heilla
Í SAMBANDI við þessa
pistla mína hafa ofan-
greind orð borið á góma
hjá nokkrum lesendum og
þeir bent á ranga notkun
þeirra, trúlega af athuga-
leysi. Verður nú litið nánar
á þau og það nú af sérstöku
tilefni. Í Degi 30. jan. sl.
segir á forsíðu frá nýlegum
dómi Hæstaréttar.
Fyrirsögnin er á þessa
leið: „Eftirmálar ólíkleg-
ir.“ Síðan er sagt nánar frá
málinu, en að síðustu er
ekki gert ráð fyrir öðru en
málinu sé lokið.
Til þess höfðar fyrir-
sögnin. En hér hefur blað-
manni orðið heldur betur á
í messunni og svo mun
hafa hent ýmsa aðra fjöl-
miðlamenn. Hann ruglar
saman no. eftirmál og eft-
irmáli, sem hafa gerólíka
merkingu og notkun. Þarf
ekki annað en fletta upp í
OM til þess að sjá þetta.
Eftirmál er hk.-orð og
merkir eftirköst, afleiðing,
rekistefna; lögsókn. Ft.
þessa orðs er í nf. eftirmál.
Það er sú merking, sem
felst í ofangreindri fyrir-
sögn. Því átti að segja: Eft-
irmál ólíkleg. Eftirmáli er
haft um niðurlagsorð eða
texta aftan við meginmál,
sbr. formáli (á undan
texta). Ég held, að margir
kunni enn skil á þessum
mun. Þess vegna átti ofan-
greind fyrirsögn að hljóða
svo: Eftirmál ólíkleg,
þ.e.a.s. að ólíklegt yrði, að
dómurinn hefði nokkur
eftirköst. Hins vegar er
talað um eftirmála bókar-
innar, og það er allt önnur
Ella.
- J.A.J.
ORÐABÓKIN
Eftirmál – eftirmáli
LJÓÐABROT
ÍSLAND
Grænum lauki gróa túnin,
gyllir sóley hlíða syllur,
færa víkur flyðru á vori,
fuglar syngja í Trölladyngjum,
sauðir strjálast hvítir um heiðar,
hossar laxi straumur í fossi,
bella þrumur á brúnum fjalla,
blár er himinn, snarpur er Kári.
Brá ek ór slíðrum
skalm nýbrýndri,
þeiri lék ek Mávi
á maga hvátat;
unna ek eigi
arfa Hildis
fagrvaxinnar
faðmlags Svölu.
Þorleifur Repp.
AFBRÝÐI
Óspakur Glúmsson.
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. júní sl. í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði Dís Sig-
urgeirsdóttir og Jónas Jó-
hannsson. Heimili þeirra er
að Arnarhrauni 42, Hafnar-
firði.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 12. ágúst sl. í Selfoss-
kirkju af sr. Þóri Jökli Þor-
steinssyni Ásdís Erla Guð-
jónsdóttir og Sölvi Rafn
Rafnsson. Heimili þeirra er
á Kirkjuvegi 17 á Selfossi.
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert hrókur alls fagnaðar
en það orð fer af að þér sé
ekki fullkomlega treystandi
þegar til kastanna kemur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Leiðin upp á tindinn getur
stundum verið löng og snúin.
En engin ástæða er til þess
að láta það stöðva sig heldur
vinnur þolinmæðin allar
þrautir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ef þig langar í raun og veru
að eignast einhvern hlut
verður þú að útvega þér fé til
að kaupa hann. Íhugaðu þá
hvort hann sé þess virði.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þagmælska er dyggð. Farðu
vel með þau einkamál sem
þér er trúað fyrir og gættu
þess að láta ekki glepjast til
slúðurs þótt freistingarnar
séu margar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft á allri þinni atorku
að halda til þess að sigla í
höfn máli sem þér hefur verið
treyst fyrir. Þetta mun ganga
eftir og því hefurðu ekkert að
óttast.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gættu þess að láta ekki
teyma þig út í einhverjar að-
gerðir á vinnustað sem eru til
þess eins fallnar að valda úlf-
úð og óánægju.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nú er hart sótt að starfsemi
þinni svo þú þarft að verja
hana með kjafti og klóm.
Sýndu hvers þú ert megnug-
ur og þá muntu öðlast virð-
ingu samstarfsmanna þinna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það getur tekið í að hitta
gamla vini og rifja upp löngu
liðna daga. En gleðin hefur
verið þarna líka og þú skalt
næra þig á henni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Besta leiðin til að sannfæra
aðra um hæfni þína er að
vera öryggið uppmálað hvað
sem á dynur. Gleymdu ekki
að gefa þínum nánustu tíma
og umhyggju.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nú verður þú að ýta öllum
dagdraumum til hliðar og líta
raunsætt á málin. Þegar þú
hefur metið stöðuna þá verð-
ur þú að taka ákvörðun um
framtíðina.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er eins og allt sé á hreyf-
ingu í kringum þig og þú eigir
fullt í fangi með að fóta þig í
straumnum. En með aðgæslu
og hóflegri dirfsku hefst það.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nú er ekki tíminn til þess að
falla fyrir freistingum á fjár-
málasviðinu og reyndar er
aldrei svo.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú þarft á aðstoð að halda til
þess að hrinda áhugamáli
þínu í framkvæmd. Leitaðu
til vina þinna um aðstoð og
viðbrögð þeirra munu koma
þér skemmtilega á óvart.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Aðalfundur og
grísaveisla
verður haldin laugardaginn 24. febrúar í Félagsheimilinu á Seltjarnanesi.
Aðalfundur hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar.
Grísaveisla: Húsið opnað kl. 19.00.
Vinsamlegast pantið miða sem fyrst og ekki seinna en fimmtudaginn
22. febrúar í síma 557 4682 Ari, 568 5618 Ólöf, 554 2570 (vs.) Guðmundur,
568 1075 Friðbjörn, 581 3009 Hrefna, 893 4191 Hinrik.
Athugið: Gestir sem dvalið hafa í húsum félagsmanna á Spáni eru
hjartanlega velkomnir.
Mætum öll og tökum með okkur gesti og eigum góða stund saman.
Erla Aradóttir
MA í EFL og
Applied Linguistics
Enskunám í Englandi fyrir 13-15 ára
Í samvinnu við Kent School of English býður
Enskuskóli Erlu Aradóttur upp á fjögurra vikna
nám í júní. Íslenskur hópstjóri til staðar
allan tímann.
Enskunámskeið í Hafnarfirði
fyrir fullorðna
Skráning á aprílnámskeið er hafin.
Í samvinnu við Kent School of English og
Anglolang bjóðum við einnig upp á enskunám fyrir
fullorðna í Englandi í júní.
Upplýsingar og
skráning í síma
891 7576
frá kl. 18-20 alla
daga til 2.mars.