Morgunblaðið - 18.02.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 3/2–10/2
ÚTVEGSMENN hafa í
undirbúningi að boða
verkbann á þá sjómenn
sem ekki hafa samþykkt
verkfall 15. mars nk. Frið-
rik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir
þetta gert svo útvegsmenn
lendi ekki í því að vera
með hluta áhafnar á launa-
skrá en skipin bundin við
bryggju vegna verkfalls.
LAGIÐ I’ve Seen it All
eftir Björk, Sjón og Lars
von Trier úr myndinni
Myrkradansarinn hefur
verið tilnefnt til Ósk-
arsverðlauna. Meðal ann-
arra tónlistarmanna sem
tilnefndir eru í sama flokki
eru Bob Dylan, Sting og
Randy Newman.
BORGARRÁÐ hefur
samþykkt að hækka
gatnagerðargjöld í
Reykjavík frá 7,1% upp í
22,5% eftir því hvernig
íbúðarhús er um að ræða.
Þrátt fyrir hækkunina er
langt frá því að gatna-
gerðargjöld standi undir
kostnaði við gatnagerð í
borginni.
UM 150 íbúðir í félags-
lega íbúðakerfinu staðið
tómar á landsbyggðinni í
meira en sex mánuði. Að-
allega er þetta á Vest-
fjörðum, Austfjörðum, auk
Vestmannaeyja, þar sem
atvinnuástand hefur verið
bágborið að undanförnu.
FÓLKSBIFREIÐAR eru
orðnar fleiri en íbúar í
landinu með ökuskírteini.
Í lok árs í fyrra voru
skráðar 158.936 fólks-
bifreiðar í landinu og
152.493 íbúar með öku-
skírteini.
98,56% hlutur í
Kísiliðjunni seldur
ALLIED EFA hefur keypt 98,56%
hlut í Kísiliðjunni í Mývatnssveit af
ríkinu og Celite Corporation fyrir um
130-40 milljónir króna. Nýir eigendur
hyggjast stofna félagið Promeks á Ís-
landi um kaup á Kísiliðjunni og eiga
þar og reka kísilduftsverksmiðju. Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnaðarráð-
herra, kvaðst bjartsýn á að með þess-
um breytingum skapist tækifæri til
atvinnuuppbyggingar í Mývatnssveit.
Truflanir á alþjóðlegu
flugi ekki liðnar
ALÞJÓÐA flugmálastofnunin, ICAO,
hefur sent samgöngumálaráðherra
bréf þar sem kemur fram að ekki verði
liðnar truflanir á alþjóðlegu flugi um
íslenska flugstjórnarsvæðið og að end-
urteknar truflanir muni leiða til þess
að flugumferðarþjónusta verði tekin
úr höndum Íslendinga. Bréfið var sent
í kjölfar þess að Þorgeir Pálsson flug-
málastjóri sendi ICAO bréf þar sem
hann tilkynnti um yfirvofandi verkfall
flugumferðarstjóra.
Þróun á lyfjum
gegn geðklofa og
æðakölkun hafin
ÍSLENSK erfðagreining og F. Hoff-
mann-La Roche hafa tilkynnt nýjan
áfanga í rannsóknarsamstarfi fyrir-
tækjanna í erfða- og lyfjafræði. Hjá
Roche er hafin þróunarvinna við ný
meðferðar- og greiningarúrræði sem
beinast að sjúkdómsþáttum sem vís-
indamenn ÍE hafa uppgötvað í geð-
klofa og æðakölkun. Kári Stefánsson,
forstjóri ÍE, sagði þetta vera í fyrsta
skipti sem rannsóknir ÍE skila þeim
árangri að komnar séu þær líffræði-
legu forsendur sem Roche þarf á að
halda til að geta farið að þróa lyf.
INNLENT
Samið um samsteypu-
stjórn í Ísrael
EHUD Barak, starfandi forsætisráð-
herra Ísraels, og Ariel Sharon, verð-
andi forsætisráðherra, náðu sam-
komulagi til bráðabirgða á föstudag
um samsteypustjórn Verkamanna-
flokksins og Likud, hægriflokks Shar-
ons. Barak kvaðst vona að hægt yrði að
skýra forystu Verkamannaflokksins
frá endanlegu samkomulagi eftir helgi.
Hermt var að samið hefði verið um
að Verkamannaflokkurinn tæki að sér
ráðuneyti varnarmála og utanríkis-
mála. Sharon bauð Barak embætti
varnarmálaráðherra. Shimon Peres,
fyrrverandi forsætisráðherra og
flokksbróðir Baraks, segist vera
reiðubúinn að gegna embætti í sam-
steypustjórninni.
Mikil sorg og reiði ríkir meðal al-
mennings í Ísrael eftir að palestínskur
bílstjóri varð átta manns að bana með
því að aka rútu inn í hóp af fólki á bið-
stöð nálægt Tel Aviv á þriðjudag. Dag-
inn áður beið einn af yfirmönnum líf-
varða Yassers Arafats, leiðtoga
Palestínumanna, bana í árás ísraelska
hersins. Flugskeytum var skotið úr
herþyrlu á bifreið hans.
Mannskæður jarð-
skjálfti í El Salvador
AÐ MINNSTA kosti 274 manns létu
lífið í jarðskjálfta sem reið yfir El
Salvador á þriðjudag. Óttast er að tala
látinna hækki þar sem tuga manna er
enn saknað. Meira en 2.400 manns
slösuðust í skjálftanum sem mældist
6,6 stig á Richters-kvarða. Skjálfta-
miðjan var aðeins 20 km frá höfuð-
borginni San Salvador.
Rúmlega 15.000 íbúðarhús eyðilögð-
ust í skjálftanum og um 123.000 manns
misstu heimili sín. Réttum mánuði áð-
ur létu a.m.k. 844 El Salvadorbúar lífið
í skjálfta sem mældist 7,6 stig.
BANDARÍSKA geim-
farið NEAR lenti á mánu-
dag á smástirninu Eros
sem er um 314 milljón km
frá jörðu. Er þetta í fyrsta
sinn í sögunni sem geimfar
lendir á smástirni.
NIÐURSTÖÐUR fyrstu
rannsókna vísindamanna á
genamengi mannsins
benda til þess að fjöldi
gena í mannsfrumunni sé
mun minni en áður var tal-
ið, eða um 30.000. Aðeins
nokkur hundruð gen í
manninum virðast ekki
eiga sér samsvörun í gena-
mengi músarinnar.
ALRÍKISLÖGREGLAN
í Bandaríkjunum, FBI, og
alríkissaksóknari í New
York hafa hafið rannsókn
á því hvort annarlegar
ástæður hafi legið að baki
sakaruppgjöf sem Bill
Clinton veitti kaupsýslu-
manninum Marc Rich á
síðasta degi sínum í emb-
ætti forseta. Rich flúði til
Sviss vegna ákæru um
skattsvik.
STUÐNINGUR við
Framfaraflokkinn í Noregi
mældist 6% minni, eða
17,1%, í fyrstu skoð-
anakönnuninni sem gerð
var eftir að tvær konur
sökuðu tvo frammámenn í
flokknum um nauðgun.
VOJISLAV Kostunica,
forseti Júgóslavíu, sagði á
þriðjudag að verið væri að
semja lagafrumvarp um
samvinnu við stríðs-
glæpadómstólinn í Haag
sem gæti heimilað framsal
grunaðra stríðsglæpa-
manna.
ERLENT
SÍÐUSTU fjögur árin hafa fleiri
konur en karlar innritast í lækna-
deild Háskóla Íslands og á síðasta
hausti voru þær tvöfalt fleiri en karl-
arnir, 142 á móti 71. Brautskráðir
læknar hafa aftur á móti verið fleiri
úr hópi karla flest ár frá 1982 með
tveimur undantekningum og eitt árið
var fjöldi kynjanna jafn. Þetta er ný
þróun þar sem karlar hafa verið í
meirihluta í læknanámi og meðal
starfandi lækna.
Fjallað er um konur í læknastétt í
síðasta hefti Læknablaðsins og er
þar annars vegar greint frá starfi
Félags kvenna í læknastétt sem
stofnað var í maí 1999. Hins vegar
ritar Guðrún Agnarsdóttir læknir
grein þar sem hún segir meðal ann-
ars að brýnt sé fyrir Læknafélag Ís-
lands, Háskóla Íslands og heilbrigð-
isþjónustuna að bregðast við þeim
öru breytingum sem eru að verða á
nýliðun í læknastétt og móta stefnu
til að tryggja læknum jafnrétti til að
nýta menntun sína og samfélaginu
öruggt framboð á læknisþjónustu.
Konur í færri
stjórnunarstöðum en karlar
Í samtali við Morgunblaðið segir
Guðrún að þar sem farið sé að bera á
læknaskorti í ákveðnum greinum
þurfi að gæta að því að menntun allra
lækna nýtist sem best og að þeir fái
jafnframt að nýta menntun sína í
samræmi við óskir sínar. Hún segir
ljóst að konur rati ekki enn í stjórn-
unarstöður í eins miklum mæli og
karlar.
Bendir hún á það í grein sinni að
aðeins 5% kvenna hafi gegnt stöðum
yfirlækna og forstöðulækna hjá
Landspítalanum við lok síðasta árs.
Hlutfall kynjanna sé mun jafnara í
stöðum aðstoðarlækna með 45%
kvenna og 55% karla og deildar-
lækna þar sem konur eru í 41% staða
og karlar í 49%.
„Það er staðreynd að á sama skeiði
ævinnar, þegar flestir hasla sér völl
og fóta sig á starfsvettvangi lækn-
isfræðinnar, eiga flestar konur börn
sín. Starfsþjálfun og sérmenntun er
því oft undir miklu vaktaálagi og fjar-
vistum frá heimili fyrir unga foreldra
og veldur aukaálagi á margar konur í
læknastétt. Það kann líka að móta að
einhverju leyti val þeirra á sérgrein-
um en það er hins vegar mikilvægt
fyrir samfélagið að vel sé skipað í all-
ar sérgreinar til að tryggja góða heil-
brigðisþjónustu,“ segir Guðrún. „Við
þurfum að finna leiðir til að styrkja
fólk í starfi þannig að það geti notið
sín og nái betri fótfestu. Við þurfum
að huga að því hvort konur nýtast
nógu vel á öllum tíma starfsævi sinn-
ar.“ Í þessu sambandi sagði Guðrún
mikilvægt að heilbrigðisstofnanir
eins og fyrirtæki almennt sýndu
ákveðinn sveigjanleika t.d. varðandi
vinnutíma, vinnuhlutfall og fleira til
að mannauður nýttist sem best
hverju sinni. Hún sagði hlutfall
kvenna í læknanámi sífellt hækka,
þær yrðu brátt jafnmargar og karlar
og kannski fleiri en þeir í framtíðinni.
Búast mætti því við að þær skiluðu
sér enn betur til starfa á næstu árum.
„Það er nauðsynlegt að huga að
þeirri öru breytingu sem framundan
er til að auðvelda hana og það er far-
sælla ef menn sjá hana fyrir og huga
að stefnumótun. Heilbrigðisyfirvöld
þurfa að vera vakandi gagnvart þess-
ari þróun og það skiptir ekki síður
máli varðandi val lækna á sérgrein-
um. Bæði kynin þurfa að ná farsælu
jafnvægi í þessum efnum, að læknar
fái að njóta þess að vera bæði feður
og mæður auk þess að starfa sem
læknar og nýtast samfélaginu á þann
hátt.“
Um 80 konur í Félagi
kvenna í læknastétt
Fram kemur í viðtali við Ólöfu Sig-
urðardóttur, formann Félags kvenna
í læknastétt, að um 80 konur séu í
félaginu og sýni undirtektir að þörf
fyrir félagið hafi verið orðin brýn.
Hún segir markmið félagsins fyrst
og fremst að efla konur í stéttinni,
auka samvinnu þeirra, halda uppi
umræðu um málefni þeirra og standa
vörð um stéttarhagsmuni og fjár-
hagslega hagsmuni kvenna í stétt-
inni. Ólöf segir starfið byggjast á
vinnuhópum og sé einn m.a. að skoða
stöðu kvenna í læknastétt. Fyrri
hluta síðasta árs voru á Íslandi 958
læknar 70 ára eða yngri, 751 karl og
207 konur.
Fleiri konur en karlar
innritast í læknanám
ÞEIR tóku á því, þessir kappar á
Hafnarfjarðarhöfn á dögunum þeg-
ar þeir unnu við vírasplæsingar í
vetrarnepjunni. Splæsingin getur
kallað á átak og þarf þá að beita
kröftum til handa jafnt sem fóta.
Morgunblaðið/Ómar
Splæsing með tilþrifum
Gatnagerðargjald
Mismun-
andi grunn-
ur fyrir
innheimtu
MJÖG er mismunandi á hvaða
grunni gatnagerðargjöld eru inn-
heimt í sveitarfélögum á höfuðborg-
arsvæðinu og því ekki alltaf einfalt
að bera saman kostnað í þeim efnum
milli sveitarfélaganna. Í Reykjavík
og Garðabæ er miðað við stærð hús-
næðis í fermetrum, í Kópavogi er
miðað við stærð húsnæðis í rúm-
metrum og í Hafnarfirði og Mos-
fellsbæ er miðað við lóðastærð.
Á borgarráðsfundi í vikunni var
ákveðið að hækka gatnagerðargjöld
og nemur hækkunin 7,1% til 22,5%
eftir tegund húsnæðis. Fram kom
jafnframt í tillögu borgarverkfræð-
ings af þessu tilefni að langt sé frá
því að gatnagerðargjöld standi undir
kostnaði við gatnagerð í borginni.
Svo dæmi séu tekin þá er verið að
innheimta eftir hækkun 11.470 kr. á
fermetra í einbýlishúsi, 7.876 kr. á
fermetra í raðhúsi, parhúsi, tvíbýlis-
og keðjuhúsum, 3.747 kr. á fermetra
í fjölbýlishúsum og 6.500 kr. á fer-
metra í í öðru húsnæði.
Í lögum um gatnagerðargjald seg-
ir að við ákvörðun gjaldsins skuli
miða við lóðarstærð, rúmmál húss
og/eða flatarmál húss samkvæmt
nánari ákvæðum í reglugerð. Gjaldið
megi vera mismunandi eftir notkun
lóðar, t.d. eftir því hvort um sé að
ræða lóð fyrir íbúðarhúsnæði, versl-
unarhúsnæði, iðnaðarhúsnæði
o.s.frv. Þá megi gjald af lóð fyrir
íbúðarhúsnæði vera mismunandi eft-
ir því hvort um er að ræða lóð fyrir
einbýlishús, raðhús, fjölbýlishús
o.s.frv. Gatnagerðargjald, sem mið-
að sé við stærð byggingar, geti af
hverjum rúmmetra eða fermetra
numið allt að 15% af heildarbygging-
arkostnaði samsvarandi einingar í
vísitöluhúsi fjölbýlis eins og hann sé
hverju sinni samkvæmt byggingar-
vísitölu og gatnagerðargjald, sem
miðað sé við stærð lóðar, skuli ekki
vera hærra en ef það væri miðað við
stærð byggingar.