Morgunblaðið - 18.02.2001, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
S
AMVINNA á sviði menn-
ingarmála tók að þróast
innan Evrópusambands-
ins í byrjun 8. áratugarins
þótt hennar væri hvergi
getið í formlegum sáttmálum þess.
Meðal fyrstu verkefna voru Evrópu-
hljómsveit æskunnar, sem stofnuð
var árið 1976, og menningarborg
Evrópu, sem í fyrsta skipti var út-
nefnd árið 1985. Í kjölfar aukins
stjórnmálalegs- og efnahagslegs
samruna á níunda og tíunda ára-
tugnum jókst áhugi ráðamanna á að
efla enn frekar samskipti landanna á
sem flestum sviðum mannlífsins.
Eftir gildistöku Maastricht-sáttmál-
ans árið 1993 hófst síðan víðtækt
samstarf á vettvangi menningarmála
þar sem markmiðin voru þríþætt:
Að styrkja menningarflóru aðild-
arríkja Evrópusambandsins en
virða á sama tíma margbreytileika
í menningu þjóða og landsvæða.
Að virkja sameiginlegan menning-
ararf Evrópu.
Að styðja menningarsamvinnu við
ríki utan Evrópusambandsins og
ýmis alþjóðasamtök.
Menningarsamstarf Evrópuríkja
felur eingöngu í sér fjölþjóðlega
samvinnu sem þýðir að Evrópusam-
bandið sjálft getur engar ákvarðanir
tekið sem bindandi eru fyrir þátt-
tökuríkin. Er það því hrein viðbót við
menningarstefnu einstakra aðildar-
ríkja. Samstarfið byggist fyrst og
fremst á áætlunum sem settar eru
fram til nokkurra ára í senn en við
Íslendingar erum fullgildir þátttak-
endur í þeim á grundvelli samnings-
ins um Evrópska efnahagssvæðið.
Fjórar af umræddum áætlunum,
Raphaël, Arianne, Kaleidoscope og
Connect, runnu skeið sitt á enda í
árslok 1999 og ekki er hægt að segja
annað en hlutur Íslendinga hafi verið
mjög góður, enda hlutu verkefni með
íslenskri þátttöku samtals um 100
milljónir íslenskra króna í styrki.
Íslendingasögurnar
þýddar á ensku
Með Raphaël-áætluninni voru
þátttökuríkin hvött til ýmiss konar
samvinnu, miðlun þekkingar,
reynslu og verklags sín á milli til
verndunar evrópskrar menningar-
arfleiðar. Stuðningur var m.a. veitt-
ur til alþjóðlegrar samvinnu á menn-
ingarsviðinu, til rannsókna,
starfsþjálfunar og nýsköpunar, auk
þess sem sett voru upp samevrópsk
samstarfsnet. Þar að auki var leitast
við að bæta almennan aðgang að hin-
um evrópska menningararfi, auka
fræðslu og aðra kynningu. Á milli
1996 og 1999 hlutu fimm verkefni
með íslenskri þátttöku styrki úr
Raphaël, þ.á m. Byggðasafn Hafn-
arfjarðar fyrir verkefnið Ísland í
1200 ár.
Ariane-áætluninni var m.a. ætlað
að efla þýðingar á nútímabókmennt-
um, leikritum og fræðiverkum og
einnig voru fjárstyrkir veittir til
kynningar á evrópskum bókmennt-
um. Stuðlað var að bættum aðgangi
að bókmenntaverkum og auknum al-
mennum áhuga á bókalestri auk þess
sem stutt var við þjálfun þýðenda og
annars fagfólks. Frá 1996 til 1999
hlutu níu íslensk verkefni styrk úr
Ariane og eitt samvinnuverkefni var
unnið í fjölþjóðlegri samvinnu. Með-
al íslenskra styrkþega má nefna út-
gáfufyrirtækið Leif Eiríksson, sem
hlaut styrk til þýðingar Íslendinga-
sagna á ensku. Á sama tíma fengu
erlend útgáfufyrirtæki styrki til þýð-
ingar 10 íslenskra skáldverka á önn-
ur evrópsk tungumál.
Kaleidoscope-áætluninni var kom-
ið á fót til að breiða út evrópska
menningu og ýta undir menningar-
leg samskipti Evrópubúa. Einnig
var henni ætlað að auka kynningu á
þeim listgreinum sem hún náði til,
þ.e. byggingarlist, dansi, högg-
myndalist, hönnun, leiklist, ljós-
myndun, margmiðlun, myndlist, óp-
erum og annarri tónlist. Styrkir voru
veittir til ýmissa menningarvið-
burða, þjálfunar listamanna og fag-
fólks sem og listrænna og menning-
arlegra samstarfsverkefna, er
byggðust á samvinnu aðila frá þrem-
ur eða fleiri ríkjum. Fjögur íslensk
verkefni hlutu styrki úr Kaleido-
scope-áætluninni og voru þau unnin
af Íslenska dansflokknum, Skemmti-
húsinu, Myndlista- og handíðaskóla
Íslands og leikhópnum Á senunni.
Connect-áætluninni var ætlað að
tengja saman nútímatækni og
mennta- og menningarstarfsemi í
álfunni. Verkefninu ,,Raddir Evr-
ópu“ sem Reykjavík, menningar-
borg Evrópu árið 2000, stóð m.a. að,
var úthlutað hæsta styrk sem veittur
var úr þeirri áætlun, 350.000 evrur.
Þar að auki hefur Reykjavík hlotið
frekari styrki af framlagi Evrópu-
sambandsins til menningarborga
Evrópu árið 2000.
Úr fyrrnefndum fjórum áætlunum
hafa samstarfsverkefni með ís-
lenskri þátttöku fengið úthlutaðrúm-
um 100 milljónum króna frá árinu
1996 og hafa Íslendingar átt stjórn-
arnefndarfulltrúa í þeim öllum.
Ný rammaáætlun
í menningu og listum
Í ársbyrjun 2000 var nýrri ramma-
áætlun í menningarmálum, Culture
2000, hleypt af stokkunum og þannig
var fyrrnefndum áætlunum í þeim
málaflokki steypt saman í eina. Cult-
ure 2000 er ætlað að efla sameigin-
legt menningarsvæði Evrópubúa,
m.a. með því að stuðla að samvinnu
milli listamanna, skipuleggjenda og
stjórnenda menningarviðburða.
Einnig er stuðningur veittur við
starfsemi menningarneta og ann-
arra menningarstofnana í þátttöku-
ríkjunum. Þátttökurétt í Culture
2000 hafa öll ríki Evrópska efna-
hagssvæðisins og bráðlega einnig
þau ríki sem nú undirbúa inngöngu í
Evrópusambandið. Samtals verða
þátttökuríkin þá 31 talsins. Jafnan er
sú krafa fyrir styrkveitingu gerð að
verkefni feli í sér þátttöku aðila frá
a.m.k. þremur þessara ríkja, þ.á m.
einu Evrópusambandsríki. Á 5 ára
tímabili er áætlað að úthluta samtals
um 167 milljónum evra, rúmlega 13
milljörðum íslenskra króna, til ým-
issa verkefna er tengjast menningu
og listum. Skiptast þau í nokkra
flokka sem reglulega eru endurskoð-
aðir en styrkupphæðirnar eru mjög
mismunandi eftir flokkum. Þó er
gert ráð fyrir að þeir nemi í mesta
lagi 60% af heildarkostnaði við við-
komandi verkefni. Öllum þeim aðil-
um sem starfa að menningu og list-
um er heimilt að sækja um stuðning,
en ekki eru veittir styrkir til einstak-
linga. Á síðasta ári fengu verkefni
með íslenskri þátttöku úthlutaðar
tæpar 70 milljónir úr umræddri
Culture 2000.
Hér á landi hefur upplýsingaþjón-
usta menningaráætlunar Evrópu-
sambandsins, Cultural Contact
Point á Íslandi, verið rekin frá því 1.
september 1996 og sér um hún al-
menna ráðgjöf, kynnir umsóknar-
fresti og verkefni menningaráætlun-
arinnar. Einnig veitir skrifstofan
aðstoð við gerð umsóka og leit að
samstarfsaðilum svo eitthvað sé
nefnt. Þar að auki sér upplýsinga-
þjónustan um reglulega útgáfu
fréttabréfa og heldur úti upplýsinga-
vef á slóðinni http://www.centrum.is/
ccp. Áhugasömum skal bent á að
setja sig í samband við þjónustuna
varðandi þátttöku í menningaráætl-
un Evrópusambandsins og allar
frekari upplýsingar.
Menningaráætlanir
Evrópusambandsins
Á síðastliðnu ári hóf göngu sína ný rammaáætlun Evrópusambandsins í menningarmálum, Culture
2000, og í byrjun þessa árs hófst næsta stig kvikmyndaáætlunarinnar, Media-plus. Þorsteinn Brynjar
Björnsson segir að fastlega megi gera ráð fyrir að Íslendingar taki áfram virkan þátt í evrópsku samstarfi
á umræddum vettvangi, enda hafi það reynst afar árangursríkt á undanförnum árum.
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
Kaleidoscope-áætl-
uninni var komið á
fót til að breiða út
evrópska menningu
og ýta undir menn-
ingarleg samskipti
Evrópubúa.
FELIX Bergsson er höfundur og að-
alleikari leikritsins Hinn fullkomni
jafningi, sem sýnt var fyrir stuttu
hér á Íslandi sem og í nokkrum öðr-
um Evrópulöndum. Hann var beðinn
að segja stuttlega frá þátttöku sinni í
menningaráætlun Evrópusambands-
ins og samstarfi við evrópskt leik-
húsfólk.
„Fljótlega eftir að ég hóf að skrifa
hinn fullkomna jafningja, þá búsett-
ur í London, kviknaði sú hugmynd
hjá okkur Kolbrúnu Halldórsdóttur
að endurvinna sýninguna á ensku og
leika hana utan Íslands. Ég hef alltaf
verið þeirrar skoðunar að það sem
við séum að gera í íslensku leikhúsi
standist fullkomlega samanburð við
margt af því besta í Evrópu, en tæki-
færin til að koma verkum okkar á
framfæri virtust lítil. Þó hafði ég
tekið eftir ákveðinni opnun í Bret-
landi, t.d. með hópum á borð við
Theatre de Complicité, sem er suðu-
pottur leikhússlistamanna úr allri
Evrópu. Ég hafði frá upphafi leyft
listrænum stjórnendum Drill Hall
leikhússins í London, þeim Julie Par-
ker og Mavis Seaman, að fylgjast
með framvindunni og komu þær til
Íslands í ársbyrjun 1999 og sáu sýn-
inguna í Íslensku óperunni. Í kjölfar-
ið buðu þær okkur að setja hana upp
í London og þá fór boltinn að rúlla.
Við höfðum einnig átt samstarf
við breska listamenn við frumupp-
setninguna og fór þar fremst í flokki
Maggie Kinloch, leikstjóri, en hún
fylgdist vel með á meðan ég skrifaði
verkið og var okkur innan handar
þegar æfingar hófust. Það má því
segja að Evróputengingin hafi verið
til staðar frá upphafi. Við hófum síð-
an samstarf við leikhópinn Grímu í
Færeyjum en eins og við hafa þau
mikla þörf á að komast í snertingu
og samstarf við erlenda listamenn.
Efni leikritsins var vel til þess fallið
að vekja athygli í Færeyjum, enda
hefur nánast engin umræða verið
þar í landi um samkynhneigð. Þriðja
samstarfsleikhúsið var síðan Há-
logalandsleikhúsið í Tromsö í Nor-
egi þar sem Haukur Gunnarsson réð
ríkjum.
Við sóttum um Kaleidoscope-
styrk á vordögum 1999 ásamt félög-
um okkar í Bretlandi, Færeyjum og
Noregi og fengum fljótlega jákvætt
svar. Undirbúningur við The Per-
fect Equal var settur í fullan gang
og ætluðum við okkur að klára verk-
efnið það sama ár. Þar sem end-
anlegt svar barst þó ekki fyrr en í
júlí var auðséð að við næðum ekki að
sýna í öllum löndunum þremur á
þeim tíma. Við fórum þó til Færeyja
og Tromsö í nóvember, unnum með
leikhúsfólkinu þar og sýndum við
ágætar undirtektir. Í London lékum
við í apríl 2000 og snerum svo aftur
með sýninguna til Reykjavíkur í
maí. Við fórum síðan aftur af stað nú
á haustdögum og lékum í London til
að svara eftirspurn, en þar hafði
verið uppselt á allar vorsýning-
arnar. Samtals urðu sýningarnar 42
í 4 löndum og var fjölmiðlaumfjöllun
veruleg og gagnrýni mjög jákvæð.
Reynslan af styrknum var að
mestu leyti jákvæð og gerði hann
samstarfið óneitanlega mögulegt.
Þótt upphæðin hafi verið miklu
hærri en við eigum að venjast hér á
landi reyndist hún þó of lág þegar
upp var staðið, m.a. vegna vanreikn-
aðs ferða- og flutningskostnaðar.
Það tók Evrópusambandið síðan
næstum heilt ár að greiða styrkinn
og höfðum við þegar lokið verkefn-
inu er hann loks barst okkur í hend-
ur í júní árið 2000. Þá hafði hann í
raun dregist saman um heil 20%
vegna falls evrunnar og vaxtakostn-
aður vegna lána sem við urðum að
taka hér heima varð einnig veruleg-
ur. Mér sýnist þó að Evrópusam-
bandið hafi brugðist við þeim vanda-
málum sem komu upp með
Kaleidescope og nýju Culture 2000
styrkirnir eru mun hærri.
Styrkveitingin hafði mun fleiri já-
kvæðar hliðar en neikvæðar. Við
fengum tækifæri til að vinna með
frábæru leikhúsfólki í þremur Evr-
ópulöndum og náðum að koma list
okkar á kortið, ekki einungis sem
gestasýningu heldur með samstarfi
við annað leikhúsfólk. Þannig kynnt-
um við líka list okkar í þessum lönd-
um og ég er sannfærður um að eitt-
hvað mun koma út úr því. Höfum við
m.a. verið í sambandi við bresku
samstarfsaðilana um áframhaldandi
samstarf og einnig er kvikmynda-
gerð til skoðunar. Landkynningin
var líka veruleg og ég fullyrði að
kynningarefni hafi náð til milljóna
manna. Fyrst og fremst held ég þó
að sjálfstraust okkar allra sem að
sýningunni stóðum hafi aukist og við
vitum nú að leiklist okkar er full-
komlega samkeppnishæf við það
sem gerist annars staðar í Evrópu.
Reynslan er dýrmæt og við vitum
nákvæmlega hvernig við eigum að
bera okkur að þegar við förum næst
í svona samstarf. Evrópa stendur
okkur opin og það er bara kjarkleysi
að taka ekki fullan þátt í þeirri
grósku sem er í leiklistinni og auðga
hana um leið hér heima. Einangrun
er einungis af hinu slæma.“
Kaleidescope
og Hinn full-
komni jafningi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Felix Bergsson í hlutverki sínu í eigin leikriti, Hinn fullkomni jafningi.