Morgunblaðið - 18.02.2001, Side 47
ÞJÓNUSTA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2001 47
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólöf Erla Hauksdóttir 435 0095
Bíldudalur Brynjólfur Einar Arnarsson 456 2399
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1222
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir 478 8962
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Björn Ingólfsson 463 3131 463 3118
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Arnar S.Guðlaugsson 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 451 2618 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Bára Sólmundsdóttir 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Arnheiður Guðlaugsdóttir 421 5135 862 0375
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Jónína M. Sveinbjarnardóttir 566 6082 868 7654
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Ólöf Þórhallsdóttir 486 1136 862 1924
Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400
Nes – Höfn Sigurbergur Arnbjörnsson 478 2113
Neskaupstaður Sigrún Júlía Geirsdóttir 477 1812 477 1234
Neskaupstaður Sveinbjörg Guðjónsdóttir 477 1841 896 0326
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962
Neskaupstaður Bjarney Ríkharðsdóttir 477 1687
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Stefanía Jónsdóttir 465 1179
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Dúa Stéfánsdóttir 464 4123
Sandgerði Jóhanna Konráðsdóttir 423 7708
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Jón Einarsson 456 2567
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Ellen Ellertsdóttir 473 1289
Ytri-Njarðvík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
FRANZ@holl.is AGUST@holl.is
Fjöldi eigna
til sölu og leigu!
Ekki hika við að hringja í
okkur félagana,
Franz gsm 893 4284,
Ágúst gsm 894 7230.
Fjöldi leigutaka á biðlista!
Sérhæfðir sölumenn
í atvinnuhúsnæði
Hóll fasteignasala,
Skúlagötu 17, sími 595 9000
Sími: 551 8000
Fax: 551 1160
Vitastíg 12
Þórarinn Jónsson hdl., löggiltur fasteignasali.
Svavar Jónsson sölumaður, Jón Kristinsson sölustjóri.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR
Glæsileg 3ja herb. nýleg 127 fm íbúð.
Allar innréttingar og gólfefni úr kirsuberjaviði.
Tvennar svalir.
Frábær staðsetning.
Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið alla
virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13–16. Að-
gangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á internetinu:
http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið fimmtu-
daga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Netfang/
E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn@reykja-
vik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstudaga–mið-
vikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–sept-
ember kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla
daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er lokað
til 3. mars. Upplýsingar í s. 553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax: 563 1799.
reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst. kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið er
lokað yfir vetrarmánuðina, en hópar geta fengið að skoða
safnið eftir samkomulagi.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið frá 16.9.–31.5. á
sun. milli kl. 14–16. Einnig eftir samkomulagi fyrir hópa.
Skrifstofur opnar virka daga kl. 8–16.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1.
september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gamalt
handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safn-
búð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi, kand-
ís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/El-
liðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam-
kvæmt samkomulagi.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán. Kaffi-
stofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrifstofan
opin mán.–föst. kl. 9–16, lokað 20.–24.4. Sími 551–7030,
bréfas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is – heima-
síða: hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til
ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið lau. og sun. frá kl. 13–17 og eftir samkomulagi. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa Lyngási 7, Garðabæ, sími
530 2200. Fax: 530 2201. Netfang: aog@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning er opin þri. til fös. kl. 14–16 til 15.
maí.
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13–18 nema mán. S. 431 5566.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu lok-
aðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–18.
Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
ORÐ DAGSINS
Reykjavík s. 551 0000.
Akureyri s. 462 1840.
SUNDSTAÐIR
SUNDSTAÐIR Í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30–21.30, helg. kl. 8–19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30–21.30, helg. 8–19.
Laugardalslaug er opin v.d. 6.50–21.30, helg. 8–19. Breið-
holtslaug er opin v.d. kl. 6.50–22, helg. kl. 8–20. Graf-
arvogslaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–20.30.
Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–20.30.
Kjalarneslaug opin mán. og fim. kl. 11–15. Þri., mið. og
fös. kl. 17–21.
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 6.30–22, um
helgar 8–19 (apríl-sept.), kl. 8-18 (okt.-mars).
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mán.–fös. 7–20.30. Lau. og
sun. 8–17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun.
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mán.–fös. 7–21, lau.
8–18, sun. 8–17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mán.–fös. 6.30–
21, laug. og sun. 8–12.
VARMÁRLAUG Í MOSFELLSBÆ: Opið v. d. kl. 6.30–7.45
og kl. 16–21. Um helgar kl. 9–18.
SUNDLAUGIN Í GRINDAVÍK: Opið alla v. d. kl. 7–21 og kl.
11–15 um helgar. S. 426 7555.
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45–8.30 og 14–22,
helgar 11–18.
ÚTIVISTARSVÆÐI
HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10–17.
Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjölskyldugarðurinn er op-
inn sem útivistarsvæði á veturna. S. 5757 800.
SORPA:
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.15–16.15. Móttökustöð
er opinmán.–fim. 7.30–16.15 og föst 6.30–16.15. Endur-
vinnslustöðvarnar við: Bæjarflöt, Jafnasel, Dalveg og
Blíðubakka eru opnar kl. 12.30–19.30. Endurvinnslu-
stöðvarnar við: Ánanaust, Sævarhöfða og Miðhraun eru
opnar k. 8–19.30. Helgaropnun laugardaga og sunnudaga
kl. 10–18.30. Endurvinnslustöðin á Kjalarnesi er opin
sunnudag., miðvikud. og föstud. kl. 14.30–19.30. Uppl.sími
520 2205.
HUGVEKJA
EFINN á
sterkar rætur
í hugum fólks.
Hann fylgir á
stundum skoð-
unum manna
eins og skuggi.
Ef grannt er
gáð hefur ef-
inn bæði já-
kvæða og nei-
kvæða hlið.
Við getum
deilt um rétt-
mæti efans í
málum sem
virðast liggja
ljós fyrir. En
efinn er ótví-
rætt af hinu
góða þegar
hann er hvati
til frekari
rannsókna og
þekking-
arleitar. Þá
leiðir hann okk-
ur til réttara
mats á lífinu og tilverunni.
Efinn segir meðal annars til sín
í hugleiðingum fólks um alheim-
inn og tilveruna – um almættið og
eilífðina. Hann er jafn gamall
hugsandi mannkyni. Kristnir
menn vitna oft til Tómasar post-
ula þegar fjallað er um efann.
Þórður Ingi Guðjónsson fjallar
um efasemdarmanninn, postulann
og dýrlinginn Tómas í ágætri
grein í Merki krossins (2. hefti
2000), riti kaþólsku kirkjunnar á
Íslandi:
„Abraham og Elía og margar
aðrar trúarhetjur lentu í þeim
vanda að trú þeirra átti undir
högg að sækja. Meira að segja
Kristur sjálfur efaðist eitt augna-
blik um nærveru Föðurins og
handleiðslu þegar hann á kross-
inum hrópaði í örvæntingu: Guð
minn, Guð minn, hví hefur þú yf-
irgefið mig? En í fullkomnuninni
er allur efi á braut: Faðir, í þínar
hendur fel ég anda minn!“
Tómas postuli var reiðubúinn
til að fylgja meistara sínum í
dauðann. En á hann sóttu efa-
semdir um upprisuna. Þegar
postularnir báru honum fregnina
af upprisu Jesú sagði hann: „Sjái
ég ekki naglaförin í höndum hans
og geti sett fingur minn í nagla-
förin og lagt hönd mína í síðu
hans, mun ég alls ekki trúa.“
Kristur birtist honum síðar og
segir: „Kom hingað með fingur
þinn og sjá hendur mínar, og kom
með hönd þína og legg í síðu mína,
og vertu ekki vantrúaður, vertu
trúaður!“ Og Tómas svarar:
„Drottinn minn og Guð minn!“
(Jóhannes 20.19-29.)
Efasemdir Tómasar áður en
hann sá Krist upprisinn eru efa-
semdir fjölda fólks fyrr og síðar.
Þær segja til sín enn í dag á mót-
um árþúsunda. Þær geta læðst
inn í huga fólks, sem einlæglega
hefur reynt að tileinka sér kristin
viðhorf um kærleika og miskunn-
semi. Fram hjá þeim veruleika
verður ekki gengið. Þessum efa-
semdum verður kirkjan að mæta
með jákvæðum hætti: skilningi,
umburðarlyndi og fræðslu. Þess-
um efasemdum verður sérhver,
sem fyrir verður, að mæta með já-
kvæðum hætti: íhugun og leit.
Meistarinn sagði að vísu: Sælir
eru þeir, sem hafa ekki séð en
trúa þó. En jafnframt, vegvilltum
til huggunar: Ég segi yður, þann-
ig verður meiri fögnuður á himni
yfir einum syndara, sem gjörir
iðrun, en yfir níutíu og níu rétt-
látum, er ekki hafa iðrunar þörf.
(Lúk. 15.7.)
Efasemdarmaðurinn Tómas lét
sannfærast, boðaði Guðs orð, dó
píslarvættisdauða og varð vernd-
ardýrlingur byggingarmanna.
Þórður Ingi segir í grein sinni:
„En það er Jóhannesarguðspjall
sem gefur okkur hina glöggu og
minnisstæðu mynd af Tómasi,
hinum trygglynda, raunsæja og
jarðbundna Guðs þjóni, sem í
þekkingarleit sinni og með spurn-
ingum sínum olli því að Kristur
svaraði kjarnyrtur með safaríku
orðfæri; kristin trú væri miklu fá-
tækari ef þess nyti ekki við.“
Efinn hefur fylgt mannkyni frá
örófi alda. Nýtum hann á jákvæð-
an hátt, sem hvata til þekking-
arleitar. Þá nálgumst við feg-
urðina og sannleikann í
tilverunni. Þá hverfur hann, efinn,
um síðir, eins og hjá Tómasi, inn í
fullvissuna. Gleymum því aldrei
að kristin trú hefur verið „sverð
og skjöldur“ þess fagra og góða,
mannúðar og miskunnsemi í ver-
öldinni, í tvö þúsund ár. Mann-
kynið kann að eiga fleiri leiðir út
úr sjálfskaparvítum sínum – en
enga betri né öruggari. Þess
vegna eiga allir góðviljaðir menn
samleið með breiðri, hófsamri og
menningarlegri kirkju okkar.
Hvar er trú þín, spyr skáldið
Jón úr Vör í Þorpinu, sem allir
ljóðelskir Íslendingar þekkja. Þar
er gömul kona, sem sinnir prjóna-
skap á tátiljum og sjóvettlingum,
leidd til sögunnar:
“…
þú, sem settist á óveðursdögum undir
brekán
og hlýddir á guðsorð gamallar konu,
sem mælti:
Eitt skjól er til gegn öllum hretum,
einn vegur er yfir alla vegu,
ein huggun við öllum raunum,
og hinn vesalasti allra vesalla finnur
það, sem hann leitar að,
og ég, sem ekkert á nema gleðina að
nefna guðs nafn.
…“
Við, sem byggjum heimsþorpið
Jörð, ættum að hugleiða vel þess-
ar ljóðlínur um huggunina, skjólið
og veginn til gleðinnar.
Efi Tómasar
– efi samtímans
Efinn virðist vera ríkur þáttur í
eðli mannsins. Stefán Friðbjarnarson
staldrar stundarkorn við efasemdir –
m.a. sem hvata í leitinni að
ljósinu og sannleikanum.
Fríkirkjan í Hafnarfirði.