Morgunblaðið - 20.02.2001, Side 1
2001 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÞJÁLFARI FRÁ LYN SÁ JÓHANN B. SKORA ÞRJÚ MÖRK / B3
ÞAÐ MÁ segja að allir leikmenn
séu falir ef rétt verð er í boði.
En það stendur ekki til að selja
einn einasta leikmann frá fé-
laginu á næstunni og Bjarni er
þar meðtalinn. Við erum að
hugsa um allt aðra hluti um
þessar mundir og sala á leik-
mönnum er ekki inni í myndinni
sem stendur,“ sagði Guðjón
Þórðarson, knattspyrnustjóri
Stoke, við Morgunblaðið í gær.
Talsverðar vangaveltur hafa
verið uppi um hvort Bjarni Guð-
jónsson gangi til liðs við belg-
ísku meistarana Anderlecht en
þjálfari þar er Aime Anthuenis
sem þjálfaði hann hjá Genk á
sínum tíma. Guðjón sagði að
vissulega hefði Anthuenis verið í
sambandi en ekkert formlegt
boð hefði komið frá Anderlecht.
Rætt hefur verið um að Ander-
lecht væri tilbúið til að greiða
90-100 milljónir króna fyrir
Bjarna en Stoke keypti hann frá
Genk fyrir 29 milljónir fyrir ári
síðan.
Stoke mætir botnliði Oxford á
útivelli í ensku 2. deildinni í
kvöld og fær þar tækifæri til að
sækja enn frekar að þremur
efstu liðum deildarinnar. „Eftir
gott gengi undanfarnar vikur er
ætlast til þess að við höldum
sýningu í svona leik en slíkt er
aldrei hægt. Núna snýst allt um
að fá þrjú stig úr hverjum leik
fyrir sig og þá er sama hvaða
aðferðum er beitt. Það er gíf-
urleg barátta upp á líf og dauða
á báðum endum deildarinnar og
allt opið,“ sagði Guðjón Þórð-
arson.
Enginn seldur frá Stoke
Íþrótta- og ólympíusamband Ís-lands, ÍSÍ, skrifaði í gær undir
samstarfssamning við fimm íslensk
fyrirtæki og er samningurinn met-
inn á um 60 milljónir króna. Fyr-
irtækin sem um er að ræða eru:
Íslandsbanki-FBA, Flugleiðir,
Sjóvá-Almennar, Austurbakki og
VISA en fyrirtækin hafa áður
staðið að baki ólympíufjölskyldu
ÍSÍ. Ellert B Schram, forseti ÍSÍ,
sagði á fjölmiðlafundi sem haldinn
var samhliða undirritun samnings-
ins að slíkur samstarfssamningur
hefði gert ÍSÍ kleift að efla afreks-
starf í íþróttum og gert það að
verkum að undirbúningur fyrir Ól-
ympíuleikana í Sydney síðastliðið
haust hefði verið markviss og skil-
að betri árangri. Í fyrstu úthlutun
ólympíufjölskyldu ÍSÍ renna tæp-
lega 7,3 milljónir króna til 14 sér-
sambanda og verkefna á þeirra
vegum sem tengjast undirbúningi
fyrir Ólympíuleikana í vetrar-
íþróttum sem fram fara í Salt
Lake City í Bandaríkjunum á
næsta ári og sumarleikana í Aþenu
árið 2004. Einnig var úthlutað til
sérverkefna sérsambanda ÍSÍ, s.s.
þátttöku í heimsmeistaramótum og
Evrópukeppni.
Afrekssjóður ÍSÍ tilkynnti á
sama fundi að tekin hefði verið
ákvörðun um að 12 sérsambönd
innan ÍSÍ fái tæplega 19 milljónir í
fyrstu úthlutun afrekssjóðsins á
þessu ári.
Frjálsíþróttasamband Íslands
fékk hæstu upphæðina, 5,5 millj-
ónir, og af þeirri upphæð fær Vala
Flosadóttir tæplega 1,5 milljónir
en Jón Arnar Magnússon fær 900
þúsund. Handknattleikssamband
Íslands fær 4 milljónir til verkefna
sem tengjast A-landsliði karla.
Sundsamband Íslands fær 3,5
milljónir og af þeirri upphæð fær
Örn Arnarson tæplega 1,5 millj-
ónir en Jakob J. Sveinsson 720
þúsund. Skíðasambandið fær 2,4
milljónir, Fimleikasambandið fær
2,1 milljónir, Knattspyrnusam-
bandið, Golfsambandið, Júdósam-
bandið og Körfuknattleikssam-
bandið fá öll um eina milljón en
önnur sérsambönd fengu minna.
Alls voru 26 milljónir veittar í
styrki úr afrekssjóð ÍSÍ og ólymp-
íufjölskyldu ÍSÍ og Ellert gat þess
í ræðu sinni að á fjárlögum Al-
þingis væri gert ráð fyrir að ÍSÍ
fengi 8 milljónir sem kæmu til út-
hlutunar síðar á árinu.
26 milljóna styrkur
til sérsambanda ÍSÍ
Morgunblaðið/Jim Smart
Lið Skautafélags Reykjavíkur sigraði í kvennaflokki á fyrsta Íslandsmótinu í samhæfðum skautadansi sem fram fór í Skautahöllinni
um helgina. Á myndinni er sigurliðið með verðlaunin en stúlkurnar, sem eru á aldrinum 15–24 ára, þóttu sýna glæsileg tilþrif og
verður gaman að sjá hvernig þeim vegnar á alþjóðlegu móti sem þær taka þátt í á Englandi í næsta mánuði.