Morgunblaðið - 20.02.2001, Page 6
ÍÞRÓTTIR
6 B ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKAUTAFÉLAG Akureyrar
tryggði sér deildarmeistaratitilinn í
íshokkí með því að sigra Björninn,
8:7, í lokaleik undankeppninnar í
Skautahöllinni í Laugardal á laug-
ardagskvöldið. Akureyringar kom-
ust í 5:0 og lögðu með því grunninn
að sigrinum. Björninn minnkaði
muninn í 7:6 fyrir síðasta leikhluta
en komst ekki nær. Besti leikmaður
vallarins var Michel Kobezda,
markvörður Akureyringa, en
markahæstir þeirra voru Rúnar Þ.
Rúnarsson, Ágúst Ásgrímsson og
Jón B. Gíslason með 2 mörk hver en
Sergei Zak skoraði 4 mörk fyrir
Björninn.
Úrslitakeppnin um Íslandsmeist-
aratitilinn hefst á Akureyri um
næstu helgi með tveimur leikjum en
það lið sem vinnur þrjá leiki verður
Íslandsmeistari.
Morgunblaðið/Kristinn
Akureyr-
ingar
lögðu
Björninn
STACY Dragila tvíbætti
heimsmetið í stangarstökki
kvenna um helgina á innan-
hússmóti í Bandaríkjunum.
Dragila vippaði sér yfir 4,66
metra og síðan 4,70 metra.
Fyrsta heimsmetið setti
Dragila í mars 1997 þegar hún
stökk yfir 4,40 metra á innan-
hússmóti í París og síðustu
daga hefur hún verið í miklum
ham og fjórbætt heimsmetið.
Í metstökkinu um helgina
strauk hún slána sem hoppaði
nokkrum sinnum, en hékk
uppi. „Þetta var ekki falleg-
asta stökk sem ég hef tekið,
en ráin hékk uppi og það er
fyrir öllu,“ sagði Dragila.
Þráttanda
heimsmet
Dragilu
Szabo var að vonum ánægð meðárangurinn á mótinu í Birm-
ingham um helgina. „Þegar tveir
hringir voru eftir sá ég að það var
möguleiki að setja met. Ég fann að
ég var létt á mér en ég hefði samt
kosið að hafa einhvern til að veita
mér keppni,“ sagði Szabo. Hún
hafði raunar tvær stúlkur til að
halda uppi hraðanum í hlaupinu en
henni fannst þær ekki standa sig
nægilega vel og tók sjálf forystuna
þegar hlaupið var rétt tæplega
hálfnað.
Szabo sagðist ætla að gera atlögu
að heimsmetinu í 1.500 metra hlaupi
4. mars en hún yrði ekki í Lissabon
til að verja heimsmeistaratitilinn í
1.500 m hlaupinu þar sem dagskrá
mótsins væri of þétt. „Það er úti-
lokað að vera á báðum stöðum,“
sagði Szabo sem hyggst vera með á
HM utahúss í Edmonton í ágúst.
Graf óhress með
Mutolu
Keppni var hörð í 800 metra
hlaupi kvenna þar sem austurríska
stúlkan Stephanie Graf keppti og
Maria Mutola frá Mósambík áttust
við. Sú fyrrnefnda var dæmd úr leik
fyrir að hlaupa fyrir Mutolu, en
Graf sagði eftir hlaupið: „Nú er ljóst
að ég get aldrei reynt við heims-
metið þegar Mutola er að keppa.
Hún hljóp þrisvar utan í mig í dag.“
Bandaríski hlauparinn Coby Mill-
er hljóp 60 metrana á 6,55 sekúnd-
um og hefur enginn hlaupið eins
hratt á þessu ári en tæpri klukku-
stund síðar varð hann að sætta sig
við þriðja sætið í 200 metra hlaupi.
Þar varð Christian Malcolm sjón-
armun á undan Allyn Condon á
20,58 sekúndum sem er besti tími
ársins.
Szabo með heims-
met í Birmingham
GABRIELA Szabo, ólympíumeistarinn í 5.000 metra hlaupi kvenna
frá Rúmeníu, bætti eitt elsta heimsmet innanhúss um helgina þeg-
ar hún hljóp 3.000 metrana á 8.32,88 mínútum en eldra metið átti
Elly van Huylst frá Hollandi, 8.33,82, og setti hún það í Búdapest í
mars 1989.
Reuters
Rúmenska hlaupadrottningin Szabo hefur oft fagnað sigri á undanförnum árum.
LITLU munaði að Grindavík
krækti í sín fyrstu stig í 1. deild
kvenna í körfuknattleik í vetur og
það gegn toppliði Keflvíkinga á úti-
velli á laugardaginn. Grindavík var
19 stigum yfir í hálfleik, 41:22, og í
upphafi fjórða leikhluta var staðan
63:47, grindvísku stúlkunum í hag.
En Keflavík náði að jafna metin,
73:73, og sigraði síðan eftir fram-
lengingu, 91:82.
Brooke Schwarz, nýja banda-
ríska stúlkan hjá Keflavík, meidd-
ist á hné strax á fyrstu mínútu
leiksins og lék ekki meira með.
Landa hennar, LaDrina Sanders,
var Keflavíkurliðinu erfið og skor-
aði 37 stig. Erla Þorsteinsdóttir
átti stórleik með Keflavík og skor-
aði 31 stig og Birna Valgarðsdóttir
gerði 16.
Með sigrinum er Keflavík á
toppnum með 20 stig, KR er með 18
og KFÍ er með 16 en á leik til góða.
Grindavík
hársbreidd
frá sigri