Morgunblaðið - 20.02.2001, Side 11
KÖRFUKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2001 B 11
Morgunblaðið/Kristinn
Brenton Birmingham, leikmaður Njarðvíkurliðsins, sækir að körfu Hauka.
Þríframlengt
og hasar í lokin
MAGNÞRUNGNUM leik Skallagríms og Tindastóls í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í Borgarnesi á sunnudaginn lauk með naumum sigri
gestanna frá Króknum 114:115. Staðan eftir venjulegan leiktíma
var 77:77 og það var ekki fyrr en í þriðju framlengingu að Tindastóll
náði að knýja fram sigurinn og var dómgæslan á lokasekúndunum
afar umdeild.
Gestirnir byrjuðu betur og virt-ust ætla að klára dæmið
örugglega og komust í 7:0. Skalla-
grímsmenn neituðu
að gefast upp og
komust inn í leikinn
og fyrsti leikhluti
endaði 20:18 fyrir
Skallagrímsmenn. Í hálfleik var
staðan 37:41 Tindastóli í vil, en leik-
menn liðsins voru síðan með frum-
kvæðið í seinni hálfleik – höfðu tvö
til sex stiga forskot þar til á síðustu
mínútu, þá snerist dæmið við. Þegar
tólf sekúndur voru eftir komust
Skallagrímsmenn í 77:74 með góðri
körfu frá Alexander Ermolinski.
Tindastólsmenn höfðu tólf sekúndur
til að jafna og það tókst Kristni þeg-
ar 5 sekúndur voru eftir með góðu
langskoti og knúði fram framleng-
ingu 77:77.
Fyrsta framlenging var þrungin
spennu. Peebles, sem sjaldan eða
aldrei klikkar í vítaskoti, náði aðeins
að skora úr öðru vítaskoti sínu í
stöðunni 90:89. Staðan var því 91:89
og 10 sekúndur til leiksloka. Shawn
Myers náði að jafna 2 sekúndum
fyrir leikslok. Önnur framlenging
var svipuð hinni fyrri nema þar náðu
Skallagrímsmenn að jafna 103:103 á
síðustu mínútunni. Það gerði gamli
jaxlinn Alexander Ermolinski þegar
22 sekúndur voru eftir.
Í þriðju og síðustu framlengingu
náðu Tindastólsmenn forystu
110:106 með góðum körfum frá Óm-
ari og Svavari í liði Tindastóls en
Hlynur Bæringsson besti maður
Skallagríms skoraði jafnharðan.
Loks náði Adonis Pomenes, sem fór
á kostum í síðustu framlengingu,
forystunni fyrir Tindastól 114:115.
Skallagrímsmenn höfðu 28 sekúnd-
ur til að komast yfir. Sóknin hófst og
eitt skot geigaði sem fór í körfu-
hringinn og Skallagrímsmenn náðu
frákastinu en skotklukkan gekk.
Hlynur tók svo skot 4 sekúndum
fyrir leikslok sem rataði í körfuna
en rétt í því augnabliki flautaði dóm-
arinn og dæmdi körfuna ógilda á
þeim forsendum að skotrétturinn
væri útrunninn. Skallagrímsmenn
fengu samt innkast en náðu ekki að
skora. Úrslitin voru því 114:115 fyr-
ir Tindastól.
Upphófst þá mikil rekistefna.
Heimamenn voru afar ósáttir og
vönduðu dómurum ekki kveðjurnar
og þá sérstaklega Hlynur Bærings-
son sem fullyrti að þetta væru léleg-
ustu dómarnir sem hefðu komið
þarna lengi. Skallagrímsmenn töldu
að mistök á ritaraborði ættu ekki að
stjórna dómgæslunni.
Leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu þar sem leikmenn léku fast
bæði í sókn og vörn og var áberandi
hversu oft leikmenn sluppu við
sóknarvillur. Hjá Skallagrími fór
Warren Peebles vel af stað og skor-
aði nokkrar góðar körfur en dalaði
nokkuð í seinni hálfleik og beitti sér
lítið fyrr en til framlengingar kom,
en þrátt fyrir það skoraði hann 39
stig. Eins og svo oft áður voru það
ungu mennirnir Hlynur og Hafþór
sem héldu Skallagrímsmönnum inni
í leiknum í seinni hálfleik. Jafnframt
spilaði Evgenij Tomilovski varnar-
leikinn afar vel en hann þurfti að
fara út af með fimm villur rétt fyrir
lok venjulegs leiktíma.
Gestirnir nutu góðs af jöfnum leik
Shawn Myers auk þess sem Krist-
inn Friðriksson gerði fyrrum sam-
herjum sínum lífið leitt með 29 stig-
um samtals. Jafnframt áttu þeir
Svavar og Lárus góða spretti.
Guðrún Vala
Elísdóttir
skrifar
Það var einhver taugaveiklun ogandleysi sem sveif yfir vötnun-
um á sunnudaginn að Ásvöllum.
Heimamenn í Hauk-
um urðu fyrir
barðinu á þessu
framan af leik og
fram að leikhléi léku
þeir mjög illa. Njarðvíkingar voru
heldur skárri en ef þeir hefðu leikið
eðlilega má gera ráð fyrir að þeir
hefðu verið talsvert meira yfir en átta
stigum í leikhléi. Eftir hlé snérist
dæmið við, Njarðvíkingar léku hræði-
lega illa en Haukarnir náðu sér hins
vegar vel á strik og léku ljómandi vel.
Allt var í járnum framan af fyrsta
leikhluta og staðan 14:15 um hann
miðjan en gestirnir gerðu fjórar
þriggja stiga körfur fyrir hlé á meðan
heimamenn skoruðu fimm stig, stað-
an 19:27 eftir fyrsta leikhluta.
Njarðvíkingar beittu því talsvert
að pressa Hauka stíft þegar þeir
höfðu skorað og náðu knettinum
þannig mjög oft og fengu því stund-
um tvær sóknir án þess að heima-
menn kæmust út úr eigin vítateig.
Annar leikhluti var í jafnvægi og af-
skaplega andlaust spil beggja liða.
Það eina sem gladdi augað var fín
barátta og gleði hjá Davíð Ásgríms-
syni hjá Haukum sem kom inn af
bekknum. Villuvandræði gerðu vart
við sig og það raunar í fyrsta leikhluta
því Jón Arnar Ingvarsson, leikstjórn-
andi Hauka fékk þriðju villu sína eftir
rúmlega sex mínútna leik og var þá
með jafnmargar villur og allt lið
Njarðvíkur. Marel fékk þriðju villu
sína er þrjár mínútur voru til leikhlés
og í upphafi annars leikhluta fékk
Mike Bargen sína þriðju villu. Hauk-
ar virtust því alls ekki líklegir til af-
reka eftir hlé, en annað kom á daginn.
Upphaf síðari hálfleiks var þó ekki
gott hjá heimamönnum og staðan var
um tíma 42:56. Þá tóku heimamenn
leikhlé, breyttu í svæðisvörn sem
gekk mjög vel og í sókninni urðu
menn vandvirkari og baráttuandinn
kviknaði í brjóstum Hauka. Það sem
eftir var þriðja leikhluta gerðu þeir 19
stig en Njarðvíkingar aðeins sex.
Staðan fyrir síðasta leikhluta því
61:62 og stefndi í mikla spennu í lokin.
Það varð þó ekki því Njarðvíkingar
voru á sama stigi og Haukar framan
af leiknum, léku illa og heimamenn
nýttu sér það og sigruðu með níu
stiga mun.
Bargen, Marel, Davíð og Guð-
mundur léku vel hjá Haukum eftir hlé
og sá síðastnefndi tók meðal annars
17 fráköst.
Njarðvíkurliðið var jafnslakt, Jes
V. Hansen átti þó ágætan leik og
Teitur líka í fyrri hálfleik en fékk
varla boltann í þeim síðari. Brenton
Birmingham var ekki svipur hjá sjón
og í raun virkaði liðið eins og á léttri
haustæfingu.
Stanslaus
gleði á
Ásvöllum
HAUKAR fögnuðu sigri í bik-
arkeppninni í handknattleik í
félagsheimili sínu að Ásvöllum á
laugardaginn og á sunnudaginn
fögnuðu körfuknattleiksmenn
félagsins sigri, lögðu efsta liðið,
Njarðvík, 86:77 í mjög kafla-
skiptum leik þar sem gestirnir
voru 46:38 yfir í leikhléi.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Leikurinn byrjaði fjörlega og fórHerbert Arnarson fyrir sínum
mönnum með tveimur þriggja stiga
körfum í röð og leit
allt út fyrir
skemmtilegan leik.
Þá herti KR takið í
vörninni og lokaði á
Herbert, sem náði sér ekki á strik
það sem eftir var af leiknum.
Í byrjun annars leikhluta komu
KR-ingar mjög grimmir til leiks og
spiluðu góða vörn með þá Jón Arn-
ór Stefánsson og Ólaf Jón Ormsson
í fararbroddi. Ólafur var einnig
heitur í sókninni og skoraði tíu stig
á stuttum kafla og gaf KR tóninn.
Lánleysi Valsmanna var algjört
og töpuðu þeir hverjum boltanum
af öðrum, alls 19 boltum í öllum
leiknum sem er allt of mikið gegn
Íslandsmeisturunum ætli menn sér
að eiga möguleika á sigri. Eftir hlé
komu Valsmenn baráttuglaðari til
leiks og virtist það skila sér og
leikurinn var í jafnvægi lengst af í
leikhlutanum. Í enda þriðja leik-
hluta tók Valur upp á því að pressa
KR til þess að minnka forystu
þeirra með svokallaðri 1-2-1-1 vörn
en KR-ingar leystu sérlega vel úr
henni og skoruðu átta stig í röð og
við það sat út leikinn og auðveldur
sigur heimamanna var í höfn.
Hjá KR er það ekki í frásögur
færandi að Ólafur Jón var besti
maður þeirra, skoraði að vild, en
var einnig drjúgur í vörninni þar
sem hann stal fjórum boltum og
tók alls átta fráköst. Jón Arnór
komst líka vel frá leiknum sem og
flestir hjá KR, sem hafði þann
munað að hvíla Keith Vassell
meirihluta leiksins.
Guðmundur Björnsson var besti
maður Vals að þessu sinni og þó að
Brian Hill hafi verið grimmur í frá-
köstunum þá hljóta Valsmenn að
krefjast meira frá honum í sókn-
inni þar sem hann týndist lang-
tímum saman. Herbert Arnarson
hefur átt betri daga og hékk allt of
mikið á boltanum sem stoppaði allt
flæði í sókn Vals.
FYRIRFRAM var búist við auð-
veldum sigri Íslandsmeistara
KR á heimavelli sínum og sú
reyndist raunin þegar Valur/
Fjölnir, sem er að berjast fyrir
áframhaldandi veru sinni í Ep-
son-deildinni, kom í heimsókn.
KR hrósaði sigri 78:62 eftir að
hafa verið 45:31 yfir í hálfleik.
Björn Freyr
Ingólfsson
skrifar
Auðveldur
sigur KR