Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 4
HANDKNATTLEIKUR
4 B ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Haukar höfðu lengst af frumkvæð-ið í leiknum ytra á laugardag og
voru marki yfir í hálfleik, 10:9. Greini-
legt var strax í byrj-
un að leikmenn og
þjálfari Hauka höfðu
lært heima fyrir leik-
inn. Flöt vörn liðsins
lokaði vel fyrir leik-
menn Sporting, lét ekki etja sér út í
neina vitleysu. Sóknarleikurinn var
yfirvegaður, þolinmæðin réð ríkjum.
Þá fór Bjarni Frostason á kostum í
markinu, einkum í fyrri hálfleik þar
sem hann varði 15 skot, mörg úr
dauðafærum.
Vitað var að leikmenn Sporting
hafa tilhneigingu til þess að hleypa
leikjum upp í hraða. Helsta vopn
þeirra er hraðaupphlaup, enda með
afar snarpa og lipra leikmenn, eink-
um þá hornamanninn Ricardo Andor-
inho sem varð markakóngur portú-
gölsku deildarinnar í fyrra. Snöggir
hornamenn, lipur örvhent skytta og
slyngur miðjumaður leika mjög upp á
það að leysa inn á línuna og miðjuna.
Leikmönnum Hauka tókst lengst af
vel upp við að loka hlaupaleiðum,
enda farið rækilega yfir sóknarleik
Sporting af myndbandi.
Og leikmenn Sporting komu ekki
uppmeð neitt nýtt að þessu sinni. Þá
tókst afar vel upp við að loka leiðum
fyrir júgóslavnesku skyttuna Vojislav
Kraljic.
Hann náði sér aldrei á strik og
skoraði aðeins eitt mark og átti fáar
sendingar sem að gagni voru.
Rúnar Sigtryggsson kom Haukum
á bragðið með marki úr gegnumbroti
eftir aðeins 30 sekúndna leik úr
fyrstu sókn leiksins. Bjarni gaf tóninn
hinum megin vallarins með því að
verja skot eftir gegnumbrot And-
orhinos.
Aliaksandr Shamkuts kom Hauk-
um í 2:0, með marki af línu eftir hálfa
fimmtu mínútu, en hann fékk send-
ingu frá Rúnari. Óskabyrjun Hauka
var ekki eins og heimamenn höfðu
vonað og voru þeir nokkurn tíma að
ná sér á strik. Kraljic skoraði fyrsta
mark Sporting við mikinn fögnuð eft-
ir 5 mínútur úr horninu eftir snoturt
samspil við félaga sína. Jöfnunarmak-
ið, 2:2, kom þegar sléttar 8 mínútur
voru liðnar. Þolinmæðis sóknarleikur
Hauka gekk þokkalega í byrjun, en
hársbreidd vantaði um tíma á að skot-
in rötuðu rétta leið í netið. Því tókst
heimamönnum að ná frumkvæðinu
um tíma, m.a. 4:2 og 5:3.
Leikmenn Hauka létu ekki slá sig
út af laginu, vitandi að þolinmæðin er
dyggð. Þeim tókst að jafna, 5:5, og
síðan fylgja leikmönnum Sporting
sem skugginn um tíma þar til 7 til 8
mínútur voru til leiksloka. Þá náðu
Hafnfirðingar að skjótast fram úr.
Bjarni markvörður fór hamförum á
þessum kafla og lét áreitni áhorfenda
ekki á sig fá, þvert á móti Bjarna óx
ásmegin frekar en hitt við mótlætið,
en hluti áhorfenda sat og stóð fyrir
aftan mark hans og sumir þeirra létu
ófriðlega. Haukar breyttu stöðunni
úr 7:7 í 10:7 sér í vil. Heimaönnum
tókst að klóra í bakkann fyrir leikhlé
en þá munaði einu marki, 10:9.
Með því að standast álagið í fyrri
hálfleik unnu leikmenn Hauka ákveð-
inn sálfræðilegan sigur sem reyndist
þungur á metum í síðari hálfleik.
Heimamenn skoruðu tvö fyrstu
mörk síðari hálfleiks, Leikmenn
Hauka virtust ekki vera alveg vakn-
aðir eftir leikhléið. Viggó Sigurðsson
þjálfari greip til þess að setja Petr
Baumruk í sóknina fyrir Rúnar um
tíma og sú breyting lánaðist vel. Eftir
tvær mislukkaðar sóknir komu sex í
röð sem allar skiluðu marki. Á meðan
gekk heimamönnum flest í mót, þeim
tókst ekki að brjóta vörn Hauka og
Bjarna markvörð á bak aftur. Haukar
voru með forystuna, 15:12, Sporting
klóraði í bakkann um stund, náði að
jafn, 16:16. Leikmenn Hauka spýttu í
lófana á ný og gáfu hvergi eftir, náðu
þeir mest þriggja marka forystu í tví-
gang, 20:17 og 21:18 þegar 3,40 mín-
útur voru eftir. Stefndi allt í sigur
Hafnfirðinga og margir stuðnings-
menn Sporting tóku það til bragðs að
tygja sig til brottfarar.
Síðustu mínúturnar reyndust leik-
mönnum Hauka erfiðar. Dómararnir
sýndu þeim minni þolinmæði en fyrr,
sóknirnar urðu því snubbóttari en
ella. Við það komust heimamenn á
bragðið og tókst að jafna þegar 35
sekúndur voru eftir.
Haukar héldu boltanum allt til
leiksloka og reyndu án árangurs að
tryggja sér sigur. Þegar 15 sekúndur
kallaði Óskar Ármannsson á sam-
herja sína; „eitt aukakast“. Hann
vann það sjálfur en tíminn var ekki
nægur til þess að það nýttist til þess
að skora sigurmarkið. Jafnteflið var
því niðurstaðan, ekki sanngjörn úrslit
því Haukarnir voru lengst af betri, en
niðurstaða sem leikmenn Hauka geta
verið stoltir af. Þeir sýndu að með
skipulögðum og örguðum leik, góðri
heimavinnu, er hægt að standa sig
með sóma á útivelli í Evrópukeppni í
spennuþrungnu andrúmslofti.
Rétt er leggja lof á allt lið Hauka
og þjálfara þess. Allir stóðu þeir sig
með sóma, hvert sem hlutverk hvers
og eins var. Með sömu skynsemi og
yfirvegun að vopni á liðið alla mögu-
leika á að komast lengra í keppninni.
Sporting liðið er samt sýnd veiði en
ekki gefin. Takist því að komast á
bragðið í leikjum og stjórna þeim er
það til alls víst. Það leikur 5+1 vörn,
þar sem fremsti maður hefur nokkuð
frjálst hlutverk og tókst á tíðum að
gera sóknarmönnum Hauka skrá-
veifu. Fyrir aftan eru þrír hávaxnir
leikmenn, allir yfir tveir metrar sem
eru alls ekki nein lömb að leika sér við
og erfitt að koma skotum yfir eða
fram hjá. Þá er markvörðurinn, Carl-
os Ferreira, vel með á nótunum.
Hann varði einkar vel í síðari hálfleik.
Landsliðsmaðurinn Luis Gomes
var ekki að þessu sinni og varð skarð
fyrir skildi. Hann meiddist gegn Ís-
landi á HM. Þar er á ferð örvhent
skytta sem er til alls líkleg og getur
gert Haukum skráveifu í síðari leikn-
um, hafi hún náð heilsu.
Ekki er hægt að skilja við leikinn
án þess að geta einstaks hóp stuðn-
ingsmanna Hauka sem fóru með lið-
inu út. Þeir voru svo sannarlega átt-
undi maðurinn í liði Hauka að þessu
sinni. Hvöttu þeir sína menn linnu-
laust frá upphafi til enda og settu
skemmtilegan svip á leikinn.
Haukar hafa
vænlega stöðu
Morgunblaðið/Lárus Karl Ingason
Óskar Ármannsson lék mjög vel sem leikstjórnandi. Hér lætur hann skot ríða af og skorar.
HAUKAR standa ágætlega að
vígi í 8 liða úrslitum EHF-
keppninnar í handknattleik eftir
jafntefli, 21:21, gegn Sporting í
fyrri leik liðanna í Lissabon á
laugardaginn. Haldi Hafnfirð-
ingar skynsamlega á spilunum í
síðari leiknum sem fram fer í
Hafnarfirði á sunnudaginn, á
liðið góða möguleika á að kom-
ast í 4 liða úrslit og verða fyrst
íslenskra félagsliða til að kom-
ast svo langt í Evrópukeppni í
handknattleik í háa herrans tíð.
Menn mega hins vegar ekki láta
þessi úrslit blinda sig því auð-
vitað geta verið í ljón í veginum
og léttleikandi leikmenn Sport-
ing mæta örugglega grimmir til
leiks á Ásvöllum.
Ívar
Benediktsson
skrifar
frá Lissabon
!
"
#
!
það tel ég okkur geta vel við unað
með úrslitin, það áttu eflaust ekki
margir von á því að okkur tækist að
vinna eða ná jafntefli áður en lagt
var af stað. Við höfðum hins vegar
trú á eigin getu og það skiptir meg-
inmáli þegar á hólminn er komið,“
sagði Einar Örn.
Einar sagði það vera mikla
reynslu að leika í þessu litla íþrótta-
húsi þar sem hávaðinn yrði hreint
óskaplegur. „Undir lokin heyrði ég
ekki nokkurn skapaðan hlut fyrir
látum. Stuðningsmenn okkar eiga
heiður skilinn fyrir frammistöðu
sína í leiknum. Í síðari hálfleik þeg-
ar Sporting lék í sókninni þeim meg-
in sem stuðningsmenn okkar sátu
mættu þeir múr Íslendinga sem
Einar Örn sagði að lagt hafi veriðupp með að leika langar sóknir
og vanda til færanna sem tekin hafi
verið og það gengið lengi framan af.
„Undir lokin var farið að dæma á
okkur töf skömmu eftir að við vor-
um komnir fram yfir miðju. Þá hefð-
um við átt að gíra okkur upp í ein-
hvern hraða, en það gekk ekki upp
og við náðum þá ekki að byggja upp
góðar sóknir. Þar með misstum við
leikinn niður í jafntefli. Þrátt fyrir
hrópaði og notaði óspart trommur.
Þessu áttu leikmenn Sporting síst
von á á eigin heimavelli.“ Einar
sagðist telja leikmenn Hauka vera
reynslunni ríkari frá leiknum við
Braga sl. haust þar sem þeir náðu
hagstæðum úrslitum á útivelli en
náðu sér ekki á strik heima og féllu
þar með úr undankeppni meistara-
deildarinnar. „Leikirnir heima við
Braga og á útivelli gegn Sandefjord
voru okkur áminning um að ekkert
er í hendi þótt vel gangi í öðrum
leiknum í keppni sem þessari. Ef við
leikum af sömu skynsemi í síðari
leiknum á sunnudaginn þá vonast ég
til að okkur takist að vinna og kom-
ast í undanúrslit,“ sagði Einar Örn
Jónsson, hornamaður Hauka.
„SEGJA má að varnarleikurinn
hafi gengið eins og lagt var upp
með. Við fengum aðeins á okkur
21 mark og það telst vera gott,“
sagði Einar Örn Jónsson,
hornamaður Hauka.
Höfum trú á eigin getu
VIGGÓ Sigurðsson, þjálfari Hauka,
segist ætla að kanna það til hlítar um
leið og heim verður komið hvort ekki
sé hægt að fá deildarleik við ÍR frest-
að, en leikurinn er áætlaður næstkom-
andi miðvikudag. Með frestuninni vill
Viggó fá aukinn tíma fyrir liðsmenn
sína til að safna kröftum og einbeita
sér að síðari leiknum í EHF-keppninni
við Sporting næsta sunnudag. „Ég
ætla að leggja þetta til svo við getum
einbeitt okkur að síðari leiknum. Það
er íslenskum handknattleik mikilvægt
að íslensk félagslið nái árangri í Evr-
ópukeppni. Því vona ég að HSÍ komi til
móts við óskir okkar um frestun á
leiknum við ÍR,“ segir Viggó.
Vill fá frestun
á leik gegn ÍR