Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 B 7 Úrslit í kvennaflokki hófst í hádeg-inu með 7 stúlkum frá þremur félögum, HSÞ, HSK og Glímufélagi Dalamanna, sem Svana Hrönn Jóns- dóttir var fulltrúi fyr- ir. Eftir margar snarpar viðureignir var ljóst að slagurinn myndi standa á milli Hildigunnar og Soffíu. Þar hafði Soffía betur með hælkrók hægri og vinstri í lok glímunnar en hún tapaði fyrir Hildigunni í tveimur fyrri lands- glímunum. „Það er aldrei að vita nema ísinn sé nú brotinn því nú var komið nóg,“ sagði Soffía eftir mótið á sunnudaginn eftir að hafa náð silfri í tveimur síðustu, stigi á eftir Hildi- gunni. „Annars var þetta mikil keppni og frekar erfitt. Við erum ekki marg- ar sem æfum saman og erum því farnar að þekkja vel hver inn á aðra.“ „Þetta var skemmtileg en erfið keppni því við getum vel unnið hver aðra og úrslit aldrei örugg enda dags- formið, sem skiptir öllu máli,“ sagði Hildigunnur úr HSÞ, nýkrýndur landsglímumeistari 2001. Hún hefur glímt frá tíu ára aldri og fer víða. „Það er mjög gaman í glímunni, annars væri ég ekki að þessu. Ferðalögin eru erfiðust svo að það þarf að skipu- leggja sig vel og það er þess virði núna,“ bætti Hildigunnur við og lyfti bikarnum brosandi á loft. Keppendur í karlaflokki voru átta og líklegt að keppnin yrði helst á milli Ingibergs og Péturs en það gat sett strik í reikninginn hjá báðum hve keppni var jöfn. Það fór líka svo að Pétur gerði eitt jafnglími áður en hann tapaði fyrir Stefáni Geirssyni úr HSK, sem tók hann með sniðglímu á lofti. Pétur vann hins vegar hinar glímur sínar og Ingibergur sínar, þar af eina á tveimur sekúndum og aðra á sjö. Baráttan um gullið stóð því á milli þeirra tveggja og þar hafði Pétur bet- ur með sjaldgæfu bragði þegar hann tók vinstri fótar leggjabragð. Glíman um bronsið vakti mikla lukku því Stefán og Lárus Kjartansson voru jafnir. Þeir þurftu því að glíma til þrautar sem tók rúmar sjö mínútur og var mikið af þeim dregið áður en yfir lauk. „Þetta var afar erfitt mót og miklu erfiðara en hin tvö því meðal annars voru fleiri glímur núna og ég orðinn þreyttur í lokin,“ sagði Pétur, sigur- vegari í landsglímunni 2001 en hann sigraði í tveimur fyrri landsmótunum svo að það dugði honum að fá fimm og hálfan vinning á sunnudaginn. „Það er alls ekki hægt að ganga að neinum úrslitum vísum því mótið var mjög jafnt. Mér hentar best að bíða eftir því að mótherjinn geri mistök og nýta mér það síðan vel.“ Glímukeppni stendur yfir í tvær mínútur og ef enn er ekki búið að leggja menn að velli, skiptast stigin á milli og kallast það jafnglími. Glíman hefst á því að menn ná taki glímubelt- inu, síðan segir yfirdómari mönnum að stíga og eftir nokkrar sekúndur, þegar honum þykir komin góð hreyf- ing á glímumenn og hvorugur í betra færi, flautar hann glím- una á. Glíma vinnst með því að kasta and- stæðingi svo að hann snerti gólf með líkama fyrir ofan hné eða neð- an olnboga auk þess að ekki má setja niður báðar hendur í gólfið samtímis. Völlurinn er frá 6 til 10 metrum á hvorn veg og dómarar eru þrír, yfirdómari og tveir meðdómarar en þó ræður meirihluti. Hildigunnur Káradóttir, HSÞ, varð landsglímumeistari Glímu- sambandsins í kvennaflokki. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjölbreytt glímubrögð FLÓRAN af glímubrögðum á þriðju og síðustu landsglímunni, sem haldið var í Hagaskóla á sunnudaginn, var fjölbreytt og margar snarpar viðureignir glöddu augað. Keppni var jöfn og hvergi mátti slaka en það kom samt ekki á óvart að Víkverjinn Ingibergur Sig- urðsson skyldi vinna í karlaflokki og Soffía Björnsdóttir úr HSÞ í kvennaflokki. Hins vegar dugði hvorugu það til að sigra í landsglím- unni, sem samanstendur af árangri síðustu þriggja móta því þar urðu Pétur Eyþórsson úr Víkverja og Hildigunnur Káradóttir úr HSÞ hlutskörpust. Stefán Stefánsson skrifar Ingibergur Sig- urðsson sigraði á lokamótinu í lands- glímu. Hér hefur hann Pétur Eyþórs- son á loft, en Pétur, sem er á myndinni hér til hliðar, varð landsglímumeist- ari karla. Vantar fínar hreyfingar „ÉG finn að ég er ekki með þessar fínu hreyfingar sem þarf þó að ég æfi alltaf einu sinni til tvisvar í viku til að halda mér við,“ sagði Ingibergur, sem keppti síðast á Íslandsglím- unni fyrir átta mánuðum en það er lengsta hlé sem hann hefur tekið sér í 14 ár. „Ég keppti eiginlega fyrir sjónvarpsstöðina BBC því þeir bjuggust við að ég myndi keppa en þar sem ég hef ekki æft nógu vel ætlaði ég ekki að taka þátt. Það kveikti hins vegar í mér að vera með og mér þykir alltaf gaman að keppa. Mér finnst að Íslendingar ættu líka að fara að hugsa um glímuna því þetta er virkilega góð íþrótt en það gæti verið að ein- hver minnimáttarkennd spili inn í.“ Í keppni með loftriffli voru aðeinstveir keppendur í þetta sinn og sigraði Íslandsmeistarinn Jónas Bjargmundsson úr Skotfélagi Kópavogs nokkuð örugglega. Meiri athygli vakti að Anton Konráðsson frá Ólafsfirði vann í keppni með loft- skammbyssu sigur á Íslandsmeistar- anum Hannesi Tómassyni. Anton náði lágmörkum Skotíþróttasam- bandsins fyrir smáþjóðaleikana þeg- ar hann fékk í undankeppninni 560 stig af 600 mögulegum en það er ná- kvæmlega lágmarkið, sem sambandið setur. Átta keppendur komust síðan í úrslit og þar fékk Anton 651,1 stig en Hannes, sem keppir fyrir Skotfélag Reykjavíkur, var ekki langt undan því hann fékk 650,5 stig og þá munar aðeins einum sentímetra í einu skoti af öllum tíu úrslitaskotunum. Í þriðja sæti varð Þorsteinn Guðjónsson úr Íþróttafélaginu Leiftri þegar hann fékk 640,4 stig. Þegar eru þrír skotmenn búnir að ná lágmörkum fyrir smáþjóðaleikana og enn eru fimm mót eftir svo að bú- ast má við að fleiri bætist í hópinn en skotmenn ætla samt aðeins að senda tvo keppendur. Ekki hefur enn verið útkljáð hvernig skotmenn ætla að fara að því velja þessa tvo. Keppni með loftriffli og loftskamm- byssu felst í því að fyrst skjóta allir 60 skotum af tíu metra færi en skífan fyrir skammbyssur er 15,5 sentímetr- ar í þvermál og eru gefin því fleiri stig, sem menn hitta nær miðju. Skíf- an fyrir riffla er öllu minni eða um 4,5 sentímetrar. Konurnar skjóta 40 skotum hver og sigraði Kristín Sig- urðardóttir úr Íþróttafélaginu Leiftri í keppni með loftskammbyssu þegar hún fékk 358 stig af 400 mögulegum. Keppnin var haldin í nýuppgerðum sal Skotfélags Reykjavíkur en þar ætla skotmenn að hreiðra um sig þar til þeir fá líklega framtíðarhúsnæði í kjallara knattspyrnuhússins, sem rís í Grafarvoginum. „Það var sætt að ýta Íslandsmeist- aranum Hannesi af stallinum og kom- inn tími til þess,“ sagði Anton. „Ég var eiginlega búinn að afskrifa að keppa þennan vetur og gekk ekki vel á fyrstu mótunum en þetta er allt koma. Nú er að halda áfram að ná þessu háu tölum og stefna á smá- þjóðaleikana en það verður að sjá til hvernig það fer,“ sagði Anton. Munaði 1cm eftir 70 skot BYSSUM var oft brugðið á loft í kjallara Laugardalshallarinnar á laugardaginn þegar annað landsmót Skotsambands Íslands með loftriffli og loftskammbyssu fór fram. Alls var hleypt af tæplega 900 skotum af þrettán keppendum, sem komu frá fjórum félögum, Skotfélagi Reykjavíkur, Skotfélagi Ólafsfjarðar, Skotfélagi Kópa- vogs og Íþróttafélaginu Leiftri, sem er að mestu skipað lög- reglumönnum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigurvegarar í keppni með loftskammbyssu á landsmóti skot- manna um helgina. Frá vinstri Hannes Tómasson, Skotfélagi Reykjavíkur, sem fékk silfur, sigurvegarinn Anton Konráðsson frá Skotfélagi Ólafsfjarðar og Þorsteinn Guðjónsson Íþrótta- félaginu Leiftra, sem fékk brons. Stefán Stefánsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.