Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 6
HANDKNATTLEIKUR
6 B ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Baumruk æsti
stuðningsmenn
NÆRRI 160 stuðningsmenn Hauka studdu ríkulega við bakið
á sínum mönnum á meðan leikurinn fór fram. Settu þeir
skemmtilegan svip á leikinn, með hrópum, trommuslætti og
glaðværð frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu. Voru þeir félagi
sínu til mikils sóma. Þátttaka þeirra í leiknum kom stuðnings-
mönnum Sporting mjög á óvart og voru þeir sem slegnir út af
laginu á stórum köflum leiksins. Þegar 11 mínútur voru eftir
af leiknum var gert stutt hlé á leiknum á meðan leikgólfið var
þurrkað áður en leikmenn Sporting tóku vítakast. Petr Baum-
ruk, leikmaður Hauka, gaf stuðningsmönnum sínum merki
um að bæta í seglin og auka stuðninginn. Var því fúslega tekið
og jókst hávaðinn frá stuðningsmönnum Hauka til muna. Um
leið og þetta gerðist lifnaði heldur betur yfir stuðnings-
mönnum Sporting sem tóku heldur betur við sér. Var hávað-
inn slíkur að nær ólíft var í húsinu og ekki heyrðist mannsins
mál fyrir hávaða.
ÞEGAR leikmenn Hauka og Sport-
ing voru einn af öðrum kynntir til
leiks með háværri tónlist, hrópum
og ljósasýningu áður en leikurinn
hófst hlupu ungir handknattleiks-
menn á aldrinum 10 til 12 ára með
hverjum leikmanni inn á völlinn.
Voru drengirnir klæddir aðal- og
varabúningum Sporting-liðsins
enda eru þeir félagsmenn í yngri
flokkum félagsins. Sporting mun
hafa haft þennan hátt á heima-
leikjum sínum í Evrópukeppninni
til þess að efla áhuga yngri kynslóð-
arinnar á leikjunum.
Ekki eins há laun
Aðgöngumiði á leik Sporting og
Hauka kostaði 1.000 eskúdos, um
390 krónur.
Er það nokkuð hærra en á heima-
leiki Sporting í deildarkeppninni.
Mörgum Íslendingum þótti miðinn
ódýr, sé tekið mið af miðaverði á
handknattleiksleiki á Íslandi. Þeg-
ar Portúgölum barst til eyrna að Ís-
lendingunum þætti miðaverðið lágt
þá sögðu þeir að ekkert væri að
marka, Íslendingar hefðu hærri
laun en þeir. Lágmarkslaun í
Portúgal eru um 28.000 krónur á
mánuði.
Ungir
strákar í
sviðs-
ljósinu
DRÍFA Skúladóttir, landsliðskona í
handknattleik, átti stjörnuleik með
Sola í norsku úrvalsdeildinni í fyrra-
dag. Drífa skoraði 5 mörk fyrir lið sitt
sem hafði betur gegn Stabæk, liði
Kristjáns Halldórssonar, 27:24. Drífa
og Þórdís Brynjólfsdóttir gengu sem
kunnugt er til liðs við Sola frá FH síð-
astliðið sumar og hafa þær lítið sem
ekkert fengið að spreyta sig. Í norska
blaðinu Rogalands Avis í síðustu viku
var haft eftir þeim að þær hyggðust
snúa heim eftir tímabilið enda súrar
að fá ekki að spila meira.
Drífa fékk svo loks tækifæri gegn
Stabæk og ekki verður annað sagt að
hún hafi nýtt tækifærið í botn.
„Ég er mjög ánægð með minn leik
og nú er bara að halda sæti sínu í lið-
inu,“ sagði Drífa í samtali við Roga-
lands Avis eftir leikinn.
Ragnheiður Stephensen og stöllur
hennar í Bryne urðu að láta í minni
pokann fyrir botnliði Selbu, 25:23.
Ragnheiður skoraði eitt af mörkum
Bryne.
Sola er í 7. sæti deildarinnar með 15
stig, Stabæk í 9. sætinu með 10 stig og
Bryne er í 10. sæti af tólf liðum með 8
stig.
Drífa lék vel með Sola
Róbert Julian Duranona var ímiklu stuði í liði Nettelstedt
sem sigraði Solingen, 34:29, í þýsku
úrvalsdeildinni í handknattleik um
helgina. Duranona, sem ekki er
ánægður í herbúðum Nettelstedt,
skoraði 9 mörk í leiknum og komu
átta þeirra með þrumuskotum utan
af velli.
Gústaf markahæstur
Gústaf Bjarnason skoraði 6 mörk
og var markahæstur í liði Minden
sem gerði jafntefli, 30:30, á útivelli
gegn Hameln.
3000 áhorfendur í íþróttahöllinni í
Essen urðu fyrir vonbrigðum með
leik sinna manna gegn Gummers-
bach því gestirnir fóru með sigur af
hólmi, 23:20. Patrekur Jóhannesson
hafði hægt um sig í liði Essen og
skoraði aðeins eitt mark.
Guðmundur Hrafnkelsson stóð í
marki Nordhorn sem tapaði á heima-
velli fyrir Sigurði Bjarnasyni og
félögum hans í Wetzlar, 27:24. Mikið
kemur til með að mæða á Guðmundi
því keppinautur hans um markvarð-
arstöðuna, Svíinn Jasper Larsson, er
kominn á sjúkralistann og verður frá
næstu vikurnar. Sigurður skoraði
þrjú af mörkum Wetzlar í leiknum.
Duranona í ham
gegn Solingen
DUNKERQUE, lið Ragnars
Óskarssonar, sigraði á laugardag
botnlið Pontault combault 22:15 í
frönsku 1. deildinni í handknatt-
leik á heimavelli. Ragnar skoraði
6 mörk í leiknum sem var afar
jafn framan af og var staðan jöfn,
9:9, í hálfleik. Í síðari hálfleik
sigu heimamenn hins vegar fram-
úr og áttu ekki í nokkrum vand-
ræðum með botnliðið.
„Við vorum kannski stressaðir
í byrjun því þetta var svona leikur
sem við áttum að vinna og það er
oft erfitt að koma sér í gang þeg-
ar svo er en svo small þetta sam-
an í síðari hálfleik,“ sagði Ragnar
Óskarsson við Morgunblaðið.
Ragnar byrjaði inni á í stöðu
leikstjórnanda eins og venjulega
en þurfti að bíða lengi eftir fyrsta
marki sínu. „Leikurinn byrjaði
ekkert alltof vel hjá mér og svo
var mér kippt aðeins útaf og ég
hafði bara gott af því. Ég fékk að
sitja aðeins á bekknum og sjá
hvað við vorum að gera vitlaust
en svo fannst mér ég koma mjög
sterkur inn og var mjög ánægður
með seinni hálfleikinn,“ sagði
Ragnar. Dunkerque heldur 8.
sæti deildarinnar með 25 stig.
Ragnar skoraði sex
Ólafur Stefánsson var marka-hæstur í liði Magdeburgar
með 7 mörk en fimm markanna
skoraði Ólafur úr vítaköstum.
Franski línumaðurinn Gueric
Kervadec skoraði 6 mörk og Rúss-
inn Oleg Kuleschow 5.
Í liði Lemgo var svissneski
landsliðsmaðurinn Marc Baum-
gartner með 8 mörk og Volke
Zerbe skoraði 5.
„Þetta er alls ekki búið. Lemgo
hitti einfaldega á slæman dag og ég
býst við mjög erfiðum leik um
næstu helgi,“ sagði Alfreð á blaða-
mannafundi eftir leikinn.
Ungverska liðið Pick Szged og
spænska liðið Bidasoa háðu harða
rimmu en það fór svo að lokum að
Ungverjarnir, sem léku á heima-
velli, fóru með eins marks sigur af
hólmi, 28:27. Í 8 liða úrslitum
meistaradeildarinnar tóku leikmenn
Evrópumeistara Kiel júgóslavneska
liðið Lovcen Cetinje í kennslustund
og unnu með 13 marka mun, 35:22.
Júgóslavneski risinn Nenad Peer-
unicic var í miklum ham og skoraði
10 mörk, Daninn Nicolaj Jacobsen
skoraði 9 og sænski landsliðsmað-
urinn Stefan Lövgren 6 mörk.
Eins og Kiel á Barcelona öruggt
sæti í undanúrslitunum en Bör-
sungar unnu Badel Zagreb frá
Króatíu á útivelli með tólf marka
mun, 29:17.
Haukabanarnir í ABC Braga
eiga erfitt verk fyrir höndum í
ljónagryfju sinni í Portúgal um
næstu helgi því liðið tapaði fyrir
Portland San Antonio, 25:16, á
Spáni.
Magdeburg
stendur
vel að vígi
MAGDEBURG stendur vel að vígi eftir fyrri viðureign sína gegn
Lemgo í 8 liða úrslitum EHF-keppninar í handknattleik, þeirri sömu
og Haukar leika í. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar sóttu Lemgo
heim og unnu þar sex marka sigur en lokatölur urðu 28:22 eftir að
staðan hafði verið 12:8 í hálfleik. Magdeburg hafði undirtökin allan
leiktímann og var sigur liðsins aldrei í hættu.
Bjarni reyndist leikmönnumSporting óþægur ljár í þúfu og
kunnu stuðningsmenn portúgalska
liðsins Bjarna litlar
þakkir. „Ég var bú-
inn að fara vel yfir
helstu leikmenn
Sporting-liðsins af
myndbandi og kom því vel undirbú-
inn til leiks. Auk þess var þetta ein-
faldlega einn af þessum dögum þar
sem allt gengur upp. Þá var vörnin
mjög góð og hjálpaði verulega uppá
hjá mér.
Nú erum við komnir með ákveðið
forskot eftir þetta jafntefli. Svo
sannarlega erum við ekki búnir að
vinna neitt ennþá, en staðan er þann-
ig að það ætti að vera gott að vinna
úr henni í síðari leiknum. Við höfum
sýnt leikmönnum Sporting að þeir fá
ekkert ókeypis hjá okkur. Þeir verða
að leggja eitthvað undir í síðari
leiknum ætli þeir að snúa taflinu sér í
hag,“ sagði Bjarni Frostason, sem að
margra mati lék einhvern sinn besta
leik á ferlinum gegn Sporting á laug-
ardaginn.
Árangur góðrar
heimavinnu
„Við erum með betra lið en Sport-
ing og áttum að vinna, en síðustu
fimm mínúturnar voru erfiðar þegar
dómararnir voru alltaf að gefa okkur
merki um töf,“ sagði Petr Baumruk,
sem fór mikinn í vörn Hauka og átti
mikilvæga spretti í sóknarleiknum.
„Vörnin hjá okkur var góð, Bjarni
markvörður stóð sig frábærlega auk
þess sem sóknarleikurinn var lengst
af í lagi, en það vantaði herslumun-
inn upp á að okkur tækist að vinna.
Niðurstaðan þessa leiks er fyrst og
fremst árangur af góðri heimavinnu.
Þótt við hefðum viljað vinna, eins og
mál stóðu, eru þetta góð úrslit sem
við eigum alla möguleika á að nýta
okkur til þess að komast áfram í
keppninni,“ sagði Baumruk.
Morgunblaðið/Lárus Karl Ingason
Petr Baumruk og samherjar fögnuðu vel eftir leikinn í Lissabon.
Allt gekk upp
„ÞAÐ rigndi yfir mig smápeningum og hráka á tímabili í fyrri hálf-
leik. Það var aðeins til þess að herða mig því mér hefur aldrei þótt
óþægilegt að hafa fólk á móti mér,“ sagði Bjarni Frostason, mark-
vörður Hauka. Hann átti stórleik gegn Sporting, varði 23 sköt, mörg
úr dauðafærum.
Eftir
Ívar
Benediktsson
Bjarni Frostason, hetja Hauka í Lissabon