Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 9

Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 9
KÖRFUKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 B 9 Ég sagði að við gætum veriðstoltir af því sem við gerðum í þessum leik. Við gerðum nánast allt sem við höfðum ætlað okkur og menn voru að leggja sig fram í þessu verkefni en það dugði ekki til sigurs í leiknum. ÍR-liðið var að gera ágætis hluti og skoruðu yfir 90 stig gegn okkur og það var ekki ætlunin að þeir fengju að skora svo mikið. Það hefur verið sagt áður að Hamarsliðið getur barist eins og ljón í 40 mínútur á meðal þeirra bestu en við erum brothættir á mörgum sviðum og þá dugar það hreinlega ekki að hafa baráttuna sem aðalvopn. ÍR hefur þrjá landsliðsmenn og við sem stendur engan. Munurinn á liðun- um liggur í að allar aðgerðir þeirra verða léttari þar sem menn hafa yf- ir að ráða öflugri vopnum í leik sín- um og þeir voru vel að sigrinum komnir,“ sagði Pétur. Er framtíðin björt hjá Hamri? „Á meðan við höfum kjarnann úr þessu liði þá er framtíðin björt. Við erum fjórir sem keyrum af höf- uðborgarsvæðinu á æfingar og það segir sig sjálft að menn eru að fórna miklum tíma í þetta verkefni. En þetta er skemmtilegt og þá eru menn ekki að spá í þessa hluti og það fer ekki að reyna alvarlega á hópinn fyrr en við förum að fá vindinn í fangið, en það hefur verið mikill meðbyr frá því að liðið komst í úrvalsdeildina,“ sagði Pétur. Daði Steinn Arnarson, liðstjóri Hamars, sat þungt hugsi í búnings- klefa Hamars eftir leikinn og rifj- aði upp gang mála. „Þetta var erf- iður leikur og auðvitað hefði maður viljað fá gullpening í stað silfurs. Við erum ekki með mjög breiðan hóp og það sást að ungir leikmenn á borð við Svavar Pálsson náðu aldrei takti við leikinn og hann lenti fljótlega í villuvandræðum. Svavar er einungis að leika sitt annað alvöru tímabil og hefur kom- ið skemmtilega á óvart en það mátti alveg búast við því að leik- urinn yrði erfiður fyrir okkar óreynda lið en þrátt fyrir það vor- um við nálægt því að ná yfirhönd- inni í 4. leikhluta. Pétur hefur lagt mikla áherslu á að yngri flokka- starfið hjá Hamri sé gott og við er- um bjartsýnir á framhaldið hjá félaginu og verðum vonandi fljót- lega komnir í úrslit bikarkeppn- innar á ný,“ sagði Daði. Reynum við bikarinn síðar „Þetta var skemmtilegur við- burður en því miður tókst okkur ekki að sigra. Það er ótrúlegt að svo margir hafi komið og stutt við bakið á okkur, en ég býst við að um sjö af hverjum tíu áhorfendum hér í dag hafi verið í okkar lit, hvítum. Ég óska ÍR til hamingju með tit- ilinn en þeir léku fyrst til úrslita árið 1971 og hafa því beðið lengi eftir þessum sigri. Við verðum því að reyna við bikarinn síðar,“ sagði Lárus Ingi Friðfinnsson, formaður Hamars. Erum stoltir PÉTUR Ingvarsson fagnaði sigri með liði Hauka árið 1996 þegar lið- ið varð bikarmeistari en að þessu sinni var minni stemmning í bún- ingsklefa Hamars en fyrir fimm árum þegar Pétur varð bikarmeist- ari. En hvað segir þjálfari við leikmenn sína þegar liðið hefur tapað úrslitaleik í bikarkeppninni? Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson hann þjálfaði liðið á gullaldarárum félagsins. „Mér fannst þetta sanngjarn sigur. Strákarnir spiluðu vel og ég tók sérstaklega eftir því að sigurviljinn hjá þeim var mikill. ÍR hefur gengið í gegnum erfiða tíma í körfuboltanum mörg undanfarin ár en ég get ekki séð betur en að fram undan séu góð ár hjá félaginu. Liðið er ungt að árum og margir bráðefnilegir strákar í því. Ég er því mjög bjartsýnn fyrir hönd félagsins,“ sagði Einar Ólafsson. ri t- ið n t- ri ka m g eldi aftur Upphafsmínútur leiksins tóku á taugar leik-manna eins og við var að búast. Það kom kuð á óvart að sjá Ásgeir Bachmann og Ólaf J. Sigurðsson í byrjunarliði ÍR og landsliðsmaðurinn Hreggviður Magnússon sat á bekknum, en Jón Örn Guðmundsson, þjálfari ÍR, lagði mikla áherslu á að va Bandaríkjamanninn Chris Dade í liði Ham- Ólafur var duglegur í vörn og hinn kviki bak- ður ÍR gaf Dade aldrei stundarfrið í leiknum. Dade reyndi mikið upp á eigin spýtur í leiknum enda eru hlutverk leik- manna Hamars ákaflega vel skil- greind. Bræðurnir Svavar og Hjalti Pálssynir eru ekki áberandi í sókn- arleik Hamars og flestar sóknir liðs- ins enduðu á skoti frá Dade eða Pétri Ingvarssyni. Skarphéðinn Ingason lék í 35 mínútur í liði Hamar og fékk úr litlu að moða, en hann skaut aðeins sjö sinnum á körfu ÍR-inga og hitti úr fjórum. Pétur og Dade tóku 80% af þriggja stiga skotum Hamars en voru aftur á móti með slaka nýtingu. Óli S. Barðdal Reynisson átti ágætis inn- komu af varamannabekk Hamars og sama má segja um þá Gunnlaug Er- lendsson og Lárus Jónsson. Gunn- laugur kveikti vonarneista í stuðning- mönnum liðsins með tveimur þriggja stiga körfum í lok leiksins en tíminn reyndist ekki nægur til að jafna leik- inn. Það verður seint sagt um Ham- arsliðið að letin hrjái leikmenn liðsins sem oftar en ekki bæta upp vankanta sína með vilja og eljusemi en að þessu sinni dugði það ekki til að landa sigr- inum. Fleiri leikmenn ÍR létu að sér kveða í sókninni en hjá Hamri og Bandaríkjamaðurinn Cedrick Holm- es var erfiður viðureignar undir körf- unni. Sigurður Þorvaldsson og Stein- ar Arason skoruðu mikilvæg stig á lokakafla leiksins og voru einu leik- menn ÍR sem vörðu skot frá andstæð- ingunum í vörninni. Eiríkur Önundarson var óvenju daufur í upphafi leiksins og skoraði ekki stig fyrr en í upphafi 2. leikhluta. Eiríkur var samt sem áður heilinn á bak við allar aðgerðir ÍR-inga í sókn- arleiknum, þar sem hann gaf 11 stoð- sendingar auk þess að skora 18 stig. Munurinn á liðunum var ekki mikill þegar upp var staðið. Í liðið Hamars voru það Pétur, Dade og Skarphéðinn sem héldu uppi sóknarleik liðsins. Dade reyndi hvað hann gat og spurn- ingin er hvort hann hefði ekki ætlað sér um of þar sem 47 af alls 107 skot- tilraunum liðsins enduðu með skot frá Dade. Svavar Pálsson náði sér ekki á strik og lent snemma í villuvandræð- um og þar með var fátt um fína drætti í sóknarleik Hamars nálægt körfunni. Nýkrýndir bikarmeistarar ÍR höfðu yfir fleiri leikmönnum að ráða sem vildu taka af skarið þegar á þurfti. Ólafur J. Steinar Arason og Sigurður Þorvaldsson léku betur en margir áttu von á og varnarleikur Ólafs gegn Dade gerði það að verkum að Bandaríkjamaðurinn þurfti að hafa mikið fyrir hlutunum. Eiríkur og Ced- rick voru öryggið uppmálað á vítalín- unni þegar Hamarsmenn reyndu allt hvað þeir gátu til að jafna og liðinu tókst í sjöttu tilraun að standa uppi sem sigurvegari í bikarúrslitaleik. Bikarsigur ÍR sjöttu tilraun SLITALEIKUR ÍR og Hamars í bikarkeppni karlaliða í körfuknattleik bauð p á ágætis tilþrif, mikla spennu og fjölmörg mistök leikmanna. Vel studdir ölmennum hóp Hvergerðinga hafði Hamar undirtökin í fyrri hálfleik og var um stigum yfir í hálfleik, 39:35. ÍR-liðinu óx ásmegin á lokakafla leiksins sterk samvinna liðsheildarinnar gerði það að verkum að ÍR-ingar gátu nað fyrsta bikarameistaratitli í sögu félagsins þremur áratugum eftir að ð lék í fyrsta sinn til úrslita í bikarkeppninni. Lokatölur leiksins urðu 91:83. rður lfsson ar Þegar Eiríkur var spurður hvortþað væri ekki mikil lyftistöng fyrir gamla stórveldið ÍR, að hampa bikarnum í fyrsta skipti – á nýrri öld, sagði hann: Þetta er alveg frábært. Það má ekki gleyma því að við erum nýkomnir upp í úrvals- deildina og í liðinu er mikið af ungum og óreyndum strákum. Við erum nokkrir eldri með en það má segja að við séum að spila saman í fyrsta skipti. Þótt ÍR hafi verið stórveldi á árum áður þá vann liðið aldrei þennan bikar svo þetta eru verulega gott fyrir félagið. Það eru allar forsendur fyrir blómlegum tíma hjá ÍR á næstu ár- um. Auðvitað er samt alltaf hætta á að missa ungu strákana í skóla til Bandaríkjanna en fyrir utan strákana sem eru í liðinu í dag eru margir strákar sem eru byrjaðir á banka á dyrnar.“ Hvað heldur þú að hafi skipt sköp- um um að þið höfðuð betur gegn Hamri? „Ég held að það hafi verið fyrst og fremst vörn okkar. Mér fannst Chris Dade gera of mikið upp á eigin spýtur og hann notaði ekki sína menn sem skyldi. Hjá okkur gekk leikurinn út á að spila þetta á fleiri mönnum en Hamarsmennirnir. Þetta eru jöfn lið en það þarf að hafa heppni með sér í svona leikjum og hún var okkar meg- in.“ Þú varst kominn með fjórar villur snemma í síðasta leikhlutanum. Þú virtist ekki slá neitt af í varnarleikn- um? „Ég var skíthræddur þegar ég lenti í rimmu við Chris Dade úti á kant- inum um að dómararnir hefðu dæmt á mig en ég get sagt Helga Bragasyni það til hróss að hann dæmdi ekki vill- una á mig því ég var ekki brotlegur. Við megum ekki fagna þesstum titli of lengi. Við erum í hörkubaráttu um að komast í úrslitakeppnina og næsti leikur sem er gegn Skallagrími er nánast úrslitaleikur um það hvort félagið fari í úrslitin.“ Virkar sem vítamínsprauta „Mér fannst þetta vera jafnt og skemmtilegur leikur og svona ekta bikarúrslitaleikur með hraða, spennu og mistökum. Hamarsmennirnir gáf- ust aldrei upp og tvær þriggja stiga körfur frá þeim undir lokin hleyptu mikilli spennu í leikinn. ÍR-ingar héldu haus og unnu að mínu mati sanngjarnan sigur,“ sagði landsliðs- maðurinn Herbert Arnarsson, leik- maður Vals, og fyrrverandi liðsmaður ÍR, við Morgunblaðið eftir leikinn. „Ég neita því ekki að ég hélt með ÍR. Ég er alinn upp hjá þessu félagi og flestir þessara stráka í liðinu eru vinir mínir. ÍR-liðið er mjög skemmti- legt og það hefur verið gaman að sjá hvernig ungu strákunum hefur verið hent út í djúpu laugina á tímabilinu. Þetta er fyrsti titill ÍR síðan 1977 þannig að þessi titill er mjög kærkom- inn fyrir félagið og virkar örugglega sem vítamínsprauta á allt starfið.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg fornfræga félag hafði beðið eftir í 30 ár. Eiríkur Önundarson, Hreggviður Magnússon, Sigurður Þorvalds- meðan þeir biðu eftir að fá að handleika verðlaunagripinn eftirsótta. Borgar fyrir allt puðið „MENN eru að spila körfubolta til þess að komast í svona leiki og til að vinna svona titla og þetta er því ólýsanleg tilfinning og borgar fyrir allt puðið sem maður leggur á sig,“ sagði Eirík- ur Önundarson, leikstjórnandi ÍR-inga, við Morgunblaðið skömmu eftir að hann og félag- ar hans höfðu haldið á bikarnum í fyrsta sinn. Guðmundur Hilmarsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.