Morgunblaðið - 27.02.2001, Qupperneq 11
KÖRFUKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 B 11
Try
gg
ðu
þé
r á
sk
rif
t s
tra
x
Beinar
útsendingar
í vikunni
England - Spánn
Landsleikur í knattspyrnu
ÍR - Skallagrímur
Epson-deildin
Leeds - Man. United
Enski boltinn
Real Madrid - Barcelona
Spænski boltinn
Evander Holyfield
- Johnny Ruiz
Hnefaleikar
Ítalski boltinn
Ipswich Town - Bradford
Enski boltinn
Toronto Raptors
- New York Knicks
NBA
miðv.
fim.
lau.
lau.
lau.
sun.
sun.
sun.
Tryggðu þér áskrift á netinu
HEIÐURSGESTIR á bikarleik
kvenna í Laugardalshöll á laugar-
daginn voru Halldór Kjartansson
forstjóri Kj. Kjartanssonar, Skúli
Skúlason, forseti bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar, og Steinunn V.
Óskarsdóttir, formaður Íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur. Þeim
fylgdu Sveinn Jónsson, formaður
KR, og Hrannar Hólm, formaður
körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.
PÉTUR HRAFN Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Körfuknattleiks-
sambandsins, hafði í nógu að snúast
á laugardaginn. Það voru ekki bara
tveir bikarúrslitaleikir á dagskrá,
heldur hélt Körfuknattleikssam-
bandið upp á fertugsafmæli sitt með
veislu og út kom vegleg bók eftir
Skapta Hallgrímsson um sögu
körfubolta á Íslandi. Það var ekki allt
því Pétur Hrafn átti fertugsafmæli á
laugardaginn og hélt uppá það um
kvöldið en honum til heiðurs sungu
leikmenn beggja liða saman að leik
loknum afmælissöng fyrir hann.
TVÆR stúlkur, hvor úr sínu
kvennaliðinu, voru samkvæmt
reglum teknir í lyfjapróf eftir úr-
slitaleikinn. Starfsmenn ÍSÍ skrifuðu
þá niður nöfn allra leikmanna og
voru miðarnir allir settir í pott, sem
liðstjóri hvors liðs dró eitt nafn úr.
Hjá Keflavík var nafn Birnu Val-
garðsdóttur dregið og hjá KR nafn
fyrirliðans Kristínar B. Jónsdóttur.
TÍU ungar og sprækar klappstýr-
ur úr Keflavík sýndu við góðar und-
irtektir listir sínar undir drynjandi
tónlist í leikhléi í kvennaleiknum.
FÓLK
Við höfum lent í því áður að veralangt undir en samt unnið. Ég
hélt að við hefðum karakter til að
klára þessa leiki en
KR er greinilega
með of sterkt lið til
að hleypa þeim
svona langt frá sér.
Það var örvænting hjá okkur þeg-
ar við lentum undir. Við vorum
alltaf að elta og náðum ekki eðli-
legu flæði í leikinn. Sumir af okkar
bestu leikmönnum komust aldrei í
takt við leikinn, við náðum ekki að
virkja Birnu og Brooke fór á köfl-
um að reyna of mikið. Þessi nýi
leikmaður þeirra kann greinilega
eitthvað fyrir sér í körfubolta en
ég sagði við mínar stelpur fyrir
leikinn að ef ég væri þjálfari KR
þá myndi ég reyna að nota fjar-
veru Hönnu Kjartansdóttur til að
þjappa liðinu betur saman.“
„Ég er mjög ósátt við mig í dag.
Ég var drulluléleg. Það var alveg
sama hvað ég reyndi, það gekk
ekkert upp. Ég fékk ekki boltann í
fyrstu sóknunum og ef til vill hef-
ur það haft áhrif á mig þannig að
ég náði ekki að rífa mig upp. Við
eltum KR-ingana allan leikinn og
það er ekki snjallt á móti jafn
sterku liði og KR-ingarnir hafa,“
sagði Birna Valgarðsdóttir, leik-
maður Keflavíkur.
Vantaði herslumuninn
„Það kemur leikur eftir þennan
leik og þrátt fyrir að við höfum
tapað hér í dag þá verðum við að
halda áfram og treysta því að það
komi betri dagar. Það vantaði
nokkrum sinnum herslumuninn á
því að okkur tækist að snúa leikn-
um okkur í hag. Þetta eru tvö
mjög jöfn lið og það breytti engu
fyrir okkur að þær væru með nýj-
an leikmann og að það vantaði
Hönnu Kjartansdóttur. Þetta datt
bara þeirra megin í dag,“ sagði
Erla Þorsteinsdóttir, leikmaður
Keflvíkinga, vonsvikin eftir leik-
inn.“
„ÉG er mjög óánægður, en við getum engum nema okkur sjálfum
um kennt. Sökin liggur hjá mér og stelpunum. Við komum greini-
lega ekki nægilega undirbúin í þennan leik og höfum ekki unnið
heimavinnuna okkar nógu vel. Ég tek þá sök á mig og verð að hrósa
Henning og hans stelpum. Þar skein sjálfstraustið úr hverju andliti
og þær voru bara sterkari en við í dag,“ sagði Kristinn Óskarsson,
þjálfari Keflvíkinga.
Eftir
Ingibjörgu
Hinriksdóttur
Verð að hrósa Henning
IEPER, liðið sem Helgi Jónas
Guðfinnsson leikur með í
belgísku úrvalsdeildinni í
körfuknattleik, sigraði Brüss-
el 73:63 á laugardag. Helgi
lék í um 25 mínútur í leiknum
og skoraði 9 stig og náði að
auki fjórum sinnum að stela
boltanum af andstæðingum
sínum.
„Ég var nokkuð sáttur við
mína frammistöðu. Ég hefði
kannski mátt skjóta meira en
ég tók bara fjögur skot,“
sagði Helgi en Ieper er nú í 4.
sæti deildarinnar eftir þriðja
sigurleik sinn í röð. Liðið
heldur svo til Ítalíu á miðviku-
dag þar sem það mætir Telit
Pall.Trieste í 8 liða úrslitum
Korac-keppninnar í Evrópu.
Enn sigur
hjá Ieper
KR-ingar komu til þessa úrslita-leiks með nokkuð breytt lið. Til
liðsins var kominn erlendur leikmað-
ur, Heather Corby,
en mikið skarð var
hoggið í lið KR-ingar
þegar ljóst varð að
Hanna Kjartans-
dóttir, stigahæsti leikmaður KR í
vetur, gæti ekki verið með vegna
veikinda. En KR-ingar létu fjarveru
Hönnu ekki á sig fá heldur þjöppuðu
sér vel saman og byrjuðu leikinn af
miklum krafti. Þær skoruðu fyrstu
tvær körfur leiksins og náðu forystu
sem þær létu aldrei af hendi. Kristín
Jónsdóttir og Heather Corby byrj-
uðu leikinn af miklum krafti og skor-
uðu 17 af 19 stigum sem KR skoraði í
fyrsta leikhluta. Brooke Swartz hélt
Keflvíkingum inn í leiknum og skor-
aði 10 af 12 stigum Keflavíkur í
fyrsta leikhluta.
KR-ingar náðu fljótlega 11 stiga
forskoti í öðrum leikhluta og þrátt
fyrir að Keflvíkingar næðu að
minnka muninn í 7 stig þá var aldrei
nægilegur vilji og kraftur í Keflvík-
ingum til að brjóta góðan leik KR-
ingar á bak aftur, en KR leiddi með
10 stigum í leikhléi 35:25.
Kristinn Óskarsson, þjálfari Kefl-
víkinga, hefur örugglega haldið góða
ræðu yfir sínum stúlkum í leikhléinu
því á fyrstu mínútum þriðja leik-
hluta minnkuðu þær muninn í 5 stig.
En þá hrukku KR-ingar í gang,
skoruðu 11 stig í röð og lögðu grunn-
inn að bikarmeistaratitlinum.
Heather Corby kom mjög sterk til
leiks og í raun ótrúlegt að leikmaður
geti með jafn skömmum fyrirvara
fallið jafn vel inn í lið eins og hún
gerði í KR-liðinu á laugardag. Styrk-
ur hennar er á öllum sviðum, hún lék
í fullar 40 mínútur, hún skoraði 35
stig, hirti 17 fráköst og átti 5 stoð-
sendingar. Sannarlega frábær leik-
maður sem á örugglega eftir að falla
enn betur inn í leik KR, sem verður
með óárennilegt lið þegar Hanna
Kjartansdóttir verður búin að jafna
sig af veikindunum. Kristín Jóns-
dóttir átti sömuleiðis góðan leik, eins
og raunar KR-liðið allt, og þar virð-
ist hvergi veikan blett vera að finna.
Keflvíkinga skorti trúna og and-
ann til að eiga möguleika á sigri. Þar
munaði einnig mestu að Birna Val-
garðsdóttir komst aldrei í takt við
leikinn, skoraði ekki stig og þurfti að
fara af leikvelli með fimm villur þeg-
ar fjórði leikhluti var nýbyrjaður.
Kristín Blöndal fann sig ekki vel og
skoraði aðeins 4 stig. Enda var skot-
nýting Keflvíkinga í heildina mjög
slök eða tæplega 30% og Swartz,
sem var langbest í Keflavíkurliðinu,
skoraði rúmlega helming stiga
þeirra, 30 af 52.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KR-ingar sterkari
á öllum sviðum
KR-ingar fögnuðu bikarmeistaratitlinum í körfuknattleik kvenna á
laugardag, þegar KR-stúlkur mættu stöllum sínum úr Keflavík í
Laugardalshöll. Þessi tvö lið hafa marga hildi háð í gegnum tíðina
og líkt og búist hafði verið við var mikil barátta í leiknum allt frá
upphafi. En KR-ingar voru sterkari á öllum sviðum leiksins og unnu
sanngjarnan sigur, 76:58.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
HANNA B. Kjartansdóttir, sem
leikið hefur stórt hlutverk með KR í
körfuknattleik og skorað flest stig
liðsins í vetur, var fjarri góðu
gamni á laugardaginn þegar félag-
ar hennar bitust við Keflvíkinga um
bikarmeistaratitilinn. Hún lá heima
með flensu en eftir sigurinn skund-
uðu félagar í heimsókn til að færa
henni verðlaunapening og bikar.
Fóru með
bikarinn
til Hönnu