Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 13
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 B 13
FÓLK
LÁRUS Orri Sigurðsson lék all-
an tímann í vörn WBA sem sigraði
Portsmouth, 2:0, í 1. deildinni.
Þetta er í fyrsta skipti á leiktíðinni
sem Lárus Orri er í byrjunarlið-
inu, en hann gekkst undir erfiðan
uppskurð á sl. keppnistímabili.
BJARKI Gunnlaugsson var í
byrjunarliði Preston sem hafði
betur gegn Sheffield Wednesday,
2:0. Bjarki átti þátt í öðru marki
Preston en var svo skipt útaf á 54.
mínútu leiksins.
HEIÐAR Helguson var skipt út-
af í leikhléi þegar Watford gerði
2:2 jafntefli gegn Stockport.
ÍVAR Ingimarsson og Ólafur
Gottskálksson léku báðir allan
leikinn fyrir Brentford sem sigraði
Notts County, 3:1, í 2. deildinni.
Brentford er í 10. sæti deildarinn-
ar og á enn möguleika á að komast
í úrslitakeppnina um laust sæti í 1.
deildinni.
BJARNÓLFUR Lárusson lék
allan leikinn fyrir Scunthorpe
gegn Southend í 2. deildinni en lið-
in skildu jöfn, 1:1. Scunthorpe er í
15. sæti deildarinnar.
SEXTÁN ár eru liðin síðan
Arsenal fékk síðast á sig sex mörk
í leik, eða síðan 1985 – þá tapaði
Arsenal fyrir Everton á Goodison
Park, 6:1.
STEVE McManaman leikmaður
Real Madrid og Kieron Dyer hjá
Newcastle hafa dregið sig út úr
enska landsliðshópnum fyrir leik-
inn gegn Spánverjum á miðviku-
daginn vegna meiðsla. Þá haltraði
Ray Parlour, miðjumaður Arsen-
al, af velli gegn Manchester Unit-
ed og hann verður því ekki með
gegn Spánverjum.
FABIO Capello þjálfari Roma
hefur látið hafa eftir sér að hann
hafi mikinn áhuga á að taka við
stjórn Manchester United. Capello
segist vera mjög hrifinn af ensku
knattspyrnunni og líki vel and-
rúmsloftið sem þar ríkir.
HELGI Sigurðsson kom ekkert
við sögu hjá Panathinaikos sem
sigraði Paniliakos, 3:0, í grísku 1.
deildinni.
ÞÓRÐUR Guðjónsson var ekki í
leikmannahópi Las Palmas sem
tapaði fyrir Malaga, 2:1, í spænsku
1. deildinni um helgina. Ástæðan
var að hann var á Englandi, að
ræða við menn hjá Derby.
JÓHANNES Karl Guðjónsson
lék allan leikinn fyrir Waalwijk
sem sigraði Fortuna, 1:0, í hol-
lensku 1. deildinni. Jóhannes og
félagar hans hafa komið á óvart á
leiktíðinni en liðið er í sjötta sæti.
TONY Adams, fyrirliði Arsenal,
gat ekki leikið með liðinu gegn
Man. Utd. vegna meiðsla á baki.
Adams, sem er 34 ára, skrifaði
undir nýjan eins árs samning við
Arsenal á laugardag. Hann hefur
verið í átján ár hjá félaginu, fimm-
tán ár sem fyrirliði.
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, var ánægður með
hinn nýja samning Adams og von-
ar hann að David Seaman og Lee
Dixson, sem eru 37 ára, skrifi
einnig undir nýja samninga.
EMMANUEL Petit, miðvallar-
leikmaður hjá Barcelona, er ekki
ánægður með dvölina á Spáni, þar
sem hann á ekki fast sæti í liði
Barcelona. Orðrómur hefur verið
uppi um að hann vilji á ný fara til
Arsenal. Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, sló á þann
orðróm um helgina, er hann sagði.
„Petit er einn af bestu miðvall-
arleikmönnum heims. Þar sem við
höfum fengið Edu, getum við ekki
bætt fleiri miðvallarspilurum í lið
okkar.“
GRAHAM Rix tók við starfi
knattspyrnustjóra Portsmouth á
föstudaginn, eða sólarhring áður
en liðið mætti WBA. Rix, sem
gerði þriggja og hálfs árs samning,
varð að játa sig sigraðan – lið hans
tapaði fyrir WBA, 2:0.
Roy Keane, fyrirliði United,gagnrýndi félaga sína harka-
lega í blaðagrein í liðinni viku og
sagði þar meðal annars að liðið hefði
verið að leika langt undir getu að
undanförnu og sérstaklega skaut
Keane föstum skotum að sóknar-
mönnum liðsins. Vafalaust hefur
þessi gagnrýni fyrirliðans hrist upp í
leikmönnum United því liðið lék án
efa einn sinn besta leik í háa herrans
tíð.
Yorke með þrjú
á 20 mínútum
Liðsmenn United settu á svið því-
líka skrautsýningu í fyrri hálfleik og
leikmenn Arsenal vissu vart á sig
veðrið stóð en fyrir leikinn höfðu
þeir haft gott tak á meisturunum á
Old Trafford og ekki tapað þar í fjór-
um síðustu leikjum.
Dwight Yorke fékk tækifæri í liði
meistaranna að nýju og nýtti tæki-
færið í botn. Yorke skoraði þrjú
fyrstu mörkin fyrir sína menn á
fyrstu 20 mínútum leiksins og lagði
svo upp fjórða markið fyrir Roy
Keane. Ole Gunnar Solskjær og
varamaðurinn Teddy Sheringham
skoruðu svo tvö síðustu mörkin.
Eina mark Arsenal skoraði Thierry
Henry og hann jafnaði reyndar met-
in á 16. mínútu leiksins og var það í
eina skiptið sem leikmenn Arsenal
gátu brosað.
Ekki búið segir Ferguson
„Ég vill ekki gera mig að fífli með
því að segja að titillinn sé í höfn hjá
okkur. Úrslitin þýða að Arsenal get-
ur ekki náð okkur en önnur lið geta
það og við eigum eftir að mæta Liv-
erpool og Leeds á útivelli. Þetta
voru hreint ótrúleg úrslit enda hafa
leikir á milli þessara liða jafnan ver-
ið mjög tvísýnir. Ég er sérlega glað-
ur fyrir hönd Yorkes. Tímabilið hef-
ur ekki verið eins og hann óskaði sér
en bæði hafa meiðsli og leikir hans
fyrir sína þjóð orðið til þess að hann
hefur þurft að vera mikið utan liðs-
ins,“ sagði Ferguson.
Kollegi hans hjá Arsenal, Arsene
Wenger, var ekki að vanda sínum
mönnum kveðjurnar eftir leikinn.
„Varnarleikur okkar var bara
hreinn brandari. Við vorum að gefa
leikmönnum United allt of mikinn
tíma inni á vellinum og það fór
hreinlega allt á versta veg fyrir okk-
ur. Það er ekki komið fram í mars og
United hefur þegar klárað þetta,“
sagði Wenger en lið hans saknaði
greinilega varnartankanna Tony
Adams og Martin Keown sem eru
meiddir.
Loks lá Tottenham heima
Leeds fylgdi eftir glæsilegum
sigri gegn Anderlecht í meistara-
deildinni í síðustu viku með því að
verða fyrsta liðið til að leggja Tott-
enham að velli á White Hard Lane á
þessari leiktíð. Eftir að Les Ferdin-
and hafði náð forystunni fyrir
heimamenn tryggðu Ian Harte og
Lee Bowyer Leeds sigurinn. Þetta
var fyrsti ósigur Tottenham í 10
leikjum og Leeds hefur ekki tapað
síðustu sjö leikjum sínum.
„Þetta var frábær vika. Fyrst sig-
ur gegn Anderlecht og svo sannfær-
andi sigur gegn Tottenham. Liðið
lék vel og við áttum að skora fleiri
mörk. Þetta var mjög þýðingarmikill
sigur enda viljum við reyna að kom-
ast í meistaradeildina,“ sagði David
O’Leary, stjóri Leeds, eftir leikinn.
Ipswich gerði út um leikinn gegn
Everton á síðustu 8 mínútum leiks-
ins. Eftir að Alex Nyarko, leikmanni
Everton, var vikið af velli á 70. mín-
útu færðu liðsmenn Ipswich sig upp
á skaftið. Fyrliðinn Matt Holland
braut ísinn á 82. mínútu og tveimur
mínútum síðar bætti Alun Arm-
strong við öðru marki. Hermann
Hreiðarsson lék ekki með Ipswich
vegna meiðsla en þetta var fyrsti
sigur Ipswich í sex leikjum.
Langþráður sigur hjá City
Manchester City vann sinn fyrsta
deildarsigur síðan 9. desember þeg-
ar liðið lagði Newcastle á útivelli,
1:0. Stigin voru mjög mikilvæg fyrir
City sem berst fyrir lífi sínu í deild-
inni. Sigurmark skoraði Shaun
Goeter eftir góðan undirbúning
Kanchelkis.
„Ég held að við björgum okkur frá
falli enda tel ég að liðið sé allt of gott
til að falla. Sigurinn var afar mik-
ilvægur og frábært að vinna á þess-
um velli sem City hefur ekki unnið á
í 33 ár,“ sagði Joe Royle, stjóri City.
Eitthvað virðist Middlesbrough
vera að missa flugið og tap á heima-
velli gegn Southampton kom í kjöl-
far ósigurs gegn Wimbledon í bik-
arkeppninni. Mark Draper skoraði
eina mark leiksins á 49. mínútu og
frammistaða Southampton á leiktíð-
inni hefur komið mönnum mjög á
óvart. Terry Venables var að vonum
óhress með ósigurinn enda mátti lið-
ið alls ekki við þessum úrslitum.
„Auðvitað setur þessi ósigur meiri
pressa á okkur og ég hef sagt það
áður að það geti farið svo að staða
okkar í deildinni verði ekki trygg
fyrr en í síðasta leik,“ sagði Ven-
ables.
Bradford nánast fallið
Frank Lambard hélt upp á sæti í
enska landsliðinu með því að skora
bæði mörk West Ham í 2:1 sigri á
Bradford. Ósigurinn þýðir að Brad-
ford en komið með annan fótinn nið-
ur í 1. deild.
Arnar Gunnlaugsson fékk að
spreyta sig síðustu þrjár mínúturn-
ar í liði Leicester sem sigraði Sund-
erland, 2:0. Dean Sturridge og Ade
Akinbyi skoruðu mörkin. Sunder-
land lék manni færri í 35. mínútur
eftir að John Oster fékk reisupass-
ann fyrir tvær ljótar tæklingar á
mótherjum sínum. Sunderland hef-
ur heldur betur misst flugið í und-
anförnnum leikjum og þrjú stig eru
uppskera liðsins í síðustu sex leikj-
um.
„Við erum enn í fjórða sætinu en
við verðum það ekki mikið lengur
með svona spilamennsku. Ég er
mjög óhress með brottreksturinn og
það var nógu erfitt að leika 11 á móti
11,“ sagði Peter Reid, knattspyrnu-
stjóri Sunderland.
Reuters
Leikmenn Arsenal
voru kjöldregnir
MANCHESTER United á sigurinn vísan í ensku úrvalsdeildinni eftir
glæsilegan 6:1 sigur gegn Arsenal á Old Trafford á sunnudag. Með
sigrinum náðu „rauðu djöflarnir“ 16 stiga forskoti í deildinni og
ekkert nema kraftaverk getur komið í veg fyrir að titillinn verði um
kyrrt á Old Trafford þriðja árið í röð. Engu liði hefur tekist að vinna
úrvalsdeildina, frá því hún var sett á laggirnar, þrjú tímabil í röð og
sjöundi meistaratitill Manchester United á síðustu 9 árum er innan
seilingar.
Dwight Yorke fór á kostum á Old Trafford og skoraði þrjú mörk gegn Arsenal. Hér á hann í höggi við Igor Stepanovs, miðvörð Arsenal.