Alþýðublaðið - 24.11.1972, Síða 3
ALÞÝÐUSAMBANDSÞING
OG EFNAHAGSMÁLIN
SIMSKEYTAREGN
MEÐ SAMÞYKKTUM
UM 50 MÍLURNAR
OG ALLAR
HLIÐHOLL-
AR OKKUR
,,Ráð ungra Grænlendinga,
sem búsettir eru i Kaupmanna-
höfn, lýsir hér með yfir fullum
stuðningi við fyrri gerðir rikis-
stjórnarinnar i baráttunni fyrir
varðveizlu fiskimiðanna við Is-
land með útfærslulandhelginnar i
50 sjómilur. Við ráðleggjum yður
eindregið að slaka ekki á kröfum
yðar i viðskiptunum við Stóra-
Bretland”, segir i simskeyti frá
samtökum Grænlendinga i Kaup-
mannahöfn, sem islenzku rikis-
stjórninni barst i gær.
Rikisstjórninni bárust i gær alls
fimm simskeyti frá ýmsum sam-
tökum á Norðurlöndunum, og i
öllum var lýst yfir eindregnum
stuðningi við tsland i Landhelgis-
málinu.
Hin skeytin voru frá Félagi is-
lenzkra námsmanna i Þránd-'
heimi, Stúdentaþinginu i Osló,
norska stúdentasambandinu og
sænsku stuðningsnefndinni við ts-
land.
i skeyti islenzku námsmann-
anna i Þrándheimi er eindregið
skorað á rikisstjórnina að sýna
enga eftirgjöf i komandi samn-
ingum og standa fast á rétti sin-
um i landhelgisdeilunni þar sem
þetta mál sé ekki eingöngu nauð-
synlegt okkar vegna heldur geti
það haft afdrifarikar afleiðingar
fyrir hvert það strandriki, sem
verja þurfi þennan rétt sinn gagn-
vart ágangi stórþjóða.
Stúdentaþingið i Osló lýsir yfir
skilningi sinum á þvi hversu
mikla þýðingu 50 milna mörkin
hafa fyrir yfirráðarétt okkar yfir
fiskimiðunum, sem stórþjóðirnar
ógna með stjórnmálalegum og
efnahagslegum þrýstingi.
Þá segist sænska stuðnings-
nefndin vona, að hin nýja sænska
stjórn láti ekki þvingast til sam-
stöðu með stórveldis heimsvalda-
sinnunum.
Þá er þess að geta að Alþýðu-
blaðinu barst i gær samþykkt
fundar námshópastjóra Norræna
sumarháskólans þar sem lýst er
fullum stuðningi við aðgerðir ts-
lendinga i landhelgismálinu.
DEILT UM LANDIÐ
Hver á tsland? Fámenn stétt
landeigenda, eða þjóðinöll? Þetta
er ein af þeim spurningum, sem
ræddar verða á almennum fundi,
sem Alþýðuflokksfélag Reykja-
vikur efnir til n.k. miðvikudags-
kvöld kl. 9 e.h. i Sigtúni, en frum-
mælendur á fundinum verða þeir
Bragi Sigurjónsson, alþingis-
maðurog Eyjólfur Konráð Jóns-
son, ritstjóri.
Eins og kunnugt er hafa þing-
menn Alþýðuflokksins lagt fram
á Alþingi þingsályktunartillögu
um þjóðareign á landi og land-
gæðum. Tillaga þessi hefur vakið
mikla athygli og mikið umtal og
eru skoðanir um hana mjög
skiptar. Það er einmitt annar
frummælandinn og Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson, ritsjóti, hefur skrif-
að i blað sitt mjög á móti þessum
hugmyndum. Má þvi búast við
skemmtilegum kappræðum
þeirra á milli.
Eins og áður segir er fundur
þessi opinn öllum og verður orðið
gefið laust að loknum ræðum
frummælenda. Fundarheitið er:
Lönd og landgæði — i hverra
eigu? , og hefst fundurinn sem
fyrr segir kl. 9 e.h. næstkomandi
miðvikudagskvöld og verður i
Sigtúni við Austurvöll.
NÝTT
FROTTE
SLOPPAR
MEÐ HETTU.
Stuttir kr. 2240,-
Síðir kr. 2580.-
MARGIR LITIR.
PÓSTSENDUAA
□lympla^
Laugavegi 26 - Sími 15186
Óvissan i efnahagsmálum og leynd rikisstjórnarinnar yfir væntanlegum
aðgerðum sinum i þeim efnum hefur mjög sett svip sinn á yfirstandandi
þing Alþýðusambands íslands.
Alþýðublaðið ræddi i gær við nokkra fulltrúa á ASÍ þingi um afgreiðslu
þess á ályktun um kjara- og atvinnumál, en i þeirri ályktun mun afstaða
verkalýðshreyfingarinnar til væntanlegra efnahagsaðgerða birtast.
Álit fulltrúanna kemur fram hér að neðan:
Pétur Sigurðsson, varafor-
maður Sjómannafélags Reykja-
víkur:
,,Ég hafði búizt við þvi að fá
að heyra, áður en ASt þingið
hófst, hvað rikisstjórnin ætlaði
að gera i efnahagsmálunum.
Bf þær tillögur, sem i bigerð
eru til lausnar efnahagsvandan-
um, eru þess eðlis, að þær muni
skerða umsamin heildarkjör, þá
ættum við að fá tækifæri til þess
að fjalla um þær i sjálfum
verkalýðsfélögunum, en lengja
ASI þingið, þannig að það gæti
tekið málefnalega afstöðu i at-
vinnu- og kjaramálum”.
Bjarni Sigfússon, varafor-
maður Rafiðnaðarsambands is-
lands:
,,Það er að sjálfsögðu óviðun-
andi, að rikisstjórnin skuli ekki
hafa tekið ákvarðanir um að-
gerðir i efnahagsmálunum,
áður en þetta þing kom saman,
þannig að þingfulltrúar gætu
stuðzt við einhverjar raunveru-
legar ákvarðanir, er þeir fjalla
um kjara- og atvinnumálin.
Ég geri ráð fyrir, að allir á
ASt þinginu geti verið sammála
um það, að 2.000 — 3.000 milljón-
ir, sem sagt er að vanti til þess
að halda þjóðarbúinu gangandi,
verði alls ekki sóttar i vasa
þeirra sem mynda aðildarfélög
Alþýðusambands tslands.
Það er nánast kjaftshögg
framan i launafólk og þing
Alþýðusambands tslands, að
rikisstjórnin skuli ekki tilbúin til
að gera grein fyrir áformum
sinum, þar sem þau verða að
öllum likindum kunngerö
nokkrum dögum eftir að við
verðum farin heim af þinginu.
Þar sem engar likur eru á að
við fáum hér á þinginu nokkrar
upplýsingar um eðli þeirra
efnahagsaðgerða, sem fram-
undan eru, er fráleitt annað en
þingið komi sér saman um það,
hvernig fjallað verði um þessar
aðgerðir, þegar þar að kemur”.
Jón Karlsson, formaður
Verkamannafélagsins Fram á
Sauðárkróki:
„Auðvitað er ekki búið að af-
greiða ályktun um kjara- og at-
vinnumálin. En hvernig svo
sem hún kemur til með að verða
afgreidd,er það skoðun min, að
þingið verði að taka alveg
ákveðna afstöðu i þeim málum
og á þann veg,að væntanlegar
efnahagsráðstafanir haggi i
engu gildandi kjarasamningum.
Ef rikisstjórn og Alþingi telja
á þvi nauðsyn, að þessar
væntanlegu ráðstafanir gripi
inn á þetta svið, þá hlýtur það að
gerast algerlega á ábyrgð þess-
ara aðila, en ekki á ábyrgð
verkalýðssamtakanna.
Verði aðgerðirnar á þann veg,
að þær haggi i einhverju um-
sömdum kjörum, er fráleitt
annað en verkalýðssamtökin
mótmæli harðlega eins og þau
hafa reyndar ætið gert, þegar
rikisvaldið hefur gripið inn á
svið atvinnu- og kjaramála.
Yfir slikar aðgerðir getur
verkalýðshreyfingin aldrei lagt
blessun sina, hver svo sem
rikisstjórnin er, sem i hlut á”.
Karl Slcinar Guðnason, for-
maður Verkalýðs- og sjómanna-
fclags Keflavíkur:
,,Ég tel fráleitt, að kjör lág-
launafólks eða miðlungstekju-
fólks verði skert. Fremur þurfa
kjör þessa fólks að batna veru-
lega frá þvi sem nú er.
Fyrir þinginu liggja ógrynni
skýrslna og talna um ástand
þjóðarbúsins og er það málað
dökkum litum. Hins vegar eru
fulltrúar tortryggnir á, að for-
sendur allra þessara talna séu
réttar.
Við teljum mjög bagalegt, ef
við eigum að fara burt af þessu
þingi án þess að vita, hvað i
vændum er. En allt bendir til
þess,aðöllum ráðum verði beitt
til að leyna okkur fulltrúa á ASt
þingi áformum rikisstjórnar-
innar I efnahagsmálum.
Ég er þeirrar skoðunar, að
annað hvort verði að fresta ASÍ
þinginu eða kalla saman stóra
ráðstefnu, sem fjalli um aðgerð-
ir af hálfu verkalýðssamtak-
anna, þegar þar að kemur.
VOPNAFJORÐUR: DAUFLEGT I
SVIPINN EN MENN RJARTSÝNIR
Á Vopnafirði er mannlifið
frekar dauft núna, en þó sjá menn
fram á betri tima, og undir-
búningur undir komu þeirra er
kominn i gang. Þeir eiga von á
skuttogara i janúar, og til þess að
vera tilbúnir komu hans er hafin
bygging á frystihúsi, en það
gamla hefði að likindum ekki
annað væntanlegum afla togar-
ans. Fólk flyzt nokkuð úr sveitinni
i þorpið, og þetta fólk hefur staöið
i byggingaframkvæmdum, og er
ekki annað að sjá en það sé bjart-
sýnt.
Litið sem ekkert hefur verið að
gera við fiskvinnslu i haust, sagði
Magnús Guðmundsson, gjaldkeri
hjá Kaupfélaginu, er Alþýðublað-
ið ræddi við hann i gær. Það hefur
ekki gefið á sjó um langa hrið,
enda engir bátar lengur á staðn-
um nema sinábátar — báturinn
Brettingur var seldur i sumar.
Að sögn Magnúsar hefur verið
mikil fannkoma undanfarið og
allir vegir ófærir. En i gær var
hiti nálægt frostmarki og spáð
hláku og vegir orðnir viðast færir
aftur.
Vopnfirðingar hafa ekki þurft
að þola læknisleysi undanfarin ár,
enda læknisaðstaða viðunandi.
En þeir ætla ekki að hætta á neitt,
og i undirbúningi er bygging á
nýju sjúkraskýli.
Föstudagur 24. nóvember 1972
o