Vísir - 08.06.1979, Page 8
8
VÍSIR
Föstudagur 8. júnl, 1979
Útgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: Davifi Guömundsson
Ritstjórar: ólafur Ragnarsson
Höröur Einarsson
Ritstjórnarfuiltrúar: Bragi Guömundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er-
lendra frétta: Guömundur G. Pétursson.
Blaöamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Indriðason, Gunnar
Salvarsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin
Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Óli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður Sigurðsson,
Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og
Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlit
og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Ólafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Askrift er kr. 3000 á mánuöi
Auglýsingar og skrifstofur: innanlands. Verö f
Slöumúla 8. Simar 86611 og 82260. lausasölu kr. 1S0 eintakiö.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 slmi 86611.
Ritstjórn: Slðumúla 14 simi 86611 7 llnur. .frentun Blaöaprent h/f
OLIAN VERÐUR AÐ LÆKKA
Veröiö á rússnesku oliunni, sem hingaö er keypt, er oröiö svo hátt, aö þaö er aö sliga
islenskt atvinnulif. Forsendur oliukaupasamningsins eru þvi brostnar. Hvers
vegna fást Islensk stjúrnvöld ekki einu sinni til aö ræöa viö Rússa um veröiö?
Ákvöröun Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna um stöðv-
un fiskveiðif lotans um næstu
helgi og þar til nýtt f iskverð hef-
ur verið ákveðið og lausn fundin
á vandamálum útgerðarinnar
vegna olíuverðshækkana var
óhjákvæmileg. Miðað við núver-
andi fiskverð er útgerðin rekin
með hvorki meira né minna en
14.4 milljarða króna tapi sam-
kvæmt útreikningum LIO og
nemur það rúmlega 23% af
heildartekjum útgerðarinnar. Til
þess að vega upp á móti þessu
tapi telur LIÚ, að f iskverð þyrfti
að hækka um 30%
Það er augljóst mál, að fisk-
vinnslan stæði ekki undir svo
gifurlegri f iskverðshækkun
nema til kæmi mjög veruleg
gengisfelling. Og sú gengisfell-
ing kæmi útgerðinni svo aftur í
koll vegna gengis- og verðtrygg-
inga á lánum útgerðarinnar og
þeirrar hækkunar á tilkostnaði
útgerðarinnar, sem af gengis-
fellingu leiddi. Sjálfsagt verður
þó nú að grípa til gengislækkunar
til þess að koma í veg fyrir
stöðvun útgerðar og fiskvinnslu.
En sú leið er ekki til neinnar
frambú'ðar.
Hvað er þá til ráða?
Hugmyndir um skattlagningu
á almenning í einu eða öðru
formi til þess að leysa vandamál
útgerðarinnar telur þetta blað
gjörsamlega óraunhæfar. Is-
lenska þjóðin byggir afkomu
sína fyrst og fremst á fiskveið-
um og fiskvinnslu. Þjóðin lifir á
fyrirtækjunum, sem þessa at-
vinnuvegi stunda, en þau ekki á
þjóðinni, og öðru visi getur það
ekki verið.
Vandi útgerðarinnar nú stafar
fyrst og fremst af hinum ógnar-
legu olíuverðshækkunum á
undanförnum mánuðum. Um
síðustu áramót kostaði hvert tonn
af gasolíu samkvæmt skráningu
á Rotterdammarkaðnum um 170
dollara, en nú er verðið komið
upp í um 387 dollara, sem þýðir
um 127% hækkun. Þessar hækk-
anir, sem við verðum að greiða
Rússum vegna olíukaupasamn-
inga okkar við þá, eru langt um-
fram hækkanir á heimsmark-
aðsverði. Allar vonir og spádóm-
ar um verðlækkanir með vorinu,
sem íslensk yfirvöld og olíu-
félagaforstjórar létu f Ijós í
febrúar og mars sl., þegar tonnið
kostaði 284 dollara, hafa gjör-
samlega brugðist. Þvert á móti
hafa á þessu tímabili orðið stór-
felldar hækkanir.
Það er vítavert ábyrgðarleysi
af íslenskum yfirvöldum að hafa
ekki í hinu minnsta sinnt þeim
kröfum, sem fram hafa verið
settar um viðræður við Rússa um
það, að tekin verði upp önnur
verðmiðun en spekúlantamark-
aðurinn í Rotterdam. Engin þjóð
í heiminum, sem á þó að heita að
hafa langtímasamning um olíu-
kaup, þarf að sæta slíkum afar-
kostum sem við íslendingar.
Vegna hinna stórfelldu verð-
hækkana á undanförnum mán-
uðum eru í rauninni brostnar for-
sendur fyrir þessari verðviðmið-
un, svo að (slendingar hljóta að
eiga nánast lagalega kröf u á því,
að núverandi verðviðmiðun,
verði felld úr gildi.
Feimni íslenskra ráðamanna
við Rússa er hreint út sagt ótrú-
leg. Ráðamenn okkar eiga ekki
önnur svör en þau að í gildi sé
bindandi samningur við Rússa.
Virðing forystumanna kommún-
ista og framsóknarmanna fyrir
milliríkjasamningum og fortaks-
lausu skuldbindingargildi þeirra
hefur þó ekki alltaf verið svona
takmarkalaus, t.d. ekki þegar
þeir riftu landhelgissamningnum
við Breta hér um árið. íslenska
þjóðin getur hins vegar engan
mun á því gert, hvort hún verður
í raun og veru að gefa Rússum
f jórða hvern f isk sem hún veiðir í
íslensku landhelginni, vegna
okurverðs á olíunni frá þeim og
því, að Bretar veiddu fjórða
hvern fisk í landhelgi okkar. ís-
lenskum yfirvöldum ber skylda
til þess að taka þegar í stað upp
viðræður við Rússa um olíuverð
og knýja fram lækkun á því. Það
er eina lausnin á vanda íslenskr-
ar útgerðar.
Blðin
verða
Skákmótiö I Lone Pine, smá-
borginni I Kaliforniu, dregur ár
hvert að sér æ fleiri og öflugri
þátttakendur. Segullinn er
dollararnir hans Slathams,
bandariska milljónamæringsins
sem fjármagnar mótin af mikl-
um myndarbrag. Heildarverö-
laun á síöasta móti námu 15
milljónum og þar af voru 5
milljónir fyrir 1. sætiö.
Stórmeistararnir flykktust
að, fleiri en nokkru sinni fyrr 27
talsins. Reyndar mættu tveir til
viöbótar, Romanishin og
Tshekovsky frá Sovétrikjunum,
en þegar þeir sáu erkióvininn
Kortsnoj meðal keppenda hættu
þeir viö þátttöku.
í mótslok uröu jafnir og efstir,
Liberzon Israel, Gligoric
Júgóslaviu, Hort Tékkóslóvaklu
og Gheorgieu Rúmenlu. Fyrir
slöustu umferö voru Liberzon,
Hort og Gligoric i efsta sæti og
tefldu þá saman Liberzon og
Hort. Strax I byrjun var ljóst aö
Liberzon tefldi grimmt til jafn-
teflis, þvi hann valdi uppskipta-
afbrigðið I frönsku tafli á hvítt 1
e4 e6 2. d4 d5 3. exd5, dauöasta
jafnteflisafbrigöi allra tíma.
Gligoric tefldi hinsvegar óhikaö
til vinnings gegn Larsen og sú
skák var tefld i botn, jafntefli
ekki samiö fyrr en barist haföi
veriö til þrautar.
ætti ekki að
löng hjá Seirawan
Samuel Reshevsky meö sln 67
ár aö baki lætur engan bilbug á
sér finna. Hann mætti til leiks
þvert ofan I fyrirmæli lækna
sinna sem lagt hafa fast aö
gamla manninum aö hætta öll-
um frekari skákiðkunum.
Reshevsky hefur nokkrum sinn-
um fengið hjartaáfall og tauga-
spennan viö skákboröiö er ekki
þaö allra heppilegasta i slikum
tilfellum. Reshevsky slapp þó
viö öli áföll aö þessu sinni fékk 5
1/2 vinning og vann m.a. Miles
og gerði jafntefli viö Kortsnoj.
Bandarikjamenn eiga nú 13
virka stórmeistara og eitt stór-
meistaraefnið enn kom fram I
dagsljósið i Lone Pine,hinn 18
ára gamli Seirawan frá Seattle.
Hvltur: Seirawan, Bandarikin
Svartur: Miles, England
Vængtafl.
1. g3 e5
2. c4 c6
3. Bg2 d5
skák
Umsjón:
Jóhann i
Sigurjóns
son
6. f3 f5
7. Rh3 Rc6
8. 0-0 Be7
9. Rc3 Rf6
10. Bg5 Be6
(Bjartsýni Miles hefur ekki
reynst notadrjúg og hann veröur
nú að berjast fyrir völdun veiku
reitanna á miöboröinu. A meöan
þróar hvitur stööu slna meö
leikvinningum.)
11. Rf4 Bf7
12. e3 0-0
13. fxe4 dxe4
(Svartur áttium fleira aö velja.
13. ...fxe4 14. Bh3 og ef 14. ...Bd6
15. Rb5 ásamt 16. Re6. Betri
kostur virðist 13. ...Rxe4 14.
Hann fékk erfiðasta verkefni
mótsins, tefldi viö 8 stórmeist-
ara I 9 umferöum. Bent Larsen
og Miles máttu báöir lúta I
lægra haldi fyrir pilti en hann
tapaði aöeins einni skák, fyrir
Hort. Arangur hans, 5 1/2 vinn-
ingur nægöi til stórmeistara-
árangurs, en þar eö Seirawan
haföi ekki náö alþjóölegum titli
áöur, veröur stórmeistaratitill-
inn aö blða um sinn. Eftir
vinningsskákinni gegn Miles aö
dæma ætti biöin ekki aö veröa
ýkja löng.
(Miles teflir byrjunina af full
mikilli bjartsýni. Hugmynd
hans er augsýnilega sú aö
leggja undir sig miöboröið og
hreinlega gleypa andstæöing-
inn. Uppbyggingu hvlts kemur
þó ekkert betur en sllkur tafl-
máti, þvi nú myndast ákjósan-
leg skotmörk.)
4. cxd5 cxd5
5. d4! e4
(Eða 5. ...exd4 6. Rf3 og hvitur
einbeitir sér aö einangraöa peö-
inu á d5).)
Bxe7 Rxe7 þó hvlta staðan sé
öllu vænlegri.)
14. Bh3 g6
15. g4!
(Þannig brýtur hvitur upp
svörtu stööuna.)
15. ... ■ fxg4
16. Bxf6 gxh3
17. Bxe7 Dxe7
18. Dg4 Bc4
19. Hf2 Hf5
20. Rxh3 Hh5
(Vanmáttug tilraun til mótspils.
21. Rxe4? strandar auövitaö á
21. ...Hh4 en þetta er of einfalt.)
21. Hg2
(Hótar 22. Dxh5.)
2i_ ... Hh4
22. Dg3 Hf8
23. Rg5 Hh5
24. b3 Bd3
25. Rd5 Dd7
26. Rf4 Hh6
(Þarna fer heldur lltiö fyrir
hróknum.)
27. Hdl Hf5
28. h4 Rxd4
(Miles grlpur til óyndisúrræöa
enda mjög farið aö ganga á um-
hugsunaríimann og staöan hin
óhrjálegasta.)
29. exd4 Dxd4+
30. Kh2 De5
31. Rg-h3!
(Ef 31. Rf-h3 Hxh4 32. Dxe5
Hxe5 og svartur hefur þrjú peö
fyrir manninn.)
31. ... Df6
32. h5! Bb5
33. Hg-d2 g5
34. Hd5!
(Tilraunir svarts eru baröar
niöur meö harðri hendi.)
34. ... Hxd5
35. Hxd5 Db2+
36. Rg2 Hxh5
37. Hxb5 Gefiö
Jóhann örn Sigurjónsson