Morgunblaðið - 12.04.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BÆJARFULLTRÚAR Samfylk-
ingarinnar í Hafnarfirði neituðu að
undirrita reikninga fyrir bæjarsjóð
Hafnarfjarðar sem lagðir voru fram
á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag
þar sem þeir telja reikningana ekki
gefa rétta mynd af fjárhagsstöðu og
fjárhagsþróun bæjarsjóðs. Full-
trúarnir hafa einnig sent félagsmála-
ráðherra, Páli Péturssyni, bréf þar
sem ráðuneytið er „upplýst um þá
grafalvarlegu stöðu sem fjármál
bæjarins eru komin í“, eins og segir í
bréfinu.
„Í fyrsta lagi teljum við alls ófært
að langtímaskuldbindingar, til 25–27
ára, vegna einkaframkvæmdasamn-
inga á lögboðnum skyldum sveitar-
félagsins, að upphæð tæplega 4
milljarðar króna, skuli einungis
færðar sem skýring með reikning-
unum. Í öðru lagi teljum við að
færsla skulda bæjarsjóðs að upphæð
700 milljónir króna á Vatnsveitu
Hafnarfjarðar gefi villandi mynd af
fjárhagsþróun bæjarsjóðs. Í þriðja
lagi viljum við benda á að allar lyk-
iltölur reikninganna verða í reynd
marklausar með ofangreindri færslu
reikninganna. Í fjórða lagi viljum við
benda á ákvæði í bókhaldsskilavenj-
um sem kveður á um að fari núvirt
samningsupphæð umfram 90% af
markaðsverði rekstrarfjármuna beri
að færa slíkt inn í efnahagsreikning.
Í því sambandi óskum við eftir að
ráðuneyti yðar láti fara fram óháð
mat, ríkisendurskoðunar eða ann-
arra, á þessu atriði,“ segir í bréfi til
ráðherra.
Tryggvi Harðarson, bæjarfulltrúi
Samfylkingar, segir fyrrgreindar
bókhaldsreglur sýna fram á nauðsyn
þess að einkaframkvæmdir séu
færðar inn í efnahagsreikning. „Við
æskjum þess ef nokkur kostur er að
fá svör frá félagsmálaráðherra fyrir
síðari umræðu um reikninga bæjar-
ins, sem fram fer eftir hálfan mánuð.
Þetta er orðið gjörsamlega ótækt
ástand að sveitarfélög eins og Hafn-
arfjörður fari út í einkaframkvæmd-
ir í mjög stórum stíl og þess sér
hvergi stað í bókhaldi,“ sagði
Tryggvi.
„Menn verða að gera einhverjar
ráðstafanir til að færa þetta með
sambærilegum hætti og aðrar skuld-
bindingar sem sveitarfélög setja sig
í, því í þessu tilfelli er ekki verið að
binda eitthvað í skammtímaleigu
heldur er verið að binda sex næstu
kjörtímabil. Sveitarfélagið Hafnar-
fjörður kemst svo ekkert hjá því að
hætta að reka skóla að óbreyttum
lögum eftir 25 ár. Ég held að það sé
alveg ljóst að það er ótækt að ekkert
skuli vera tekið á þessu máli.“
Ekki náðist í gær í Magnús Gunn-
arsson bæjarstjóra eða Valgerði Sig-
urðardóttur, forseta bæjarstjórnar,
vegna málsins.
Samfylkingin neitaði að undirrita reikninga bæjarsjóðs
Vilja mat félagsmála-
ráðuneytis á stöðunni
HÁSKÓLI Íslands og fyrirtækið
AstraZeneca hafa gert með sér
samning til þriggja ára um nýtt starf
dósents við læknadeild Háskóla Ís-
lands.
Staða dósentsins er í klínískri
ónæmisfræði með sérstakri áherslu
á astma- og ónæmissjúkdóma í önd-
unarfærum. Rektor Háskóla Ís-
lands, Páll Skúlason, deildarforseti
læknadeildar, Reynir Tómas Geirs-
son, prófessor og Davíð Ingason,
lyfjafræðingur og markaðsstjóri
AstraZeneca, undirrituðu samning-
inn 26. mars sl.
Búið er að manna stöðuna og hef-
ur Unnur Steina Björnsdóttir, lækn-
ir og sérfræðingur í ónæmissjúk-
dómum, verið ráðin til að gegna
starfinu. Unnur starfar við lungna-
deild Landspítala-háskólasjúkra-
húss að Vífilsstöðum, og nú einnig
við læknadeild Háskóla Íslands.
Í fréttatilkynningu segir meðal
annars:
„AstraZeneca leggur mikla
áherslu á rannsóknir og þróun með-
ferðar við ofnæmis- og ónæmissjúk-
dómum og vill leggja sitt af mörkum
í þágu læknisfræði á Íslandi sem
annars staðar. Fyrirtækið starfar
náið með íslenskum heilbrigðisstétt-
um og má þar sérstaklega nefna
þátttöku Íslendinga í fjölþjóðlegum
rannsóknum sem gerðar eru á veg-
um AstraSeneca.“
Nýtt starf dósents
við læknadeild HÍ
Frá undirritun samningsins. Frá vinstri sitja Davíð Ingason, Páll Skúla-
son og Reynir Tómas Geirsson.
GRUNUR leikur á að skipstjóri
spænsks togara hafi haft í hyggju að
misnota sjúkraflug til þess að spara
sér siglingu í land með veikan sjó-
mann sem lítið amaði að.
Landhelgisgæslunni barst um
klukkan hálfátta á mánudagskvöld
beiðni frá björgunarmiðstöðinnni í
Madrid um að sækja spænskan sjó-
mann sem var um borð í togara um
200 mílur suðvestur af landinu.
Grunur lék á að maðurinn, sem er 28
ára, hefði fengið hjartaáfall, málið
væri alvarlegt og því óskað eftir að-
stoð þyrlu.
Eftir að læknir hafði talað við
skipverja þótti ólíklegt að þetta væri
rétt og voru aðstæður metnar svo að
ekki væri forsvaranlegt að senda
þyrluna eftir sjómanninum. Varð-
skipið Ægir var sent á vettvang og
kom það að skipinu um kl. 00.45. Um
borð í varðskipinu var vanur sjúkra-
flutningamaður sem skoðaði sjúk-
linginn. Eftir samráð við lækni var
metið að ástandið væri ekki alvarlegt
og ákveðið að togarinn sigldi sjálfur
með skipverjann til lands.
Halldór Nellett, yfirmaður gæslu-
framkvæmda hjá Landhelgisgæsl-
unni, sagði erfitt að fullyrða um
hvort skipstjórar hefðu kallað eftir
aðstoð þyrlu aðeins til þess að spara
sér siglingu í land.
Þetta mál er enn í skoðun hjá
Landhelgisgæslunni og sagðist Hall-
dór gera ráð fyrir að tilfellið á mánu-
dagskvöld færi í sama farveg, þ.e. til-
drög þess yrðu frekar rannsökuð.
Spurður um hvort einhver viðurlög,
s.s. sektir, væru við misnotkun á
sjúkraflugi sagði Halldór að sér væri
ekki kunnugt um slíkt.
„Þetta er mjög slæmt mál ef rétt
reynist að menn misnoti þessa að-
stoð og málið verður eins og fyrr
segir athugað frekar. Við reynum að
hafa það að leiðarljósi að láta þá slös-
uðu og sjúku njóta vafans og okkur
finnst betra að fara af stað en sitja
heima ef ástandið reynist svo alvar-
legra en talið var í fyrstu.“
Togarinn kom að landi í Reykjavík
um klukkan hálfátta á þriðjudags-
kvöld og var sjómaðurinn þegar
fluttur á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús til rannsóknar.
Grunur um tilraun til mis-
notkunar á sjúkraflugi
ANDRI Már og Elva Rán Oddgeirs-
börn og frændi þeirra Þorleifur
Sigmundsson voru að leik á leik-
svæði í nágrenni heimilis síns í
Breiðholti þegar þau rákust á und-
arlega hluti sem alls ekki áttu
heima á leiksvæðinu – ellefu hlaðin
byssuskot.
„Andri sonur minn fann skotin
fyrir framan rólurnar og hann hélt
nú bara að þetta væru leik-
fangaskot enda hefur hann aldrei
séð svona nokkuð áður,“ sagði Odd-
geir Guðfinnsson, faðir systk-
inanna. Þorleifur er hins vegar úr
sveit og vissi strax að hætta var á
ferðum, sagði frænda sínum að
þetta væru alls ekki leikföng heldur
lífshættuleg skot. Strákarnir
fleygðu skotunum því frá sér inn í
runnaþykkni og fóru heim til að
segja foreldrunum frá fundinum.
Oddgeir fór þegar að leita að skot-
unum og fann fimm þeirra, hin sex
leynast því enn í runnunum. Því
næst tilkynnti hann lögreglunni
fundinn en segist lítil viðbrögð hafa
fengið.
„Mér krossbrá aðvitað þegar ég
sá skotin og manni verður bara
hugsað til þess sem gæti hafa gerst
ef krakkarnir hefðu farið að leika
sér með þetta. Það er erfitt að
þurfa að sætta sig við að börnin
manns finni svona á leiksvæði sem á
að vera öruggur staður fyrir börn.“
Byssuskot
á leikvellinum
Morgunblaðið/Kristinn
Systkinin Elva Rán og Andri Már Oddgeirsbörn og frændi þeirra Þor-
leifur Sigmundsson fundu riffilskot á leikvellinum.
arhús í Grafarvogshverfi í félagi við
óþekktan mann á tveimur dögum í
janúar sl. Þar tóku þau ófrjálsri
hendi sjónvarpstæki, tvö mynd-
bandstæki, síma, farsíma, skartgripi,
sígarettur, armbandsúr, seðlaveski,
5 vínflöskur, 8 bjórflöskur, leikja-
tölvu, tölvuleiki og vasaútvarp. Verð-
mæti ránsfengsins var á þriðja
hundrað þúsund. Bæði játuðu brot
sín greiðlega og kom það ásamt ung-
um aldri þeirra til refsilækkunar,
segir í dómi Héraðsdóms.
Pilturinn var dæmdur í þriggja
mánaða fangelsi og stúlkan fjögurra.
Fullnustu refsingar beggja var
frestað, piltsins um tvö ár en stúlk-
unnar um þrjú, og fellur hún niður að
þeim tíma liðnum haldi þau almennt
skilorð. Bótakröfum var vísað frá
dómi þar sem þær voru ekki studdar
gögnum.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi á þriðjudag sextán ára pilt og
18 ára stúlku í þriggja og fjögurra
mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir
fíkniefnabrot og á annan tug þjófn-
aðarbrota, þar af fjölda innbrota í
bíla, hús og sumarbústaði.
Stúlkan var dæmd fyrir fíkniefna-
lagabrot en hún reyndist með 1,08
grömm af tóbaksblönduðu hassi í
fórum sínum þegar lögregla handtók
hana við Hlemmtorg í september á
síðasta ári. Þá var hún dæmd fyrir
þjófnað á radarvara í verslun í
Kringlunni í nóvember og fyrir inn-
brot í bíla í október sl. en úr þeim
stal hún ýmsu dóti að verðmæti um
60.000 krónur. Þau voru bæði fundin
sek um innbrot í fimm sumarhús í
Grímsnesi að næturlagi í september
sl. en þar námu þau á brott dúk,
handryksugu, myndavél, tvo sjón-
auka og fleira. Enn fremur var stúlk-
an dæmd fyrir innbrot í fjögur íbúð-
Piltur og stúlka dæmd
fyrir fjölda afbrota
AÐ HÖFÐU samráði við aðila
vinnumarkaðarins og Bændasam-
tök Íslands hefur landbúnaðarráð-
herra ákveðið að skipa starfshóp
um framleiðslu- og markaðsmál
gróðurhúsaafurða og garðávaxta.
Verkefni starfshópsins verði
m.a. að meta starfsskilyrði, álagn-
ingu tolla og verðmyndun á
gróðurhúsaafurðum og garðávöxt-
um við framleiðslu, heildsölu og
smásölu. Þá er hópnum falið að
gera tillögur til landbúnaðarráðu-
neytisins um hvernig tryggja megi
framleiðslumöguleika íslenskrar
garðyrkju og lækka verð á gróð-
urhúsaafurðum og garðávöxtum til
neytenda.
Starfshópinn skipa: Ari Edwald
framkvæmdastjóri, fulltrúi Sam-
taka atvinnulífsins, Elín Björg
Jónsdóttir, formaður FOSS,
fulltrúi Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, Kjartan Ólafsson
garðyrkjubóndi, fulltrúi Bænda-
samtaka Íslands, Kristján Braga-
son framkvæmdastjóri, fulltrúi
ASÍ, Sigurgeir Þorgeirsson fram-
kvæmdastjóri, fulltrúi Bændasam-
taka Íslands, Ólafur Friðriksson
deildarstjóri, fulltrúi landbúnaðar-
ráðuneytisins, og Guðmundur Sig-
þórsson skrifstofustjóri, fulltrúi
landbúnaðarráðuneytisins og jafn-
framt formaður starfshópsins.
Nefnd um
grænmeti
og ávexti
FYRSTU þrjá mánuði ársins voru
gerðar 369 breytingar á trúfélags-
skráningu í þjóðskrá. Þetta sam-
svarar því að 0,1% landsmanna hafi
skipt um trúfélag. Á sama tímabili
árið 2000 voru breytingarnar 386 en
360 á fyrstu þremur mánuðum árs-
ins 1999.
Breyting á trúfélagsskráningu var
í 56% tilfella vegna úrsagna úr þjóð-
kirkjunni eða 208. Af þeim kusu 77
að vera utan trúfélaga, 49 létu skrá
sig í Fríkirkjuna í Reykjavík, 31 í
Fríkirkjuna í Hafnarfirði og 12 í
Ásatrúarfélagið. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Hagstofunni létu 196 skrá
sig úr þjóðkirkjunni á sama tíma árið
2000 og 197 á fyrstu þremur mán-
uðum ársins 1999.
Á móti 208 brottskráðum var 61
skráður í þjóðkirkjuna á fyrstu
þremur mánuðum ársins 2001.
Brottskráðir umfram nýskráða voru
því 147 eða jafnmargir og á sama
tíma í fyrra og 162 árið þar á undan.
Um síðustu áramót voru 248.411
af 282.845 Íslendingum skráðir í
þjóðkirkjuna. Meðlimir í fríkirkju-
söfnuðunum í Reykjavík og Hafnar-
firði og í Óháða söfnuðinum voru alls
11.098 og í öðrum skráðum trúfélög-
um 10.661, þar af flestir eða 4.307 í
kaþólsku kirkjunni og fæstir í Bapt-
istakirkjunni, sex meðlimir.
0,1% landsmanna
skipti um trúfélag
Breytingar á trúfélagsskráningu