Morgunblaðið - 12.04.2001, Side 29

Morgunblaðið - 12.04.2001, Side 29
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2001 29 VERÐ á hlutabréfum á mörkuðum í Evrópu hækkaði lítillega í gær en gengi evrunnar gagnvart Banda- ríkjadollar tók dýfu, í kjölfar þess að stjórn Seðlabanka Evrópu (ECB) ákvað að lækka ekki vexti, þvert á það sem margir fjárfestar höfðu vænzt. Á fjármálamörkuðum heims hafði niðurstöðu hálfsmánaðarlegs stjórn- arfundar ECB verið beðið með all- mikilli eftirvæntingu. Gengi evrunn- ar var 0,8889 dollarar skömmu fyrir ákvörðun seðlabankans en lækkaði í 0,8813 dollara eftir að hún lá fyrir og Wim Duisenberg, aðalbankastjóri ECB, virtist eyða öllum vonum manna um að vaxtalækkun kynni að vera hugsanleg bráðlega. Bankinn hefur haldið stýrivöxtum óbreyttum frá því í október, 4,75%. Er hann þar með eini þungavigtar- seðlabankinn sem ekki hefur brugð- izt við vaxandi samdráttareinkennum hins alþjóðlega efnahagskerfis með lækkun vaxtastigs. Seðlabankar Bandaríkjanna, Jap- ans og Bretlands hafa allir lækkað vexti í því skyni að hjálpa til við að hamla gegn niðursveiflunni sem á síðustu mánuðum hefur orðið æ til- finnanlegri í alþjóðahagkerfinu. Meginhlutverk ECB að standa vörð um stöðugt verðlag Duisenberg sagði að þótt heims- niðursveiflan mundi óhjákvæmilega setja mark sitt á evru-svæðið, þá væri „engin ástæða til svart- sýni hvað varðar efnahagslegan styrk“ evru-svæð- isins, en því til- heyra tólf af fimmtán aðildar- ríkjum Evrópu- sambandsins (ESB). Fullyrti hann að hagvöxt- ur á svæðinu yrði „traustur“. Minnti Duisenberg á að meginhlutverk ECB væri að líta fyrst og fremst til þess að verðlag héldist stöðugt frekar en ýta undir hagvöxt. Og þótt dregið hefði úr verðbólguhvötum að undanförnu létu þeir þó enn á sér kræla. Sagði bankastjórinn að Seðlabanki Evrópu gæti betur lagt sitt af mörkum til að stuðla að hagvexti og gegn atvinnu- leysi með því að halda sig við það hlutverk sitt að standa vörð um stöð- ugt verðlag. Það væri hlutverk stjórnmálamanna að gera annað sem til þarf, fyrst og fremst með því að hrinda í framkvæmd endurbótum á skipulagi vinnumarkaðarins og öðr- um þáttum sem stuðla að heilbrigðu og samkeppnishæfu atvinnulífi. Ráðamenn í nokkrum evru- ríkjanna hafa á síðustu vikum verið ósparir á að hvetja ECB til að lækka vexti, með þeim rökum að það myndi veita atvinnulífinu nauðsynlegt svig- rúm til að hrista af sér samdráttar- hættuna. ECB heldur vöxtum óbreyttum Sveiflur á mörkuðum Frankfurt, Lundúnum. AFP, Reuters. Wim Duisenberg EVRÓPUSAMBANDIÐ (ESB) og Bandaríkin hafa náð samkomulagi um lausn á hinni langvinnu „banana- deilu“, sem staðið hefur yfir árum saman. Mun samkomulagið meðal annars leiða til þess að Bandaríkin aflétti í sumar refsitollum sem þau lögðu á valdar evrópskar afurðir í þvingunarskyni vegna þess að reglur þær, sem Evrópusambandið setti, veittu banönum frá fyrrverandi ný- lendum Evrópuríkja betri aðgang að Evrópumarkaðnum en svokölluðum „dollarabanönum“, sem risafyrir- tæki í bandarískri meirihlutaeigu eins og Dole og Chiquita sjá um söl- una á. Pascal Lamy, sem fer með við- skiptamál í framkvæmdastjórn ESB, sagði í gær að samningamenn beggja hliða hefðu náð samkomulagi í fyrrinótt sem hann gerði ráð fyrir að yrði staðfest af ráðamönnum ESB og Bandaríkjanna fljótlega. Með staðfestingu samkomulags- ins munu 1. júlí nk. falla burt banda- rískir refsitollar á ýmsar vörur fram- leiddar í ESB, sem nema sem svarar um 17 milljörðum króna á ári. Á móti mun ESB m.a. hætta við áform um að taka upp svokallað „fyrstur kem- ur, fyrstur fær“-kerfi fyrir úthlutun innflutningsheimilda á banönum til ESB. Bananadeilan leyst Brussel. Reuters. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins (ESB) lagði í gær formlega til að í aðildarsamingum við Mið- og Austur-Evrópuríkin yrði samið um allt að sjö ára að- lögunartíma á frjálsa flutninga vinnuafls milli þessara ríkja og annarra aðildarríkja ESB og reyndar Evrópska efnahagssvæð- isins alls, þar með talið Íslands. Má bóka að þessi tillaga mælist ekki vel fyrir í höfuðborgum Mið- og Austur-Evrópuríkjanna sem nú þrýsta á um að fá fulla aðild að ESB sem fyrst. Af þeim tólf ríkj- um sem nú eiga í viðræðum um ESB-aðild eru tíu fyrrverandi austantjaldslönd. Þau hafa öll lagt áherzlu á að borgarar þeirra fái að njóta „fjórfrelsisins“ svokallaða til fulls um leið og þau fá inngöngu í sambandið – þ.e. frjálsa flutninga vöru, þjónustu, fjármagns og vinnuafls. Nokkur núverandi ESB- ríki – einkum og sér í lagi þau sem næst liggja hinum tilvonandi nýju aðildarríkjum, Þýzkaland og Aust- urríki – hafa eindregið óskað eftir því að tímabundnar hömlur verði settar við frjálsum flutningum vinnuafls frá þessum ríkjum eftir að þau fá inngöngu í ESB, þar sem að öðrum kosti er óttazt að mikill straumur ódýrs vinnuafls streymi inn á vinnumarkaðinn (í Þýzka- landi og Austurríki) með óæskileg- um afleiðingum. Günther Verheugen, sem fer með aðildarviðræðumál í fram- kvæmdastjórn ESB, tilkynnti um tillögurnar á blaðamannafundi í Brussel í gær. Sagðist hann gera sér grein fyrir því hve pólitískt viðkvæmt málefnið væri en hann vonaðist til að í tillögum fram- kvæmdastjórnarinnar fælist mála- miðlun sem allir aðilar gætu sætt sig við. Aðlögunartími á frjálsa flutninga vinnuafls Brussel. Reuters.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.