Morgunblaðið - 29.07.2001, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2001 B 7
ferðalög
Ísland
Gönguleiðir við Djúpavog
Þeir sem hyggjast ferðast um ná-
grenni Djúpavogs og hafa áhuga á
gönguleiðum gætu haft gagn af
bæklingi þar sem lýst er áhuga-
verðum stöðum til að skoða. Lýst
er þremur leiðum; yfir Hálsamót,
fram með ströndinni og Álfa-
kirkju, auk þess sem litprentað
kort er á bakhlið bæklingsins. Út-
gefandi er Djúpavogshreppur en
bæklinginn er að finna á helstu
ferðamannastöðum á Djúpavogi.
Gengið við Klaustur
Nýtt göngukort hefur verið gefið
út fyrir nágrenni Kirkjubæjar-
klausturs, en það er Ferðamála-
félag Skaptárhrepps sem gefur
út. Kortið sýnir gönguleiðir og
með því fylgja litlir bæklingar
með lýsingum á leiðunum og fróð-
leikur um sögu staðanna. Leið-
irnar eru flokkaðar eftir göngu-
lengd, göngutíma og hversu erfið
gangan er. Kortið og bæklingana
er hægt að nálgast á Upplýsinga-
miðstöð Kirkjubæjarklausturs.
Sandkastalakeppni við Holt
Um verslunarmannahelgina er
börnum boðið að taka þátt í sand-
kastalakeppni í fjörunni við Holt í
Önundarfirði. Keppnin fer fram 4.
ágúst í hvítri skeljasandsfjörunni.
Vinsældir keppninnar hafa verið
miklar , en þetta er sjötta árið
sem hún fer fram á þessum stað.
Þátttakendur voru um 300 í fyrra
og byggðir voru um 60 sand-
kastalar. Nauðsynlegt er að taka
með sér áhöld til kastalagerðar.
Upplýsingar veitir Guðmundur
Björgvinsson í síma 456 7621.
NEW YORK er stórkostleg borg
með endalausa möguleika. Enginn
verður leiður á þessum suðupotti
mismunandi menningarheima en til
þess að tryggja frábæra ferð er
óskandi að njóta góðrar gistingar.
Hudson-hótelið er nýtt hótel í hót-
elkeðju Ian Schrager. Hann rekur
þrjú önnur hótel í New York auk
hótels á Miami Beach og í Holly-
wood. Einnig tilheyra keðjunni tvö
hótel í London; Sanderson og St.
Martins Lane.
Það er hrein upplifun að gista á
Hudson. Hótelið er hannað af helsta
samtímahönnuði okkar, Philippe
Starck, eins og flest önnur hótel í
keðjunni. Hudson er það nýjasta og
var opnað í október síðastliðnum.
Neongrænt ljós tekur á móti gest-
um þegar keyrt er að hótelinu og
við tekur frábær þjónusta starfs-
fólks. Farið er upp rúllustiga og
komið í einstaklega fallegan mót-
tökusal. Bak við móttökuborðið sést
í einn af fjórum börum hótelsins
sem stendur undir beru lofti.
Barirnir eru mismunandi í lit og
lögun og sérstaklega ber að minn-
ast bókasafnsbarsins en nafn hans
segir allt sem segja þarf. Lyftan er
skemmtilega hönnuð og umbúnaður
drykkjasjálfsala á hverri hæð vekur
athygli. Herbergin eru frekar lítil á
bandaríska vísu en þau geta þó ver-
ið mismunandi að stærð. Allt er út-
hugsað og einstaklega vel sett sam-
an þannig að rýmið nýtist sem best
enda eru um þúsund herbergi á
hótelinu. Varla þarf að taka fram að
allir hlutir, frá rúmi til sápustykkja,
eru sérvaldir af hönnuðinum og
jafnvel hannaðir af honum ef ekki
fannst það sem honum fannst
henta.
Stutt í allar áttir
Hægt er að segja að Hudson sé
mjög áhugavert og sérstakt hótel
sem skilur eftir miklu meira en
venjulegur gististaður gerir. Það er
ævintýri líkast að koma úr hefð-
bundnum einkennalausum hótel-
veruleikanum í þetta andrúmsloft
sem manni finnst hæfa stórborg
eins og New York.
Verð á herbergjum er mismun-
andi, allt frá 95 dollurum, um 9.500
krónur miðað við núverandi gengi. Í
maímánuði var eins manns herbergi
á 200 dollara eða um 20.000 krónur
en það er talinn háannatími og þá
er ekki innifalinn morgunmatur.
Hægt er að panta hann sér og fá
hann upp á herbergi. Staðsetning
hótelsins er góð, það liggur rétt við
neðsta hluta Central Park og stutt í
allar áttir.
Allt frá rúmi til sápustykkja
valið af Philippe Starck
Hótelgisting getur verið eins
skemmtileg og hún getur verið
hrútleiðinleg. Að því komst
Sigríður Heimisdóttir þegar
hún dvaldi á Hudson-hótelinu í
New York.
Barinn sem stendur undir beru lofti
og er opinn yfir sumartímann. Hægt er að fá fleiri upplýs-
ingar hjá hudson@ianschrager-
hotels.com og heimilisfangið er
356 West 58 Street, New York
City, NY 10019. S: 001 212 554
6000 fax:001 212 554 6001
Hvaðan ertu að koma?
Frá Kuala Lumpur í Malasíu þar
sem við vorum í fjóra daga og
Balí þar sem ég dvaldi tæpar
tvær vikur á Kuta-ströndinni.
Með hverjum fórstu?
Með manninum mínum og hópi
útskriftarnema úr viðskiptadeild
Háskólans í Reykjavík.
Einhver sérstök ástæða fyrir
ferðinni?
Ég var sjálf að útskrifast og ákvað að skella mér með.
Einhverjir staðir sem vert er að heimsækja á þessum slóðum?
Á Balí fórum við í dagssiglingu út í Lembongan-eyju sem var alveg
frábær. Við m.a. snorkluðum í sjónum sem var mjög gaman enda
sjórinn ótrúlega tær og dýralífið litríkt. Þá fórum við einnig í flúður
(River rafting) á Telaga Vaja-ánni sem var einnig skemmtilegt. Í
Kuala Lumpur mæli ég með því að fólk skoði Twin Towers sem er
hæsta bygging í heimi og fari upp í KL-turninn en þaðan sést vel yf-
ir borgina. Þá var gaman að fara í apahofið, Batu Caves, sem er upp
á fjalli en að því liggja 275 þrep. Í þeim situr fjöldinn allur af litlum
öpum sem borða hnetur úr lófa fólksins. Í Kínahverfinu er svo götu-
markaður þar sem hægt er að kaupa ótrúlegustu hluti á hlægilegu
verði.
Hvernig var ferðin skipulögð?
Ferðnefnd útskriftarhópsins skipulagði hana í samráði við Sam-
vinnuferðir/Landsýn.
Einhverjir veitingastaðir sem þú mælir með?
Poppies er mjög góður indónesískur staður á Poppies Lane á Balí
og við sömu götu var frábær mexíkóskur staður sem heitir TJ’s.
Myndir þú fara þangað aftur?
Já, ég gæti vel hugsað mér það.
Einhver ferð fyrirhuguð á næstunni?
Nei, en vonandi förum við bráðum í sumarhús tengdaforeldra
minna á Flórída.
Fagnaði útskrift-
inni á Balí
Halla Árnadóttir er fulltrúi
starfsmannastjóra Skelj-
ungs hf. Hún fór í eftir-
minnilega útskriftarferð í
vor.
Eftirminnilegt frí
Starfsnám fyrir
leiðsögumenn
ferðafólks
Innritun í Leiðsöguskóla Íslands fer fram 30. júlí
8. ágúst nk. Leiðsögustarf er skemmtilegt og fjölbreyti-
legt starf sem krefst góðrar tungumálakunnáttu og
þekkingar á náttúru landsins, sögu og þjóðlífi. Leið-
sögumenn þurfa að vera þjónustuliprir og jákvæðir í
mannlegum samskiptum. Í náminu eru nemendur búnir
undir almennt landkynningarstarf með fjölbreyttri
fræðslu til farþega um hin margvíslegustu efni sem
fyrir augu ber og upp koma í ferðum vítt og breitt um
landið. Námið er bæði bóklegt og verklegt.
* Umsækjendur skulu vera orðnir 21 árs og hafa
stúdentspróf eða sambærilega menntun. Þeir
skulu, auk íslensku, hafa gott vald á a.m.k. einu er-
lendu tungumáli.
* Umsækjendur skili umsóknum eigi síðar en 8. ágúst
nk. og skrái sig í viðtal og inntökupróf fyrir sama
tíma. Inntökuprófið er munnlegt og fer fram á því
erlenda tungumáli sem umsækjandi velur.
* Heimilt er að takmarka fjölda nemenda ef umsóknir
verða fleiri en skólinn annar.
* Kennsla fer fram tvö kvöld í viku og flesta laugar-
daga frá byrjun september 2001 til maíloka 2002.
Námið er lánshæft hjá LÍN auk þess veita mörg
stéttarfélög námsstyrki.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofu skólans frá
kl. 10.00–14.00 til 8. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir umsjónarmaður skólans á
sama tíma í síma 544 5520. Sjá einnig vefsíðu skólans:
mk.ismennt.is.
Leiðsöguskóli Íslands
MENNTASKÓLANUM Í KÓPAVOGI
Digranesvegi 51, (inng. frá Hávegi)
sími 544 5520.