Morgunblaðið - 29.07.2001, Page 14
Skúlagötu 15 og Sogavegi 3
Mikill vegsauki þykir fylgja því að
vera valinn í æðstu stjórn Banda-
rísku kvikmyndaakademíunnar (AM-
PAS), en sá heiður var einmitt að
falla í skaut gæðaleikarans Tom
Hanks. Hann mun fylla skarð Greg-
ory Pecks, sem sagði af sér fyrir fá-
einum dögum. Kathy Bates situr
ásamt Hanks í stjórninni, fyrir hönd Samtaka leik-
ara (SAG).
Hanks í stjórn Akademíunnar
Tom Hanks
Hrollvekjumeistarinn
Stephen King er að hefja
samstarf við danska kvik-
myndagerðarmanninn Lars
von Trier, við gerð nýrra
sjónvarpsþátta um yfirnátt-
úrulegt efni. King mun
leggja línuna og skrifa hand-
rit þáttanna, sem verða 13,
og munu bera heitið King-
dom, hvað annað. Bakgrunnurinn er sjúkrahús
sem byggt er á gömlum kirkjugarði og líður ekki
á löngu uns framliðnir sýna heilbrigðisstéttinni og
sjúklingunum vanþóknun sína í verki. ABC-
sjónvarpsstöðin stendur að baki þáttunum. Ekki
hefur frést að Björk verði meðal leikara.
Athyglisvert samstarf
Endurgerð Lans-
ans; King í sam-
starf við Von Trier.
Hommar og lesbíur njóta síauk-
inna, sjálfsagðra mannréttinda, og ár-
leg kvikmyndahátíð þeirra í Los
Angeles vekur talsverða athygli.
Henni lauk um síðustu helgi, með sigri
heimildarmyndarinnar Trembling
Before G-d, sem segir af samkyn-
hneigð meðal strangtrúaðra gyðinga
(!). Dómnefndin afhendir sjö „Outie“
verðlaun og áhorfendur velja fimm til viðbótar. Meðal
sigurvegaranna var myndin By Hook or Crook, sem
fengið hefur lofsamlega dóma þar sem hún hefur
verið sýnd, og Courtney Love fyrir frammistöðu
sína í titilhlutverki myndarinnar Julie Johnson.
Courtney
Love
Sigurvegarar á hátíð
samkynhneigðra
Þar sem Uma Thurman er þunguð af öðru barni
þeirra Ethans Hawke, hefur Lucy Liu (Charlie’s
Angels), verið ráðin til að taka við hlutverki hennar
í Kill Bill, nýju myndinni hans Quentins Tarantino.
Framleiðandinn, Miramax, vildi bíða eftir Thurman,
sem fór með hlutverk í Pulp Fiction, en Tarantino
stóð fast á að fá nýja leikkonu og halda sínu striki,
og hafði greinilega betur.
Afslappaður; Tarantino.
Liu leikur fyrir Tarantino
Sambíóin frum-
sýna hinn 19.
október breska
krimman Sexy
Beast með Ben
Kingsley, Ray
Winston, Ian
McShane, Am-
anda Redman
og James Fox.
Segir myndin af uppgjafakrimma,
leikinn af Winston, á Spáni sem dreg-
inn er aftur inn í glæpaveröldina.
Leikstjóri er Jonathan Glazer.
Breskur krimmi
Kingsley
Skífan frumsýnir
nýjustu mynd gamla
hrollvekjuleikstjórans
Johns Carpenters í
nóvember en hún
heitir Ghost From
Mars. Með aðal-
hlutverkin fara Na-
tashia Hendridge og Ice Cube. Í
myndinni hafa jarðarbúar stofnað
nýlendu á mars en svo virðist sem
draugar taki að herja þar á fólk.
Hendridge fer fyrir hópi jarðarbúa
en Cube leikur glæpamann sem
kemur henni til aðstoðar.
Ice Cube í
Carpenter-
mynd.
Draugar á Mars
Hinn 14. sept-
ember frumsýnir
Háskólabíó gam-
anmyndina Down
to Earth með
Chris Rock, Reg-
ina King og Mark
Addy. Leikstjórar
eru Chris og Paul
Wietz en hér er
um endurgerð
Heaven Can Wait
að ræða, sem sjálf
var endurgerð Here Comes Mr. Jord-
an. Maður deyr og fer til himna en
kemst að því að hann átti ekki að
deyja og snýr til jarðar í líkama ann-
ars manns.
Niður af himnum
Chris Rock fer
með aðalhlut-
verkið í Down to
Earth.HVER er galdurinn? Ef-laust skiptir miklu máliað Shrek er framleidd af
DreamWorks SKG, ungu og
metnaðarfullu fyrirtæki þar
sem framsýnir menn sitja við
stjórnvölinn. Framsæknir bylt-
ingarmenn, óbundnir gömlum
hefðum og sögu. Segir ekki
máltækið að nýir vendir sópi
best?
Sá sem hafði yfirumsjón
með gerð Shrek er Jerry Katz-
enberg, fyrrum æðsti maður
teiknimyndadeildar Walt Dis-
ney. Hann veit auðsjáanlega
manna best hvað þarf til að
endurlífga þetta gamalgróna
kvikmyndaform sem farið er
að stirðna í höndunum á Dis-
ney. Sem til skamms tíma hafa
eignað sér það með húð og
hári og haft yfirburðamark-
aðsstöðu í greininni. Reyndar
blésu ferskir vindar um fyr-
irtækið eftir að Katzenberg kom
til starfa, hann bar með sér
nýjar hugmyndir sem nutu sín
best í The Lion King, sem
varð ein vinsælasta teikni-
mynd allra tíma og hvatti önn-
ur kvikmyndaver til dáða. Allir
vildu fá sneið af þessum nýja
gnægtabrunni, ekki síst hinir
framsæknu stjórnarmenn 20th
Century Fox, sem byggðu 100
milljón dala teiknimyndastúdíó
og uppskáru m.a. eina, ágæta
mynd um Anastasiu, sem taldi
sig dóttur Rússlandskeisara.
En mistökin voru geigvæn-
legri, Titan A.E., fokdýr og
vönduð vísindaskáldsögulg æv-
intýramynd, lognaðist útaf í
miðasölunni, þeir hjá Fox
höfðu ekki fundið galdrafor-
múluna. Þar á bæ binda menn
allar vonir sínar við stórvirkið
Ice Age, sem hefur verið lengi
í framleiðslu og kostar stórfé.
Frammistaða hennar að ári,
mun örugglega ráða úrslitum
um framtíð teiknimyndadeild-
ina hjá Fox. Öllu hraklegar fór
fyrir nýstofnuðum teikni-
myndaarmi Warner Bros, þar
hefur hvorki gengið né rekið.
Universal, MGM, Columbia og
Paramount, hafa ekki tekið
umtalsverðan þátt í samkeppn-
inni. Evrópumenn hafa reynt
fyrir sér á þessum markaði og
gengið upp og ofan. Yfirleitt
hefur verið um að ræða blóð-
litlar Disneystælingar, hvorki
fugl né fiskur. Japanir hafa
verið hittnari og notið góðs af
vinsælum tölvuleikjum frekar
en gæðum og framsæknum
hugmyndum.
Það má segja að skugginn af
Walt Disney hafi byrgt öðrum
sýn, það sem aðrir hafa gert
er meira og minna innantómar
eftirapanir, uns Katzenberg tók
til sinna ráða. Reyndar hafði
hann löngu útgefið ævintýri
Williams Steig til grundvallar,
því hefur þó örugglega verið
gjörbreytt af þeim fríða flokki
sem skrifaðir eru fyrir kvik-
myndagerðinni.
Það er einkar ánægjulegt að
sjá að hægt er að gera teikni-
mynd án þess að hún sé um-
vafin þeirri hvimleiðu væmni
og hádramatísku tilfinn-
ingavellu sem jafnan hefur
verið fylgifiskur Disney og
sporgöngumanna hans. Ég
minnist ekki eins, væmins
augnabliks í Shrek, hinsvegar
fullu húsi gesta á öllum aldri,
sem skemmtu sér hið besta.
Hér sigla menn ekki logn-
sléttan sjó heldur velja sér
vandrataðri leið milli skers og
báru. Og koma sigri hrósandi í
höfn.
Framtíð teiknimynda
Reuters
Framtíðin? Úr Shrek, sem framleidd er af DreamWorks SKG, þar sem framsýnir menn sitja við stjórnvölinn.
Um þessar mundir er verið að sýna
bráðhressa, bandaríska tölvuunna
teiknimynd, Shrek, eða Skrekkur.
Hún er ekki aðeins fyndin og frábær
afþreying fyrir alla aldurshópa,
heldur hefur hún alla burði til að
komast á spjöld sögunnar sem tíma-
mótamynd sem breytir og tryggir
framtíð teiknimyndarinnar fyrstu
áratugi nýrrar aldar.
SJÓNARHORN
Sæbjörn Valdimarsson
Skífan frum-
sýnir í október hina
umtöluðu mynd
Moulin Rouge eftir
Baz Luhrman með
Nicole Kidman og
Ewan McGregor í
aðalhlutverkum. Þau leika dansmey
og leikritaskáld sem verða ástfangin
á hinum fræga skemmtistað í París
árið 1899 en hér er um söng-
leikjamynd að ræða þar sem áhersl-
an er á popptónlist okkar tíma.
Rauða myllan
Nicole Kidman
Hollywood
í Prag
Prag er mjög
vinsæl meðal
kvikmynda-
gerðarmanna
frá Hollywood
14 B SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ