Vísir - 18.07.1979, Blaðsíða 2

Vísir - 18.07.1979, Blaðsíða 2
2 VlSIR Miövikudagur 18. júli 1979. Umsjón: Anna Heiður Oddsdóttir og Gunnar E. Kvaran. vel stilltur fiíll og rétt aksturslag getur: Mlnnkað eyðsluna um helming Andrés Karl Sigurður Bergsson, stöðumæla- vörður: Nei og hef aldrei átt. En ég hef gaman að öllum dýrum, svo þvi ekki að fá sér kött? Hafdis óskarsdóttir, verksmiöja- stúlka: Nei. Ég hef átt marga ketti en engan nú, þvi ég hef verið I ferðum erlendis. Ég vildi gjarn- an eiga kött. Bifreiðaiþróttakliibbur HUsa- vikur gekkst um siðustu helgi fyrir rúmlega 300 km löngu ralli um sýsluna. Um 15 rallmenn frá Húsavik, Akureyri, Reykjavik og Keflavik hvöttu þar vélfáka sina sem skeiðuðu áfallalaust Ut keppnina nema hvaö tveir þeirra urðu aö hætta keppni vegna lasleika. Veður var þokkalegt meðan á keppninni stóð, föl enn á jörðu frá þvi deginum áður og breytt- ist jsú. fól f bleytuj sem leysti upp vegina þegar liða tók á dag- inn og ösluðu þvf vélfákar aur og leðju. Skal nú greint frá helstu úrslitum: 1. Hafsteinn Hauksson og Kári Gunnarsson á Ford Escort, 2.19. 2. Hafsteinn Aðalsteinsson og Halldór Úlfarsson á Toyotu sinni á sérleið. SLABB í HÓTELRALLINU / Ólafur Guðmundsson á BMW, þór B. Úlfarsson á Datsun, 4.35. 3.21. 5. Sigurður Grétarsson og 3. Halldór Úlfarsson og Tryggvi Sigurbjörn Björnsson á Ford Aöalsteinsson á Toyota, 4.26. Escort, 4.48. 4. Birgir Þór Bragason og Haf- 6. Ómar Ragnarsson og Jón Ragnarsson á Renault, 5.39. varð Halldór Úlfarsson en I 7. Hermann Jónasson og Stein- flokki bila með vélarstærð grimur Ingason á Saab 96, 5.51. 1600—18 00 varð Hafsteinn Sigurvegari i flokkakeppni Hauksson. I sveitakeppninni bila með vélarstærð 1301—1600 sigraði Bilaryðvörn. — ss — Ef allt er með felldu á billinn hans Andrésar að eyða 9,5 litrum af bensíni á hverja 100 kllómetra sem eknir eru. Andrés býr i þéttbýli og ekur oftast styttri túra. Vélin nær sjaldan að hitna, eyðslan vex um 2.0 lítra á hundraðið. Andrés tekur harkalega af stað og þenur vél bifreiðarinnar að óþörfu, eyðslan vegna þessa er talin aukast um 2.0 litra á hverja 100 km sem eknir eru. Andrés skiptir hvorki um kerti né platinur fyrr en billinn neitar einn góðan veðurdag að fara i gang. Þessi vanræksla er talin auka eyðsluna um sem nemur 0,8 litrum á hverja 100 km. Andrés er ekki að hafa fyrir þvi að auka loftþrýsting i hjól- börðum fyrr en þeir eru orönir mjög vindlitlir. Enn eykst eyöslan um sem nemur 0.5 litr- um á hverja 100 km. Andrés er allan ársins hring með fyrirferðamikla þakgrind á bilnum sem eykur loftmótstöð- una og veldur þvi að billinn eyð- ir 0.2 litrum meira á hverja 100 km. sem eknir eru. Ef við leggjum nú saman all- ar vanrækslusyndir Andrésar sjáum við aö þær kosta hann 5.5 litra af bensini á hver ja 100 ekna kílómetra, sem kostar hreint ekki svo litinn pening. Ef allt er með felldu eyðir bill- inn hans Karls 9.5 litrum af bensini á hverja 100 km. Karl býr I dreifbýli og ekur oftast lengri vegalengdir i einu og þá með jöfnum hraða. Hann forðast að þenja vélina að óþörfu og minnkar eyðsluna um 1.0 litra á hverja 100 km. Með mjúkum og gætilegum akstri tekst honum enn að minnka eyðsluna og nú um 0.5 litra á hverja 100 kilómetra. Karl fylgist vel með ástandi bilsins, og setur hann meðal annars reglulega i vélarstill- ingu-. Með þvi sparast að jafnaði 0,2 litrar á 100 km. Karl gætir að þvi að loftþrýst- ingur i hjólbörðum sé alltaf rétt- ur og er talinn græða á þvi 0,1 litra af benslni á 100 km. akstri. Karl hefur að siðustu látiö setja sérstakan skjöld (spoiler) framan á bil sinn, sem dregur úr loftmótstöðunni. Þannig eru taldir sparast 0,2 litrar til við- bótar á hverjum 100 km. Með útsjónarsemi sinni og réttu aksturslagi hefur Karli tekist að komast niður fyrir meðaleyðslu um sem nemur 2 litrum á hverja 100 kilómetra. Billinn hans eyðir að meðaltali 7,5 litrum á hundraðið á meðan samskonar bill Andrésar eyðir 15 litrum. Þær tölur sem hér eru settar fram eru fengnar með til- raunum sem gerðar hafa verið af sænskum yfirvöldum. — GEK Áttu kött? Guðmundur Andrés Jónsson: Nei, ég hef aldrei átt kött. Mér finnst ekkert gaman að þeim, en ég á páfagauk. Gylfi Arnþórsson, bilstjóri: Nei, ég hef ekki áhuga á þvi. En ég hef gamanaf litlum dýrum. A þóekk- ert gæludýr. leiö Um kvöldið var verðlaunaafhending á Hótel Húsavik og blönduöu þar geði saman keppendur, starfsfólk og umsjónarmenn keppninn- ar auk áhorfenda. Sigurvegarinn Hafsteinn Hauksson beygjuna. Escortinum i eina Karl og Andrés aka bifreiðum af sömu tegund og gerð og jafngömlum. Engu að siður tekst Karli að komast af með næstum þvi helmingi minni bensinnotkun á hvern ekinn kílómetra en Andrés. Hér er það akstursmátinn og ástand bifreiðarinn- ar sem mestu máli skiptir. Nú þegar verðið á hverjum bensinlitra er kom- ið i 312 krónur er kannski ekki úr vegi að lita ögn nánar á hvernig þessi mikli munur er til kominn. Ef til vill getum við dregið einhvern lærdóm af þvi. Með þvi að fylgjast vel með að loftþrýstingur I hjólbörðum sé alltaf réttur má stuöla að minni eyðslu. Asdis Sverrisdóttir, simastúlka: Nei,og langar ekki til þess. Kettir eru mjög tilgangslaus dýr og auk þess óþrifnaður af þeim.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.