Vísir - 18.07.1979, Qupperneq 23
Otvarp (kvðld kl. 21.25
ÍÞRÚTTIR
Bláskðgaskokk
„Ég mun fjalla mikið um fjöl-
skyldutrimm sem veröur um
næstu helgi, en það er Bláskóga-
skokkið”, sagði Hermann Gunn-
arsson i samtali viö Visi. „Hlaup-
ið verður frá -Þingv§llum og að
Laugarvatni. En það sem ég tek
fyrir eru upplýsingar um Utbilnaö
og fleira tengt þessu hiaupi”.
„Síðan ætla ég að reyna að ná i
K.R.-ing og spjalla viö hann um
hvernig það sé að sjá liðiö tróna i
efsta sætifyrstudeildari fótbolta.
Og einnig mun ég reyna að ná i
kvenmann úr kvennafótboltanum
iþáttinnen þær hafa oröiö nokkuð
útundan i sumar”.
Greint verður frá mikilli úti-
hátið Vikings viö Kolviöarhól um
næstu helgi. Þar veröur margt til
skemmtunar og gefst almennum
borgurum þar kostur á þvi aö
reyna að skora hjá þeim Bodan og
Öla Ben.
Að lokum þá veröur rætt við
Stefán Jóhannsson, þjálfara
landsliösins í frjálsum iþróttum,
enliöiðheldurbráölega til Boda i
Norður-Noregi þar sem Kalott
keppnin fer fram i ár. Þetta er
eina frjálsiþróttakeppnin sem við
eigum möguleika á að sigra og
ætlar Stefán að segja hlustendum
hvernig farið veröur að þvi. Og I
framhaldi af þvi verður hann
spuröur um æfingar og þjálfun
landsliösins yfirleitt.
„Timinn er allt of stuttur og
þátturinn hörkuspennandi frá
upphafi til enda”, sagöi Hermann
að lokum.
ðtvarp (kvöld kl. 22.50
svöri tðniist
Charles Mingus og Macoy Tyner
Hermann Gunnarsson.iþróttafréttaritari Ctvarpsins.
Meðal efnis i þættinum i kvöld
verða spiluð lög með þeim
Charles Mingus og Macoy Tyner.
„Það er nýkomin út plata með
þeim Mingus og Joni Mitchell”,
sagöi Asmundur Jónsson er blm.
ræddi við hann um þessa tvo
djass-listamenn. „Tónlistin er
eftir Mingus en ljóöin eru eftir
Mitchell”.
Mingus lést í janúar sl.
Skömmu áður kom Ut siðasta
piatan sem Mingus gaf út undir
sinu eigin nafni en þaö er platan
„Myself andEye”en hannspilaöi
ekki sjálfur á plötunni þar sem
hann var lamaöur siðustu mánuö-
ina sem hann liföi.
„Það má segja að hann sé einn
1
af Be-Bop listamönnunum sem
komuupp á fimmta áratugnum”,
sagöi Ásmundur. „Þó var hann
ekki eins þekktur og þeir Charlie
Parker og Dizzy Gillespie sem
voru aöalnöfn þessarar stefnu.
Mingus varö þekktur á fyrri-
hluta sjötta áratugsins og það má
segja að hann hafi fram á þennan
dag veriö brautryðjandi i leik sin-
um, útsetningum og tónsmiöum”,
sagði Asmundur.
Macoy Tyner er yngri á
djass-sviðinu. Hann vakti fyrst
athygli er hann spilaöi með John
Coltrane á árunum ’60 til ’65, en
siöan gaf hann Utfjölda af plötum
hjá Blue Note fyrirtækinu.
Tyner hefur á seinni árum
t Svartri tónlist i kvöld verða m.a. spiluð nokkur lög með bassaleikar-
anum Charles Mingus.
skapað sér nafn sem fremsti
pianóleikari djassins. Hann hefur
ávallt verið ofarlega á listum
blaða eins og Down Beat.
„Tónlist Tyners ber sterk ein-
kenni þess tima sem hann starf-
aöi með Coltrane. Einnig sækir
hann mikið efniviö sinn til þjóð-
lagatónlistar -ýmissa landa, en
hann spilar m.a. á hið japanska
strengja-hljóðfæri Koto”, sagði
Asmundur að lokum.
Umsjónarmenn þáttarins eru
þau Gerard Chinotti og Jórunn
Tómasdóttir.
útvarp
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Korriró” eftir Asa i Bæ
Höfundur les (3).
15.00 Miðdegistónleikar.
Pierre thibaud og enska
kam mers vei tin leika
Trompetkonsert I Es-dúr
eftir Johann Nepomuk
Hummel: Marius Constant
stj. / John Wilbrahm og
Philip Jones leika
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn: Halldór
Gunnarsson kynnir.
17.20 Litli barnatiminn.
Afram gakk, hlaup og hjól
Umsjónarmaöur: Steinunn
. Jóhannesdóttir. M.a. lesið
úr Linu langsokk eftir
Astrid Lindgren i þýöingu
Jakobs Ó. Péturssonar og
talað viö Þór Vigfússon.
17.40 Tónleikar.
18.00 Viðsjá. Endurtekinn
þáttur frá morgninum.
18.15 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Frettaauki. Til-
kynningar.
19.35 Samleikur I útvarpssal:
Erling Blöndal Bengtsson
og Arni Kristjánsson leika
Sónötu arpeggione i a-moll
eftir Franz Schubert.
20.00 Töfrandi tónar. Jón
Gröndal kynnir 3. þátt sinn,
timabil stóru danshljóm-
sveitanna 1936— 1946
20.30 Útvarpssagan: „Trúð-
urinn” eftir Heinrich Böll
Franz A. Gislason les þýð-
ingu sina (5).
21.00 Leikiö á tvö pianó: Gisli
Magnússon og Halldór Har-
aldsson leika „Vorblótið’
eftir Stravinski.
21.40 „Veturinn sem var hér i
fyrra. . ."KristjánK. Linn-
et les frumort ljóö.
21.45 tþróttir Hermann Gunn-
arsson segir frá.
22.05 Aö austan. Birgir
Stefánsson kennari á Fá-
skrúðsfirði segir frá.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Svört tónlist. Umsjón:
Gerard Chinotti. Kynnir^
Jórunn Tómasdóttir.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Blaðasnápur var að hnýta I það að Carter leitaði ráða hjá Rósalynn,
þegar allt var komið i hönk hjá honum og Benedikt hraðaði sér út til
tengdamömmu I Ameriku.
Carter forseti Bandarikjanna
tiikynnti ráðstafanir sinar i
orkumáium I á hrif am ikilli
ræðu. Aður hafði hann haldið
þjóðinni i spreng og spenningi i
hálfan mánuð, þvi boðskapnum
hafði skyndilega verið frestað án
skýringa. Rétt áöur en Carter
ætlaði á skerminn þá, varð hon-
um ljóst að orkuræðan góða var
gjörsamiega kraftlaus og von-
leysi þjóðar hans o'g panik yröi
enn meiri eftir ræðuna en fyrr.
Hann kvaddi þvi hvorki kóng
eða prest en rauk upp i sveit til
að hugsa máliö. Þar hefur
Bandarikjaforseti dálltinn kofa
sem hann getur dvalið i ró og
næði með hundrað manna
starfslið og notið einverunnar.
Reyndar var forsetinn ekki
alveg einn I einverunni. Sér-
fræðingum og áhrifamönnum,
jafnt veraldlegum sem andleg-
um var flogið meö þyrlum og
flugvélum eða ekiö I stórbílum
upp að kofanum og eftir stutt
spjall burt aftur. Ekki bar á
orkusparnaði við þær tilfær-
ingar. Sögðu kunnugir að asinn
á þessum spekingum hafi verið
mikill og sennilega hefur ekki
verið minni sláttur á þeim en
Inga R. Heigasyni þegar hann
hleypur á milli mennta-, viö-
skipta-, og iðnaðarráðuneyt-
anna og siðan út i heim og heim
aftur. Að vlsu varð niöurstaöan
hjá Carter viðameiri en sú að
lækka tolla á reiðhjólum án
varahluta enda landið og leið-
toginn stærra i sniðum en strák-
arnir hjá Inga.
Þaö er hins vegar athyglis-
vert, að blöð og blaöalesendur i
Ameriku furða sig á þegar leiö-
toginn tekur sér hálfan mánuö
til að gaumgæfa stærstu mál.
Hér hjá okkur þá eru þeir að
gaufast með hvert smámáliö
vikum saman, þótt Ingi R. hlaupi
og hlaupi og Gvendur hámi i sig
pylsurnar. tslenska rikisstjórn-
in siæst núna vegna þess að
Alþýðubandalagiö vill vera vin-
ur alþýðunnar og tekur ekki I
mál að vöruverö hækki vegna
söluskatts en krefst þess að það
hækki jafn mikiö vegna aukinna
tolla. Slik umræða er ekki siöur
merk en að ræða t.d. hvort ekki
sé gustuk aö slátra fé fremur
með haglabyssu en kindabyssu.
En þótt umræðan sé að sönnu
merk er hætt viö að rollan geri
tiltölulega litinn mun á niður-
stöðunni, eftiraðhún erkomin á
færibandakrókinn. En um þetta
geta þeir þó fjallað lengi I rlkis-
stjórninni enda ekki alls varnaö.
Einhver blaðasnápur hjá
Observer var að hnýta I það aö
Carter leitaði ráða hjá frú Rósa-
lynn er allt var komið I hönk hjá
honum. Bað hann lengstra orða
um aö dóttur þeirra hjóna, Amy
tiu ára, yrði ekki blandað I mái-
iö. Er óskiljanlegt hvað maöur-
inn hefur á móti blessuöu barn-
inu á barnaárinu. t þessum efn-
um er sama hvaban gott kemur.
Það veit islenska þjóðin vel.
Enda metur hún það frumkvæði
Benedikts Gröndals formanns
Alþýðuflokksins að hraða Sér út
til tengdamömmu þegar að okk-
ur þrengir hér heima, og leita
hennar ráða og aðstoðar. Varla
gefast hennar ráö verr en Jóns
Sigurðssonar sem veriö hefur
jafn lengi hjá Þjóðhagsstofnun
og óðaverðbólgan á tslandi.
— Svarthöfði